Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1995, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 1995
9
»
»
»
»
I
i
i
)
)
)
Útlönd
Kínverskar flugfreyjur tóku í morgun vel á móti fyrstu flugvélinni sem kemur til Kína frá Ástralíu i átta ár. Ekkert
flug hefur veriö milli landanna í átta ár vegna erfiðleika í samskiptum rikjanna en nú hefur ræst úr og var því
vel fagnað. Vélin er frá flugfélaginu Qantas og er sérstaklega skreytt i anda ástralskra frumbyggja. Flug milli land-
anna tekur 11 tíma. Símamynd Reuter
Ráðherrar breska íhaldsflokksins:
Saka BBC um hlutdrægni
Ráðherrar í stjórn Johns Majors
saka Breska ríkisútvarpið, BBC, um
hlutdrægni í fréttaflutningi. Þeir
telja fréttamennina halla undir mál-
stað Verkamannaflokksins og það
komi fram í fréttaflutningnum.
Benda þeir á ýmis dæmi um það.
Verkamannaflokkurinn fær núna
meira en 30 prósentum meira í skoð-
anakönnunum en íhaldsflokkurinn.
Stjórnarandstaðan og mörg af
stærstu dagblöðunum segja hins veg-
ar að íhaldsmenn séu orðnir tauga-
veiklaðir vegna þess að allar líkur
séu á því að þeir tapi næstu kosning-
um sem fram eiga að fara í síðasta
lagi árið 1997. Stjórnmálaskýrendur
ýmsir segja að íhaldsmenn hafi yflr-
leitt svarað slæmu gengi í skoðana-
könnunum með árás á BBC og frétta-
flutning þess.
John Major forsætisráðherra svar-
aði í gær neitandi vangaveltum um
að hann mundi boða til kosninga áður
en kjörtímabliið rennur út árið 1997.
Hann sagðist einnig mundu svara af
fullri hörku öllum tilraunum eigin
flokksmanna til að koma honum úr
forsætisráðherrastólnum. Hann
hygðistsitjaútkjörtímabilið. Reuter
Nýkomnar
vörur frá Danmörku
m.a. bókahillur og sófaborð
Antikmunir
Kiapparstíg 40, sími 55 27977
ATH. Bílastœði fyrir viðskiptavini Grettisgötumegin.
Spænsklr togarar dóla utan við umdeilt veiðisvæði á Miklabanka:
Munum verjast þar
til verndun er tryggð
- segir kanadíski forsætisráðherrann - Spánverjar kæra til alþjóðadómstólsins
„Allir Kanadamenn styðja stefnu
okkar. Við munum halda áfram á
sömu braut þar til öruggt verður að
verndun þessa fiskistofns sé tryggð
fyrir komandi kynslóðir," sagði Jean
Chretien, forsætisráðherra Kanada,
í ræðu í kanadíska þinginu í gær.
Viðræður fulltrúa Kanada og Evr-
ópusambandsins héldu áfram í
Brussel í gær eftir að upp úr slitnaði
í fyrradag og æsilegt orðaskak tók
völdin. Brian Tobin sjávarútvegsráð-
herra sagði nokkurn árangur hafa
orðið af viðræðunum. Báðir aðilar
væri reiðubúnir að gefa eilítið eftir í
afstöðu sinni en alger óvissa ríkti þó
um framhaldið.
Nítján spænskir togarar dóluðu
rétt utan við hið umdeilda veiðisvæði
á Miklabanka í gær en gættu þess
að fara ekki inn á svæðið. Kanadísk
varðskip voru i viðbragðsstöðu
skammt undan.
Spánveijar hafa kært Kanada-
menn til alþjóðadómstólsins í Haag
þar sem Kanadamenn hafi brotið lög-
sögu þjóðar yfir eigin skipum á al-
þjóðlegu hafsvæði, truflað siglingu
og veiðar spænskra togara á alþjóö-
legu hafsvæði og brotið samþykktir
NAFO frá 1978. Ætla Spánverjar að
krefjast skaðabóta vegna töku togar-
ans Estai.
Meðan Spánverjar kærðu dró
Brian Tobin, fyrrum sjónvarps-
fréttamaður, fjölmiðla frá sjávarút-
vegsráðstefnu Sameinuöu þjóðanna
út á torg í New York þar sem netin,
sem spænski togarinn Estai á að hafa
notað, voru til sýnis. „Það sleppur
ekkert lifandi í gegn um þessa
möskva," sagði Tobin.
Talsmaöur Breta hjá Evrópusam-
bandinu sagði í gær að Bretar mundu
beita neitunarvaldi ef beita ætti
Kanadamenn viðskiptahindrunum
af hálfu ESB. Þjóðverjar mundu að
öllum líkindum gera það líka.
Breskir sjómenn, sem eru æfir
vegna veiða Spánverja og fleiri Evr-
ópuþjóða við strendur Bretlands,
segjast styðja Kanadamenn og drógu
kanadíska fánann að húni á skipum
sínum í gær. í breskum fiskibæjum
var einnig eftirspurn eftir kanadíska
fánanum. „Ég á meiri samleiö með
Kanadamönnum en þjóðum sem eru
30 kílómetra frá okkur,“ sagöi bresk-
urskipstjóri. Reuter
starfsmenn
enn í verkfalli
Opinberir starfsmemt i Færeyj-
um eru enn i verkfalli sem staðið
hefur frá þvi í síðustu viku og
lamar þjóðlífið. Lögmaður Fær-
eyja segir að samningsaðilarnir
verði að leysa kjaradeiluna sjálf-
ir, lahdsstjómin muni ekki skípta
sér af henni með lagasetningu.
Verfallið skall á þegar ljóst var
að landsstjómin ætlaði ekki að
standa viö saraninga um að leið-
rétta 8,5 launalækkun sem opin-
berir starfsmenn tóku á sig fyrir
tveimur árum.