Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Side 4
FÖSTUDAGUR 16. JUNI1995
T Ó N L
rj i\ rj VI i
hs\b jJ j
Stjórnin - Stjórnarlögin 1989 -1995
Vandað léttmeti með sál
Stjórnin hefur verið ein vinsælasta popphljómsveit landsins
undanfarin sex ár og er eiginlega ein af örfóum íslenskum
hljómsveitum sem raunverulega hafa efni á að gefa út „Greatest
Hits“ plötu. Það er hins vegar spurning hvort 19 lög séu ekki
fullmikið fyrir plötu af þessu tagi og fyrir mína parta hefði platan
bara batnað við örlítið meiri niðurskurð.
Því veróur þó ekki á móti mælt að fleiri lög þýða að menn fá meira
fyrir peningana sína en ella. Prímusmótorar Stjórnarinnar hafa frá
upphafi verið þau Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson. Þau
lögðu upp 1989 með unga og efnilega áhöfn en skiptu inn eldri og
reyndari jöxlum 1992. Samtímis breyttist tónlist sveitarinnar úr því
að vera hreinræktað léttpopp yfir í eilítið þyngra popp með soulívafi.
Við þetta jókst líka verulega eigin framleiðsla sveitarinnar á lögum.
Engu að síður hélt Stjórnin áfram að hafa vinsæl erlend lög á plötum
sínum, með íslenskum textum að sjálfsögðu, auk þess sem ýmsir
innlendir lagasmiðir hafa lagt hljómsveitinni lið. Þá hefur
hljómsveitin í tvígang spreytt sig á að klæða gömul Trúbrotslög í
nútímalegri búning en ekki tekist sem skyldi á mínu mati og hefði að
skaðlausu mátt sleppa þeim báðum í þessu safni. Heildarstemningin
á plötunni er hins vegar góð og hún gott dæmi um vandað melodískt
íslenskt popp einsog það hefur gerst best undanfarin ár.
■Sigurður Þór Salvarsson
Elton John - Made In England
Upp og ofan
í aldarfjórðung hefur Elton John dælt út hljómplötum, stundum
fleiri en einni og tveimur á ári. Plötumar eru orðnar fjörutíu
talsins, að upptökum frá hljómleikum meðtöldum og.frumsamin
lögin eru því orðin á fimmta hundrað. Þrátt fyrir þessi ótrúlegu
afköst er karlinn enn í furðu góðu formi. Það sannast á bestu
lögunum á plötunni Made In England, hans nýjustu, sem kom út í
vor.
Reyndar eru gæði laga á nýjustu plötunni upp og ofan. Please,
Believe og Made In England eiga ef til vill eftir að komast á safn
bestu laga næst þegar það verður gefið út. Latitude er einnig lag
sem telst ofan við meðallagið. Önnur festast ekki jafn vel í minni
og eitt og eitt er jafnvel hálf óáheyrilegt. Til dæmis hið yfirhlaðna
Belfast. Þar dettur manni einna helst í hug að fela hafi átt slappa
laglínu með íburðarmiklum útsetningum.
En þótt Elton John hitti ekki í mark með hverju einasta lagi sem
hann lætur frá sér fara (hver gæti það svo sem?) þá ber Made In
England þess vitni að hann er síður en svo að láta deigan síga
þrátt fyrir hálfan þriðja áratug í bransanum. Hann á örugglega
eftir að senda frá sér talsvert meira af skotheldu, auðgripnu poppi
í framtíðinni.
■Ásgeir Tómasson
Vinir vors og blóma - Twisturinn
**
Ekki nægilega gott framhald
Partíhljómsveit síðasta árs gerði vel og var sjálfri sér samkvæm við
lagasmíðar á sinni fyrstu plötu. Þarna voru á ferðinni góðir
spilarar með ágætar útsetningarhugmyndir. Frumburðurinn fékk
aukastig fyrir þessa tilburði, en svo er ekki nú. Vinir vors og blóma
■ hafa nú sannað sig sem hljóófæraleikarar og samfara Twistinum
hefðu þeir átt aö sanna sig í lagasmíðum.
Partíhljómsveitin gerir hins vegar heiðarleg mistök. Hún hættir að
vera sjálfri sér samkvæm og rembist nú í átt til fágaðra popps, um
leið og hún reynir að halda í gleðina. Ur verður plata sem er hvorki
fugl né fiskur.
