Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1995, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1995 23 Niirnberg skuldar 540 milljónir Daníel Ólaisson, DV, Akranesi: Lið bræðranna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona, Niirnberg, er hrætt um leyfi sitt aö leika í þýsku 1. deildinni á næstu leiktíð. Nurnberg var í gjörgæslu hjá þýska knatt- spymusambandinu og það gaf félaginu leyfi fyrir áframhald- andi þátttöku í 1. deild með viss- um skilyrðum, svo sem að lækka mikið skuldir. í umfangsmikilli rannsóknarskýrslu af hálfu þýska knattspymusambandsins kemur fram að þær sparnaðar- ráðstafanir sem knattspymu- sambandið fór fram á hafa ekki allar gengið eftir. Þó hafa skuldir lækkað umtalsvert, vora áður en nýr forseti félagsins tók við um 20 milljónir marka. Forseti Numberg, Michael Roth, sagði í viðtali við þýsku sjónvarpstöðina Sat 1 um helgina að skuldir félagsins væra um 12 milljónir marka eða um 540 millj- ónir íslenskra króna. Hann sagði að nú þyrftu menn að fara að ræða um hvað væri hægt að gera til að Nurnberg héldi leyfi sínu en ljóst væri að róðurinn væri erfiður, liðinu hefði gengið afleit- lega á þessu keppnistímabili en vonandi héldi það sæti sínu í 1. deild. íþróttir Gunnar þjálfar Hauka Gunnar Gunnarsson var í gær „Þetta er skemmtilegt verkefni hinn efhilega 2. flokk félagsins. Ég svipað lið og á nýliðnu tímabili, ráðinnþjálfaril.deildarliðsHauka og mér líst mjög vel á stöðu mála ætia að spila sem minnst með lið- nema hvað Páll Ólafsson og Pétur í handknattleik til tveggja ára. hjá Haukum. Þeir hafa sýnt und- inu og þá aðeins ef um einhver Vilberg Guðnason eru hættir. „Það Gunnar hefur verið þjálfari og leik- anfarin ár að þeir era opnir fyrir meiðsli verður að ræða á tímabil- er góð breidd hjá félaginu og marg- maður Víkings undanfarin þrjú ár nýjungum og við Óskar Þorsteins- inu. Skómir eru kannski ekki ir efnilegir strákar á leiðinni,“ en sagði viö DV í gærkvöldi að son, sem fylgir mér frá Víkingi og komnir á hilluna, en allavega á sagði Gunnar Gunnarsson. hann reiknaði ekki með því að spila verður þjálfari 2. flokks, ætium að bekMnn!“ sagði Gunnar. með Haukaliðinu. tvinna saman meistaraflokkinn og Haukar verða væntanlega meö Valur til Danmerkur? Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Svo gæti farið að Valur fngimund- arson, þjálfari íslandsmeistara Njarðvíkinga í körfuknattleik, væri á leið til Danmerkur í nám og myndi hann þá jafnframt þjálfa og leika með 2. deildar liði í Óðinsvéum. „Ég er mjög spenntur að fara út en ef það gengur ekkki er öruggt að ég verð áfram með Njarðvík," sagði Valur í samtali við DV í gærkvöldi. Fari svo að Valur yfirgefi herbúðir Njarðvíkinga hefur nafn Kristins Einarssonar verið nefnt sem líklegs eftirmanns Vals en einnig er inni í myndinni að fá bandarískan þjálfara. Friðrik áfram í Grindavík Nær öruggt má telja að Friðrik Ingi Rúnarsson verði endurráðinn þjálf- ari Grindvíkinga í körfuknattieik fyrir næsta keppnistímabil. Þetta staðfesti Ægir Ágústsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindvík- inga, við DV í gær. Undir stjórn Friðriks náðu Grind- víkingar mjög góðum árangri. Liðið varð bikarmeistari og komst alla leið í úrshtin þar sem hðið tapaði fyrir Njarðvíkingum. Guðjón í Keflavík? Óvissa ríkir um hvað Guðjón Skúla- son gerir en það er inni í myndinni að hann gangi til hðs við sitt gamla félag, Keflavík. Teitur Örlygsson og Rondey Robinson, tveir af lykil- mönnum í íslandsmeistaraliði Njarðvíkinga, hafa báðir skrifað undir nýjan samning við Njarðvík. Rondey Robinson sagði í