Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Síða 6
íþróttir_______________
Fyrstur undir
45sekúndum
Bandaríkjamaðurinn Mjchael
Johnson setti heimsmet í 400
metra hlaupi á innanhússmóti í
Nevada um helgina. Johnson
hijóp vegalengdina á 44,97 sek-
úndum og varö þar með íyrsti
maöurinn til aö hlaupa 400 metr-
ana á innan við 45 sekúndum en
gamla metið átti Bandaríkjamað-
urinn Danny Evrett, 45,02 sek-
úndur sett árið 1992. Á sama
móti setti Jackie Joyner Kersee
nýtt bandarískt met í 50 metra
grindahlaupi en hún kom í mark
á 6,67 sekúndum.
01910 ffi0flinsllB0t
í gær bætti svo Moses Kiptanui
frá Kenía heímsmetið í 3000
metra hlaupi innanhúss á móti í
Belgíu. Tími hans í hlaupinu var
7:35,15 mínútur og bætti hann
met sitt um rúmar 2sekúndur.
Þrjú heimsmet
i sundiþróttinni
Á heimsbikarmóti í sundi sem
haldið var í ShefReld á Englandi
um helgina voru slegin þijú
heimsroet í sundi í 25 metra laug.
Nýsjálendingurinn Danyon Lo-
ader sló heimsmetið í 400 metra
skriðsundi karla. Tími Loaders
var 3:40,46 mínútur en gamla
metið átti Svíinn Anders Hol-
mertz 3:40,81. í 50 metra flugsundi
karla leit nýtt heimsmet dagsins
Ijós. Bretinn Mark Foster bætti
eins árs gamalt met meö því aö
synda vegalengdina á 23.55 sek-
úndum en gamla metið var 23,68
sekúndur. Loks setti Bandaríkja-
maöurinn Jefl' Rouse heimsmet í
50 metra baksundi en tími hans
var 24.37 sekúndur. Gamla metið
átti Frakkinn Franck Schott sem
var 24.60 sekúndur.
Tvö Evrópumet
hjá Voelker
Á þessu sama móti setti þýska
sunddrottningin Sandra Voelker
tvö Evrópumet í 50 metra bak-
sundi á laugardag synti hún á
27,67 sek. og bætti eigið met um
0,1 sekúndu og í gær bætti hún
eigið Evrópumet í 100 metra bak-
sundi þegar hún kom i mark á
59,79 en gamla metiö var 59,97.
uuoiiiffið sigraoi
í30kmgöngunní
Larissa Lazaitina frá Rússlandi
sigraöi í 30 km skíðagöngu
kvenna með hefðbundinni aðferð
á heimsbikarmóti í Holmenkol-
len í Noregi á laugardagixm. Laz-
utina hlaut tímann 1:27,38,5
klukkustundir. Norska stúlkan
Anita Moen varð önnur á 1:
27,47,5 kist og i þriðja sæti varð
Olga Danilova frá Rússlandi á 1:
28,17,7 klst. Heims- og ólympíu-
meistarinn Elena Valbe varð að
gera sér fjóröa sætið aö góðu.
aMiwnovKom
fyrsturímark
Hjá körlunum var keppti í 50
km göngu með hefðbundinni aö-
ferð. Vladimri Smirnov frá Kaz-
akhstan varð hlutskarpastur en
hann fékk tímann 2:09,53,8 klst.
Rússinn Aleksei Pokurorov varð
annar á 2:10,48,3 kist og í þriðja
sæti var Mikhail Botvinov frá
Rússlandi sem kom í mark á 2:
13,18,2 klst
RússarogFhmar
unnubodgönguna
í gær var keppt í 4x5 km boö-
göngu. j kvennaflokki sigruðu
rússnesku stúlkurnar. Noregur
varð 1 öðru sætí og önnur svelt
Rússa í því þriðja. í karlaflokki
urðu óvænt úrslit en Finnar voru
hlutskarpastir. Svíar urðu í öðru
sæti og Norðmenn í því þriðja.
