Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1995, Síða 3
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
17
/N /X /X
Magnaður lokakafli
Hugsjónir frönsku byltingarinnar, frelsi, jafn- i-----------
rétti og bræðralag, er viðfangsefni í þríleik
Krzysztofs Kieslovskis og bera myndimar nafii lit-
anna í franska fánanum, Þrír litir: Blár, Hvítm- og
Rauður. Kieslovski hefur gert þessum þremur hug-
tökum glæsileg skil i ógleymanlegum myndum.
Hæst ber túlkun hans í Rauður, sem er frábær
kvikmynd, þar er áhrifamikilli sögu komið til skila
í mögnuðu myndmáli. í Rauður er aðalpersónan
sýningarstúlkan Valentine sem óviljandi keyrir
niður hund í eigu fyrrum dómara. Fyrstu kynni
þeirra eru þessleg að Valentine fær ekki mikið álit
á þessum beiska manni sem stundar það að hlera
síma nágrannanna. En eftir aö hann kærir sjálfan
sig leiða kynni þeirra til náins vinskapar. Dómar-
inn er alls ekki viss um aö hann hafi gert rétt í aö
láta nágrannann vita um hleranimar og leiðir rök I_____________
að því. Hámarki nær myndin í sniildarlegu lokaatriði þar sem kvenhetjur
Kieslovskis í þrileik hans eru þátttakendur. Blár, Hvitur og Rauður er stórt og
mikið kvikmyndaverk sem lætur engan ósnortinn.
ÞRI'R LITIR: RAUÐUR - Útgefandl Háskólabíó.
Lelkstjóri: Krzysztof Kleslovski.
Aðalhlutverk: Irena Jacob og Jen-Louis Trlntignant.
Frönsk/svissnesk, 1994. Sýnlngartími 105 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
f. /
Hinsta flugferðin
I Thunderheart lék Val Kilmer lögreglumann sem er af indíánaættum en hann sjálfur er indíáni að hluta. Með honum
á myndinni eru Fred Ward og Sam Shepard.
Val Kilmer:
Mikill dýrðarljómi hefur ávállt verið yfir
Amaliu Earhart sem varð fyrst kvenna til að fljúga
yfir Atlantshafið og setti mörg met í flugi. Hún
hvarf í sinni hinstu ferð, sem var flug umhverfis,
og hefúr aldrei spurst til hennar síðan. Amalia
Earhart var hetja í augum kvenna, fhunherji sem
þorði að gera það sama og karlmennimir. Amalia
Earhard The Final Flight byijar nokkru áður en
hún reynir við fyrra heimsflug sitt sem endaði
með því að vélin fór út af brautinni. Slysið var al-
gjörlega henni að kenna og hefði þvi aldrei átt að
leyfa henni að gera aöra tilraun. Eiginmaður henn-
ar, sem jafiiframt var nokkurs konar umboðsmað-
ur, ýtti henni út í flugferðina enda miklir peningar
í húfi. í myndinni er Amaliu Earhart lýst sem óör-
uggri persónu sem lætur sljómast af metnaði eig-
inmannsins og þaö sem kemur kannski mest á
óvart er að hæfileikar hennar sem flugmanns em dregnir í efa. Diane Keaton
leikur Earhart af skilningi og nær vel að sýna þá innri baráttu sem hún átti í.
AMALIA EARHART THE FINAL FLIGHT - Útgefandl: SAM-myndbönd.
Lelkstjórl: Yves Slmoneau.
Aðalhlutverk: Dlane Keaton, Rutger Hauer og Bruce Dern.
