Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Side 3
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
23
DV
SéttumfyrirVal
íToto-keppnina
Alls háfa 110 félög sótt um þátt-
töku í nýju Inter-Toto Evrópu-
keppninni sem fram fer í sumar.
KSÍ sótti um fyrir tvö islensk fé-
lög, Keflavík og Val. Sextíu félög
verða í keppninni og Keöavík
verður örugglega þar á meðal,
eins og áður hefur komið fram,
en ólíklegt er aö Valsmenn sleppi
inn.
Drengjaliðið
tii Portúgais
Drengjalandsliði íslands í
knattspyrnu hefur verið boðin
þátttaka í alþjóðlegu móti í Port-
úgal sem .hefst 24. febrúar. Auk
ísiands og Portúgals taka Noreg-
ur og Skotland þátt í mótinu.
Fyrsta verkefni
Kristinserlendis
Kristinn Jakobsson dæmir fyr-
ir íslands hönd á mótinu í Portú-
gal og það verður hans fyrsta
verkefhi á erlendri grundu. Krist-
inn, sem er aðeins 25 ára, var
valinn besti dómari 1. deildar í
fyrra, á sinu fyrsta ári.
21-árs liðið
fertil Kýpur
Knattspyrnulandslið íslands,
skipað leikmönnum 21 árs og
yngri, tekur þátt í alþjóðlegu
móti á Kýpur sem hefst 27. febrú-
ar. Þar leika einnig Noregur,
Finnland og Eistland, en mögu-
legt er að þar verði um A-lið Eist-
lands að ræða.
Unglingaliðið
fertilltalíu
Enn eitt landsliðið á faraldsfæti
er unglingalandsliöið, 18 ára og
yngri, sem tekur þátt í stóru al-
þjóðlegu móti á Ítalíu í apríl. Þar
verður ísland í riðli með Moldav-
íu, Grikklandi og Rúmeníu.
Evrópuleikirnir
verðaáírlandi
Nú er Ijóst aö undanriðlar Evr-
ópukeppni drengjalandsliða og
unglingalandsliða í knattspymu
verða ekki hér á landi eins og
vonast haíði verið eftir. Ungl-
ingalið íslands, Hvíta-Rússlands
og Norður-írlands mætast á
Norður-írlandi í agúst og
drengjalið íslands, írlands og
Noregs mætast á Irlandi í sept-
ember.
AntoníVal
Anton Bjöm Markússon knatt-
spyraumaður, sem hefur leikiö
með Fram undanfarin ár og eitt
ár með ÍBV, er genginn til liðs
við Valsmenn.
JónastilFli
Jónas Hjartarson, sem hefur
variö mark Hauka í knattspym-
unni undanfarin tvö ár, er geng-
inn til liðs við sítt gamla féiag,
FH,
Sigmarkeppir
í Svíþjóð
Sigmar H. Gunnarsson úr
UMSB verður á meðal þátttak-
enda í 1.500 og 3.000 metra hlaup-
um á sænska meistaramótinu í
frjálsum íþróttum innanhúss
sem fram fer í Gautaborg 25.-26.
febrúar. Viku síöar keppir Sig-
mar einnig á danska meistara-
mótinu en það verður haldið í
Malmö í Svíþjóð vegna aðstöðu-
leysis í Danmörku.
íþróttir
Líkumar á að Guðni Bergsson fari til Örebro minnka verulega:
West Ham skoðar Guðna
- Tottenham hafnaði leigutilboði Örebro og tíminn er að renna út
Enska knattspymufélagið Tott-
enham hafnaði leigutilboði sænska
félagsins Örebro í Guðna Bergsson
á fostudaginn og þar með hafa lík-
umar á að Guðni fari til Svíþjóðar
minnkað verulega. Viðræðum fé-
laganna er þó ekki lokið en ljóst
að tíminn er orðinn knappur fyrir
Guðna.
