Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Blaðsíða 5
24
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
25
íþróttir
Leiftur-Grindaxík
(0-0) 3-1
0-1 Ólafur Ingólfsson (62.). Ólafur Ö.
Bjamason vann knöttlnn á miðju, sótti
fram völlinn og átti fina sendingu á Ólaf
sem skoraði af öryggi.
1- 1 Sverrir Sverrisson (70.) skoraði úr
þröngu færi eftir sendingu Péturs B.
Jónssonar.
2- 1 Gunnar Már Másson (77.) skoraði
með skalla aftur fyrir sig eftir sendingu
Péturs Bjöms.
a-1 Matthías Þorvaldsson (90.) hamr-
aði knöttinn í bláhomið fjær.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson
;.v.v.y Sindri Bjamason (Gunnar Már
Mássón 73.), Júlíus Tryggvason, Nebojsa
Corovic, Sigurbjöm Jakobsson - Gunn-
ar Oddsson, Ragnar Gíslason Pétur
B. Jónsson (Steinn V. Gunnarsson
90.), Páll Guðmundsson - Sverrir Svem-
issonJón Þór Andrésson ;.yMatthías
Sigvaldason 80.).
Lið Grindavíkur: Albert Sævarsson -
Bjöm Skúlason (Lúkas Kostic 80.),
Gunnar M. Gunnarsson Guðjón Ás-
mundsson, Þorsteinn Guðjónsson -
Vignir Helgason (Sveinn Guðjónsson
80.), Grétar Einarsson (Hjálmar Hall-
grímsson 57.), Þorsteinn JónssonÓl-
afur Öm Bjarnason ;.v Tómas Ingi
Tómasson Óiafur Ingólfsson
Leiftur: 10 markskot, 4 hom.
Grindavík: 11 markskot, 5 horn.
Gul spjöld: Corovic (Leiftri), Ragnar
(Leiftri), Grétar (Grindavik), Guðjón
(Grindavík), Tómas Ingi (Grindavík).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson, þokkaleg-
ur en gerði mistök eins og að sleppa viti.
Áhorfendur:
400 Skilyrði: Hlýtt, logn og frábært
knattspymuveður.
Maður leiksins: Þorvaldur Jónsson
(Leiftri). Átti stórskotlegan dag, varði
meðal annars 5 algjör dauðafæri.
Keflavík-Valur
(0-1) 1-1
O-l Kristinn Lárasson (42.) skoraði af
markteig eftir að hafa fengið skallasend-
ingu frá Davið Garðarssyni.
1-1 Marko Tanasic (75.) setti boltann
viðstöðulaust og skemmtilega framhjá
Lárasi markverði eftir aukaspymu
Helga Björgvinssonar.
Lið Keflavíkur: Ólafur Gottskálksson
- Helgi Björgvinsson, Kristinn Guð-
brandsson, Karl Finnbogason ;.V Róbert
Sigurösson (Sverrir Þ. Sverrísson 73.
;.;.), Ragnar Steinarsson (Ámi Vil-
hjálmsson (70.), Marko Tanasic
lýartan Einarsson Georg Birgisson
(Jóhann B. Guömundsson 46.) - Ragnar
Margeirsson, Óli Þór Magnússon.
Lið Vals: Láras Sigurðsson - Jón Grét-
ar Jónsson Bjarki Stefánsson
Kristján Halldórsson ;.V Kristinn Lár-
usson;.;., Davíö Garðarsson, Sigþór Júl-
íusson Jón S. Helgason, Sigurbjöm
Hreiðarsson (ívar Ingimarsson 80.) -
Stewart Beards (Guðmundur Brynjólfs-
son 83.), Hörður Már Magnússon.
Keflavik: 12 markskot, 6 horn.
Valur: 8 markskot, 4 hom.