Bartdarlsk, 1994. Sýnlngartiml 90 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK
Unglingar á villigötum
Það eru engir fyrirmyndamnglingar sem em
aðalpersónur í Shopping en myndir fjallar um ung-
linga sem búa á götunni og svífast einskis. í byrjun
myndarinnar fylgjumst við með þegar Billy er
sleppt úr fangelsi en hann er nítján ára unglingur
sem þegar er orðinn foringi í kliku. Hann er varla
fyrr kominn á götuna en hann tekur upp fyrri iðju,
stelur bfirnn, rænir og ruplar. Svo vitnað sé i nafii
myndarinnar, Shopping, sem þýðir að versla, þá er
verslunarferð í augum Billys búöarrán og gengur
hann ásamt unnustu sinni og flefrum berserksgang
í stórmarkaði. Billy líkar illa að hann skuli þurfa
aö þola samkeppni við annan klíkuforingja og kem-
ur til uppgjörs þeirra í mUli. Shopping er grimm
lýsing á þeim unglmgum sem alist hafa upp á göt-
unni og þekkja ekkert annað líf. Fyrirlitning þeirra
gagnvart meðborgurunum er algjör. Shopping er
vel gerö og raunsæ og unglingamir í myndinni gætu aUt eins verið þeir ung-
lingar sem lögreglan í Reykjavik þarf að hafa afskipti af, þótt þeir séu kannski
ekki eins stórtækir og BiUy og félagar.
SHOPPING - Útgefandi: Myndform.
Lelkstjórl: Paul Anderson.
Aðalhlutverl: Sadle Frost, Jude Law og Sean Pertwee.
Bresk, 1994. Sýningartíml 93 mfn. Bönnuð bömum Innán 16 ára. -HK
Auga fyrir auga . . .
SnjaUir lögfræðingar ná stundum að leika á
kerfið þannig að þótt aUir séu sannfærðir um sekt
sakbomingsins á dómarinn ekki annars úrkosta en
að vísa málinu frá eða dæma þann seka saklausan.
Um þannig dóm er fjaUaö í Desperate Justice, sjón-
varpsmynd sem segir frá fjölskyldu sem verður fyr-
ir því að yngri dótturinni af tveimur er nauðgað og
misþyrmt. Fljótt fmnst hinn seki en þá kemur til
kasta lögfræðingsins, sem er kona. Hún finnur
vfilu í málssókninni og sá seki er sýknaður. Móðir-
in getur ekki unað þessari niðurstöðu og tekur upp
byssu í dómssalnum og hefúr skothrið á hinn seka
. . . Það má kannski segja að Desperate Justice sé
stundum fúU melódramatísk en á móti kemur að
myndin er raunsæ og fjallar um venjulegt fóUc sem
lendir ekki aðeins í hörmungum heldur fær slæma
reynslu af kerfmu. Lesley Ann Warren leikur móð-
urina. Þessi ágæta leikkona getur leikið vel, sérstaklega í gamanmyndum, en
henni hættir til að ofleika í dramatískum myndum og er ofleikur hennar
sfimdum yflrþyrmandi í Desperate Justice.
DESPERATE JUSTICE - Úfgefandl: Skílan.
Lelkstjórl: Armand Mastrolannl
Aðalhlutverk: Lesley Ann Warren, Brace Davlson og Anette OToole.
Bandarísk, 1994. Sýnlngartíml 90 mfn. Bönnuð bömum Innan 16 ára. -HK
Þotti strax
mikið efni
Val Kilmer í hlutverki Doc Holliday og Kurt Russell sem Wyatt Earp í Tomb-
stone.
Val Kilmer hefúr ekki leikið í
mörgum kvikmyndum enn sem
komið er en hann hefúr þó leikið
fleiri þekktar persónur en flestir
reyndari leikarar. Val Kilmer var
tiltölulega nýkominn í umræðuna
þegar hann sótti fast að Oliver Sto-
ne að fá að leika Jim Morrison í
The Doors. Það var ekki fyrr en
hann gat sýnt fram á það að hann
var góður söngvari og gat líkt vel
eftir Morrison í söng að Stone sann-
færðist um að hann væri rétti leik-
arinn til að túlka poppgoðið.
The Doors fékk misgóðar viðtök-
ur og þykir ekki með betri myndum
Olivers Stone, en hún gerði Val Kil-
mer ekkert nema gott. Hann þótti
standa sig vel og hefúr verið eftir-
sóttur leikari síðan og nýjasta afrek
hans er að feta í fótspor Michael
Keatons og leika Batman í Batman
Foever. Og með þvi að leika Batman
hefur hann leikið þrjár frægar per-
sónur en í millitíðinni lék hann Doc
Holliday í Tombstone.
