Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Síða 5
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
25
ini Jóhannessyni og Valgarö Thoroddsen og fiskar vítakast.
DV-mynd Brynjar Gauti
ildar karla í handknattleik:
«ttiílás
3r í hag gegn Val í Víkinni í gær
hefur veriö sagt að markvörðurinn er
hálft liðið og það sýndi Reynir. Mar-
kvarslan hefur verið upp og ofan hjá
Víkingum í vetur en í gærkvöldi var
hún í öndvegi þegar hiö geysisterka lið
Valsmanna var lagt að velli.
Valsmenn voru í miklum ham framan
af leiknum, hvergi veikan blett að finna,
og áttu Víkingar þá aldrei möguleika.
Valsmenn voru'skrefinu á undan á öll-
um sviðum og gátu Valsmenn hæglega
verið búnir að ná meira forskoti áður
en Víkingar hrukku í gang. Þegar Vals-
menn léku hvað best í gærkvöldi var
hrein unun að sjá til hðsins. Öflugur
varnarleikur, beittur sóknarleikur og
góð markvarsla lagðist á eitt sem gerir
eitt lið þannig úr garði að því verður
varla ógnað.
Valsmenn komust í 11-16 í síðari hálf-
leik og höfðu menn á orði að úr þessu
yrði spumingin aðeins hversu stór sig-
ur Valsmanna yrði. Upp frá þessu
skiptu liðin um hlutverk, Valsmenn
urðu kærulausir í leik sínum, lögðust
hreinlega til svefns, á sama tíma sem
Víkingar vöknuðu upp af væmm
blundi. Fyrr en varði var forskot Vals-
manna farið út um gluggann og Víking-
ar efldust til muna. Framgöngu þeirra
Reynis og Áma var lýst hér að framan,
allir lögðust þó á eitt við að gera þennan
leik eftirminnilegan. Sigurður Sveins-
son náði sér ekki á strik og hvíldi á
bekknum í síðari hálfleik.
„Leikurinn var
þrælskemmtilegur“
„Handboltinn sem slíkur var ekki sér-
lega góður. Leikurinn var að sama
skapi þrælskemmtilegur. Baráttan var
í góðu lagi en mistök sáust ansi oft hjá
báðum aðilum. Valsmenn virtust hrein-
lega sofna á verðinum og Víkingur fór
í gang svo um munaði. Þáttur Reynis í.
markinu vó þar þungt. Víkingar vom
betri í fimm mínútur og það nægði þeim
til sigurs," sagði Þorbergur Aðalsteins-
son landsliðsþjálfari sem fylgdist með
leiknum í gærkvöldi.
Júlíus Gunnarsson og Guðmundur
Hrafnkelsson vora bestu menn Vals-
liðsins í leiknum. Valsliðið er það
reynslumikið og svona gott forskot, sem
liðið náði, á í öllu falli ekki að tapast
niður. Reynslan á þar að grípa inn í.
íþróttir
Gifurleg spenna fyrir lokaumferð 1. deildarinnar:
Þrjú geta unnið
- Valur, Stjaman og Víkingur eiga öll möguleika
Þrjú lið eiga möguleika á meist-
aratitli 1. deildar karla í hand-
knattleik eftir úrslitin í 21. og
næstsíðustu umferðinni í gær-
kvöldi. Valur og Stjarnan leika
hreinan úrshtaleik að Hlíðarenda
næsta laugardag. Sigurliðið verð-
ur deildarmeistari en ljúki leikn-
um með jafntefli geta Víkingar
hirt titilinn með því að vinna
Hauka í Hafnarfirði með fimm
marka mun.
Valsmenn geta orðið meistarar
með jafntefli en þá þurfa Víking-
ar að vinna Hauka með fjórum
mörkum eða minna.
