Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1994, Blaðsíða 4
26 FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1994 I.l@nlist Þrírafmörgumlistamannannaáplötunni,Sennkomajólin,BjörgvinHalldórsson,SigríöurBeinteinsdóttirogStefánHilmarsson. _____________________________:_______________ 'pKDtugagnrýni ► T4 Collective Soul - Hints, Allegations and Things Left Unsaid ★ ★ ★ Leynir á sér Collective Soul leynir svolítið á sér. Tónlistin hefur yfirbragð söluvamings og virðist við fyrstu sýn átakalítil og grunn. En það er þúki í hljómsveitarmeðlimum, sem kemur öðru hveiju upp á yfirborðið. Þeir hafa þó stjóm á honum og lagasmíðar plötunnar em óneitanlega sterkar. Ballöður em algengastar, en þeim tekst að tempra væmnina með aggressífum gíturum. Sumar tónsmíðamar em nánast illgjamar og brjóta upp mynstrið á plötunni. Collective Soul er fimm manna hljómsveit, sem m.a. inniheldur þrjá gítarleikara, en gítaramir era einmitt sterkasta vopn hljómsveitarinnar, notaðir fagmannlega og áhrifaríkt. Platan hefur raunar mjög fagmannlegt yfirbragð, er vel unnin og hljóðfæraleikur allur mjög góður. Ed Roland semur lögin og syngur. Ekki er hægt að tala um sérstakan söngstíl hjá honum, því hann sveiflast milli mismunandi áhrifavalda á því sviði. Best kemur það út þegar hann stælir Lloyd Cole í In a Moment. Þama má lika greina Lenny Kravitz og jafnvel örlítið af Bob Dylan, svo sjá má að flóran er fjölbreytileg. Scream er besta lag plötunnar, en þar varpa þeir popphamnum alveg fyrir róða og flippa út í hröðu rokklagi með góðum texta, söng og gitarleik. Shine er einfalt lag með einföldum texta og hittir vel i mark. Wasting Time er einhver besta ballaða sem ég hef heyrt, vel útfærð með góðum texta. Love Lifted Me er bassa- og trommulag, minna fer fyrir gítarleik, og lagið virkar jafiivel svolítið illgimislega. Önnur eftirminnileg lög em In a Moment og Breathe. Pétur Jónasson Green Day- Dookie ★ ★ ★ Of einhæft Það þarf ekki að hugsa sig lengi um til að finna út uppáhaldshljómsveit meðlima Green Day. Strax í Bumout, fyrsta lagi plötunnar Dookie, kemur Pictures of Lily upp í hugann og andi The Who heldur áfram að svífa yfir vötnum næstu lögin og raunar plötuna út í gegn. Það er kannski helst gitarleikurinn sem minnir á gömlu kallana í The Who, hljómamir barðir með þessum aggressífa áslætti sem Pete Townsend var alræmdur fyrir. Því fer þó fjarri að meðlimir Green Day séu jafh villtir og lærifeður þeirra vom og auðvitað er meira í plötuna spunnið en svo að hún sé bara nostalgíudrykkur fyrir þyrsta hippa. Góðu fréttimar era þær að Green Day spilar hraða rokktónlist í ágætis gæðaklassa og þar að auki hýr platan yfir feikna góðum textum þótt þeir snúist að mestu um þessar venjulegu hassistapælingar um leti, leiðindi og einmanaleika. Slæmu fréttimar em þær að það vantar allan metnað í gripinn. Tónlistin slær mann ekkert eins og góð rokktónlist á að gera því lögin era flestöll keimlík og platan í heild svo einhæf að erfitt er að taka einstök lög út. Þetta sést kannski einna best á því að besta lag plötunnar er aukalag sem ekki er einu sinni minnst á á plötuumslaginu. Ef þú bíður ca. eina og hálfa minútu eftir að lokalaginu lýkur færðu að heyra örstuttan lagstúf með stórskemmtilegum vitleysistexta. Besta „opinbera" lagið á plötunni er Long View, en þar halda þeir Who-töktunum í skefjum og í staðinn kemur léttbilað bassaflipp og letilegur söngur a la The Fall. Annars em flest lögin svona um og rétt fyrir ofan meðallag en textamir bjarga því sem bjargað verður. Pétur Jónasson Sugar-File Under: Easy Listening ★ ★ ★ Spekinga- rokk Framsækin rokktónlist er á upp- leið þessa dagana og mikið framboð af hljómsveitum sem aðhyllast slíka tónlistarstefnu. Sugar er grein af þessum meiði og hefur þróað tónlist- ina í átt að gáfumannapoppi, með mýkri laglínum og aukinni notkun órafmagnaðra gítara. Hljómsveitin er tríó, skipað þremur mönnum frá Austin í USA. Malcolm Travis er á trommunum og David Barbe sér um bassann og raddir. Þeir skila sínu hlutverki og er ekki