Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Page 4
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995 3 T Ó N L I iÍEl|| jj Thunder - Behind Closed Doors k Klassaklisja Fyrirsjáanlegri gerast þær varla. Á Behind Closed Doors er nánast ekkert sem kemur á óvart. Tónlistin er þungarokk af allra venjulegustu gerð, svipað og Black Sabbath var að gera fyrir 15 árum (þ.e. eftir að Ozzy fór) og platan í heild ein risastór klisja - tónlist og textar, söngstfll og hljóðfæraleikur nákvæmlega eins og hjá öllum hinum klisjuköllunum í þungarokkinu. Nafnið á hljómsveitinni er líka vel við hæfi og kannski stærsta klisjan í sjálfu sér. Varla er hægt að ímynda sér nafn sem hæfir tónlistarstefnunni betur. Góðu fréttimar eru þær að hér er mjög vel farið með klisjuna. Hljóðfæraleikur og söngur eru í gæðaklassa og gítarsólóin eru góð þó þau séu mjög hefðbundin. Hljómurinn á plötunni er líka fyrsta flokks og öll tæknivinna virðist óaðfinnanleg. Þessi klisja er í toppklassa. Gallinn er bara sá að platan bætir engu við það sem áður hefur verið gert. Tónlistin er svo sem ekki beint leiðinleg og getur alveg virkað sem bakgrunnstónlist en um leið og maður fer að leggja við hlustir skín innihaldsleysið í gegn. Þetta er eigiþlega ekki tónlist heldur tónvara eða tónframleiðsla og sem slík er hún fyrsta flokks. Ég myndi nú samt ráðleggja fólki að setja bara gamla Black Sabbath plötu á fóninn. - Pétur Jónasson Deus - Worst Case Scenarío 'k'k'k'k Himneskt Deus þýðir Guð og tónlistin sem Deus býður upp á er nánast guðdómleg, svo þeir eru sosum ekki að taka neitt alltof stórt upp í sig með þessari metnaðargjömu nafngift. Hljómsveitina skipa fimm belgískir tónhstarmenn sem líta alveg hreint fáránlega eðlilega út miðað við tónlistina sem þeir flytja. Á plötunni ægir öllu saman og margar mismunandi tónlistarstefnur koma við sögu. Rokk og ról, þungarokk, þjóðlagarokk, djass, blús, popp og pönk skelia saman í mikilli tónlistarorgíu. Öllu er blandað saman á mjög kaótískan en smekklegan hátt og stundum er jafnvel algjörlega skipt um stfl nokkrum sinnum í sama lagi. Oft finnst manni tónlistin kunnugleg, en þó er hún engu lík, og styrkur hljómsveitarinnar liggur helst í fjölbreytileika og ferskleika. Mikið er um tilraunastarfsemi og hugmyndaauðgi hljómsveitarmanna virðist fá takmörk sett. Erfitt er að gera upp á milli góðra laga, en þó er hægt að segja að þijú þeirra séu rjóminn sem flýtur á toppnum. Great American Nude er í þrusugóðum Tom Waits ffling, einnig Mute, sem er þó svoh'tið pönkaðra, með mystískum bassa og vel víruðum gítar. Suds & Soda er hins vegar villt og kraftmikið pönkrokklag, tilvalið til að misþyrma heymartólunum. Önnur verulega eftirtektarverð lög eru t.d. titillagið, Morticiachair, Hotellounge og Divebomb Jingle. Annars er platan öll eymakonfekt af bestu gerð. - Pétur Jónasson The Long Black Veil - The Chieftains **** . Beint í mark Keltnesk þjóðlagatónlist hefur ekki beinlínis átt greiða leið að eymm hins almenna hlustanda. Kannski hefur markaðssetningunni einfaldlega verið áfátt. Að minnsta kosti hefur Paddy Moloney, framlínumaður írsku hljómsveitarinnar The Chieftains, fundið leið til að fá fólk til að leggja við eymn: með því að leita liðsinnis heimsþekktra poppara og rokkara og fá þá til að taka lagið með sér og félögum sínum. Gestalistinn á The Long Black Veil er ótrúlegur. Þar er Mick Jagger með og án Stones. Sting er á listanum, sömuleiðis