Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1995, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1995, Page 3
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1994 25 tónlöt Góðu tónleikaári í Við sögðum frá því fyrir nokkru að þungarokkssveitin fræga Metallica hefði höfðað mál á hendur útgáfufyrirtækinu Elektra með það fyrir augum að losna undan samningi við fyrirtækið. Liðsmenn hljómsveitarinnar töldu að gamli samningurinn væri sér afar óhagstæður og í engu samræmi við það sem eðlilegt gæti talistfyrirstórsveit eins og Metallica. Núhefurhljómsveitin hins vegar tilkynnt að nýtt samkomulag hafi náðst við Elektra sem feli meðal annars í sér sameiginlegan eignarrétt yfir afurðum sveitarinnar. Að öðru leyti er innihald samningsins leyndarmál en leiða má getum að því að hljómsveit sem selt hefur 12milljónirplatna afsíðustu útgáfusinnihafinokkuðsterka stöðu við samningsborðið. -SþS- Góð aðsókn á tónleika Rolling Stones er meðal annars því að þakka að reynt var að stilla miðaverðinu í hóf. þúsund krónur. Góöar horfúr eru á aö nýbyijað ár veröi ekki síður spennandi en það gamla. Búist er við að Pearl Jam eigi eftir að gera það gott á næstu vikum og mánuðum og þá er R.E.M. ekki síður spáð velgengni. Sú hljómsveit hefur svelt aðdáendur sína í allmörg ár svo að búast má við að þeir fjölmenni til að heyra goðin og sjá. Rokksveitin Van Halen er að búast til ferðar og er spáð velgengni. Einnig á Eagles eftir að ljúka nokkrum tónleikum og miðað við viðtökumar í fyrra þarf varla að búast við öðru en að fólk haldi áfram að flykkjast á staðinn til að heyra í Don Henley, Glen Frey og félögum. -ÁT Bandaríkjunum lokið Elton John og Billy Joel seldu dýrast inn Bandarískir tónleikahaldarar voru ánægðir með nýliðið ár. Samtals borguðu tónleikagestir þar vestra tæplega einn og hálfan milljarð dollara í aðgangseyri, eða hátt í hundrað milljarða íslenskra króna. Stórsveitir síðustu áratuga, Rolling Stones, Eagles og Pink Floyd veltu að sjálfsögðu mestu. Grateful Dead voru einnig á ferðinni og löðuðu að hundruð þúsunda aðdáenda sinna rétt eins og venjulega og þá var hrifhingin ekki síður mikil þar sem kántrísöngvarinn Garth Brooks var á ferð. Elton John og Billy Joel slógu meira að segja saman í púkk og fyrir bragðið gekk þeim mim betur en ef þeir hefðu farið hvor í sínu lagi. En það voru ekki einungis stór- stjömumar sem fengu Bandaríkja- menn til að flykkjast á leikvanga og aðra staði þar sem tónleikar voru haldnir. Lollapalooza-ferðin var farin fjórða árið í röð og gekk mjög vel. í henni taka þátt ýmsar framsæknar hljómsveitir og aðrar sem þykja lofa góðu um framtíðina en hafa bara ekki slegið almennilega í gegn ennþá. Nirvana hafði verið orðuð við þá ferð en af þátttöku hennar gat ekki orðið af skiljanlegum orsökum. Rokk- hljómsveitin Phish, sem ekki er beinlínis með þeim þekktustu, lék samtals 99 sinnum á síðasta ári og hagnaðist svo vel á tónleikahaldinu að nafni hennar skaut upp meðal hinna þekktustu. Nine Inch NaOs vom litlir eftirbátar Phish og urðu meðal fimmtíu hinna tekjuhæstu. Þar vora einnig Salt-N-Pepa sem fóm í ferð með R. Kelly og gekk sérlega vel. Enda náðu Salt-N-Pepa að koma nokkrum lögum i hæstu hæðir vinsældalistanna á árinu. Gömlu mennimir vom einnig á ferð. Tony Bennett er orðinn vinsæll aftur eftir að hafa fengið Unplugged þátt hjá MTV og vegna hans streymdi fólk á konsertana hans. Frank Sinatra varð þó öllu meira ágengt. Hann hélt raunar aðeins 48 tónleika á árinu eða rúmlega helmingi færri en rokkhljómsveitin Phish en eigi að síður var innkoman hjá Sinatra svipuð. Gamli maðurinn þurfti raun- ar að aflýsa allnokkrum tónleikum á árinu vegna heilsubrests. Það sama gerðist með Crosby, Stills og Nash sem gerðu það allgott þar til David Crosby var lagður inn á sjúkrahús þar sem skipt var um lifur í honum. Þá þóttu gömlu brýnin í Moody Blues einnig standa sig.með ágætum í tónleikahaldinu. Talið er að miklu máli hafi skipt um góða útkomu hjá Rolling Stones að miöar í bestu sætin kostuðu ekki nema 3.400 krónur. Og þeir sem létu sér nægja að vera aftarlega þurftu ekki að borga nema helming þeirrar upphæðar. Hins vegar kostaði mið- inn á tónleika hjá Pink Floyd rúmlega fimm þúsund kall. Dýmstu aðgöngumiöar síðasta árs voru á tónleikana hjá Billy Joel og Elton John. Inn á þá kostaði tæplega sex Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur loikui' sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku era birtar þrjár léttar spurn- ingar um tónlist. Þrír vinningshafar, sem svara öllum spumingum rétt, hljóta svo geisladisk að launum frá fyrirtæk- inu Japis. Að þessu sinni er það disk- urinn Monster með hinni vinsælu hljómsveit REM sem er í verðlaun. Hér koma svo spurningamar: 1. Hvaða plötu völdu gagnrýn- endur sem plötu ársins hjá DV? 2. Hvað heitir söngvari R.E.M.? 3. Á hvaða útvarpsstöð er útvarps- þátturinn Sýrður rjómi? JJregið verður úr réttum lausnum 12. janúar og rétt svör verða birt í blaðinu 19. janúar. Hér era svörin úr getrauninni sem birtist 22. desember: 1. Kurt Cobain. 2. Sykurmolamir, Kukl, Tappi tík- arrass, Exodus. 3. Police. Vinningshafamir í þeirri getraun sem fá plötuna No w 29 í verðlaun era: Hvað heitir söngvari R.E.M.? Hjördís Rögnvaldsdóttir Dalseli 18,109 Reykjavík Fálkagötu 26,107 Reykjavík. Theodór Tómasson Sigurlaug R. Guðjónsdóttir Heiðarbrún 21, 810 Hveragerði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.