samtah við DV að þrátt fyrir að hann væri búinn að gera samning með fyrirvara við Njarðvíkinga væri hann enn að leita fyrir sér að komast að hjá félagi í Evrópu en ef það tækist yrði hann áfram með Njarðvíkingum. Héðinn með FH-treyjuna við undirskriftina í gær. Hann klæðist henni á ný næsta vetur eftir fimm ára atvinnu- mennsku í Þýskalandi DV-mynd ÞÖK Héðinn heim - gekk frá tveggja ára samningi við FH1 gær 1. deildar liði FH í handknattleik bætist góður hðsauki í gær en þá skrifaði landsliðsmaðurinn Héðinn Gilsson undir tveggja ára samning við sitt gamla félag. Héðinn lék síð- ast með FH veturinn 1989-1990 og varð íslandsmeistari með hðinu en gekk síðan til hðs við þýska úrvals- deildarhðið Turu Dusseldorf þar sem hann hefur leikið síðustu fimm árin. „Auðvitað er tilhlökkun að koma aftur í slaginn heima og leika að nýju með FH. Það htla sem ég hef séð til hðanna hér heima er gott og mér sýnist íslenska deildin vera sterk. Helsti munurinn á íslenskum hand- bolta og þeim þýska er varnarleikur- inn og þar hafa Þjóðverjarnir vinn- inginn," sagði Héöinn viö DV skömmu eftir að hann hafði skrifað undir samninginn. Héðinn sagði að meö þessu væri hann ekki að gefa atvinnumennskuna upp á bátinn heldur myndi hann velta þeirri stöðu fyrir sér eftir tvö ár. Óvíst hvort Héðinn leiki með á HM Héðinn hefur ekki gengið heih th skógar. Hann hefur átt við langvar- andi meiðsli að stríða í öxl og í vetur hafa meiðsli í hásin og í hælnum verið að angra hann. Héðinn fer í myndatöku í dag og þá ætti að koma í ljós hvort hann þurfi að gangast undur uppskurð sem myndi þýða að hann gæti ekki leikið með íslenska landsliðinu á HM. „Ég held að það sé mjög líklegt að það þurfi að skera í þetta og það myndi þýða að ég yrði frá í svona 6 vikur. Ef þaö kemur í ljós að ég þarf að fara í uppskurð er óvíst hvort ég fari í þá aðgerð strax eða fresti henni fram yfir HM. Þetta veltur á lands: liðsþjálfurunum og þeir verða að meta hvort þeir vhji nota mig í því ásigkomulagi sem ég er,“ sagði Héð- inn og bætti því við að læknar gæfu honum góðar batahorfur. Ungverskur landsliðsmað- ur í Fram? Líkur eru á að ungverskur lands- liðsmaður í knattspyrnu, Ferenc Mészáros, leiki með Frömuram í 1. deildinni í sumar. Þeir hafa verið í viðræðum við hann að undanfómu og bíða eftir svari en Ungverjinn er einnig að íhuga boð frá Þýskalandi. Mészáros er 31 árs gamall sóknar- maður og hefur leikið í Þýskalandi og Belgíu en spilar nú meö ung- versku 2. deildar liði. Hann á að baki 21 landsleik fyrir Ungverjaland, þann síðasta árið 1992, og skoraði í þeim 4 mörk. Mészáros lék með Lokeren í belg- ísku 1. deildinni í tvö ár og var markahæsti leikmaður liðsins bæði tímabilin. Veturinn 1991-92 spilaði hann aðeins 18 leiki af 34 en var samt markahæstur með 9 mörk og 1992-93 skoraði Mézáros 10 mörk í 29 leikjum í belgísku 1. deildinni. Spánn sigraði Spánverjar sigurðu á fjögurra landa móti í handknattleik sem lauk í Sviss í gær. Spánverjar, með Talant Dujshebaev í broddi fylkingar, unnu alla þrjá leiki sína og hlutu 6 stig. Þjóðverjar urðu í öðru sæti meö 3 stig, Svisslendingar komu næstir með 2 stig en öllum á óvart ráku Rússar lestina með aöeins 1 stig. Guðríður endurráðin Guöríður Guðjónsdóttir var í gær endurráðin þjálfarí kvennaliðs Fram i handknattleik. Undir hennar stjórn varð Fram bikarmeistari og varð í öðra sæti á íslandsmótinu. Framarar reikna með að halda öllum sínum mannskap, þar á meðal hinni júgóslavnesku Selku Tosic. Mánudaginn 24. apríl ÍR-KR kl. 20.00. Gervigrasið Laugardal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.