Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1994, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1994
29
Hljóinföng
Ýmsirflytjendur:
Fagurt syngur
svanurinn
Hér er á ferðinni tvöföld geislaplata
með nærri 60 einsöngslögum frá
ýmsum tímum eftirfjölmörg af okk-
ar þekktustu tónskáldum. Um flutn-
ing laganna sáu Garðar Cortes, Jón-
as Ingimundarson, Kolbeinn Ketils-
son, Kristinn Sigmundsson, Rann-
veig Bragadóttir, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Sólrún Bragadóttir og Sverrir
Guðjónsson. Veglegur bæklingur
með texta laganna og kynningu á
listafólkinu fylgir plötunum og er
hann bæði á íslensku og ensku.
Gerðuberg/Japis,
Verð: 2.499 kr.
Guöný Guömundsdóttir
og Peter Máté:
Edward Grieg
Hér flytja þau Guðný Guðmunds-
dóttir og Peter Máté þrjár sónötur
fyrir fiðlu og píanó eftir norska tón-
skáldið Edward Grieg. Guðný hefur
um lang skeið verið meðal þekktustu
tónlistarmanna á íslandi. Hún hefur
verið konsertmeistari Sinfóniu-
hljómsveitar íslands frá 1974 en verið
mjög virk sem einleikari og í kamm-
ertónlist bæði heima og erlendis.
Guðný hlaut Menningarverðlaun DV
1991. Guðný hóf samstarf við Tékk-
ann Peter Máté 1992 og hafa þau
haldið fjölda tónleika síðan.
Japis.
Verð: 1.999 kr.
Kveldúlfskórinn:
Árin með Imbu
Kveldúlfskórinn í Borgamesi hefur
nú starfað í tíu ár. Hann var stofnað-
ur að frumkvæði Verkalýðsfélags
Borgamess og Björns Leifssonar sem
stjórnaði honum fyrsta árið. Þá tók
við stjórninni Ingibjörg Þorsteins-
dóttir og hefur hún stjómað kómum
síðan. Á þessari plötu má hlýða á
lögin Borgames, Svanurinn, Ég beið
þín lengi, lengi, Þú hljóða nótt, Váren
og Locus iste. Um Píanó og orgelleik
í nokkrum lögum sér Jerzy Tosik-
Warszawiak. Hljóðritun fór fram í
Borgameskirkju.
Kveldúlfskórinn
Verð: 1.999 kr.
Tj arn ark vartetti n n:
Tjarnarkvartettinn
Tjarnarkvartettinn úr Svarfaöardal
flytur hér 22 íslensk og erlend lög.
Þar má nefna lög eins og Einu sinni
á ágústkvöldi, Hún móðir mín, Þú
ert, Næturljóð, Sofðu unga ástin mín,
Moon River, Come Again o.fl. Tjarn-
arkvartettinn skipa þau Hjörleifur
Hjartarson, tenór, Kristján E. Hjart-
arson, bassi, Kristjana Amgríms-
dóttir, alt, og Rósa Kristín Baldurs-
dóttir, sópran. Þjálfari kvartettsins
er Gerrit Schuil. Hljóðritun fór fram
í Fella- og Hólakirkju.
Friðrik Friöriksson/Skifan.
Verð: 1.999 kr.
j Picl i/f-3
V-Ja: 1 DPITIh
CD-23U STEHK)
AN ANTHOLOGY OFICELANDIC CHOIR MUSIC
Kóf Langholtskirkju conductcd by Jón Stcfinsson
ji
A BIS original dynamics recording
Kór Langholtskirkju:
Úrval íslenskra
kórverka
Á þessari plötu, sem ber enska heitið
An Anthology of Icelandic Choir
Music, syngur Kór Langholtskirkju
úrval íslenskra kórverka eftir eldri
höfunda jafnt sem nútímatónskáld.
Stjórnandi kórsins er Jón Stefáns-
son. Hér er um endurútgáfu að ræða
á plötu sem kom út á vinyl 1983.
