Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1995, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1995, Síða 4
20 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1995 TÓNL 1 SJAR H i\ H '1 ;j 7 M 1 U j-j u j j jj j j j j Basketballs Best Kept Secret - Ýmsir Leynarmálið betur varðveitt? • >*N Ú £ST A E PTT ist Darren Emmerson í Underworld er ábyrgur fyrir plötusamningi T-World drengja við Underwater-útgáfufyrirtækiö. Réttur staður á réttum tíma: T-World komnir með útgáfusamn- ing í Bretlandi Danstónlist ýmiss konar hefur náð gífurlegum vinsældum um heim ailan á síðustu árum. Fólk aðhyllist ýmist evrópska strandpoppið eða þá tónlist sem dynur i danshúsum um heim all- an og er oftast ekki gefin út nema í 12” vinylforminu. Tölvunotendur um all- an heim liggja yfir tónlistarforritun- um sínum, samplerunum og hljóm- borðunum, iðnir við að berja saman takt sem ýtir undir hreyfigetu dans- unnenda. Þegar kemur að útgáfu danstónlist- ar á 12” er ekki sama á hvaða merki listin er gefin út. Stærstu fyrirtækin í þessum bransa eru m.a. Network, XL, Gorilla Records, Warp, Junior Boys Own og Underwater. Nú nýlega komst einmitt íslensk hljómsveit á samning hjá Underwater útgáfufyrirtækinu. Heimtuðu samning Ævintýri T-World drengjanna, Bigga og Magga Legó, hófust hér á landi fyrir tæpu ári. Flestir muna íslendingar eftir stór- tónleikum Bjarkar í Laugardalshöll- inni. Innfluttir skemmtikraftar tón- leikanna voru drengirnir í Und- erworld með Darren Emmerson fremstan jafningja. Um svipað leyti voru drengimir í T-World að spila á skemmtistaðnum Venusi (nú Bóhem) og til að gera langa sögu stutta sá Emmerson drengina hreyfast svo að um munaði og heimtaði plötusamning (verandi í góðu sambandi við Junior Boys Own). Undirmerkið Underwater tók útgáf- una að sér og í janúar á þessu ári kom út fyrsta 12” T-World erlendis og bar hún nafnið An-them. Lagið fékk góð- ar viðtökur plötusnúða í Bretlandi og á næstunni má búast við annarri 12” drengjanna þar ytra. Þess má geta að Junior Boys Own fyrirtækið er með stóran dreifingarsamning í Bandaríkj- unum. Iðnir við kolann Maggi Legó og Biggi eru betur þekktir í útgáfústarfseminni en spila- bransanum. Með þessu sannast kannski að tónleikahald danssveita er ekki eins mikilvægt og annarra sveita, þetta er meira spurning um að vera á réttum stað á réttum tíma. Fyrsta lag T-World kom út á Egg ‘94 sem Smekk- leysa stóð fyrir. Einnig voru þeir báð- ir viðriönir útgáfu plötunnar Núll og Nix sem tískublaðið Núllið stóð fyrir á sínum tíma. Þessar fyrstu jákvæðu viðtökur er- lendra plötusnúða eru góðs vísir, enda engir viðvaningar þar á ferð. Fyrir- tækið Junior Boys Own stefnir einnig á útgáfu safnplötu sem T-World dreng- ir hafa verið orðaðir við. Dansunnend- ur og tölvunotendur á íslandi ættu því ekki að örvænta þótt þeir hafi ekki enn komist út úr bílskúmum. Réttur stað- ur á réttum tíma getur breytt öllu eða bara gott demo. GBG Hugmyndin að þessari plötu hefur líklega fæðst eftir að hinn 22 ára gamli Shaquille O'Neill gaf út sína fyrstu plötu. Eru virkilega til körfuboltamenn í NBA-deildinni sem geta rappað? íþróttin er alla vega nógu vinsæl til að láta á það reyna. Nýlega náði til dæmis bandaríski stjörnuleikurinn meira áhorfi en úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum. Körfuboltakappamir, sem þessa plötu prýða, era: Dana Barros, Malik Sealy, Shaq O'Neill, Cedric Ceballos, Brian Shaw, Chris Mills, Jason Kidd, Isiah J.R. Rider, Dennis Scott og Gary Payton. Yrkisefnin era ýmist um leikmennina sjálfa (uppfull af sjálfshóli) eða glaum og gleði. Eina alvarlega yrkisefnið er að^ finna í texta Brian Shaw en hann missti móður sína, fóður og systur í bílslysi árið 1993 og tileinkar lagið frænku sinni sem var sú eina sem komst lífs af. Það má deila um það vel og lengi hvort þessir fræknu körfuboltakappar eigi einhverja samleið með tónlistinni. Rapparar sem standa upp úr eru Dana