neitt að finna að hljóðfæraleik á plötunni. En aðalmaðurinn er Bob Mould. Hann spilar á gítar og syngur í míkrafón og semur öll lögin sjálfur, nema eitt, aðeins eitt (eins og segir í klassísku dægurlagi), og sér þar að auki um upptökustjóm. Bob Mould er greinilega mikill spekingur. í heimspekilegum textum plötunnar filósóferar hann um lífið og tilveruna og má oft hafa glettilegt gaman af hans sérstöku viðhorfum og hugleiðingum sem oft em létt háðskar og nálgast gjaman viðfangsefnin frá óvenjulegum sjónarhomum. Stundum getur þó verið erfitt að gera sér grein fyrir því hvaö maðurinn er aö fara. Hann stýrir upptökum styrkri hendi. Platan er mjög jöfn að gæðum, hvergi veikan punkt að finna. Það em engin léleg lög á þessari plötu en því miður vantar toppana líka. Gee Angel og Granny Cool skera sig þó nokkuð úr og Gift og Can’t Help You Anymore em einnig eftirminnileg. Nafh plötunnar er öfugmæli því að tónlist sem þessi krefst virkrar hlustunar til að hennar verði notið sem best. Pétur Jónasson jólin - ný jólaplata „Senn koma jólin“ er sannmæli hljómplötuútgáfunnar Spors hf. fyrir þessi jól. Þessi nýja jólaplata inniheldur 10 erlenda jólasmelli og 1 nýjan íslenskan eftir Þorvald Bjama Þorvaldsson sem einnig tók að sér að útsetja þessa nýjustu viðbót í jóla- plötusafnið. Markmið Þorvaldar var að gera ekki niðursoðna tölvupopps- jóla- plötu heldur að hafa sem mest lifandi flutning á lögunum. Til verksins fékk hann með sér Ólaf Hólm á trommur, Eið Arnarsson á bassa, Mána Svavarsson á hljómborð og Kjartan Valdimarsson á harmóníku. Ari Einarsson sér síðan um útsetningu á laginu „Þegar þú birtist" sem Margrét Eir syngur. Landslið söngvara Til þess að jólalögin falli vel í kramiö hjá landanum vom fengnir landsins bestu söngvarar til verks- ins. Sigríður Beinteinsdóttir syngur eina íslenska lag plötunnur sem er samið af Þorvaldi Bjama. Lagið er titillag plötunnar og heitir „Senn koma jólin“. Andrea Gylfadóttir syngur þrj ú lög á plötunni. Fyrst má telja lag sem var gefið út í fyrra, eftir Gloriu Estefan og heitir nú „Ég óska mér jól ein með á markaðnum þér“ þar að auki syngur hún sígildu lögin „Litla jólabam" og „Drengur Maríu“. Helga Möller syngur lagið „Jólin þín og mín“ og Laddi syngur lagið „Bráðum koma jólin á ný“. Á 25 ára starfsafmæli kappans er við hæfi að hann syngi að minnsta kosti tvö lög. Björgvin Halldórsson syngur lögin „í húsinu er hátíð“ eftir Neil Diamond og „Jólafriður" eftir Harry Connick Jr. Stefán Hilmarsson syngur gamalt þjóðlag sem heitir „Líður að jólum" og eins og áður segir syngur Margrét Eir lagið „Þegar þú birtist" eftir Mél Torme og Robert Wells. Jóla, jóla... Eins og áður segir er það Þorvaldur Bjarrii Þorvaldsson sem útsetur plötuna. Að hans sögn styðst hann mikið við upprunalegar útsetn- ingar enda mikið af nýjum erlendum lögum sem þama er að finna. Það var Hinrik Bjamason sem sá um þýðingu og staðfæringu á flestum textum plötimnar. Eins og sjá má er þarna valinn maður í hveiju rúmi og því má ætla að platan verði kærkominn viðauki í jólaplötusöfn um land allt. -GBG Fyrir þessi jól kemur loks út jólaplata með Mariah Carey en þessi unga söngkona hefur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna. Mariah Carey syngur þekkt jólalög Fyrir þessi jól kemur loks út jólaplata með Mariah Carey. Þessi unga söngkona hefur sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna og er þess styst að minnast þegar hún söng gcúnla Harry Nilson lagið, Without You. Platan heitir Merry Christmas og á henni er aö flnna mörg þekkt jólalög í í flutningi Carey. Þetta em lög eins og: Silent Night, All I Want for Christmas Is You, 0 Holy Night, U2 lagið Christmas (Baby Please Come Home), Miss You Most, Joy to the World, Jesus Bom on This Day, Santa Claus Is Coming to Town, Hark! The Herald Angeis Sing/Gloria (In Excelsis Dea), Jesus Oh What a Wonderful Child og God Rest Ye Merry Gentlemen. Platan er útgefm af Columbia-fyrirtækinu og er komin í hljómplötuverslanir. -GBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.