Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Qupperneq 1
30. JANÚAR 1995 IÞROTTIR Getraunir: Enski boltinn: 12x-xxx-x12-xx11 ítalski boltinn: 211-1x1-11x-12x2 Lottó 5/38: 710162533(30) fi/t/iffff/fffffff/ffffff/fffif/fff/ Spennan í einvígi Blackbum og Manchester United um enska meistai-atitilinn í knattspymu magnast enn. Blackbum komst á toppinn á ný eftir sigur á Shef- field Wednesday í gær, 3-1, en Manchester United var efst í sól- arhring, í fyrsta skipti í margar vikur, í kjölfarið á stórsigri á nágrönnum sínum úr Manchester City á laugardaginn, 0-3. Tvö stig skilja liðin að og þau hafa leikið jafnmarga leiki en lík- umar á að Manchester United haldi meistaratitlinum þykja fara vaxandi á ný hjá breskum veðbönkum. Sjá nánar um ensku knatt- spyrnuna á bls. 27 Eric Cantona enn í vandræðum: Réðst á blaðamann Knattspymumaðurinn Eric Cantona kom sér í vandræði á nýjan leik á laugardaginn þegar hann réðst á blaöamann á eyj- unni Antigua í Karíbahafinu. Blaðamaðurinn segir að Cantona hafi tekið sig hálstaki og síðan sparkað undir bringspalirnar á sér. Bresk lögregluyfirvöld bíða þess nú að Cantona skili sér heim úr fríinu svo þau geti yfir- heyrt hann vegna árásarinnar á áhorfandann á dögunum. Geirlaug B. Geirlaugsdóttir: Þriðja metið á viku Geirlaug B. Geirlaugsdóttir úr Ármanni setti íslandsmet í 60 metra hlaupi innanhúss í þriöja skiptið á einni viku á opna norska meistaramótinu í Ósló á laugardaginn. Geirlaug hijóp vegalengdina á 7,63 sekúndum en um síðustu helgi hljóp hún fyrst á 7,65 og síðan á 7,64 sek- úndum í Gautaborg. Hún varð sjötta af átta keppendum í úr- slitahlaupinu en Monica Grefstad frá Noregi sigraði á 7,43 sekúndum. Sextán ára Hafnfirðingur næsti atvinnumaður íslendinga í knattspyrnu? Ekeren vill fá Arnar Arnar Þór Viðarsson, 16 ára gamall leikmaður úr FH, er á leið til belgíska 1. deildar liðsins Ekeren, félagsins sem Akureyring- urinn Guðmundur Benediktsson lék með. Hann fer utan í vikunni og mun æfa með liðinu í að minnsta kosti 10 daga og í fram- haldinu gæti farið svo að hann gerði atvinnumannasamning við félagið. Upphafíð að áhuga Ekeren á Amari er að í tvígang var hann kosinn besti leikmaður knatt- spymuskóla Kristjáns Bemburgs í Belgíu og í leik með skólaliðinu gegn ungliðaliði Lokeren fylgdust menn frá Ekeren með Amari. Ef forráðamönnum félagsins líst vel á Arnar vilja þeir ganga frá samn- ingi áður en hann verður 17 ára því þá telst hann Belgi og nýtur þá sömu réttinda og heimamenn. „Það hefur alltaf verið draumur- inn að komast út í atvinnu- mennsku. Maður þroskast miklu meira sem knattspymumaðm- ef maður kemst út og ég er kominn á þann aldur að ég þarf að þroskast. Ég verð alla vega 10 daga úti og ef það skellur á kennaraverkfall er alveg eins víst að ég verði lengur. Þeir vilja fá mig út sem fyrst því ég verð 17 ára eftir einn og hálfan mánuð,“ sagði Amar við DV i gær. Arnar Þór, sem á að baki 15 leiki með drengjalandsliðinu, á ekki langt að sækja knattspymu- hæfileikana en hann er sonur Við- ars Halldórssonar sem um árabil var fyrirliði FH og átti sæti í A- landsliði íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.