Mark Knopfler, Marianne Faithfull, Tom Jones og Ry Cooder. Ekki má svo gleyma írunum Van Morrison og Sinead O’Connor og fjöldanum öllum af hljóðfæraleikumm sem spila með á plötunni. Með því að safna slíkum hópi saman á eina og sömu plötuna gæti maður búist við miklum graut með ólflcum bragðefnum. Því er ekki til að dreifa. Paddy Moloney, pródúsent plötunnar, sveigir alla gestina að sinni stefnu og tekst það vel. Það er raunar erfitt að hrósa einum fremur en öðmm. Þó skal nefnt að O'Connor hefur verið hálfmunaðarlaus í stefnur.ui að undanfömu en þama skín stjama hennar sannarlega skært. Og samleikur Stones og Chieftains í The Rocky Road to Dublin er bráðskemmtilegur. Maður hrekkur óneitanlega við þegar upphafsstef Satisfaction þmmast í gegnum glaðlegt þjóðlagið en útkoman er töff og það er fyrir mestu. Poppaðar útsetningar verka gömlu meistaranna hafa opnað eyra margra fyrir sígildri tónlist. Ég hygg að það framtak Chieftains að fá heimskunna söngvara og hljóðfæraleikara til að sþila með sér keltneska þjóðlagatónlist fáí fleiri en hingað til til að leggja eymn við þeirri eðalstefnu. - Ásgeir Tómasson Hljómsvertin Tweety: Plata í haust og þrjú eða fjögur lög á safnplötum í vor og sumar. Hlj óms veitin Tweety - spilaði í Veggnum með Verslunarskólakórnum Hljómsveitin Tweety hefur haft í nógu að snúast síðustu vikur og mán- uði. Hún hefur leikið á dansleikjum og tónleikum um hveija helgi siðan í desember, æft og komið fram með Nemendamótshópi Verslunarskólans í Veggnum og spilað á samtals níu skólaböllum. Þessa dagana er hljóm- sveitin í óðaönn að taka upp nýja plötu. Sú er reyndar ekki væntanleg á markaðinn nærri strax en væntanlega fær fólk forsmekkinn af henni á safti- plötum í vor og sumar. „Platan á ekki að koma út fyrr en um næstu jól,“ segir Þorvaldur Bjami Þorvaldsson sem stofnaði Tweety með Andreu Gylfadóttur fyrir um það bil ári. Þau voru dúett fýrstu mánuðina eftir stofnun Tweety sem nú er orðin að fullvaxinni hljómsveit eftir að Máni Svavarsson, Eiður Amarsson og Ólaf- ur Hólm bættust i hópinn. „Ég reikna með því að það verði tólf til fjórtán lög á plötunni," bætir Þorvaldur Bjami við, „en hvert þeirra er gert í tveimur til þremur útgáfum svo að okkur veit- ir ekkert af tímanum núna.“ Hljómsveitin hefiir í nógu að snú- ast með plötuupptökunni. Hún leikur á dansleikjum og hljómleikum um hverja helgi og er búin að fara víða um land síðustu mánuðina auk þess að leikja á suðvesturhominu. Þá spil- aði hún jafhframt stórt hlutverk í upp- setningu Verslunarskólans á Veggn- um eftir liðsmenn Pink Floyd sem sýndur var á Nemendamóti. Þorvald- ur Bjami sá þar um æfingar á tónlist og Tweety lék undir. Þorvaldur Bjami segir að raunar sé hópurinn búinn að fara hringinn tvisvar það sem af er árinu. Veðrátt- an hefur furðulítið strik sett i reikn- inginn ennþá. „Við höfum komist til allra staða sem við höfum ætlað okk- ur,“ segir hann. „Stundum hefur kannski ekki gengið alveg jafn vel að komast í burtu en þá höfum við bara drepið tímann með því að spila Scrabble!" So Cool erlendis Fyrsta lagið sem Tweety sendi frá sér á plötu var So Cool. Það kom út í fyrravor og vakti ekki nema miðlungs- athygli. Lagið var gefið út í Hollandi í byrjun þessa árs og þar skiptust við- tökumar í tvö hom. „So Cool fékk annars vegar mjög góðar viðtökur og hins vegar mjög slæmar," segir Þorvaldur Bjami. „Það er ekkert nema gott um það að segja að fólk skuli hafa tekið afstöðu. Lagið sló ekki í gegn en það lifði í einn og hálfan mánuð, fékk svokallaða B-spil- un í útvarpi sem þýðir að það heyrð- ist einu sinni til tvisvar á dag. Þetta nægði til þess að við fengum boð frá útgáfuréttarfyrirtæki um að reynt yrði að vinna nánar með lagið og nú bíðum við eftir að sjá hvað kemur út úr því.