FH mætir Aftureldingu
FH og Afturelding heyja einvígi
um fjórða sætið. FH hefur stigi
betur en er með lakari markatölu
og verður því að vinna ÍR í Selja-
skóla til að vera öruggt um 4.
sætið. Afturelding sækir KA
heim á meðan. Ljóst er að FH og
Afturelding mætast í úrslita-
keppninni en þar getur ráðið úr-
slitum hvort nær 4. sætinu í
deildinni því það gefur aukaleik-
inn á heimavelli.
KA verður í sjötta sæti, sama
hvernig síðasta umferðin fer, og
leikur því við það lið sem endar
í 3. sæti. Það getur orðið hvert
sem er af þremur efstu liðunum,
Valur, Stjarnan eða Víkingur.
ÍR og Haukar bítast um 7. sætið
og þar stendur ÍR betur að vígi
er með tveimur stigum meira.
Haukar eru með betri markatölu
en eiga mjög erfiðan leik fyrir
höndum, gegn Víkingi. ÍR og
Haukar munu mæta tveimur
efstu liðum deildarinnar.
Ásmundur varði 14 skot 1 fyrri hálfleik:
„Mjög sannfærandi"
- stórsigur Aftureldlngar á slöku liði Hauka
Aftuvelding - Haukar (13-6) 29-20
2-2, 4-2, 6-5, 8-6 (13-6), 15-9, 16-12, 17-14, 22-16, 25-19, 27-20, 29-20.
• Mörk Aftureldingar: Ingimundur 8/4, Róbert 6, Gunnar 5, Jason 4, Páll
1. Þorkell 1. Jóhann i
Varin skot: Ásmundur 23/1.
• Mörk Hauka: Gústaf 5, Baumruk 4, Sigurjön 3/3,
Þorkell 3, Aron 1, Sveinberg 1, Páil 1, Árni 1, Viktor 1.
Varin skot: Bjami 22.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeír Sveinsson,
góöir.
Áhorfendur: 600.
Maðurleiksins: Ásmundur Einarsson, Aftureldingu.
FH-ingar loks
lagðir að velli
- bikarmeistarar KA unnu sigur 1 Krikanum
Þóröur Gíslason skrifer
„Leikurinn var kaflaskiptur af
okkar hálfu og við misnotuðum
óþarflega mikið af dauðafærum.
Fyrri hálileikurinn var mjög góður
en við slökuðum of fljótt á í þeim
seinni. En við náðum að rífa okkur
upp í lokin og enduðum leikinn á
mjög sannfærandi hátt,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson, þjálfari Aft-
ureldingar, eftir stórsigur sinna
manna gegn slöku liði Hauka, 29-20,
að Varmá í gærkvöldi.
Mikll hasar var strax í upphafi
leiks, taugaspenna, stuttar og hraðar
sóknir. Um miðjan fyrri hálfleik,
þegar staðan var 6-5, kom frábær
leikkafli hjá Aftureldingu sem gerði
sjö mörk gegn einu marki Hauka.
Munaði þar mest um markvörslu
Ásmundar Einarssonar en hann
varði fjórtán skot í fyrri hálfleik.
Haukarnir komu mun ákveðnari
til síðari hálfleiks og um hann miðjan
náðu þeir muninum niður í þrjú
mörk, 17-14. En með marki frá Ingi-
mundi Helgasyni úr vítakasti og öðru
frá Gunnari Andréssyni úr hraða-
upphlaupi var allur vindur úr Hauk-
um og leikmenn Aftureldingar luku
síðari hálfleik líkt og þeim fyrri, með
skemmtilegum og afburða vel leikn-
um handknattleik.
Ásmundur varði mjög vel, Ingi-
mundur og Róbert Sighvatsson áttu
stórleik í annars jöfnu liði Aftureld-
ingar.
Hjá Haukum var Bjami Frostason
bestur og eins var Gústaf góður þeg-
ar hans naut við en hann var utan
vallar stóran hluta síðari hálfleiks.