Þegar það spurðist fyrir nokkrum
árum aö Tim Burton hefði valið
Michael Keaton til að leika Batman
urðu aðdáendur teiknimyndahetj-
unnar lítt hrifnir og létu óspart í
ljós vanþóknun sína og töldu hann
engan veginn henta í hlutverkið.
Það fór þó svo að allir sættust á
túlkun hans. Sömu menn kvörtuðu
síðan þegar Keaton vildi ekki leika í
Batman Forever. En það var sæmi-
legur friður um Val Kilmer þegar
hann var valinn til að leika Batman
og er ekki að sjá annað á myndum
en að hann sómi sér vel í svarta
búningnum.
Að hluta til indíáni
Val Kilmer fæddist á gamlársdag
1959 í Los Angeles og er hann aö
hluta til Cherokee indíáni. Kilmer
þótti strax mjög efiiilegur leikari og
þegar hann varð sautján ára var
hann yngsti stúdentinn sem
nokkum tíma hefur fengið aðgang
að leiklistardeild hins virðulega
Julliard listaskóla í New York. Með-
an á náminu stóð skrifaði hann leik-
ritið How It All Began ásamt félaga
sínum og var það frumsýnt í Joseph
Papp’s Puplic Theatre í New York
og lék Kilmer aðalhlutverkið.
Var þetta fyrsta hlutverk af mörg-
um sem hann lék í New York. Hans
fyrstu skref á Broadway vom í Slab
Boys þar sem hann lék á móti Sean
Penn og Kevin Bacon. Þá hefur
hann leikið í nokkrum Shakespeare
uppfærslum, síðast sem Hamlet á
Shakespeare hátíðinni í Colorado.
Val Kilmer hefur alltaf haldið
tryggð við leikhúsið sem gaf honum
fyrst tækifæri og lék síðast þar fyrir
þremur árum í Tis’ a Pity She’s a
Whore.
Meðan Kilmer var enn í Julliard
byrjaði hann að vinna að heimildar-
myndinni Joumey to Magna, sem
var um kjamorkuvopn og frið í
framtíðinni. Mynd þessi hlaut þó
ekki eins mikla athygli og samband
hans við frægar leikkonur, en hann
var á þessum árum í tygjum við
Cher og Michelle Pfeiffer. Þeir sem
vilja vita hug hans til Michelle
Pfeiffer geta lesið um það í ljóðabók
hans, My Eden after Bums.
Kynntist eiginkonunni
í kvikmyndaverinu
Fyrsta kvikmyndin sem Val Kil-
mer lék í var unglingamyndin Top
Secret. í kjölfarið fylgdi álíka mynd,
Real Genius. Þriðja myndin var Top
Gun þar sem hann lék félaga Toms
Cruise. Og eftir það fóru hjólin að
snúast, en þó hægt, þar til Oliver
Stone lét hann fá draumahlutverkið.
Fjóröa myndin sem hann lék í var
ævintýramyndin Willow. Mótleik-
kona hans þar var Joanne Whalley,
sem hafði vakið mikla athygli fyrir
leik sinn í Scandal, en í þeirri mynd
lék hún Christine Keeler. Kynni
þeirra leiddu til hjónabands sem
enn er í lukkunnar velstandi og eiga
þau eitt barn. í kjölfarið breytti
Whalley nafni sínu í Joanne
Whalley-Kilmer.
Val Kilmer hefur verið virkur á
síðustu tveimur áium og leikið í
hverri myndinni á fætur annarri og
nú bíða þrjár kvikmyndir sem hann
leikur í eftir að verða frumsýndar.
Þar ber fyrst að telja Batman For-
ever, síðan spennumyndina Heat,
þar sem hann leikur á móti A1
Pacino og Robert De Niro, og loks
nýjustu kvikmynd franska leikstjór-
ans Jean-Jacques Annaud, Wings of
Courage. Hér á eftir fer listi yfir
þær kvikmyndir sem Val Kilmer
hefur leikið í, en margar þeirra er
hægt að fá á myndbandaleigum.
Top Secret (1984)
Real Genius (1985)
Top Gun (1986)
Willow (1988)
Kill Me Again (1989)
The Doors (1991)
Thunderheart (1992)
The Real McCoy (1993)
True Romance (1993)
Tombstone (1994)
Wings of Courage (1995)
Batman Forever(1995)
Heat (1995)