“ Þorvaldur Bjami Þorvaldsson seg- ir að hljómsveitin hafi á síðasta ári verið að læra æ betur á dansbylgjuna. Reynslan Eif plötunni Bít er þvi notuð við gerð þeirrar nýju og þar er ætlun- in að bjóða upp á hvort tveggja popp- og dansútgáfur af lögunum sem verða með. „Við vorum reyndar að hugsa um að senda frá okkur tvær plötur á þessu ári,“ segir hann og hlær, „aðra í vor og hina fyrir jól. En svo komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri of mikið fyrir plötumarkaðinn eins og hann er núna. Þess í stað ætlum við að notfæra okkur safnplötumar í vor og sumar og ég reikna með að við send- um örugglega frá okkur þrjú eöa fjög- ur ný lög á þeim. Safnplötumar hafa líka reynst okkur vel. Fyrstu tvö lög- in okkar á þeim vom reyndar ekki eins mikið spiluð í útvarpi og þau sem síðar komu en þaö sýnir sig þar sem við komum og spilum að krakkarnir kunna þau fyrstu utan að. Sala safn- platnanna er lika svo góð að segja má að lögin af þeim lifi sjálfstæðu lífi hvort sem þau fá mikla spilun eða litla.“ Tweety heldur áfram að leika á‘ dansleikjum af fullum krafti í vetur, vor og næsta sumar jafnframt því sem haldið verður áfram að pikka í erlenda markaðinn, eins og Þorvaldur Bjami orðar það. Hann segir ekki loku fyrir það skotið að hljómsveitin fari utan til að spila ef allt gengur að óskum í Hollandi en ekki sé tímabært að ræða um það á þessari stundu. „En okkur líst vel á það sem ffarn undan er,“ segir hann. „Okkur hefur gengið mjög vel á böllum eftir dálítið dræmt upphaf í nóvember. Síðan höf- um við ekki þurft að kvarta, nema ef vera skyldi á Akureyri. Sömuleiðis hafa skólaböllin gengið upp. Þá er hljómsveitin orðin hörkuþétt sem tón- leikaband, jafnvel þéttari en Tod- mobile meðan við vorum í henni. Þótt ég voni að við finnum aldrei endan- lega rétta hljóminn í tónlistinni sýn- ist mér að við séum á réttri leið.“ J J. Soul Band - Hungry for News: Van Halen - Balance: Tweety-Bít ★★★ Heildarsvipur plötunnar er ffekar róleg- ur en lögin em mörg hver ágætlega samin og útsetningar em góöar. Lög eins og titil- lagið, Hungry for News, Jazzman, Look og Under the Sun em allt vel flutt lög og hægt að taka þau fram yfir þótt önnur lög standi þeim lítt að baki. ★★★ Fjórmenningarnir í Van Halen em imd- ir stjórn Fairbams á sinni nýjustu, Balance, og þurfa ekki að sjá eftir þeirri mannaráðningu. Balance er með afbrigð- um þétt og hþómur og hljómblöndun hafin yfir gagnrým. -ÁT ★★★ Nýju lögin em flestpoppað rokk og standa ágætlega sem slík. Aheyrilegust em Gott mál og Alein. Önnur em hversdagslegri. -ÁT -HK Ýmsir flytjendur -The Unplugged Collection: Van Halen-Balance: Ýmsir-Headz: ★★★ ★★★ ★★★ Eddie Van Halen fer á kostum í Balance Þrátt fyrir nokkuð löng lög er tónlistin virkilega góð, nægilega til þess að stemn- ingin endist út lagið. -PJ Platan er áheyrileg og góð auglýsing fyr- ir Unplugged-sjónvarpsþættina hjá MTV sem njóta sívaxandi vinsælda. -ÁT eins og hans er von og vísa og ég er ekki frá því að Sammy Hagar sé upp á sitt allra besta um þessar mundir. -ÁT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.