Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1995, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 1995
5
Fréttir
Bolvikingar ekki á eitt sáttir um söluna á Ósvör:
Losar Bolvíkinga úr
viðjum bæjarútgerðar
- segir Valdimar Lúðvik Gíslason
Reynir Traustason, DV, Bolungarvik;
„Við höfum áður fengið góðar
sendingar frá Hnífsdal. Einar Guð-
finnsson kom 1924 vegna þess að
ekki var pláss fyrir hann þar. Það
er sama upp á teningnum núna hvað
varðar Aðalbjörn Jóakimsson, nú
vantar hann aukið svigrúm. Þetta er
maður sem sýnt hefur mikinn dugn-
að og áræði á undanfórnum árum.
Hann byrjaði smátt og hefur spilað
vel úr því,“ segir Valdimar Lúðvík
Gíslason, sérleyfishafi í Bolungarvík,
vegna fyrirhugaðra umsvifa Aðal-
bjöms Jóakimssonar, eiganda Bakka
hf. í Bolungarvík.
„Menn hljóta að vera mjög bjart-
sýnir á þetta. Hér er nóg aðstaða fyr-
ir mikil umsvif. Ég hef mikla trú á
því að þetta gangi því þetta verður í
upphafi það öflugt fyrirtæki. Þá losar
þetta okkur Bolvíkinga úr viðjum
bæjarútgerðar," segir Valdimar Lúð-
vík.
Það eru ekki allir sammála Valdi-
mar hvað varðar kaup Bakka á Ós-
Guðmundur Halldórsson, starfsmaður Ósvarar, við vinnu sína á netaverk-
stæði fyrirtækisins. Hann segir fyrirtækið verða of skuldsett til að verða
starfhæft. DV-myndir BG
vör hf. og það má segja að menn
skiptist mjög í tvö horn hvað þetta
varðar. Guðmundur Halldórsson,
starfsmaður Ósvarar, er einn þeirra
sem gagnrýnir söluna á Ósvör. Hann
segir skuldir hins sameinaða fyrir-
tækis verða allt of háar.
„Þetta fyrirtæki verður mjög
skuldsett eftir því sem ég sé þetta.
Það er talað um einhverja fiárfesta
sem eigi að koma inn í þetta en eng-
inn veit hverjir það eru. Það eru
huldumenn sem sagt er að eigi að
koma inn með 300 milljónir. Ef það
gengur eftir þá breytir það ein-
hverju,“ segir Guðmundur.
„Þetta fyrirtæki verður óstarfhæft
með öllum þeim skuldum sem á því
hvíla. Með kvótanum frá Bakka, sem
á að færa á Ósvöru, fylgja miklar
skuldir og mér sýnist þetta fyrirtæki
muni skulda um 1,2 milljarða. Þá
liggur fyrir að annar togari fyrirtæk-
isins er í rúst og það kostar stórfé viö h°,um áður fengið góðar send-
að koma honum af stað,“ segir Guð- ingar frá Hnífsdal. Einar Guðfinns-
mundur. son kom 1924 Þaðan, segir Valdimar
Lúðvík Gislason í Bolungarvik.
Þjóðhagsstofnun:
Sérkjarasamning-
arniruppáaðeins
0,2-0,3 prósent
Þjóðhagsstofnun hefur að beiðni
ríkissáttasemjara metiö sérkjara-
samninga þá sem félög innan ASÍ og
vinnuveitendur gerðu með sér á dög-
unum. Þjóðhagsstofnun segir sér-
kjarasamningana afar flókna og
margvíslega. Þess vegna þurfi að
hafa marga fyrirvara. En með öllum
fyrirvörum metur stofnunin það svo
að kjaraáhrif, það er hækkun launa-
kostnaðar, vegna sérkjarasamning-
anna sé aðeins 0,2 til 0,3 prósent.
Námsmenn krefja
ráðherrasvara
„Menntamálaráðherra sakaði okk-
ur um það að dreifa röngum tölum
til allra stjómmálamanna í landinu.
Þessar tölur höfum við frá Lánasjóði
íslenskra námsmanna þannig að við
lítum þetta alvarlegum augum og
sitjum ekki undir því að þetta sé það
sem lifi eftir í umræðunni. Við viljum
að ráðherra dragi þessi ummæli op-
inberlega til baka, taki þátt í umræð-
unni á málefnalegum forsendum og
svari rökum með rökum," segir Dag-
ur B. Eggertsson, fráfarandi formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla íslands.
í umræðuþætti frambjóðenda í
Reykjaneskjördænú í sjónvarpi á
sunnudag sakaði Ólafur G. Einars-
son menntamálaráðherra Stúdenta-
ráð HÍ og námsmannahreyfingarnar
um að hafa dreift röngum tölum um
afleiðingar laga um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna, LÍN, frá 1992. í
yfirlýsingu Stúdentaráðs segir að
með því að saka námsmenn um að
skrökva hafi ráöherra vikið sér und-
an því að svara óþægilegum spurn-
ingum um breytta samsetningu
námsmannahópsins og lánþega.
Þessum spumingum verði hann hins
vegar að svara.
Hvorki náðist í menntamálaráð-
herra né aðstoðarmann hans í gær.
-GHS
$ SUZUKI
—^----------- Skeifan 17, sími 568-5100
SUZUKIBÍLAR HF.
Subaru station GL
'89, ek. 105 þ„ kr. 850.000.
Swift sedan, sjálfsk.
'91, ek. 66 þ. Kr. 730.000.
'93, ek. 27 þ. Kr. 990.000.
Daihatsu Applause
4 dyra, sjálfsk.,
'91, ek. 20 þ. Kr. 890.000.
Suzuki Swift, 5 dyra
90, ek. 83 þ. Kr. 550.000.
Vitara JLX, 3 dyra,
'89, ek. 87 þ„ kr. 890.000.
'90, ek. 80 þ„ kr. 980.000.
Suzuki Samurai
'91, ek. 66 þ„ kr. 795.000.
'89, ek. 91 þ„ kr. 580.000.
Isuzu Trooper DLX,
5 d„ '87, ek. 120 þ„ kr. 980.000.
MMC Pajero, 3 dyra
'85, ek. 160 þ. Kr. 620.000.
'86, ek. 185 þ. Kr.
Volvo 240 GL, sjálfsk.
'87, ek. 100 þ. Kr. 750.000.
'87, ek. 150 þ. Kr. 650.000.
Daihatsu Feroza,
'90, ek. 77 þ. Kr. 990.000.
'89, ek. 98 þ. Kr. 780.000.
Citrogn BX 16 TRX
5 dyra, sjálfsk.,
'88, ek. 96 þ. Kr. 580.000.
Vitara JLX, 5 dyra
'93, ek. 29 þ. Kr. 1.950.000,
sóllúga, 30" dekk.
Toyota Camry GLi
'88, ek. 99 þ. Kr. 790.000.
MMC L-200 pick-up 4x4
'91, ek. 38 þ„ kr. 1.040.000.
M. Benz 230 E, ssk.,
'86, ek. 142 þ. Kr. 1.490.000.
Ford Bronco XLT
'87, ek. 80 þ. Kr. 990.000.
Góð kjör
Góðir bílar