Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1995, Qupperneq 6
Sýningar
Ásmundarsafn
Þar stendur yfir samsýning á verkum
Asmundar Sveinssonar (1893-1982)
og Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals
(1885-1972) undir yfirskriftinni „Nátt-
úra/Náttúra" þar sem sýnt er fram á
sérstæð tengsl þeirra við íslenska nátt-
úru í verkum sínum. Sýningin stendur
til 14. maí og er opin daglega kl. 13-16.
Baðhúsið
Ármúla17
Hildur Waltersdóttir myndlistarkona
hefur opnað sýningu á nýjum verkum
i Baðhúsinu. Verkin eru unnin bæði í
olíu á striga og kol á pappír. Aðalþema
' sýningarinnar er mannslíkaminn en
Bjnnig tekur Hildur önnur myndefni
fyrir.
Café Mílanó
FaxafenlH
Þar stendur yfir sýning á verkum Llnu
Rutar Karlsdóttur. Sýningin er opin kl.
9-19 mánudaga, kl. 9-23.30 þriðjud.,
miðvikud. og fimmtud., kl. 9-1 föstud.
og laugard. og kl. 9-23 sunnud.
Café17
Laugavegi
Ingi Örn Hafsteinsson sýnir verk sín I
Café 17. Sýningin samanstendur af 14
blekteikningum, sem eru í grafiskum
stíl. Sýningin stendur til 18. apríl og
er opin á verslunartíma verslunarinnar
17.
GalleriAllrahanda
Akureyri
Þar stendur yfir málverkasýning Gígju
Baldursdóttur. Sýningin verður opin
alla daga kl. 14-18 og lýkur sunnudag-
inn 9. apríl.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvik
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu
Axelsdóttur, Helgu Ármannsdóttur, El-
ínborgar Guðmundsdóttur, Sigrúnar
Gunnarsdóttur og Margrétar Salome.
Galleriið er opið alla virka daga kl.
12-18.
Gallerí Borg
Málverkauppboð á Hótel Sögu sunnu-
dagskvöldið 2. apríl kl. 9. Verkin verða
sýnd i Gallerí Borg föstudag, laugardag
og sunnudag frá kl. 12-18.
Gallerí Fold
Laugavegi118d
i Gallerí Fold eru til sýnis verk eftir
ýmsa listamenn. Galleríið er opið alla
daga kl. 10-18 nema sunnudaga kl.
14-18.
Gallerí Greip
Þar stendur yfir myndlistarsýning Aðal-
heiðar Valgeirsdóttur. A sýningunni eru
myndir unnar með blandaðri tækni á
pappír. Sýningin stendur til 9. april og
er opin þriðjudaga til sunnudaga kl.
14-18.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15, sími 21425
Galleríið er opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 10-14.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18
nema laugardaga kl. 11-14. Sýningar
, í gluggum á hverju kvöldi.
Gallerí Regnbogans
Þar stendur yfir málverkasýning á verk-
um Tryggva Ólafssonar. Á sýningunni
verða málverk Tryggva, auk frummynda
af myndskreytingum hans í Ijóðabók
Thors Vilhjálmssonar, Snöggfærðum
sýnum. Gallerí Regnbogans er ávallt
opið þegar kvikmyndasýningar standa
yfir.
Gallerí Sævars Karls
Bankastrætl 9
Mannslikaminn og íslensk erótík er við-
fangsefni Báru Kristinsdóttur Ijósmynd-
ara á sýningu sem hún heldur í Gall-
erii Sævars Karls. Sýningin stendur til
5. apríl og er opin kl. 10-18 alla virka
daga en kl. 10-14 á laugardögum.
Gallerí Úmbra
Amtmannstig 1, Rvik
Þórdís £lln Jóelsdóttir sýnir verk sin í
Gallerí Ombru. Myndirnar á sýningunni
eru unnar með gouache- og vatnslitum
á glerplötu og þrykktar á þunnan papp-
Ir. Sýningin er opin þriðjudaga til laug-
ardaga kl. 13-18, sunnudaga kl. 14-18.
Gangurinn
Rekagranda 8
Um þessar mundir stendur yfir sýning
á málverkum Karinar Kneffel. Karin
Kneffel er þýskur listamaður sem býr í
Dusseldorf.
Hafnarborg
Textllfélagið er 20 ára um þessar mund-
ir og sýnir af því tilefni verk félags-
manna í Hafnarborg. I Textilfélaginu
eru 37 félagar sem vinna ýmist að
hönnun nytjahluta eða að frjálsri
myndlist. Kennir því ýmissa grasa á
sýningunni. Sýningin stendur til 17.
april og er opin frá kl. 12-18 alla daga
nema þriðjudaga.