MÁNUDAGUR 13 FEBRÚAR 1995
Kólumbíavann
Kólumbía vann Ástralíu, 0-1, í
vináttulandsleik í knattspyrnu
sem fram fór í Sydney á laugar-
daginn. Hamilton Ricard skoraði
markið og rétt á eftir varði Oscar
Cordoba, markvörður Kólumbíu,
vítaspyrnu. Þetta var fyrsti ósig-
ur Ástrala á heimavelli í 4 ár.
Rehhagei líklegur
Allt bendir til þess að Otto Re-
hhagel verði næsti þjálfari þýska
knattspymufélagsins Bayern
Múnchen, en hann hefur náð frá-
bærum árangri með Bremen.
Olsen verður kyrr
Morten Olsen, fyrram fyrirliði
danska landshðsins í knatt-
spymu, skrifaði um helgina und-
ir nýjan tveggja ára samning sem
þjálfari Kölnar í Þýskalandi.
Raddir höfðu verið uppi um að
hann yrði rekinn vegna slælegrar
frammistöðu Uðsins.
Themtil Rangers?
Sænski knattspyrnumaðurinn
Jonas Thern, sem kemst ekki í Uð
hjá Roma á ítaUu, viU ólmur fara
tÚ Rangers í Skotlandi sem hefur
sýnt áhuga á að kaupa hann.
Pearcetil Japans?
Stuart Pearce, fyrirUði enska
knattspyrnuUðsins Nottingham
Forest, hefur fengið mjög freist-
andi boð frá Kobe í Japan og hef-
ur mikinnáhuga á að lj úka ferlin-
um þar. "
Selleyfótbrotnaði
Ian Selley, leikmaður með
Arsenal, fótbrotnaði eftir aðeins
6 mínútur í leik Uðsins gegn Lei-
ecester í ensku knattspyrnunni á
laugardaginn.
Graham neitar
George Craham, framkvæmda-
stjóri Arsenal, bar á móti frétt
útvarpsstöövar á laugardag um
að hann myndi segja af sér í
næstu viku. Garth Crooks, fyrr-
um leikmaður Tottenham, sem
vinnur á umræddri stöð, kom þar
með þessa frétt og sagði hana
byggöa á öruggum heimildum úr
herbúðum Arsenal. Stjórnar-
menn Arsenal hafa líka borið
fréttina til baka.
Liegegjaldþrota?
Hið kunna belgíska knatt-
spyrnufélag FC Liege rambar á
barmi gjaldþrots, skuldar um 600
milljónir króna og má auk þess
ekki leika á heimaveUi sínum af
öryggisástæðum. Viðræður um
sameiningu við annað 1. deildar
lið, Seraing, eru hafnar.
Þrjú rauð spjöld
Tveir leikmanna Porto og einn
leikmanna Uniao Madeira voru
reknir af leikvelh þegar Uðin
gerðu 0-0 jafntefli á eynni Ma-
deira í portúgölsku knattspyrn-
unni á laugardagskvöldið. Porto
nýtti ekki vítaspymu í leiknum.
Tuttugu handteknir
Tuttugu knattspymumenn og
tveir þjálfarar að auki í Malasíu
eiga yfir höfði sér handtökur
vegna spiUingar. Samkvæmt lög-
um landsins verður sett á þá út-
göngubann frá kvöldi til morguns
og þeir þurfa að tiUcynna sig til
lögreglu daglega í allt að tvö ár.
Refurogljósabilun
Það gekk mikið á í leik Celtic
og Hibemian í skosku knatt-
spyrnunni á laugardag. Fljóðljós-
in á Hampden Park bUuðu tvíveg-
is og oUu töfum á leiknum og svo
hljóp refur þvert yiir vöUinn,
áhorfendum til gífurlegrar
ánægju. Stuðningsmenn Celtic
voru hins vegar ekki sáttir við
úrshtin, 2-2, því það var 15. jafn-
tefli Uðsins 125 leikjum.
