Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1995, Page 20
48
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 1995
íþróttir
Þú getur svaraö þessari
spuuningu meö því aö
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
iái\
li
J « d i
FÓLKSINS
99-16-00
Hvert liðið verður íslandsmeistari,
Njarðvík eða Gríndavft?
Allli i ttahmm* torH— —» Ummt—tma jt« e»tt »*r M—
Jordan skor-
aði 55 stig
- Sacramento sigraði Orlando
Sautján stig í röð
- frá Njarðvík sem vann fyrsta úrslitaleikinn gegn Grindavik
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnequm:
Tómas Ingi Tómasson knatt-
spymumaður het'ur ákveðið að
ganga til liös við nýliöa Grindvik-
inga en hann hefur undanfarin ár
leikið með KR.
„Eg er mjög ánægöur með að fá
Tóraas og hann kemur í stað Ragn-
ars Margeirssonar sem hætti við
aö koma. Haim hefur komið vel út
úr æfingaleikjunum og fellur vel
inn í hópinn. Hann er einn af bestu
framherjum landsins," sagðiLúkas
Kostic, þjálfari Grindvíkinga, við
DV.
Tómas lék 17 leiki með KRí fyrra
og skoraði 6 mörk en lengst af sín-
um ferli hefur hann leikið með ÍBV
og samtals á hann aö baki 80 leiki
í 1. deíld og hefur skorað 31 mark.
NB A-deildin 1 nott:
Það gekk mikið á í NBA-deildinni
í nótt. Michael Jordan skoraði 55 stig
fyrir Chicago á heimavelli NY Knicks
og lið Sacramento kom mjög á óvart
og sigraði topplið deildarinnar, Or-
lando Magic. Úrslitin urðu annars
þessi í nótt:
Miami-Boston.............115-126
NJ Nets-Golden State.....113-127
NYKnicks-Chicago.........111-113
Dallas-Milwaukee..........114-93
Houston-LA Lakers.........96-106
Phoenix-Utah Jazz........102-111
Portland-Atlanta..........91-102
Sacramento-Orlando.......117-106
• Scottie Pippen skoraði 19 stig fyrir
Chicago og BJ Armstrong 16. Patrick
Ewing var stigahæstur hjá Knicks
með 36 stig.
• Lið Sacramento lék vel á heima-
velli sínum gegn Orlando sem hefur
að baki bestan árangurinn í NBA-
deildinni í vetur. Mitch Richmond
skoraði 35 stig fyrir Sacramento og
Walt Williams 26. Shaquille ONÞeal
var með 32 stig fyrir Orlando, Horace
Grant 22 og Anfernee Hardaway 21.
• Utah Jazz vann góðan útisigur á
heimavelli Phoenix. Karl Malone
skoraði 26 stig fyrir Jazz og tók 16
fráköst. John Stockton var með 22
stig og 12 stoðsendingar. Hjá Phoenix
var Dan Majerle með 20 stig, Kevin
Johnson 19 og Charles Barkley 18.
• Lakers er í banastuði þessa dag-
ana og liðið sigraði Houston í nótt
af öryggi. Cedric Ceballos og Elden
Campbell skoruðu 17 stig fyrir Lak-
ers. Carl Herrera var með 22 stig fyr-
ir Houston og Clyde Drexler 20.
• Dino Radja skoraði 18 stig fyrir
Boston gegn Miami. Glen Rice skor-
aði 39 stig fyrir Miami.
Teitur Örlygsson var Grindvíkingum erfiður og hér kemur Guðmundur Bragason engum vörnum við þegar hann
er um það bil að setja boltann ofan i körfuna. DV-mynd ÞÖK
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Njarðvíkingar unnu fyrsta úrslita-
leikinn gegn Grindvíkingum í DHL-
deOdinni í körfuknattleik í Njarðvík
í gærkvöldi, 92-81. Það er ekki hægt
að hrópa húrra fyrir gæðum leiksins
en spennan var þó til staðar. Það
sáust nokkrum sinnum glæsileg til-
þrif hjá leikmönnum en þar voru
Njarðvíkingar í forystusveit og
sýndu nokkur sirkustilþrif sem
áhorfendur kunnu að meta.
Njarðvíkingar leiddu til að byrja
með en Grindvíkingar voru aldrei
langt undan og voru búnir að jafna
eftir 7 mínútna leik. Þar fór fremstur
í flokki Marc Mitchell og gekk Njarð-
víkingum illa að ráða við hann. Leik-
urinn var mjögjafn allt fram að hálf-
leik og þegar tæpar tvæir mínútur
voru eftir náðu Grindvíkingar að
jafna. Valur Ingimundarson var
sterkur á lokakaflanum en hann
gerði 7 stig gegn 4 stigum Grindvík-
inga.
Grindvíkingar náðu að komast yfir
eftir 7 mínútna leik í síðari hálfleik
en þá fóru hlutirnir heldur betur að
gerast hjá Njarðvíkingum. Þeir skor-
uðu 17 stig í röö og fóru á kostum
og Grindvíkingar virtust eins og peð
í höndum þeirra. Þetta var tvímæla-
lust vendipunktur leiksins. Grind-
víkingar náðu þó að minnka muninn
í 7 stig en Njarðvíkingar skoruðu 7
síðustu stigin af vítalínunni.