Sungin eru verk eftir Jón Ásgeirs-
son, Hallgrím Helgason, Atla Heimi
Sveinsson, Þorkel Sigurbjömsson,
Jón Leifs, Sigfús Einarsson, Gunnar
Reyni Sveinsson, Sigfús Sigfússon
o.fl.
BlS/Japis.
Verð: 1.499 kr.
Diddú:
Töfrar
Á þessari plötu singur Diddú, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, mörg uppáhaldslög
sín í gegn um tíðina og þræðir þar
milliveg milli klassískrar tónhstar
og léttari sönglaga. Undirleik annast
Sinfóníuhljómsveit íslands undir
stjóm Roherts Stapleton auk nokk-
urra annarra hljóðfæraleikara. Með-
al þrettán laga á plötunni eru Heyr
mína bæn, Þitt fyrsta bros eftir
Gunnar Þórðarson, ísland eftir Jó-
hann G. Jóhannsson, La Danza eftir
Rossini, By Strauss eftir Gershwin-
bræður og suður-ameríska lagið Qu-
ando, Quando, Quando.
Skífan.
Verð: CD 2.199 kr./snælda 1.599 kr.
Kór Átthagafélags
Strandamanna:
Smávinir fagrir
Hér flytur Kór Átthagafélags
Strandamanna 24 sönglög undir
stjórn Erlu Þórólfsdóttur. Kórinn
hefur starfað frá 1958 en Erla hefur
stjórnað honum undanfarin ellefu ár.
Einsöngvarar á plötunni eru Aöal-
heiður Magnúsdóttir, Ármann Óskar
Sigurðsson, Gunnar Jónsson, Sig-
mundur Jónsson og Björgvin Hall-
dórsson. Um píanóleik sjá Laufey
Kristinsdóttir, Pavel Smid og Erla
Þórólfsdóttir. Upptökur fóra fram í
Víðstaðakirkju sl. vor.
Kór Átthagafélags Stranda-
manna/Japis.
Verð: 1.999 kr.
Leikbræður:
14 lög
Söngkvartettinn Leikbræður, sem
stofnaður var árið 1945, var skipaður
þeim Gunnari Einarssyni, fyrsta te-
nór, Ástvaldi magnússyni, öðrum
tenór, Torfa Magnússyni, fyrsta
bassa, og Friðjóni Þórðarsyni, öðrum
bassa. Voru það ekki síst snjallir
textar Friöjóns sem áttu þátt í vin-
sældum kvartettsins. 1977 var gefin
út plata með gömglum upptökum
Leikbræðra en þær voru mjög mis-
jafnar aö gæðum. Nú hefur Spor hins
vegar lagfært þessar gömlu upptökur
og gefið þær út í breyttri röð á
snældu. í ráði er að gefa lögin út á
geislaplötu á næsta ári en þá eru hð-
in 50 ár frá stofnun Leikbræðra.
Spor
Verð: 1.199 kr.
NAMINNI
Kirkjukór Akraness:
Vinaminni
Kirkjukór Akraness hefur gefið út
sína fyrstu geislaplötu. Á henni em
20 lög, bæði trúarlegs og veraldlegs
eðhs. Upptökur vom gerðar í þremur
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu fyrir
um ári: Landakotskirkju, Fellakirkju
og Víðistaöakirkju.
Kirkjukór Akraness.
Verð: 1.999 kr.
Ýmislegt
Grettir Björnsson
Vor viðsæinn
Unnendur gömlu dansanna ættu að
kætast við þessa plötu þar sem Grett-
ir Bjömsson harmóníkuleikari tekur
vinsæl lög eins og Austfjarðaþokuna,
Á kvöldvökunni, Litlu stúlkuna auk
valsasyrpa og sveiflusyrpa. Um um-
sjón, útsetningar og undirleik sér
ÞórirBaldursson.
Skífan.