Gul spjöld: Karl (Keflavík), Kjartan
(Keflavik), Jón S. (Val), Hörður (Val),
Jón G (Val).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Jón Siguijónsson, mætti
halda að hann hefði ekki verið nægilega
vel vaknaður þar sem leikurinn byrjaði
snemma. Hefði mátt taka leikinn fastari
tökum strax í upphafi og gefa mönnum
spjald til að róa þá niður.
Áhorfendur: Umj300.
Skilyrði: Smágola, rigningarúði, völl-
urinn blautur og erfiður
Maður ieiksins: Jón Grétar Jónsson
(Val). Meö leikreynslu sinni og útsjón-
arsemi stjórnaði hann Valsvörninni
mjög vel og hvatti sina menn til dáða.
Akranes ... 12 12 0 0 31-7 36
KR ... 12 8 1 3 19-11 25
Leiftur ...12 6 2 4 20-18 20
Keflavík ...12 5 4 3 16-17 19
ÍBV ...11 5 1 5 23-15 16
Breiðablik... ... 12 4 2 6 15-15 14
Grindavík.... ... 12 4 2 6 15-17 14
FH ...12 2 2 8 18-30 8
Fram ...11 2 2 7 11-26 8
Valur ...12 2 2 8 11-26 8
Markahæstir:
RastislavLazorik, Breiðabl....8
ÓlafurÞórðarson, ÍA...........7
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV......7
Mihajlo Bibercic, KR..........6
Haraldur Ingólfsson, ÍA.......6
Hörður Magnússon, FH..........6
Arnar Gunnlaugsson, ÍA........5
Þorbjörn A. Sveinsson, Fram...5
varði stórkostlega gegn Grindavík
Helgi Jónsson, DV, Ólafeftrði:
, Sigur Leifturs gegn Grindavík, 3-1, á
Ólafsfirði var stærri en efni stóðu til.
Grindvíkingar voru betri aðilinn lang-
tímum saman en þaö var stórkostleg
markvarsla Þorvaldar Jónssonar sem
kom í veg fyrir sigur gestanna.
Leikurinn var frekar rólegur fratnan
af en fyrsta hættulega færið fékk Tómas
Ingi Tómasson á 8. mínútu þegar hann
skaut framhjá úr góðu færi. Tveimur
mínútum síðar komst Jón þór Andrés-
son inn fyrir vörn Grindvíkinga og lék
á Albert Sævarsson markvörð sem tos-
aði hann niður en dómarinn sá ekkert
athugavert. Við þetta dofnuðu heima-
menn og gestirnir gengu á lagiö og fengu
ótal færi. Fyrst Grétar Einarsson á 14.
minútu en Þorvaldur varði skot hans á
ótrúlegan hátt. Ólafur Ingólfsson átti
síðan fast skot á 25. mínútu en Þorvaldur
varði stórkostlega. Mínútu síðar komst
Tómas Ingi upp kantinn, lék á varnar-
mann og þrumaði á markið en enn varði
Þorvaldur vel.
Öll mörkin komu í síðari hálfleík. Eft-
ir að Grindvíkingar skoruðu fyrsta
markið leit út fyrir öruggan sigur þeirra
því þeir léku mjög vel. En heimamönn-
um tókst að jafna metin og við það mark
færöist aukinn kraftur í Leiftursmenn.
skallanxarki, nýkominn inn á sem vara-
maður. Þorvaldur Jónsson gerði svo út
um að Grindvíkingar fengju stig þegar
hann varði meistaralega frá Þorsteini
Jónssyni sem var í dauðafæri á 90. mín-
útu. Dómarinn bætti 5 mínútum við og
á þeim tíma tókst varamanninum Matt-
híasi að bæta við þriðja markinu.
Grindvíkingar gengu hnípnir og von-
sviknir af velli. Þeir spiluðu vel, sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Tómas Ingi, Ólafur
Ingólfsson og Þorsteinn Jónsson voru
þeirra bestu menn.