22
FÖSTUDAGUR 31, MARS 1995
Mokka:
Sýning um
sadómasókisma
Malika tekur svarthvítar Ijósmyndir úr undirheimum New.York.
Gallerí Úmbra:
Vatnslitir á glerplötu
„Ljósmyndarinn Flanagan, sem
sýnir á Mokka, kennir sig viö sa-
dómasókisma og er orðinn stórt nafh
úti í heimi. Ljósmyndarinn Malika
hefur unnið sérstakt verkefni fyrir
Mokka sem er að skrásetja hin mis-
munandi afbrigði sadómasókisma í
undirheimum New York,“ segir
Hannes Sigurðsson, sýningastjóri á
Mokka.
Á sunnudag kl. 14 verður opnuð á
Mokka sýning á verkum Bobs Fla-
nagans og ljósmyndarans Malika.
Flanagan er að verða stjarna í mynd-
listinni og í ágúst síðastliðnum hélt
Nýja samtímalistasfnið á Manhattan
stóra yfirlitssýningu með honum.
Ekki er ætlunin að hneyksla sýning-
argesti.
„Myndimar, sem em eins og gefur
að skilja mjög grófar, eru á bak við
svört tjöld til þess að koma í veg fyr-
ir að böm og viðkvæmir berji þau
augum. Til þess að skoða myndimar
þarf að lyfta tjöldunum frá en þau
em alsett bjöllum," segir Hannes.
Flanagan er höfundur 30 metra
langs texta sem liðast eftir öllum
veggjum salarins og verður einnig
sýndur á Mokka.
Kjarvalsstaðir:
Síðustu sýn-
ingarhelgar
Sýningu á grafíkmyndum Johns
Lennons á Kjarvalsstöðum lýkur á
sunnudag. Höfuðtema sýningarinn-
ar er upphafning ástar Johns á konu
sinni, Yoko Ono, og samlíf þeirra
hjóna. John Lennon hafði sem tón-
listarmaður mikil áhrif á menningu
20. aldarinnar. Hann lagði einnig
stund á myndiist áður en hann hóf
tónlistarferil sinn og ailan feril sinn
gerði hann myndir sem lýsa nánasta
umhverfi hans.
Sýningu veflistarkonunnar Krist-
ínar Jónsdóttur frá Munkaþverá lýk-
ur einnig á sunnudag. Kristín stefnir
saman í nútímamyndverki vefnaði
og hinu ritaða orði.
Ljósmynda-
sýning
frá Alsír
í Listhúsi 39 í Hafnarfirði stendur
yfir ljósmyndasýning Jean-Yves Co-
urageux, Frakka sem búsettur hefur
verið hér á landi sl. 15 ár. Myndimar
em allar úr ferðum til suðurhluta
Alsírs þar sem Jean-Yves ólst upp til
12 ára aldurs og hefur hann mörg
undanfarin ár farið þangað sem far-
arstjóri með hóp ferðamanna. Sýn-
ingin stendur til 17. apríl og er opin
virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.
12-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Núna stendur yfir sýning á verk-
um Þórdísar Elínar Jóelsdóttur í
GaUerí Úmbm. Þetta er þriðja einka-
sýning Þórdisar en myndir hennar
em unnar með gouache- og vatnsht-
um á glerplötu og þrykktar á þunnan
pappír. Sýningin er opin þriðjudaga
til laugardaga frá kl. 13-18, sunnu-
daga kl. 14-18, skírdag og annan í
páskum kl. 14-18. Þórdís er meðlimur
myndhstarhópsins Áfram veginn
sem rekur grafíkverkstæði í Þing-
holtsstræti 5.
Verk Þórdísar Elinar Jóelsdóttur eru til sýnis í Galleri Úmbru.
Sú nýjung hefur verið tekin upp að sýna myndlist í Baðhúsinu.
Myndlist
r
1
Baðhúsinu
Núna stendur yfir sýning á verkum
Hhdar Waltersdóttur myndlistar-
konu á nýjum verkum í Baðhúsinu,
Armúla 30. Þetta er önnur einkasýn-
ing Hildar eftír að hún kom heim frá
Bandaríkjunum úr námi. Verkin em
unnin á tímabilinu 1994-1995 og era
unnin bæði í ohu á striga og kol á
pappír. Aðalþema sýningarinnar er
mannslíkamhm en einnig tekur
Hildur önnur myndefni fyrir.
. Sýningar
Kirkjuhvoll- listasetur
Merkigerði 7, Akranesl
Sjafn Har. sýnir verk sín. Á sýningunni
eru nýjar olíumyndir og myndir unnar
á handgerðan pappír með bleki. Sýn-
ingin stendur til 9. apríl og er opin dag-
lega kl. 16-18 og um helgar kl. 15-18.