Verð: CD 1.999 kr./snælda 1.499 kr.
Sveinbjörn Beinteinsson:
Edda
Vönduð viðhafnarútgáfa þar sem
upplestur Sveinbjörns Beinteinsson-
ar á Eddukvæðunum og hans eigin
kveðskap er á tveimur geislaplötum.
Vandað textarit á fjórum tungumál-
umfylgir.
Smekkleysa/Japis.
Verð: 3.999 kr.
Ýmsirflytjendur:
Hárið
Söngleikurinn Hárið sló rækilega í
gegn í húsi Óperunnar á þessu ári
og gekk fleiri mánuði fyrir fullu húsi.
Geislaplata með tónlist og söngvum
úr þessum víðfræga söngleik varð
ekki síöur vinsæl. Á henni má heyra
öh lögin úr söngleiknum flutta af lei-
kumm við undirleik hljómsveitar
sem sérstaklega var stofnuð í kring
um Hárið.
Flugfélagið Loftur hf.
Verð: 1.999 kr.
ori (tarantella), Vöggukvæði (begu-
ine) og Hvert örstutt spor (reggae).
Aðrir hljóðfæraleikarar á plötunni
eru Ólafur Gaukurá gítar, Jón Sig-
urösson á bassa, Guðmundur R. Ein-
arsson á trommur, Reynir Sigurðs-
son á víbrafón og marimba og Pétur
Hjaltested, forritun og hljómborö.
Bragi Hlíöberg/Japis.
Verð: 1.999 kr. CD/1.499 kr. snælda.
Þorsteinn Ö. Stephensen:
Ljóð og saga
Á þessari plötu er brugðið upp syip-
myndum af ferli hins kunna úlvarps-
og leikhúsmanns sem var fastagestur
á heimilum landsins um áratuga-
skeið. Upptökurnar spanna 30 ár og
efnið er eftir marga okkar helstu
höfunda; Jónas Hallgrímsson, Gunn-
ar Gunnarsson og Stein Steinarr.
Japis.
Verð: 1.999 kr.
Ql/ffi Ægisson oíj
Sefma íHrönn 'Maríudóltir
(cika jó(a(öjj á Íiannonik&ur
Gylfi Ægisson og Selma
Hrönn Maríudóttir:
í jólaskapi
Gylíi Ægisson og Selma Hrönn leika
hér mörg þekkt og sígild jólalög á
harmoníkur. Samvinna þeirra er
með þeim hætti að önnur harmonik-
an tekur laghnuna meðan hin
„skreytir" undir. Platan er ífjömgra
lagi en meðal laga em Ég sá mömmu
kyssa jólasvein, Rokkað í kring um
jólatréð, Jólasveinninn minn, Jóhn
koma, Klukknahljóm og Hvít jól.
Hijómplötuútgáfan Tónaflóð.
Verö:999kr.
H
Bragi Hlíöberg:
í léttum leik
í léttum leik er þriöj a plata Braga
Hhðberg. Bragi leikur hér lög eins
og Ágústnótt (samba), Vorgleði
(vals), Spring Caprice (vals), Bel Fi-
Ýmsirflytjendur:
íslandsklukkur
Á þessari plötu er að flnna úrval sí-
gildra íslenskra ætljarðarlaga, söng-
laga og nýrra laga en hún er gefin út
í tilefni af 50 ára afmæh lýðveldisins.
Meðal söngvara á plötunni eru Berg-
þór Pálsson, Egih ðlafsson, Eggert
Pálsson, Kristjana Stefánsdóttir,
Magnús Þór Sigmundsson, Ragnar
Davíðsson, Sverrir Guðjónsson,
Steinunn Óhna Þorsteinsdóttir, Vo-
ices Thules, Ragnar Davíðsson, Eg-
gert Pálsson, Sigurður Halldórsson
og Guðlaugur Viktorsson.
MR/Japis.
Verð: 1.999 kr.
ÍSIANDSKLUKXUR