Hjá Iæiftri var Þorvaldur Jónsson í
banastuði og langt er síðan önnur eins
markvarsla hefur sést. Hann hélt liðinu
gersamlega á floti í fyrri hálfleik. Ragnar
Gíslason barðisf eins og ljón allan tím-
ann og Pétur B. Jónsson, Jón Þór og
Sverrir Sverrisson áttu góðan leik.
Iþróttir
FH-Akranes
(0-2) 2-3
0-1 Sigurður Jónsson (41.) skoraði af
stuttu færi eftir að Stefán Amarson
hafði varið aukaspymu Amars Gunn-
laugssonar.
0-2 Amar Gunnlaugsson (42.) lagði
boltann snyrtilega í netiö eftir sendingu
frá Haraldi Ingólfssyni.
1- 2 Hrafnkell Kristjánsson (52.) tók
hann á brjóstkassann og þramaöi síðan
i slá og inn, glæsilegt mark.
2- 2 Hörður Magnússon (59.) pijónaði
sig f gegnum vöm Skagamanna og skor-
aði undir Áma Gaut Arason markvörö.
Amar Gunnlaugsson (88.) úr víta-
spymu eftir að brotiö var á Bjarka P.
að því er virtist.
Lið FH: Stefán Amarson - Ólafur
Kristjánsson Auðun Heígason
Ólafur B. Stephensen (Hlynur Eiríksson
46.) - Hrafnkell Kristjánsson, Amar Við-
arsson, Jón Sveinsson, Hallsteinn Am-
arson, Stefan Toth - Hörður Magnússon
(Davíð Ólafsson 88.), Jón E. Ragnarss.
Lið lA: Ámi Gautur Arason - Zoran
Miljkovic Óiafur Adolfsson, Pálmi
Haraldsson (Dejan Stojic 87.), Sigur-
steinn Gíslason ;.y Sigurður Jónsson,
Alexander Högnason, Haraldur Ingólfs-
son (Kári S. Reynisson 72.), Ólafur Þórð-
arson ;.;. - Bjarki Gunnlaugsson (Bjarki
Pétursson 84.), Amar Gunnlaugsson
FH: 12 markskot, 7 horn.
ÍA: 15 markskot, 10 hom.
Gul spjöld: Jón Erling, Amar, Toth,
Hrafnkell, (FH), Bjarki G. (ÍA).
Rautt spjald: Hrafnkell, Auðun (FH).
Dómari: Egill Már Markússon. Byij-
aði vel í leiknum. Hefði mátt taka harðar
á Skagamönnum þegar leið á leikinn.
Áhorfendur: Um 800.
Skilyrði: Ágæt, smágola, völlur nokk-
uð blautur.
Maöur leiksins: Arnar Gunnlaugs-
son, (ÍA). Átti þátt í öllum mörkum ÍA
og er alltaf stórhættulegur.
Fram-KR
(0-1) 1-4
0-1 Ásmundur Haraldsson (15.) fékk
stungusendingu inn fyrir vöm Fram frá
Sigurði Emi og átti ekki í erfiðleikum
með að koma boltanum í netið.
0-2 Ásmundur Haraldsson (48.) eftir
frábæra sendingu fyrir markið frá Daða
Dervic.
1-2 Ríkharður Daðason, vitaspyma
(62.) eftir að Ágúst Ólafsson var felldur
inni í vítateignum.
1-3 Hilmar Bjömsson (81.) frábærri
sókn lyktaði með sendingu Guðmundar
Benediktssonar til Hilmars sem skoraði
með góðu skoti.
1-4 Einar Þ. Daníelsson (88.) skoraði
eftir langt útspark Kristjáns i markinu,
sem fyrr svaf Framvörnin á verðinum.
Lið Fram: Birkir Kristinsson;.;. - Pét-
ur Marteinsson, Ágúst Ólafsson, Kristj-
án Jónsson, Steinar Guðgeirsson - Atli
Helgason (Gauti Laxdal 82.), Nökkvi
Sveinsson (Þórhallur Víkingsson 82.),
Josip Dulic, Atli Einarsson - Rikharður
Daðason, Þorbjöm Atli Sveinsson.
