Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1995, Page 4
30
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995
Bílar
Reynsluakstur Hyimdai Accent 1,3:
Stendur vel fyrir sínu
Þegar bílar kóreska bílaframleiðand-
ans Hyundai birtust á bílamarkaöi
hér á landi fór sala þeirra hægt en
örugglega í gang og það leið ekki á
löngu þar til að þeim tókst að ná góðri
fótfestu á markaðnum og nú er svo
komið að í heildarsölu hefur Hyundai
náð að blanda sér í toppbaráttuna.
Minnsti bíllinn frá Hyundai var í
byrjun Pony og í kjölfarið kom arf-
taki hans, Accent, sem verið hefur
að sækja í sig veðrið á markaðnum
að undanfömu.
Hyundai Accent er nú fáanlegur
bæði með 1,3 og 1,5 lítra vél og kostar
ódýrasta gerðin 949.000 krónur. Það
er einmitt einn slíkur sem við ætlum
að líta á nánar að þessu sinni en við
höfum áður fjallað ítarlega um
Hyundai Accent svo hér verður að-
eins tæpt á því helsta.
Accent er hefðbundinn fjölskyldu-
bíll, með frísklegt útlit sem einkum
birtist í niðursveigðum framenda og
bogmynduðu formi. Afturendinn er
nokkuð hærri og gerir það bílinn
fleygmyndaðri en ella.
Nývél
Vélin, sem er 1.341 rúmsentímetri,
er alveg ný og kaflast Alpha. Hún er
mun léttbyggðari en eldri vélin og ný
hönnun á brunaholi, hreyflörmum og
kveikjukerfi gerir sitt til að hún er
bæði spameytnari og hljóðlátari en
áður. Eyðslan er sögð vera á bilinu 7
til 8 lítrar á hundraðiö í blönduðum
bæjarakstri en getur orðið mun minni
í jöfnum þjóðvegaakstri.
Það kom nokkuð á óvart hve þessi
nýja vél er í raun spræk og það ásamt
því hve bíllinn er lipur í akstri gerir
daglega notkun hans ánægjulega.
Það fer vel um ökumann og farþega
í Accent. Sæti eru ágæt og styðja
betur við bak og mjóhrygg en æfla
Mælaborð og stjórntæki eru ágæt
og í heild er yfirbragð bílsins traust-
vekjandi.
Hyundai Accent - nú með nýrri 1,3 lítra vél og á ágætu verði - þriggja hurða billinn kostar 949 þúsund krónur.
DV-myndir BG
mætti við fyrstu sýn. Hægt er að
stilla ökumannssæti eftir óskum
hvers og eins og stuðningsstilling er
við mjóhrygg. Ágætt rúm er fyrir
alla, jafnt í fram- og aftursætum.
Búnaður
Vegna þess að hér er um þriggja
hurða bíl að ræða þarf að velta fram
baki framsætis til aö komast í aftur-
sætið. Bakið fellur fram og sætið í
heild rennur fram í sleðanum og gef-
ur þannig gott pláss fyrir þann sem
þarf að setjast í aftursætið. En þegar
setja á framsætið aftur í fyrra horf
„man“ það ekki í hvaða stöðu það
var og því þarf aö stilla það upp á
nýtt í hvert sinn sem einhverjum er
hleypt í aftursætið. Þetta er stór ljóð-
ur á annars ágætum bíl, nánast sá
eini ef frá er talinn baksýnisspegill-
inn sem getur truflaö útsýni öku-
manns við vissar aðstæður.
Heldur hefur verið dregið úr stað-
albúnaði Accent í þessari ódýrustu
útfærslu. Vökvastýri er þó tfl staðar,
nokkuð sem telja má nánast sjálfsagt
í bíl af þessari stærð, og þá er hann
einnig búinn ágætu útvarpi sem
einnig er staðalbúnaður frá verk-
smiðju.
Rúðuvindur eru handknúnar,
nokkuð sem er í besta lagi í bíl sem
þessum, en heldur saknaði undirrit-
aður þess að samlæsingar eru ekki
tfl staðar.
Frágangur á mælaborði og stjórn-
tækjum er með ágætum og í heild
býður bíllinn af sér góðan þokka og
er traustvekjandi.
Af öðrum staðalbúnaði má nefna
Alpha-vélin, sem er ný og með end-
urbættri hönnun, er ágætlega spræk
og um leið sparneytin.
þurrku með rúðusprautu að aftan,
klukku og afturrúðuhitara með
tímarofa.
í heild má segja um þessa ódýrustu
útfærslu á Hyundai Accent að þetta
sé bfll sem stendur vel fyrir sínu og
kemur að sumu leyti á óvart vegna
góðra eiginleika og innanrýmis. Verð-
ið, kr. 949.000, er þokkalegt fyrir bfl í
þessum stærðarflokki. Umboð er Bif-
reiðaroglandbúnaðarvélarhf. -JR
Löggiltir bílasalar stofna félag:
ma
nema að vera með löggildingu
Frá og með morgundeginum, 28.
febrúar, má enginn starfrækja bif-
reiöasölu nema að vera með Iög-
gfldingu. Annað kvöld er boðað til
stofnfundar Félags löggfltra bif*
reiöasala á Hótel Islandi.
Meginmarkmið félagsins er að
standa vörð um hagsmuni félags-
manna með þvi að stuðla aö heil-
brigðum viðskiptaháttum i bif-
reiðaviðskiptum. Bifreiðasalar
vilja að viðskipti með notuð öku-
tæki séu sambærileg þvi besta sem
gerist i viðskiptum með fjármagn.
Helstu verkefni félagsins snua að
upplýsingamiðlun út á við, iræðslu
til félagsmanna og rekstri siða-
nefndar i þeim tilgangi að skapa
Vs.
fagleg vinnubrögð og auka traust
og virðingu bifreiðasala í þjóöfélag-
inu.
Af hálfu þeirra sem undirbúið
hafa stofnun félagsins er lögð á það
áhersla að með þessu er ekki ein-
göngu verið að gæta hagsmuna fé-
lagsmanna heldur neytenda einnig,
þvi að bifreiðasalar ætia, eins og
kemur fram í fundarboði þeirra,
að gefa sjálfum sér auga i framtíð-
inni.
Aktu inn
í góuna
MMC Galant GLS,
'88, ek. 99 þús.
Kr. 720.000 stgr.
Daihatsu Rocky EL II,
'88, ek. 99 þús.
Kr. 990.000 stgr.
Renault Clio RT/A,
'92, ek. 24 þús.
Kr. 860.000 stgr. Einnig flestar
tegundir af Clio.
VW Polo
'90, ek. 61 þús. Kr. 390.000.
.V'——faS?' ^Írj
Renault 19
'92, ek. 62 þús.
Kr. 900.000 stgr. Einnig RT
'93, '94, RTi '94.
Honda Civic ESi
'92, ek. 44 þús.
Kr. 1.180.000 stgr.
Notaður BMW,
næstbesti kosturinn, 320i,
'91, ek. 59 þús., sóllúga o.fl.
Kr. 1.690.000 stgr.
Not. BMW, næstb. kosturinn
520ÍA '91, ek. 70 þ., sóll., læst
dr. Kr. 2.150 þ. stgr. Og 520ÍA
'89 V. 1.550 þ, 520i '89, o.fl.
Utsölubílar
á Visa/Euro,
skuldabréfum.
1. gjalddagi í apríl.
Vantar allar gerðir
nýlegra bíla á skrá
og á staðinn.
Bílasaian Krókhálsi,
Krókhálsi 3, Sími 567-6833
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1, Reykjavík