Fyrsta lag plötunnar er til að mynda of flatt (algengt hjá
íslenskum tónlistarmönnum), í það vantar ris. Annað lagið
inniheldur skemmtilegt grúv, en úr verður nýrómantískt viðlag
sem er ekki gott fyrir greifaímyndina. Þriðja lagið er ágætlega
raddsettur Sálarsmellur eftir Golla. Slakur texti Bubba Morthens
og Cream gítargangur gera fjórða lagið að miklum blús fyrir aðra
blúsara. „Hraðinn“ er ágætisstuðlag eftir Njalla (sem hefði að
mínu mati átt að semja meira á plötunni, þá hefði heiðarleikinn
haldist). Sjötta lagið inniheldur Culture Club aðalmelódíu en í það
vantar einnig ris. Ballaðan „Finn mig“ er í anda Seal og gerir sig
vel, nema hvað bakraddirnar hefðu mátt vera kvenkyns.
„UndurTundur" er besti texti plötunnar (eftir Egil Ólafsson) og er
hann umvafinn hljómum Sigga Gröndal og Golla (sem eru sérlegir
aðstoðarmenn á plötunni). „Losti“ er enn eitt stuðlagið eftir Njalla,
en í „Nótt“ finnur hlustandinn nýja hlið á W&B. Ellen
Kristjánsdóttir syngur þessa fallegu melódíu ásamt Steina og lyftir
laginu á hærra plan. „Twisturinn“ er síðan lag sem blandar saman
eiginleikum ZZ Tbp og hins íslenska Geirmundar og er þar á
ferðinni ágætis stuðlag. Bestu tilburðir plötunnar eru hins vegar í
aukalaginu sem líkist meira ferð inn á íslenskan skemmtistað í
fylgd með þýskum fjöllistamanni en nokkru öðru.
I framtíðinni þyrftu W&B helst að ákveða hvaða stíg þeir ætla að
feta til að festast ekki mitt á milli líkt og hér hefur gerst. Eins og
áður segir eru þarna á ferðinni ágætis hljóðfæraleikarar með óskýr
markmið. „Þristurinn“ þarf hins vegar að verða betri.
-Guðjón Bergmann
Sálin hans Jóns míns með nýja plötu, Sól um nótt:
Reyndum að
ná góðri
heildarmynd
- segir Guðmundur Jónsson um nýju lögin
Sól um nótt heitir nýja platan með
Sálinni hans Jóns míns sem kemur út
eftir nokkra daga. Á henni eru tíu lög,
öll eftir Guðmund Jónsson gítarleik-
ara sem jafnframt er upptökustjóri
plötunnar. Textunum skipta þeir Frið-
rik Sturluson bassaleikari og Stefán
Hilmarsson söngvari á milli sín.
„Ég átti megnið af þessum lögum á
lager,“ segir Guðmundur. „Ég á alltaf
eitthvað til þannig að ég þarf ekki að
setja mig í sérstakar stellingar og
byija að semja þegar ákveðið er að gefa
út plötu. Það var annars ákveðið um
páska að taka upp þráðinn að nýju.
Starfsmenn ónefndrar útvarpsstöðvar
báðu okkur að koma í samstarf við sig
í sumar. Þeir heltust svo úr lestinni
en þá var búið að kveikja í okkur svo
að við ákváðum að láta slag standa og
spila í sumar.“ ■
Afkastamikill
lagasmiður
Guðmundur hefur verið afkasta-
mikill lagasmiður á undanförnum
árum. Hann segir lagasmíðamar sín-
ar vera að breytast. „Mér finnst ég
vera byrjaður að semja þyngri lög en
fyrr - leggja meira í þau. Við höfðum
að þessu sinni tólf lög að velja úr á
plötuna og tókum tíu sem okkur
fannst mynda saman góða heild. Við
höfðum stuttan tíma tU að vinna þau
og það má segja að yfirbragðið hafi ró-
ast svolítið meðan á vinnslunni stóð.
Við lögðum ekki upp með neina línu
um að gera ekta sumarplötu með við-
eigandi hoppi og híi heldur vUdum við
leyfa hverju lagi að njóta sin eins og
kostur var. Kannski erum við með
þessari plötu að fara aftur í það sem
Sálin fékkst við í upphafi ferilsins."
y
Blásturshljóð-
færi
áberandi
Blásturshljóðfæri eru áberandi í
nokkrum lögum og upphaf eins lags-
ins er undir greinUegum djassáhrif-
um, „Ég átti djassbút sem lá undir
skemmdum og datt í hug að setja hann
þarna,“ segir Guðmundur og brosir.