Lið KR: Kristján Finnbogason - Þor-
móður Egilsson Óskar Hrafn Þor-
valdsson, Daði Dervic , Sigurður Öm
Jónsson - Heimir Porca, Einar Þór Daní-
elsson , Hilmar Bjömsson, Steinar
Adolfsson ;.;. (Magnús Orri Schram 53.)
- Ásmundur Haraldsson ;.;. (Logi Jóns-
son 82.), Guðmundur Benediktsson (Atli
Kristjánsson 82.).
Fram: 6 markskot, 10 hom.
KR: 13 markskot, 8 hom.
Gul spjöld: Dulic (Fram), Nökkvi
(Fram), Atli H. (Fram), Kristján (KR),
Óskar (KR), Ásmundur (KR).
Rautt spjald: Dulic (Fram), Óskar
(KR).
Dómari: Bragi Bergmann, hafði ekki
nægilega góð tök á leiknum.
Áhorfendur: Um 1800.
Skilyrði: Hin ákjósanlegustu, milt
veður og góður völlur.
Maður leiksins: Ásmundur Haralds-
son, KR. Duglegur og ógnandi í fram-
línunni.
150. leikur Harðar
Hörður Magnússon lék sinn
150. leik í 1. deild gegn ÍA á laug-
ardaginn. Þar með er hann orð-
inn leikjahæsti leikmaður FH í
1. deild ásamt Pálma Jónssyni.
Þá skoraði Hörður sitt 80. mark
fyrir FH í 1. deild og er orðinn
6. markahæsti leikmaðurinn í 1.
deild frá upphafi og er sá eini af
þessum sex sem hefur skorað
mörkin fyrir eitt og sama félagið.
íslandsmótið í knattspymu -1. deild:
„Hvert stig telur“
- sagði Kristinn Bjömsson eftir jafntefli Keflavíkur og Vals
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
Gríðarleg spenna ríkti í herbúðum
Valsmanna og stuðningsmanna
þeirra fyrir leik liðsins gegn Keflavík
í 1. deildinni á laugardag. Leiknum,
sem fram fór í Kelfavík, lauk með 1-1
jafntefli en bæði lið höfðu tækifæri
til að bæta mörkum við. Kristinn
Björnsson, hinn nýráðni þjálfari
Vals, stjórnaði liðinu í fyrsta skipti í
sumar en hann hefur þjálfað liðið
undanfarin ár. Þjálfaraskiptin virt-
ust hafa góð áhrif á leikmenn Vals
sem börðust eins og ljón og höfðu
gaman af því sem þeir voru að gera.
Barátta þeirra var frábær og þeir
náðu að brjóta flestar sóknarlotur
Keflvíkinga á bak aftur. Leikurinn
var gríðarlega harður og kom það
töluvert niður á gæðum hans.
„Við vorum yfir og ég lít svo á að
við höfum misst 2 stig. Við fengum
færi í síðari hálfleik til aö gera út um
leikinn. Við misstum einbeitinguna
þegar líða tók á síðari hálfleik og
mér fannst við gefa heldur eftir. Við
erum í erfiðri stöðu og hvert stig tel-
ur og á meðan þau telja erum við
ánægöir," sagði Kristinn Björnsson,
þjálfari Vals, eftir leikinn.
Jón Sigurjónsson, dómari leiksins,
á stóra sök á því hvernig leikurinn
þróaðist með því að taka ekki nægi-
lega hart á grófum brotum í upphafi
hans. Hann og Sæmundur Víglunds-
son línuvörður,fá örugglega ekki
góða dóma frá eftirlitsmanni sem
taldi að „hönd guðs“ hefði verið að
verki þegar Kristinn Lárusson skor-
aði mark Vals. Síðan vildu Keflvík-
ingar fá vítaspyrnu þegar Jón Grétar
Jónsson stöðvaði sendingu heima-
manna viljandi með hendi innan
vítateigs en eftir að þeir Jón dómari
og Sæmundur línuvörður, sem
staddur var rétt hjá þeim stað þar
sem brotið var framiö, höíðu rætt
þetta í töluverða stund var ákveðið
að færa brotið út fyrir vítateigslínu.
Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn
var farið að færast meira fjör í leik-
inn við mörkin og áttu Keflvíkingar
tvö góð færi um miðjan hálfleikinn.
Kjartan Einarsson var tvívegis að-
gangsharöur við mark Valsmanna
sem sluppu með skrekkinn. Vals-
menn komust síðan yfir þremur mín-
útum fyrir leikhlé með marki Krist-
ins Lárussonar. Keflvíkingar vildu
meina að hann hefði lagt boltann
fyrir sig með hendi áður en hann
skoraði. Mikið fjör færðist í leikinn
í síðari hálfleik og bæði lið fengu góð
færi áður en Marko Tanasic náði að
jafna metin glæsilega.
„Þeir ætluðu sér ekki að tapa og
það var hræðilegt að þurfa að mæta
þeim eftir þjálfaraskiptin. Dómar-
arnir geta tuðað um það á vorin að
taka hart á aftaníbrotum og svo gera
þeir það ekki þegar á hólminn er
komið. Valsmenn eru hins vegar með
alltof gott lið til að fara niður,“ sagði
Óli Þór.Magnússon, leikmaður Kefl-
víkinga, eftir leikinn.
Besti leikur KR-inga
- þegar þeir unnu öruggan sigur á máttlausu og áhugalitlu liði Fram
Jón Kiistján Sigurðsson skiifer:
Framarar máttu kallast heppnir að
sleppa við stærri ósigur gegn KR-
ingum í leik liðanna á Laugardals-
vellinum á laugardaginn var. KR-
ingar réðu gangi leiksins lengstum
og gátu hæglega bætt við fleiri mörk-
um gegn götóttri vörn og máttlausu
Framliði. KR-ingar fóru illa með
fjöldamörg tækifæri og eins varði
Birkir Kristinsson, markvörður
Fram, mjög vel og geta Framarar
þakkað honum fyrir að liðið fékk
ekki stærri skell.
KR-ingar léku án Mijhalo Bibercic,
sem var í leiikbanni, en liðið virtist
ekki sakna hans því Ásmundur Har-
aldsson, sem tóku stöðu Bibercic, var
mjög ógnandi í fremstu línu Vestur-
bæjarliðsins, nýtti tækifærið í byrj-
unarliðinu til fullnustu og skoraði
tvö góð mörk. Hann hefði getað bætt
við fleiri mörkum en heppnin var
ekki með honum í þetta skipti.
KR-ingar voru mjög frískir allan
tímann og léku á köflum skínandi
leik. Þeir komust upp með aflt á vell-
inum gegn óhemju áhugalitlu Fram-
liði. Það er alveg ótrúlega mikil deyfð
yfir leik Framliðsins þrátt fyrir
slæma stöðu þess í deildinni. Fram-
arar verma botnsætið en samt er
engin barátta í liðinu. Það virkar
áhugalaust og stór hluti leikmanna
er hreinlega ekki með á nótunum.
Það þarf heldur betur að stokka upp
spilin ef liðið ætlar að koma sér frá
því að leika í 2. deildinni næsta sum-
ar. Það stefnir í það með hverjum
tapleiknum sem það leikur.
Það var ekki að sjá á leik KR-inga
að liðið hafði leikið Evrópuleik í vik-
unni. Frískleiki og leikgleði ein-
kenndi leik KR-inga og höfðu þeir
greinilega gaman af því sem þeir
voru að gera. KR-ingar tóku völdin á
miðjunni strax í upphafi og úti á vell-
inum léku þeir Framara oft upp úr
skónum. Ásmundur opnaði marka-
reikning KR-inga snemma leiks og
upp frá því áttu Framarar í vök að
verjast. Ásmundur Haraldsson hefði
svo sannarlega getað verið búinn að
skora þrennu áður en fyrri hálfleik-
ur var allur en heppnin var ekki með
honum.