„Þessi viðbrögð Tottenham komu
mér á óvart en þeim leist ekki á
tilboð Svíanna og Gerry Francis
framkvæmdastjóri talar enn um aö
hafa mig hjá Tottenham fram á
sumar. Eg hef hins vegar sótt fast
að komast til Svíþjóðar, félögin
munu taia saman aftur og ég reyni
hvað ég get til að koma málunum
í gegn en Svíamir geta ekki beðið
endalaust," sagði Guðni í samtali
við DV í gær.
Hann sagði að Tottenham vildi
frekar selja sig innan Bretlands,
eða þá gera við sig nýjan samning.
„Það hafa nokkur lið verið í sam-
bandi við Tottenham út af mér,
bæði Bolton og Sheffield United,
eins og áður hefur komið fram og
svo hafa menn frá West Ham verið
að fylgjast með mér í leikjum með
varaliði Tottenham að undan-
fornu,“ sagði Guðni.
„Ég er orðinn þreyttur á þessari
bið og vil ekki haga mér alfarið
samkvæmt vilja Tottenham. Ég
ætla mér ekki að húka aðgerðalaus
hér í London til vorsins og er stað-
ráðinn í að koma mínum málum á
hreint í vikunni," sagði Guðni
Bergsson.
Með þessu er enn líklegra að
Hlynur Birgisson úr Þór á Akur-
eyri spili með Örebro í ár. Eins og
DV hefur áður sagt frá hefur hann
gert munnlegan samning við
Orebro til tveggja ára sem er háður
þvi að ekki verði af þvi að Guðni
komi til félagsins.
Guðjón Guðmundsson, Armanni, sýnir listir sínar á bogahestinum á bikarmóti FSÍ i Kaplakrika á laugardaginn.
_ DV-mynd Brynjar Gauti
Bikarmót FSI og meistaramót fimleikastigans:
Gerpla sigraði í 3. þrepi
- Bjarkimar sigruðu í keppni með ftjálsri gráðu
Bikarmót Fimleikasambands ís-
lands og meistaramótið í íslenska
fimleikastiganum var haldiö í
íþróttahúsinu í Kaplakrika um helg-
ina.
í keppni í íjórða þrepi stúlkna sigr-
aði Gerpla með 167,528 stig. Stjaman
varð í öðm sæti með 153,897 stig og
Ármann varð í þriöja sæti með
144,597 stig.
í þriðja þrepi sigraði Ármann með
155,764 stig. Gerpla varð í öðm sæti
með 154,821 stig og Grótta varð í
þriðja sæti með 136,597 stig.
í þriðja þrepi pilta sigmðu Ár-
menningar með 271,300 stig og
Gerpla varð í öðm sæti með 240,150
stig.
í fjórða þrepi urðu Ármenningar
einnig sigurvegarar en þeir fengu
282,900 stig en Gerplustrákarnir
fengu 278,000 stig.
í keppni með frjálsri gráðu vom
það Bjarkimar sem fognuðu sigri.
Þær hlutu 127,075 stig. Ármann varð
í öðru sæti með 123,05 stig og Gerpla
varð í þriðja sæti með 122,825 stig.
í fimleikastiganum sigraði Hildur
Einarsdóttir, Björk, í 2. þrepi en hún
hlaut 31,009 samtals í einkunn. Edda
K. Haraldsdóttir, Björk, varð önnur
með 30,805 og Freyja Sigurðardóttir,
Keflavík, varð þriðja með 28,500 stig.
í 3. þrepi sigraði Auður Ólafsdóttir,
Gerplu, sem fékk samtals 35,620 í ein-
kunn. Berglind Bragadóttir, Ár-
manni, varð önnur með 35,320 og í
þriðja sæti varö Hanna S. Amardótt-
ir, Gerplu, með 34,200.
í 4. þrepinu varð Berglind Þ. Ólafs-
dóttir, Gerplu, sigurvegari en hún
hlaut samtals 36,330 í einkunn.
Steina D. Snorradóttir, Stjömunni,
varð önnur með 34,930 og Tinna Ö.
Káradóttir varð þriðja með 34,800 í
einkunn.
Hljóðnemar á dómara?