Bæði lið eiga
að geta sýnt meira
Bæði lið eiga að geta sýnt miklu
meira en þau gerðu í gær. Njarðvík-
ingar voru gríðarlega sterkir inni í
teig og skoruðu megnið af sínum stig-
mn þar. Teitur Örlygsson átti mjög
góðan leik og þá sérstaklega í síðari
hálfleik þegar liðið þurfti á kröftum
hans að halda. Rondey var einnig
góður og vann einvígið við Guðmund
Brágason. Þá voru Jóhannes Krist-
björnsson og Kristinn Einarsson
sterkir þegar Njarðvíkingar áttu sinn
besta kafla. Jón Árnason átti góðan
leik í vöminni og Valur átti góða
spretti í fyrri hálfleik.
Lykilmenn Grindvíkinga í fríi
Það má fastlega búast við að róður-
inn verði erfiður fyrir Njarðvíkinga
í Grindavík annað kvöld en ólíklegt
er að Grindavíkurliðið spili tvo slaka
leiki í röð. Lykilmenn liðsins voru
hreinlega í fríi lengst af leiknum.
Michell var frábær í fyrri hálfleik en
lét æsa sig óþarflega upp í síðari
hálfleik og náði þar með ekki að
halda einbeitingu. Pétur Guðmunds-
son átti ágæta spretti í upphafi síðari
hálfleiks.
SagteftirleiMnni:
Við verðum að
gera miklu betur
„Þetta var hörkuleikur en viö
vorum dálitið dofhir í fyrri hálfleik.
Við fengum aðeins fimm villur á
okkur og vorum ekki að taka á því
eins og við eigum aö gera í úrslita-
leikjum. Við ákváöum i síðari hálf-
leik að leggja haröar að okkur í
vöminni og náðum aö stöðva Marc
betur. Mér fannst þeir orðnir
þreyttari en við í restina. Við vorum
að skora mikiö inn i teig en leikim-
ir vinnast ekki á þriggja stiga lún-
unni. Þeir vinnast allir inni í teig
og þar held ég að viö höfúm vinning-
inn. Nú verðum við að ná okkur
niður á jörðina og mæta vel
stemmdir til leiks í Grindavik,"
sagði Teitur Örlygsson.
„Þetta var frekar rólegur og dauf-
ur leikur sem líktist ekki úrshta-
leik eins og þeir eiga að vera. Við
verðum að gera miklu betur ef við
ætlum að ná sigri í Grindavík. Við
áttum mjög góðan kafla í siðari
hálfleik sem gerði útslagxð í þess-
um leik. Við vorum sífellt aö vinna
á fullu en það small loksins saman
á þessum kafla. Viö þurfum að laga
grimmdina og baráttuna fyrir
næsta leik. Það er allt annar hand-
leggur að spila á móti þeim í
Grindavík," sagði Valur Ingimund-
arson, þjálfari Njarðvikinga.
„Við létum þá Iíta út eins og þeir
væru NBA-stjömur meö sendingar
aftur fyrir bak og troðslur. Við vor-
um ekki nógi innstillir á þaö sem
viö áttum að gera. Viö lékum ó-
skynsamlega og illa og var eins og
menn væru ekki tilbúnir," sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga.
„Þeir spiluðu mun hraðar en við
og unnu okkur, svo einfalt er það.
Það eru nógu margir leikir eftir og
vorðum við aö þjappa okkur vel
saman fyrir næsta leik. Þaö kemur
ekki til mála að láta þá vinna, 4-0.
Þetta á eftir að verða mikill barn-
ingur áður en yfir lýkur,“ sagði
Marc Mitchell, bandaríski leik-
maðurinn í liði Grindvíkinga, sem
átti stórkostlegan leik í fyrri hálf-
leik.
Njaróvík - Grindavík (44-41) 92-81
2-0, 4-4, 10-4, 12-9, 18-12, 20-20, 26-20, 30-26, 41-37, (44-41). 50-45, 56-57,
78-64, 85-76, 92-81.
• Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson 28, Rondey Robinson 22, Jóhannes
Kristbjömsson 14, Kristinn Einarsson 10, Valur Ingimundarson 10, Friörik
Ragnarsson 4, Jón Júlíusson 3, ísak Tómasson 1.
• Stig Grindavíkur: Marc Mitchell 26, Pétur Guð-
mundsson 14, Guömundur Bragason 12, Unndór Sig-
urösson 11, Guöjón Skúlason 11, Helgi Guðfinnsson
3, Nökkvi Már Jónsson 2, Marel Guölaugsson 2.
Villur: Njarðvík 14, Grindavík 24.
3ja stiga körfur: Njarðvik 7/5, Grindavík 20/8.
Víti: Njarðvík 28/19, Grindavik 12/10.
Fráköst: Njarðvík 32, Grindavík 23.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Jón Bender, góðir.
Áhorfendur: Um 600.
Maður leiksins: Teitur örlygsson, Njarðvík.