Nokkur harka hljóp í leikmenn í
síðari hálfleik, sem varð þess vald-
andi að Josip Dulic, Fram, og Óskar
Hrafn Þorvaldsson fengu réttilega að
líta rauða spjaldið. Þetta sló ekki
KR-inga út af laginu, miklu frekar
að þeir efldust til muna og hver sókn-
in af annarri dundi á marki Fram-
ara. Sóknir Framara voru að sama
skapi máttfltlar og hægur vandi fyrir
vörn KR-inga að bægja þeim frá,-
KR-liðið lék ef til vill sinn besta
leik í sumar og eiga allir leikmenn
þess hrós skilið fyrir sitt framtak.
Liðið vann sem ein heild og allir tóku
virkan þátt í vinnunni. Uppskeran
var eftir því, fjögur stórgóð mörk sem
hefðu getaö orðið helmingi fleiri.
Ásmundur Haraldsson kom
skemmtilega á óvart og eins var Daði
Dervic góður. Það var öðru fremur
liðsheildin sem skóp þennan sigur.
Framliðið á bágt um þessar mundir
og við því eru engin meðul til. Út úr
ógöngunum kemur enginn þeim til
hjálpar nema þeir sjálfir. Birkir
Kristinsson ber ægishjálm yfir alla
aðra í liðinu og ef hans nyti ekki við
væri liðiö búið að fá á sig mun fleiri
mörk í sumar. Það kann að vera að
leikmenn séu komnir með hugann
við bikarúrslitaleikinn á kostnað
deildarinnar. Bikarinn gefur engin
stig í deildinni og því þarf liðið að
gera sér grein fyrir, því fyrr því
betra.
KR-ingar höfðu oft ástæðu til að fagna í leiknum gegn Fram á laugardaginn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Alexander Högnason og Bjarki Gunnlaugsson fagna Arnari Gunnlaugssyni eftir að hann hafði skorað annað mark ÍA gegn FH. Ólafur H. Kristjánsson og Jón Sveinsson fylgjast niðurlútir með.
_ DV-mynd Brynjar Gauti
Skagamenn sluppu
- unnu FH, 2-3, í tvísýnum leik 1 Kaplakrika á laugardag
Svanur Valgeiisson skrifer:
„Þetta var einn erfiðasti leikur sem
við höfum spilað í sumar. Við voru allt-
of værukærir eftir fyrri hálfleikinn en
vöknuðum síðan upp við vondan
draum þegar þeir jöfnuðu. Eftir að við
tókum okkur saman á ný var þetta
bara spurning um þolinmæöi. Við vor-
um ekki að spila áferðarfallega knatt-
spyrnu en sem betur fer skilaði hún
árangri í dag,“ sagði Alexander Högna-
son, leikmaður ÍA, eftir sigur á FH á
laugardaginn.
Leikurinn fór rólega af stað en eftir
tiltölulega jafnan leik framan af fóru
heimamenn að bakka og gáfu Skaga-
mönnum eftir völdin á miðjunni. Eftir
þaö lá markið í loftinu. Tvö mörk
Skagamanna með mínútu millibili und-
ir lok hálfleiksins urðu til þess að þeir
spámannlegustu í Firðinum fóru að spá
stórsigri þeirra gulu, líklega minnugir
markasúpunnar í leflí Skagamanna og
Keflvíkinga frá síðustu umferð. Um-
ræddir spámenn átu þó fljótt spádóma
sína ofan í sig því FH-ingar komu geysi-
sterkir til síðari hálfleiks, fengu reynd-
ar dauðafæri rétt áður en flautað var
til leikhlés. Jón E. Ragnarsson fékk þá
boltann á markteig en var of seinn að
átta sig og Árni Gautur í marki í A varði
vel frá honum í horn. Jón Erling skall-
aði síðan hárfínt yfir markið eftir hom-
spyrnuna.
