Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1995, Síða 8
28
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
íþróttir
John Rhodes, þjálfari IR, var valinn besti leikmaður stjörnuleiksins og hér hangir hann i körfunni eftir að hafa
tekið frákast með tilþrifum. DV-myndir Brynjar Gauti
Mikið skorað í stjömuleik KKÍ:
Stigin urðu tæplega
fjögur hundruð
Róbert Róbertsson skrifar:
B-riðillinn hafði betur gegn A-riðl-
inum í stjömuleik KKÍ í Laugardals-
höll á laugardag. Úrvalslið B-riðils-
ins sigraði eftir tvíframlengdan leik,
199-198, en eftir venjulegan leiktíma,
4x12 mínútur, var staðan jöfh,
165-165. Eftir framlengingu var enn
jafnt, 183-183, en leikmenn B-riðils-
ins höfðu betur í lok annarrar fram-
lengingar.
Leikurinn var á léttu nótunum eins
og hefð er fyrir í svona leikjum en
hann varð þó aldrei eins skemmtileg-
ur og stjömuleikir fyrri ára. Þó var
mikið skorað og hittni leikmanna
með ágætum, enda var vamarleikur-
inn ekki tekinn mjög alvarlega. Oft
sáust skemmtileg tilþrif hjá leik-
mönnum en þau hefðu mátt vera
fleiri og það vantaði virkilega skond-
in og gamansom atriði þó að John
Rhodes hefði gert sitt í þeim efnum.
Rhodes, sem lék með B-liðinu, var
valinn maður leiksins og er hann vel
að þeim titli kominn. John Torrey
og Lenear Bums sýndu einnig
skemmtileg tilþrif og léku vel fyrir
B-liðið.
Kristinn Friðriksson lék best í A-
liðinu en hann skoraöi 10 þriggja
stiga körfur í leiknum. Rondey Rob-
inson lék einnig prýöilega með A-
liðinu.
í leikhléi á stjörnuleiknum fór fram
keppni í 3ja stiga skotum og bar hinn
nýi leikmaður Hauka, Mark Hadden,
sigur úr býtum. Hadden er mjög lit-
skrúðugur leikmaður og þaö hefði
verið gaman aö sjá hann leika í
stjömuleiknum. í troðslukeppninni
sigraði Raymond Hardin, Snæfelli,
en Rondey Robinson varð í öðru sæti.
Stig A-Uðsins: Kristinn 51, Robin-
son 33, Anderson 27, Teitur 23, Pétur
22, Thompson 19, Jóhannes 9, Brypj-
ar 6, Sigfús 4, Jón Amar 4.
Stig B-liðsins: Bums 35, Rhodes 30,
Guðjón 26, Torrey 25, Marel 23, Bow
23, Guðmundur 18, Falur 8, Jón Öm
5, Jón Kr. 5 og Ólafur 1.
Sundmót fatlaðra í Malmö:
Sigrún og Bára
settu heimsmet
Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Bára B. Erlingsdóttir úr Ösp settu báðar
heimsmet í sundi þroskaheftra á Malmö Open, sundmóti fatlaðra sem
lauk í Svíþjóð í gær.
Sigrún synti 50 metra skriðsund á 32,54 sekúndum og Bára synti 50
metra flugsund á 38,67 sekúndum.
Ennfremur setti Hilmar Jónsson úr Ösp íslandsmet í 50 metra bringu-
sundi þroskaheftra, 38,54 sekúndur.
Skagf irsku bræð-
urnir settu met
Efnilegir bræður úr Skagafirði,
Sveinn og Björn Margeirssynir, settu
báðir met í 1.000 metra hlaupi innan-
húss á móti sem haldið var í Kapla-
krika á föstudagskvöldið.
Sveinn setti bæði drengja- og ungl-
ingamet, 2:37,3 mínútur, og Björn
setti sveinamet, 2:42,1 mínútu. Sig-
mar H. Gunnarsson úr UMSB sigraði
í hlaupinu á 2:35,4 mínútum, sem er
ekki langt frá íslandsmeti. Sveinn
varð þriðji og Björn fimmti.
Eygerður Halldórsdóttir úr Aftur-
eldingu, sem er aðeins 12 ára, bætti
stelpnametið í 1.000 metra hlaupi um
10 sekúndur á sama móti. Eygerður
varö önnur í hlaupinu á 3:26,9 mínút-
um en Laufey Stefánsdóttir, sem er
gengin til liðs við FH úr Fjölni, sigr-
aði á 3:05,4 mínútum.
Steinn Jóhannsson, FH, sigraði í
800 metra hlaupi á 2:02,0 mínútum.
Eggert Bogason, FH, sigraði í kúlu-
•varpi karla með 15,59 metra.
Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK, sigr-
aði í kúluvarpi kvenna með 11,68
metra.
Bjarni Þór Traustason, FH, sigraöi
í langstökki með 6,80 metra.
Friögeir Halldórsson, USAH, sigr-
aði í stangarstökki með 4,10 metra.
Hjalti tapaði í
úrslitum um brons
Hjalti Ólafsson úr Þórshamri hafnaði í fjórða sæti í -75 kg flokki á opna
finnska meistaramótinu í karate sem fram fór í gær. Hjalti lagði þrjá
fyrstu mótheija sína en mætti síðan Timanen, besta karatemanni Finna,
í úrslitaviöureign um bronsverðlaunin og beið lægri hlut fyrir honum.
Halldór Svavarsson var einnig á meðal þátttakenda en féll strax úr
keppni.
Gunnar og Helga unnu tvöfalt
Gunnar Gunnarsson úr UFA á
Akureyri og Helga Halldórsdóttir úr
FH urðu bæði tvöfaldir íslandsmeist-
arar í atrennulausum stökkum á
fóstudagskvöldið en þá fór meistara-
mótið fram í Kaplakrika í Hafnar-
lirði.
Gunnar stökk 3,19 metra í lang-
stökki og 9,01 metra í þristökki.
Helga stökk 2,77 metra í langstökki
og 8,03 metra í þrístökki.
Magnús Hallgrímsson, HSK, sigr-
aði í hástökki karla, stökk 1,55 metra.
Vigdís Guðjónsdóttir, HSK, sigraði
í hástökki kvenna, stökk 1,30 metra.
Þátttakendur á mótinu voru aðeins
tíu að þessu sinni.
Raymond C. Hardin úr Snæfelli fór
á kostum í troðslukeppninni og hér
tryggir hann sér sigurinn.
Golf:
Úlfarfékk
30 þúsund
Úlfar Jónsson náði að komast í
verðlaunasæti í fyrsta Tommy
Armour golfmótinu sem lauk á
Wedgefield vellinum í Orlando á
flnuntudagskvöldið. Það er í röð
af mótum atvinnumanna og þrjá-
tiu fyrstu fá peningaverðlaun, og
hafnaði Úlfer í 26. sæti af 115
keppendum, sem færði honum
rúmlega 30 þúsund krónur. Úlfer
lék á 221 höggi en Brad Lehman
sigraði á 211 höggum.
Tveir aðrir íslendingar tóku
þátt í mótinu. Jón Karlsson lék á
231 höggi og Sigutjón Amarson á
236 höggum.
Úlfer og Sigurjón munu taka
þátt í þessari mótaröð næstu
mánuðlna en Jón verður með í
2-3 mótum til viðbótar og er síðan
væntanlegur heim.
Óvenju slæmar aðstæður voru
í Orlando síðasta keppnisdaginn
en framan af degi var hávaðarok
og hiti um frostmark.