Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1994, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
30
Minningar 3
- dægurperlur í nýjum búningi
Söngvarar á plötunni eru ekki af verri endanum. Aðalsöngvarar eru: María Björk,
Egill Ólafsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Erna Gunnarsdóttir og gestasöngvari er
Björgvin Halldórsson.
Út er komin geislaplatan Minn-
ingar 3. Hún inniheldur 12 dægur-
perlur í nýjum útsetningum Péturs
Hjaltested. Það er María Björk sem
á grunnliugmyndina og sá um efhis-
val. Á plötunni er að finna lögin:
Bláu augun þín, Vininn, Hún hring
minn ber, Suður um höfin, Sem
lindin tær, Draumalandið, Brúna-
ljósin brúnu, Áður oft ég hef, Hvar
ert þú? Að kvöldi dags, I draumi og
Þetta fagra land.
Söngvarar á plötimni eru ekki af
verri endanum. Aðalsöngvarar eru:
María Björk, Egill Ólafsson, Guðrún
Gunnarsdóttir, Ema Gunnarsdótth'
og gestasöngvari er Björgvin HaU-
dórsson en hann hefur haft nóg að
gera á 25 ára starfsafmælinu. Hljóð-
færaleikarar eru: Gunnlaugur
Briem (trpmmur/ásláttarhljóðfæri),
Jóhann Ásmundsson (bassi), Þor-
steinn Magnússon (gítar), Kristinn
Sigmársson (pedalgítar), Tryggvi
Hubner (klassískur gítar) og
Sigurður Flosason (saxófónn/
flauta). GBG
Quicksand Jesus er hljómsveit á hraðri uppleið.
Fyrsta plata Quicksand Jesus:
Tekin upp á þremur sólarhringum
Þeir eru fjórir og heita: Finni
(söngur), Amar (bassi), Franz (gítar)
og Dabbi (trommur). Saman skipa
þeir hljómsveitina Quicksand Jesus.
Hvort þeir eru óstýrilátir? Aðeins, en
eftir eins árs samveru í hljóm-
s veitinni fannst þeimtímitilkominn
að láta heyrast aðeins i sér. Þeir kom
ust hins vegar að því að ungar sveit
ir eiga erfitt uppdráttar í íslensku
tónlistarlífi.
Plötuupptökur
hófust...
... 7. september á þessu ári og þeim
var lokið þremur sólarhringum síð-
ar. Útkoman er 17 laga plata sem
lýsir því betur hvað hljómsveitin var
að pæla fyrir ári síðan heldur en því
sem hún er að gera nú. „Lögin em
meira og minna eins árs gömul,“ seg
ir Finni, „þetta er ekki það sama og
við erum að fara gera á næstunni."
Platan var tekin upp „live“ til að
ná hinum eina sanna tónleikafíling.
„Við þolum ekki að fara á tónleika
og heyra í allt annarri hljómsveit en
við vorum að hlusta á heima hjá
okkur rétt áður.“ Platan heitir The
More Things Change, the More They
Stay the Same.
Fara ótroðnar slóöír
Til þess að selja plötim verða menn
að auglýsa sig og þar hefúr hljóm-
sveitin rekið sig á veggi. „Það er
ómögulegt að komast í sjónvarpið
nema í gegnum einhverja klíku,“
segir Finni. „Það eru alltaf sömu
gömlu hljómsveitimar sem komast
að. Ég skil ekki til hvers er verið að
hvetja imgu sveitimar til dáða þegar
það er síðan ekkert pláss fyrir okkur
á markaðnum. Við viljum nú samt
þakka Magnúsi R. Einarssyni á rás 2
veittan stuðning."
Til þessa hefur hljómsveitin þurft
að fara ótroðnar slóðir í markaðs-
setningu, t.d. með óleyfilegri upp-
troðslu í miðbæ Reykjavíkur og hún
hefúr fengið kaldar kveðju frá ýmsu
fjölmiðlafólki.
„Maður verður að hafa trú á því
sem maður er að gera og við höfúm
trú á okkur. Fram undan er hring-
ferð með Jet Black Joe og Dos Pil-
as,“ segir Finni.
Hann segir mikinn misskilning
vera í gangi um ríg á milli þessara
sveita.
