Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1994, Page 4
26
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
t@nlisl
»-T •*
Þekktir popparar
kenna í Rokkskólanum
„Hugtnyndin aö þessum skóla
kviknaði einhvern tíma í sumar
þegar ég var úti að skokka og í næstu
skokkferðum á eftir mótaði ég
hugmyndina enn frekar,“ segir
Stefán Hjörleifsson gítarleikari.
Hugmyndin frá því í sumar er
orðin að veruleika. Hann er búinn að
stofna Rokkskólann, alvöru tón-
listarskóla fyrir þá sem hafa áhuga á
hvers kyns rokktónlist. Ætlunin er
að kenná á trommur, bassa, rafgítar
og kassagítar til að byija með auk
þess sem söngur verður á náms-
skránni.
„Innritun í skólann erfyrirnokkru
hafin og stendur tU þrettánda
janúar,“ segir Stefán. „Enn sem
komið er virðist mér mestur áhugi
vera fyrir trommunáminu. Fyrir-
komulagið verður þannig að við
verðum með eitt sett af hljóöfærum í
gangi og færum okkúr á mUli
kennslustaðanna sem verða sex
talsins, tveir í Hafnarfirði, einn í
Kópavogi og þrír í Reykjavík. Það er
mikið verk og dýrt aö hleypa skóla
sem þessum af stokkunum og því
þykir mér réttast að hafa skólann
með þessu farskólasniði auk þess sem
við komum þá í raun og veru til
nemendanna í staðinn fyrir að þeir
þurfi kannski að leggja á sig langar
ferðir tU að mæta í tíma.
Það verður einvalalið sem hyggst
kenna í Rokkskólanum með Stefáni
Hjörleifssyni. Auk hans mun
Guðmundur Pétursson sjá um
gítarkennsluna, á trommur kenna
Gunnlaugur Briem og Ólafúr Hólm,
Eiður Amarson verður bassakennari
og Andrea Gylfadóttir sér um
sönginn. „Ef aðsókn að skólanum
verður góð getur svo farið að ég þurfi
að bæta við kennurum," segir Stefán.
„Einnig hef ég hug á að bæta við
námsgreinum, jafhvel strax á næstu
önn sem hugsanlega verður í sumar.
Þá kemur tO greina að bæta við
hljómborðskennslu og einnig upp-
tökustjórn og upptökumennsku.
Stefán Hjörleifsson útskrifaðist
fyrir nokkrum árum frá Guitar
Institute of Technology í Los Angeles.
Hann hefur fengist við gítarleik i
fimmtán ár, lengst af sem
atvinnumaður. Hann hefur fengist
við tónlistarkennslu um skeið auk
þess að leika með ýmsum
hljómsveitum, svo sem Bítlavina-
félaginu, PossibOlies og Nýdönskum.
Þá hefur hann gert tvö kennslu-
myndbönd í gítarleik. Hann segir því
að það sé rökrétt framhald á ferli
sinum að stofna Rokkskólann.
„Ég held að þótt þeim greinum sem
ég æfia að bjóða upp á sé sinnt að
vissu marki í öðrum tónlistarskóliun
megi alltaf gera bétur. Þetta verður
eini tónlistarskólinn sem einbeitir
sér að rokktónlist.
Fólki gefst kostm* á að læra tónlist
með fræðOegu ivafi með því að spOa
tónlist sem það hlustar á og hrærist
í. Því held ég að ekki sé hætta á að
fólk fái námsleiða í Rokkskólanum
eins og stundum vOl brenna við í
öðrum tónlistarskólum þar sem
nemendur verða að fást við tónlist
sem þeir hafa ekki áhuga á.
ÁT
Stefán Hjörleifsson, stofnandi Rokkskólans: Skólinn kemur til nemendanna.
DV-mynd BG
Platan The Unplugged Collection með sýnishorn úr vinsælum sjónvarpsþáttum:
Ótengdir á MTV í fimm ár
Eríc Clapton er meðal hinna þekktustu sem hafa komið fram í Unplugged þáttunum
og hann hefur hagnast öllum öðrum betur því að tónlist úr þættinum var gefin út
Unplugged þættirnir hjá MTV
músíksjónvarpsstöðinni áttu fimm
ára afmæli í október síðasfliðnum. í
tilefni þess var ýmislegt sér tO
gamans gert á stöðinni. Og undir
áramótin kom út platan The
Unplugged Collection, Voliune One.