STAÐAN
Nissandeildin
Valur .21 14 4 3 502-429 32
Stjaman.. .21 16 0 5 573-502 32
Víkingur. .21 14 3 4 582-514 31
FH .21 13 2 6 524-486 28
Aftureld.. .21 12 3 6 542M75 27
KA .21 10 5 6 527^89 25
ÍR .21 11 1 9 504-511 23
Haukar.... .21 10 1 10 552-530 21
Selfoss .21 6 4 11 469-523 16
KR .21 6 1 14 470-520 13
HK .21 1 1 19 450-555 3
ÍH .21 0 1 20 411-572 1
í lokaumferðinni næsta laugar-
dag mætast HK-KR, KA-Aftur-
elding, Selfoss-ÍH, ÍR-FH, Hauk-
ar-Víkingur og Valur-Stjarnan.
Róbert Róbertsson skrifar:
Bikarmeistarar KA gerðu góöa ferð
í Hafnarfjörð í gærkvöldi þegar þeir
sigruðu FH-inga, 25-27, í Nissan-
deildinni í gærkvöldi. KA-menrl, sem
léku án Alfreðs Gilssonar, þjálfara
síns, voru betri aðilinn í frekar dauf-
um leik og virtust hafa miklu meiri
vilja til að sigra.
Þetta var fyrsta tap FH-inga í 11
leikjum og í fyrsta sinn sem þeir tapa
fyrir KA í Kaplakrika. FH-ingar náðu
sér aldrei á strik í leiknum og töpuðu
þarna mikilvægum stigum í barátt-
unni um efstu sætin.
Norðanmenn vom með undirtökin
nær allan leikinn en FH-ingar náðu
að jafna öðm hvora. Staðan í leikhléi
var jöfn, 12-12, en KA-menn náðu
síðan undirtökunum á nýjan leik.
Þegar 13 mínútur voru eftir náðu
FH-ingar góðum leikkafla og komust
yfir en það stóð ekki lengi. KA-menn
léku miklu betur á lokakaflanum og
tryggðu sér sanngjarnan sigur.
FH-ingar léku langt undir getu
lengst af bæði í vöm og sókn. En það
var þó einn leikmaður liðsins sem
skein skært í gærkvöldi og það var
Hálfdán Þórðarson. Hann átti frá-
bæran leik og var langbesti leikmað-
ur liðsins. Hálfdán hefur átt erfitt
uppdráttar í vetur og var þetta besti
leikur hans í langan tíma. Jónas Stef-
ánsson, ungur og efnilegur mark-
vörður, kom í markið í síðari hálfleik
og stóð sig ágætlega.
„Við vorum mjög slakir og kom-
umst aldrei í gang. Ég var líka
óánægður með nokkur atriði hjá
dómurnum og það skipti líka sköp-
um. Nú verðum við að sigra ÍR í síð-
asta leik og tryggja okkur 4. sætið.
Það er ljóst að við mætum Aftureld-
ingu í úrslitakeppninni og það verð-
ur mjög erfitt eins og allt annað í
þessari jöfnu keppni,“ sagði Guð-
mundur Karlsson, þjálfari FH, eftir
leikinn.
KA-liðið barðist vel og stemningin
var góð hjá leikmönnum. Sigmar
Þröstur Óskarsson varði mjög vel að
vanda og var besti maður liðsins.
Erlingur Kristjánsson lék einnig
mjög vel og Patrekur Jóhannesson
og Valur Órn Arnarson áttu góða
spretti.
2-1, 4-3, 5-6, 8-8, 9-11 (12-12), 14-16, 16-18, 20-19, 22-22, 24-25, 25-27.
• Mörk FH: Hálfdán 8, Gunnar 4, Guðjón 4, Hans G. 3, Sigurður 3/2, Guð-
mundur 2/1, Knútur 1.
Varín skot: Magnús 8, Jónas 6/1.
• Mörk KA: Valdimar 6/3, Eriingur 5, Patrekur 5/1,
Valur Öm 4, Leó Örn 3, Jóhann 2, Atli 2.
Varin skot: Sigmar Þröstur 18/2.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Sigurións-
son, gerðu nokkur mistök en þokkalegir í heildina.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Sigmar ÞrÖstur óskarsson, KA.