„Jú, það er rétt, það er meira grúv á
plötunni en áður. Við erum með sax-
ófónleikara og trompetleikara í hljóm-
sveitinni og hvers vegna ekki að leyfa
þeim að njóta sín? Við erum ekki að
senda frá okkur plötu fyrir neinn einn
aldurshóp heldur vonumst við tU að
sem flestir geti fundið eitthvað við sitt
hæfi.“
Sálin hans Jóns míns: Nýju plötunni verður fylgt eftir með öflugu dansleikjahaldi í
sumar.
Sísemjandi
Guðmundur Jónsson fór að semja
lög á unglingsaldri. Það kom fyrst í
ljós þegar hann lék með hljómsveit-
inni Kikk á sínum tíma að hann átti
auðvelt með að setja saman grípandi
laglínur og síðan hafa fjölmörg lög eft-
ir hann komið út á plötum.
„Þegar ég kom í Kikk hélt ég að all-
ir gætu samið lög,“ segir hann. „Ég
varð þess vegna mjög hissa þegar það
kom í ljós að svo var ekki. Reyndar
held ég að miklu fleiri geti samið tón-
list en gera það. Fólk er bara mjög
feimið að raula lögin sín inn á kassettu
og leyfa félögunum að heyra þau.
Hrætt við að fá gagnrýni. Jú, blessað-
ur vertu, ég fæ ófá skot á mig hjá fé-
lögunum þegar ég leyfi þeim að heyra
ný lög en ég kippi mér bara ekkert upp
við það. Sumum lögunum er hreinlega
hent en flest fá nú að lifa.“
Hann bætir því við að reyndar
skipti laglínan sjátf ekki alltaf höfuð-
máli. Þegar búið er að útsetja lag,
breyta hraðanum og áherslum er það
oft farið að hljóma allt öðruvísi en í
upphafí. „Þessar útsetningar vinnur
hljómsveitin í sameiningu þannig að
þótt ég sé skráður sem höfundurinn
eiga hinir í hljómsveitinni iðulega
heilmikið í endanlegu útkomunm,"
segir Guðmundur.
Síðustu misserin hefur borið æ
. meira á því að plötur hafa komið út
með gömlum lögum í nýjum útsetn-
ingum. Annie Lennox sendi eina slíka
frá sér fyrir nokkru, sömuleiðis Jeff
Healey, Duran Duran og fleiri. Er
kannski búið að semja allt góða popp-
ið og komið að því að nú þarf að fara
að spila það gamla aftur? Guðmundur
Jónsson segist ekki trúa því.
„Mér finnst þetta sorgleg þróun,“
segir hann. „Þetta lítur út eins og að
fólk sé að reyna að sleppa ódýrt frá
hlutunum - stytta sér leið. Það getur
ekki verið að það sé búið að raða þess-
um tólf nótum sem við höfum yfir að
ráða upp á allan þann máta sem hægt
er. Enda skipta útsetningar og yfir-
bragð einnig svo miklu máli um end-
anlega útkomu laganna að það á að
vera hægt að semja heilmikið til við-
bótar. Ég trúi því ekki að neinum endi-
mörkum sé náð í þessu efni. Frekar
held ég að um leti sé að ræða.“
Björk-Post Boo Radleys - Wake upl: Bubbi og Rúnar-Teika:
★★★* ★★★ ★★★
Björk leitar nýrra leiða með aðstoðar- mönnum sínum auk þess að halda í sumt hið áheyriiegasta af fyrri plötunni og út- koman er fyllilega viðunandi. -ÁT Wake up! er heilsteypt og sterk plata, fuli af vandaðri, fjörugri og grípandi popptón- list sem ætti að geta komið hveijum sem er i gott skap. -SÞS Samstarf þeirra Bubba og Rúnars hefur nú getið af sér þriðju plötuna sem jafhframt er sú besta hingað til. -SÞS
Terence Trent D’Arby - Vibrator: ★★★■Á ... það kæmi mér ekki á óvart þó þessi piata yröi talin ein albesta soulplata ef ekki plata ársins þegar upp verður staðið. Bob Dylan-Unplugged: ★★★★ Eftir að hafa hlustað á þessa plötu um skeið er ljóst að biðin hefur verið þess virði því þetta er aldeilis mögnuð piata þar sem meistarinn og meðreiðarsveinar hans fara á kostum. Elastica - Elastica: ★★★ ... gamlir pönkhundar ættu hikstalaust að leggja eyrun við tónlist Elasticu sem sameinar á ýmsan hátt margt af því besta sem kom fram á pönkárunum.
-SÞS -SÞS -SÞS