Kjarvalsstaðir
Síðasta sýningarhelgi á grafíkmyndum
Johns Lennons en henni lýkur sunnu-
daginn 2. apríl. Einnig er síðasta sýning-
arhelgi á verkum veflistarkonunnar
Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá. I
austursal er sýning á verkum eftir Jó-
hannes Sveinsson Kjarval (1885-
1972) úr eigu Kjarvalssafns. Sýning-
arnar eru opnar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, simi 13797
Safnið er opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Inngangur er frá
Freyjugötu.
Listasafn íslands
Á efri hæð Listasafns Islands stendur
yfir sýningin Náttúrustemningar Nlnu
Tryggvadóttur 1957-1967. Eins og
heiti sýningarinnar ber með sér tekur
hún til náttúruvakinna afstraktmynda
sem Nína Tryggvadóttir gerði síðasta
áratuginn sem hún lifði.
Sýningin stendur til 7. maí og er opin'
daglega nema mánudaga kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs-
Gerðarsafn
Hamraborg 4, sími 44501
Þar stendur yfir málverkasýning Elíasar
B. Halldórssonar. Sýningin er í öllum
þremur sölunum í Listasafni Kópavogs.
Sýning Eliasar mun hanga uppi til 20.
april og er opin alla daga nema mánu-
daga kl. 12-18.
Listhús 39
Strandgötu 39, Hafnarfirði
Nú stendur yfir Ijósmyndasýning
Jean-Yves Courageux. Myndirnar eru
allar úr ferðum Jean-Yves til suðurhluta
Alsirs. Sýningin stendur til 17. apríl og
er opin virka daga kl. 10-18, laugar-
daga kl. 12-18 og sunnudaga kl.
14-18.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17, sími 680430
Þar stendur yfir fyrsta myndlistarsýning
Guðmundu Hjálmarsdóttur og Guð-
rúnu Ingu Haraldsdóttur. Sýningin
stendur til 2. apríl og er opin mánud-
föstud. kl. 10-18, laugard. 10-16,
sunnud. 14-18. Þar stendur einnig ýfir
myndlistarsýning á verkum eftir Sjafn
Har. Sýningin ber yfirskriftina „Islensk
náttúra, íslenskt landslag". Sýningin er
opin virka daga kl. 13-18 og laugar-
daga kl. 11-16.
Menningarmiðstöðin
Gerðuberg
Gerðubergi 3-5
Þar stendur yfir myndlistarsýning Pét-
urs Arnars Friðrikssonar. Þar hefur verið
sett upp „tilraunastofa" þar sem gerðar
verða athuganir á Ijósi og ýmsum eigin-
leikum þess sem framkvæmdar verða
af tölvuvæddum átjándu aldar vísinda-
manni. Sýningin er opin kl. 13-19
mánudaga - fimmtudaga og kl. 13-16
föstudaga - sunnudaga. Sýningunni
lýkur 23. apríl.
Mokka
Hvers konar perri ert þú? Ljósmyndar-
inn Malika hefur unnið sérstakt verkefni
fyrir Mokka sem er að skrásetja hin
mismunandi afbrigði sadómasókisma í
undirheimum New York. Á sýningunni
verða einnig verk eftir súpermasókist-
ann Bob Flanagan og drottnara hans,
Sheree Rose. Á sýningunni gefur
sömuleiðis að líta tvær grimur í fullum
„fanta-skrúða", auk ýmissa tóla og
tækja til örvunar ástarlífsins. Sýningin
stendur frá 2.-22. apríl.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið samkvæmt samkomulagi.
Upplýsingar í síma 611016.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir
hinn heimskunna finnska hönnuð,
Antti Nurmesniemi. Nanna Bisp
Buchert Ijósmyndari sýnir í anddyri
Norræna hússins. Sýningin nefnist Síð-
degi - Ijósmyndir frá Andalúsíu. Sýn-
ingarnar standa til 2. apríl og eru opnar
daglega kl. 9-19 nema sunnudaga kl.
12-19.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarl., siml 54321
Opið á sunnud. og þriðjud. kl. 15-18.
Veitingastaðurinn 22
Laugavegi 22
Þar stendur yfir myndlistarsýning Valtýs
Þórðarsonar (Dilla). Á sýningunni eru
24 olíupastelmyndir á karton. Sýningin
er opin á meðan veitingastaðurinn er
opinn, frá kl. 12 virka daga og kl. 18
um helgar. Sýningin stendur til 15. april.