„Við erum perluvinir, enda höfum
við allir spilað einhvem tíma áður
sarnan." Aðalmarkmið sveitarinnar
á komandi ári er þó að aðstoða við
eflingu tónlistarlífs í landinu.
„Við þurfúm fleiri ungar sveitir,
annars stöndum við frammi fyrir
algjörri stöðnun," segir Finni.
Við vonum allavegana að viðtökur
fjölmiðla verði betri næst. Quicksand
Jesus er nefnilega hljómsveit á
hraðri uppleið.
GBG
V
Nýútkominn geisladiskur:
Ævintýri Gljúfrabúanna
-söng- og barnaleikrit
Út er komið á geisladiski söng- og
bamaleikritið Ævintýri Gljúfrabú-
anna. Söngtextar eru eftir Benóný
Jónsson, Ásmund Örnólfsson og
Lúfu sem jafnffamt samdi öll lögin.
Fjölmargir þekktir leikarar koma
við sögu í verkinu en með helstu
hlutverkin fara Flosi Ólafsson,
Erlendur Eiríksson, Sigríður
Hannesdóttir, Benedikt Ámason og
Edda Heiðrún Backman. Benedikt
fer með hlutverk sögumannsins,
Erlendur er Gljúfrapabbi, Sigríður
fer með hlutverk kattarins, Edda
Heiðrún er Gljúframamma og Flosi
Ólafsson er afi.
Upptökur og hljóðblöndun fóru
fram í hljóðveri Rauða dregilsins.
Ævintýri Gljúfrabúanna er komið út á
geisladiski.
pl^tugagnrýni
►T4
Bubbi - Blús fyrir Rikka
★ ★
Barn síns tíma
Bubbi Morthens lætur meira að
sér kveða en aðrir tónlistarmenn
fyrir þessi jól, rétt eins og mörg hin
fýrri. Ekki er hann aðeins með sölu-
hæstu plötuna í lokaslagmun. Hann
syngur líka á hljómleikaplötu Utan-
garðsmanna og einnig hafa verið
endurútgefnar tvær af eldri plötum
hans, Dögun og Blús fyrir Rikka.
Síðastnefnda platan er reyndar
tvöfold eins og þegar hún kom út á
vinyl fyrir átta árum.
Bubbi er á rólegu nótunum á
Blús fyrir Rikka. Bragðdaufúr á
köflum en rífur sig síðan upp á
milli og brýnir raustina. Gaman er
að heyra hann flytja lög Megasar,
Skutulinn og Um skáldið Jónas.
Toppurinn era hins vegar blúsamir
þrír í endann, Rock Island Line og
Silver City Bound eftir LeadbeEy og
Let Us Walk Together eftir Skip
James. Annars er platan bam síns
tíma, ágætisheimild um hvað Bubbi
Morthens var að bardúsa um miðj-
an síðasta áratug, ómissandi fyrir
gallharða aðdáendur sem voru bún-
ir að spila vinylinn í gegn en bætir
frekar litlu við fyrir hina.
Það er annars umhugsunarvert
að þau lög sem fá mann til að
sperra eyrun þegar Blús fyrir Rikka
fdjómar em öll eftir aðra en Bubba.
Hann ætti kannski að gera eina
slíka plötu einhvem tíma þegar
þannig liggur á honum - velja sér
nokkur lög eftir aðra höfúnda og
útsetja eftir sínu eigin höfði.
Hugmyndinni er hér með komið á
framfæri.
Ásgeir Tómasson
Tjarnarkvartettinn-
Tjarnarkvartettinn
★ ★★
Hjartans lyst
íslenskar plötur þar sem eingöngu
er boðið upp á söng eru ekki margar.