Barros, Shaq og Cedric Ceballos en þeir sem eiga mest hrós skilið era upptökustjóramir. Hljómurinn er með besta móti, enda nóg til af peningum. Upphafslag plötunnar er einnig skemmtilegt en þar rappar maður að nafni Bamboo í takt við eitt stk. körfubolta. Þegar á heildina er litið er platan ekki stórt framlag til rappmenningar Bandaríkjamanna en engu að síður er þetta skemmtilegur safngripur íyrir aðdáendur NBA-deildarinnar. Hefði leyndarmálið betur verið varðveitt? Spuming sem verður einungis svarað af kaupendum. - Guðjón Bergmann Throwing Muses - University Kemur á óvart Söngkonuhljómsveitir eiga mjög upp á pallborðið þessa dagana. Nægir þar að nefna erlendar sveitir á borð við Cranberries, Belly, Echobelly, Throwing Muses o.fl. og Unun og Spoon hér innanlands. Aðaldrifíjöður Throwing Muses er söngkonan Kristin Hearsh sem vakti mikla athygli á síðasta ári með sólóplötu sinni Hips and Makers. Augljóst er að Hearsh hefur hlustað talsvert á Debbie Harry, alias Blondie á yngri árum; margt af því sem er að finna á þessari nýju plötu Throwing Muses minnir talsvert á tónlist Blondie í upphafi ferilsins. Þetta er kraftmikið og frískt melódískt rokk; munurinn er helst sá að tónlist Throwing Muses er eilítið hrárri en jafnframt mun fjölbreyttari en það sem Blondie bauð upp á á sínum tíma. Fyrir vikið krefst hún virkrar hlustunar; þarf sinn tíma til að síast inn, en eins og með allar góðar plötur fá menn ríkulega uppskera erfiðisins, ef erfiði skyldi kalla. Nær væri að tala um þolinmæði. -Sigurður Þór Salvarsson Dan Hartman - Keep the Fire Burain' Minning um mann Dan Hartman var einn af þeim sem settu svip á diskóbylgjuna á sínum tíma. Hartman er nú allur; féll frá í íyrra á besta aldri og þar af leiðir þessi safnplata með öllum stærstu smellum hans gegnum tíðina. Hætt er við að flestir séu búnir að gleyma Hartman enda komin tíu ár síðan hann sást síðast á vinsældalistunum. Hans ferill dó með andláti diskósins. En á meðan hann var og hét samdi hann og söng mörg vinsæl lög og má þar á meðal nefna lögin Keep the Fire Bumin', Instant Replay, Free Ride, Living in America og síðast en ekki síst I Can Dream about You. Flest þessi lög hafa elst afar illa að mínu mati enda böm síns tíma og brennd marki tónlistarstefnu sem gekk sér ótrúlega fljótt til húðar, þó hún skjóti alltaf við og við upp kollinum. í samræmi við eðli diskóstefnunnar era lögin ákaflega formúlu- og klisjukennd og höfða á engan hátt til neins annars en fóta hlustenda. Sem slík eru þau góð til síns brúks en þar með er það upptalið. - Sigurður Þór Salvarsson Unun-Æ: ★ ★ ★ Tónlistin er poppað melódíupönk. Allur hljóðfæraleikur er til fyrirmyndar og hljómurinn betri en maður á að venjast í þessari deild tónlistarinnar. Unun má kallast „óvæntasta góðverkið" tyrir þessi jól. -GB Ýmsir-Headz: ★ ★ ★ Þrátt fyrir nokkuð löng lög er tónlistin virkilega góð, nægileg til þess aö stemningin endist út lagið. -PJ Mannakorn- Spilaðu lagið: ★ ★ ★ Það eru þekktustu smellimir frá tveggja áratuga ferli Mannakoms sem hljóma á plötunni. Þar sem Mannakornsmenn gerast frjálslegastir og óformlegastir í útsetningum tekst þeim best upp. -ÁT Ýmsirflytjendur -The Unplugged Collection: ★ ★ ★ Platan er áheyrileg og góð auglýsing fyrir Unplugged sjónvarpsþættina hjá MTV sem njóta sívaxandi vinsælda. -ÁT Björgvin Halldórsson - Þó líði ár og öld: ★ ★ ★ Þegar lagalisti plötunnar er skoðaöur spyr maöur sig ekki endilega hvers vegna varð þetta lag fyrir valinu heldur hvers vegna var þessu laginu eða hinu sleppt. -ÁT Hallbjörn Hjartarson - Kántrí 7 - Það besta: ★ ★ ★ Það má vera þunglyndur maður sem ekki kemst i gott skap við að hlusta á þessa plötu Hallbjöms sem er full af geislandi gleði og hlýju. -SÞS Tweety-Bít: ★ ★ ★ Nýju lögin eru flest popgað rokk og standa ágætlega sem slik. Áheyrilegust eru Gott mál og Alein. Önnur eru hversdagslegri. -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.