Þetta er safn sextán laga með jafn
mörgum heimsþekktum flytjendum
sem gefa þama sýnishom af því sem
þeir buðu upp á í þáttunmn sínum.
í bæklingi sem fylgir
geislaplötunni er saga Unplugged
þáttanna rakin aflt frá því áður en
þeir hófust. Framleiðandi þeirra,
Alex Coletti, lítm- yfir sviðið frá því
mánuði áður en baflið byrjaði. Þá
komu Jon Bon Jovi og Ritchie
Sambora fram og spfluðu óraf-
magnað. Þeir töldu aö vonum að þeim
væri að þakka að MTV ákvað að bjóða
upp á fleiri Unplugged þætti en fram
kemur í bæklingnum að hugmyndin
hafði kviknað nokkru áöur. Hug-
myndina áttu raunar þeir Bob SmaO
og Jim Bums áttu hugmyndina og
það var þeim að þakka að einn góðan
veðm-dag í október ‘89 birtust þeir
Chris Difford og Glen TObrook úr
Squeeze með rafmagnsgítarana sína
og æfluðu að búa tO Unplugged þátt.
Þeir höfðu misskOið hugmyndina frá
grunni og því þurfti starfsfólk MTV
að leggja á sig töluverða vinnu tO að
hafa upp á kassagíturum handa
tónlistarmönnunum áður en upp-
takan gat hafist!
Ný uppfinning?
Nei, auðvitað voru Unplugged
þættimir ekki ný uppfinning. Það
viðurkennir Alex Coletti fúslega.
Áður hét það bara að spOa akústískt
eða órafinagnað. En fljótlega festist
hugtakið unplugged eða ótengdur við
þessa tegund spOamennsku og nú er
farið að bjóða upp á hana um víða
veröld.
á plötu.
Reyndar áttu þættirnir aö vera
með öðra sniði en reyndin varð síðar.
Tónlistarmaðurinn Jules Shear var
kynnir í upphafi og fyrirkomulagið
var það tO að byrja með að nokkrar
hljómsveitir og tónlistarmenn tóku
þátt í dagskrárgerðinni og í enda
hvers þáttar var endað þannig að
valinn mannskapur tók þátt í að leika
af fingrum fram með Jules Shear. Á
þessum tíma var formið eins frjálst
og hugsast gat og segir Alex Coletti í
grein sinni að hann sakni í raun og
veru þessara upphafstíma þáttanna
þegar Graham Parker og The
Smithereens tóku lagið saman eða
The Church og Jules Shear fluttu
Bítlalagið Rain.
Aðstandendur Unplugged
þáttanna gerðu sér grein fýrir því
þegar Don Henley mætti í þátt númer
tíu að þættimir vora famir að þróast
í aðra átt en ætlunin hafði verið og
að tími Jules Shears var liðinn. Og
frá og með þætti númer 21, þegar
Aerosmith mætti og gerði aflt
viflaust, fór ekkert á mOli mála að
rokkarar í þungavikt litu á þessa
dagskrá sem mikOvægan lið tO að
koma tónlist sinni á framfæri.
Alex Coletti segir að The Un-
plugged platan sé aðeins fyrsta
skrefið tO að gefa út ógleymanlega
ópusa sem komið hafa fram í
dagsljósið við dagskrárgerðina.
Margt hið ógleymanlegasta séu
dúettar ýmiss konar sem eigi skOið
að verða gefnir út síðar. Hann minnir
á Tony Bennett og k.d. lang, Natalie
Merchant og David Byme, Lulu og
Soul Asylum og þá er hann ekki
minnst stoltur af þættinum með
Crowded House og Tim Finn sem
gekk svo vel að Tim gekk í
hljómsveitina eftir hann. Og þá er
ánægjan ekki minni með þátt númer
sjötíu og tvö sem einmitt var í
undirbúningi þegar greinin sem
fylgir Unplugged plötunni var rituð,
nefiiOega með Robert Plant og Jimmy
Page, gömlu sálufélögunum úr Led
Zeppelin sem tvær kynslóðir
aðdáenda vora búnar að þrá að kæmu
nú loksins saman.