iAf-mi I V \f li I TIhh
Það er einna helst að kórar hafi gefið
út slíkar plötur en söngkvartettar hafa
ekki margir gefið út plötur síðan MA-
kvartettinn frægi var ög hét. Ein slík
plata er þó nýlega komin út og þar em
líka Norðlendingar á ferð. Þetta er
Tjarnarkvartettinn úr Svarfaðardal,
sem ég geri ráð fyrir að heiti eftir
Tjöm í Svarfaðardal án þess þó að
hafa neitt fyrir mér í því eftii. Kvart-
ettinn er skipaður þeim Hjörleifi
Hjartarsyni, Krisijáni E. Hjartarsyni,
Kristjönu Amgrímsdóttur og Rósu
Kristinu Baldursdóttur. Ekki fer á
milli mála að hér er á ferðinni vel
þjálfað söngfólk og því fengur að
þessari plötu fyrir þá sem gaman hafa
af góðum söng. Sömuleiöis eru útsetn-
ingar laga vel heppnaðar í flestum
tilfellum en vantar nöfn útsetjara hér
og hvar. Lögin sem kvartettinn flytur
eru bæði innlend og útlend, gömul og
ný og ljóst að kvartettinn ræður yfir
mikilli breidd í lagavali og einskorðar
sig ekki við neina eina tegund söng-
laga. Þessi mikla breidd sýnir ótviræð-
an styrk en er að mínu mati um leið
veikleiki plötunnar. Hér er hlaupið úr
einu í annað, sitt á hvað og virðist
hugsunin hafa verið sú helst að koma
sem flestum lögum á plötuna. Fyrir
mína parta hefðu mörg erlendu lögin
mátt missa sín og sömuleiðis innlendu
popplögin. Útsetningar þessara laga
era misgóðar og sum laganna virðast
ekki henta fyrir söng af þessu tagi.
Með örlítið meiri gagnrýni við
lagavalið á plötuna hefði mátt gera
plötuna enn betri en hún er.
Sigurður Þór Salvarsson
Kolrassa krókríðandi
- Kynjasögur
★ ★ Á
Ljúfsárar
melódíur
Kolrassa krókríðandi er vaxandi
nafti í tónlistarbransanum. Hljóm-
sveitin gefúr nú út breiðskífúna
Kynjasögur sem inniheldur 12 lög.
Platan er óvenjuheilsteypt miðað við
aldur sveitarinnar og á henni era ljúf-
sárar melódíur með nýbylgjuívafi
(minna einstaka sinnum á The Cure).
Hljóðfæraleikur er í meðallagi en
hljómur plötunnar verður að teljast
undir meðallagi. Hvort það vora tæk-
in, upptökumaðurinn eða hvora-
tveggja sem framkölluðu slíkan hljóm
treysti ég mér ekki til að segja. Elíza
M. Geirsdóttir, söngkona og fiðluleik-
ari, sýnir fram á mikla breidd í söngn-
um og gefúr melódíunum dýpt og
styrkleika.Einnig fá Kolrössur hrós
fyrir raddútsetningar en þær era oft á
tíðum frumlegar og koma einna best
út þegar hJjómurinn er grannskoð-
aður. Eitt lag stendur upp úr þegar
hlustað er á Kynjasögur. Lagið heitir
(Þú deyrö) í dag og er taktfast með
grípandi melódíu sem hlustendur
gætu fengið á heilann og sungið í tíma
og ótíma. Kolrassa krókríðandi er ung
hljómsveit á uppleið sem landinn ætti
að fylgjast vel með á næstunni.
Guðjón Bergmann
Hallbjörn Hjartarson
- Kántrí 7 — Það besta
★ ★ ★
Einlægni og
lífsgleði
Hallbjöm Hjartarson, kúreki frá
Skagaströnd, kom á sínum tíma eins
og ferskur blær inn í íslenska dægur-
tónlist. Hann var og er engum líkur;
einstaklega einlægur í sinni tónlist og
allri framgöngu. Síðan þetta ævintýri
hófst allt saman era liðin mörg ár og
því ekki úr vegi að safna brotum af
þvi besta saman á eina plötu; annað
eins hefur nú verið gert hér á landi.
Og hér era því saman komin á einum
stað 23 lög, öll eftir Hallbjöm, sem
sýnir hversu afkastamikill lagasmið-
ur hann hefúr verið gegnum tíðina.
Jafnframt kemúr glögglega í ljós á
þessari plötu hversu góður lagasmið-
ur Hallbjöm hefur verið á sínum
bestu stundum. Melódíumar leika í
höndunum á honum, hvort sem lagið
er í léttum gresjuanda eða angurvært
og blítt. Mest er þó um vert að heyra
og finna alla þá geislandi gleði og
hlýju sem Hallbjöm leggur í verk sín
og það má vera þunglyndur maður
sem ekki kemst í gott skap við að
hlusta á þessa plötu hans.
Sigurður Þór Salvarsson