Ríkisútvarpið hefur farið þess
formlega á leit við HSÍ og Alþjóða
handknattleikssambandið að
leyfi verði veitt til þess að setja
hljóðnema á dómara í heims-
meistarakeppninni. Stöð 2 reyndi
slíkt í knattspyrnunni fyrir fáum
ámm og urðu talsverð viðbrögð
við því, meöal annars vegna orða-
hnippinga leikmanna og dómara.
Hvaðerumviðmörg?
Hið öfluga tímarit World Hand-
ball Magazine fjallar í nýjasta
hefti sínu um HM’95 á íslandi á
flmm síðum og þremur tungu-
málum. Eitthvað virðast tölur um
fjölda íslendinga vera á reiki því
þeir eru ýmist sagðir vera 270
þúsund, 280 þúsund eða 290 þús-
und!
Túnisermeistari
Túnis, einn af mótherjum ís-
lands í A-riðlinum á HM, varð
Afríkumeistari landsliða fyrir
skömmu með því að sigra Alsír í
úrslitaleik, 18-16. Egyptar sendu
21-árs lið sitt í keppnina og unnu
Marokkó í leik um þriðja sætið,
25-19. Þessar fjórar þjóðir leika
allar á HM.
Þekktur þjálfarí
Kúveit er líklega lægst skrifaða
hðið á HM’95 en státar þó senni-
lega af þekktasta þjálfaranum.
Þaö er sjálfur Anatoli Jevtustsj-
enko, sem þjálfaði landshð Sovét-
ríkjanna í áraraðir, sem er þar
við stjórnvölinn.
Þýski handboltinn:
Júlíus með þrjú í
sigri á Hameln
Gummersbach, lið Júlíusar Jón-
assonar, sigraði Hameln, 21-19, í
þýsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik á laugardaginn. Staðan var
10-10 í hálfleik og leikurinn var
hnífjafn en Gummersbach var
sterkara á endasprettinum og
tryggði sér mikilvæg stig. Júlíus
skoraði 3 mörk í leiknum.
Héðinn Giisson og félagar hans í
Dússeldorf biðu lægri hlut fyrir
toppliði Kiel, 23-18, á laugardaginn.
Það var stutt gaman hjá Héðni en
hann fékk rauða spjaldið undir lok
fyrri hálfleiks vegna þriggja brott-
visana. Héðinn lék einungis vam-
arleikinn en hann á enn í meiðslum
í hásin og æfði ekkert í síðustu viku
af þeim sökum.
Kristján Arason og lærisveinar
hans í Dormagen sóttu Magdeburg
heim í gær og töpuðu, 22-17. Kiel
er langefst með 41 stig, tólf stigum
meira en Hameln sem er í öðra
sæti. Dormagen er með 24 stig í 10.
sæti. Gummersbach er með 22 stig
í 11. sæti og Dússeldorf hefur 17
stig og er í 13. sæti af 16 liðum.
hus í Danmörku
Ingibjörg Hínriksdóttír skrifer.
Margrét Ákadóttir, knattspyrau-
kona frá Akranesi, er gengin tíl liðs
við danska félagið Árhus sem hafri-
aði í ööm sæti næst á eftir Fortuna
í hann,“ sagðiMargrét við DV. Hún
gerir ráð fyrir þvd aö koma heim i
sumar og leika með Skagastúlkum
þar sem langtfrí er i dönsku 1. deild-
inni vegna úrslitakeppni HM.
sl. keppnistímabil. Heiða til Þýskalands
„Þetta er mjög sterkt liö og það Heiða Sigurbergsdóttir úr Stjöm-
eru að jafhaöi 5-7 leikmenn liösins unni dvelur nú í Þýskalandi og
í danska landsliðinu. Keppnístíma- hefur fengið félagaskipti yflr í 2.
bilið er ekki hafið hér enn þá og deildar félagið FSV Cappel. Heiða
undirbúningstíminn stendur sem sagðiisamtaliviðDVaðhúnreikn-
hæst en það verður valitm 14 manna aöi ekki með því að vera lengi fé-
hópur í næstu viku og ég geri mér lagsbundin þar því hún hefði auga-
nokkuö góöar vonir um að komast staö á liði í þýsku 1. deildinni.