Coletti viðurkennir að Unplugged
þættimir séu raunar orðnir of stór
viðburður til að upprunalegi
tdgangurinn með þeim náist. En
þrátt fyrir það gerist afltaf sama
kraftaverkið þegar listamaðxninn
stí gur á stokk. Þá er allt skipulag látið
róa og þátturinn snýst bara um þá
tónlist sem út úr hljóðfærinu og
barka söngvarans kemur. Engu máli
skiptir hve stórt húsið er sem unnið
er í og engu breytir hvort fáir eða
margir eru í áhorfendasætunum.
Þegar ljósin taka að skína og
myndbandsspólumar að rúlla skiptir
ekkert lengur máli nema kraftur
söngraddarinnar og slátturinn á
strengi gítarsins. Þess vegna er fólk
svo vel með á nótunum og þess vegna
urðu Unplugged þættimir tfl. Meðan
svo vel tekst að fanga augnablikið að
óhætt er að láta aUt fýrirfram ákveðið
skipulag róa verður haldið áfram að
framleiða þessa vinsælu
tónlistarþætti.
Æstur
Stones-
aðdá-
andi
Leikarinn góðkunni David
Carradine er æstur rokkunnandi
í orðsins fyflstu merkingu. Á
dögunum æflaði hann að bregða
sér á tónleika með Rolling Stones
í Toronto í Kanada en því miður
fór ekki allt eins og ætiast var tO.
Vinurinn var kominn í mikinn
rokkham þegar á tónleikastaðinn
kom og tók því afar illa að þurfa
að bíða við lokaðar dyr. Hann var
því ekki með neinar víftiengjur
heldur gekk vasklega fram og
sparkaði hurðinni upp og skipti
hann engu þótt glerhurð væri.
Öryggisvörðum á staðnum þótti
hins vegar lítið tO karateæfinga
kvikmyndaleikarans koma og
tóku hann úr umferð hið
snarasta. Varð Carradine að gera
sér að góðu að dúsa í steininum
á meðan tónleikamir stóðu yfir.
Slegist
um
Bítlana
Nafn Bítianna hefur á ný
komist á forsíður blaöa um allan
heim eftir að platan með gömlu
BBC-upptökunum sló í gegn á
dögunum. En þetta ku vist bara
vera byrjunin því útgáfa
plötunnar er bara forleikurinn að
heljarmikflli sjónvarpsþátta-
seríu um sögu Bítianna.
Þættirnir, sem era 12 talsins, era
að mestu ttibúnir og má búast við
að þeir verði sýndir í bresku
sjónvarpi næstkomandi haust.
Spumingin er bara á hvaða stöð
þeir verða sýndir en eftir að
áðumefhd geislaplata var rifin út
úr búðum um aUan heim þykir
ljóst að mtiíOl fengur verði að því
að sýna þáttaröðina um Bítiana. ,
Þar af leiðandi er nú skoUið á '
mikið verðstríð mOli stóru
bresku sjónvarpsstöðvanna BBC
og ITV um sýningarréttinn á I
þáttunum og eru víst engar
smáupphæðir í boði.
Saturday
Night
stolið?
Danska nýstimið Whigfield,
sem sló í gegn fýrir skemmstu
með laginu Saturday Night,
stendur nú frammi fýrir
málshöfðun vegna ákæra um að
hafa stolið laginu. Það eru
liðsmenn gömlu þjóðlagarokk-
sveitarinnar Lindisfarne sem (
hafa höfðað mál á hendur
Whigfield og fullyrða að lagiö
Saturday Night sé byggt að
langstærstum hluta tU á laginu '
Fog On The Tyne sem Lindis-
fame gaf út á plötu árið 1972. Það
sérkenntiega við þetta lag
Whigfield er að spumingin var
ekki hvort einhver myndi kæra
hana fýrir lagastuld heldur hver
því liðsmenn Lindisfame eru
ekki þeir einu sem gera tilkaU tti
upprunalega lagsins.
-SþS-