Harold Miner, leikmaður Miami Heat, troðslukóngur NBA, sýnir glæsileg
tilþrif þegar hann treður ofan í körfuna í íþróttahöllinni í Phoenix.
Símamyndir Reuter
B B Opna S-Afríkumótið 1 golfi:
Oruggur sigur
hjá Goosen
- var fimm höggum á undan næsta manni
Suður-Afríkubúinn Retief Goosen
sigraði með glæsibrag á opna Suður-
Afríkumótinu í golfi sem lauk í Jó-
hannesaborg í gær. Goosen lék á 275
höggum og var fimm höggum á undan
næsta manni sem var landi hans, Emie
Els. Jafnir í þriðja sæti urðu Mark
McNulty frá Zimbabwe og Mike Chris-
te en þeir léku báðir á 283 höggum.
Goosen lék holumar 72 á 13 högg-
um undir pari vaUarins og hann lauk
keppni með því að fá fálka á síðustu
holu. „Að vinna opna S-Afríkumótið
gerir migekki að neinum frábærum
kylfingi. Ég á langa leið fyrir höndum
en sigurinn gefur manni byr undir
báða vængi og ég lít björtum augum
á árið,“ sagði Goosen eftir sigurinn.
Minervann
troðslukeppnina
Harold Miner, leikmaður Miami
Heat, fagnaði sigri í troöslukeppn-
inni sem haldin er í tengslum viö
stjörnuleikinn í NBA. Hann hafði
betur gegn sigurvegaranum frá því í
fyrra, Isah Rider frá Minnesota. Fyr-
ir sigurinn fékk Miner 20.000 doUara
í verðlaun eða sem svarar 140.000
íslenskum krónum.
Þá vann Glenn Rice, Miami, sigur
í 3ju stigaskotkeppninni eftir harða
keppni við Reggie MiUer hjá Indiana.
A myndinni fyrir ofan eru Shaqu-
Ule O’Neal, Orlando, og Patrick Ew-
ing, New York, í léttum teygjuæfmg-
um fyrir stjömuleikinn og á neðri
myndinni bregða þeir Patrick Ewing
og Alonzo Mourning, Charlotte, á
leik. ÚrsUtin í stjömuleiknum vom
ekki ljós þegar blaðið fór í prentun.
Shaqstigahæstur
íNBA-deildinni
ShaquiUe O’Neal, miðherji hjá Or-
lando, er stigahæsti leikmaður
NBA-deildarinnar í körfuknattieik.
Hann hefur skorað 1367 stig sem þýð-
ir að hann er að skora 30 stig að
meðaltali í leik. Jafnir í öðm til þriðja
sæti eru David Robinson, SA Spurs
og Hakeem Oljuwon, Houston. Tíu
stigahæstu leikmenn í NB A em þess-
ir, fyrst stig síðan meðalskor:
Shaq. O’Neal, Orlando...1368 30,0
David Robins, SA Spurs..1185 28,2
Hakeem Olajuwon, Houston 1184 28,2
Jim Jackson, Dallas.....1157 26,3
KarlMalone.Utah.........1167 25,4
Jamal Mashbum. Dallas...1076 24,5
PatrickEwing.NewYork.... 977 22,7
Mitch Richmond, Sacram.. 990 22,5
Clyde Drexler, Portland. 873 22,4
Cedric Ceballos, Lakers. 880 22,0
Enn bætir
Caiyun metið
Sun Caiyun er hér að stökkva yfir 4,13 m og setja heimsmet i stangarstökki.
Símamynd Reuter
Kínverska stúlkan Sun Caiyun hef-
ur verið iðin við að bæta heimsmet
sitt í stangarstökki. í gær bætti hún
metið í fimmta sinn á árinu þegar
hún stökk 4,13 metra á móti í
Karlsruhe í Þýskalandi. Á föstudag-
inn stökk Caiyun 4,12 metra á móti
í Berlín og í síðustu viku setti hún
met með því að fara yflr 4,11 metra.