Skagamenn voru nálægt því að skora
eftir sjö mínútna leik í síðari hálfleik
en þá varði Stefán Arnarson mjög vel
frá Bjarka Gunnlaugssyni sem var
kominn einn í gegn. Eftir það komust
FH-ingar æ meira inn í leikinn og áður
en íslandsmeistarnir höfðu áttað sig
höfðu FH-ingar jafnað leikinn.
Lokamínútumar voru æði drama-
tískar. FH missti mann út af á 78. mín.
en þá fékk Hrafnkell Kristjánsson sitt
annað gula spjald. Allt stefndi í jafn-
tefli en þá var Bjarki Pétursson togaður
niður í vítateig FH-inga og Egill Már
Markússon dómari sá sér ekki annað
fært en að dæma vítaspyrnu. FH-ingar
voru mjög ósáttir við þessa ákvörðun
Egils en frá sjónarhorni stúkumanna
var ekki annað að sjá en dómurinn
væri réttur. Á síðustu mínútu leiksins
var síðan Auðun Helgason FH-ingur
rekinn út af fyrir að sparka í Sigurð
Jónsson. Tólfti sigur Skagamanna í
deildinni er staðreynd en FH-ingar áttu
annað stigið skilið.
„Þetta var ótrúlega sárt. Ekki var
hægt að ætlast til meira af okkur en
við gerðum í síðari hálfleiknum. Við
gáfum allt í þetta og áttum annað stigið
skilið fyrir baráttuna og dugnaðinn.
Vítaspyrnudómurinn í lokin var fárán-
legur og dómarinn og línuverðirnir
báru allt of mikla virðingu fyrir Skaga-
mönnum frá fyrstu mínútu," sagði
Hörður Magnússon, leikmaður FH, allt
annað en ánægður í lokin.
Sjálfstraustið að koma
- sagöi Leifur Geir Eyjamaður eftir sigur á Blfkum
Halldói Halldórsson skrifer:
ÍBV sigraði Breiðablik, 0-1, á Kópa-
vogsvelli sl. laugardag. Sigurmarkið
kom eftir mjög gott framlag Leifs
Geirs Hafsteinssonar sem lék í gegn-
um vöm Breiðabliks en var bmgðið
og að sjálfsögðu dæmd vítaspyrna.
Eyjamenn sóttu mun meira mest-
allan hluta fyrri hálfleiks og fengu
tækifæri á færibandi. Tryggvi Guð-
mundsson skoraði m.a. mark en var
réttilega dæmdur rangstæður.
Oft brá fyrir góðum samleiksköfl-
um hjá Eyjamönnum og snörpum
sóknarlotum sem sköpuðu mikla
hættu - en vörn Blika var sterk og
staðan í hálfleik því aðeins 0-1.
„Völlurinn var mjög þungur og
erfiður og ég er ekki vanur að spila
þessa stööu. Mér leið þó vel og leikur-
inn þróaðist okkur í hag því við vor-
um mikið í boltanum og miðjan mjög
traust hjá okkur. Eyjaliðið er gott en
viö höfum ekki náö því að fylgja
styrk okkar nóg eftir. Sjálfstraustið
er þó að koma. Ég vil koma á fram-
færi þakklæti til Arnaldar Loftsson-
ar, varnarmanns Breiðabliks, því ég
fékk mjög slæman sinadrátt í síðari
hálfleik og gaf hann sér tíma til þess
að hjálpa mér út úr þeim vanda með-
an á leik stóð,“ sagði maður leiksins,
Leifur Geir Hafsteinsson, ÍBV.
í síðari hálfleik færðust Blikarnir
mjög í aukana og sóttu mun meira -
Eyjamenn drógu sig nokkuð til baka,
ákveðnir í að halda fengnum hlut og
vörðust vel en beittu skyndisóknum
sem voru stórhættulegar. Á lokamín-
útunni voni dæmdar tvær horn-
spyrnur á ÍBV og hljóp Cardaclija,
markvörður Blikanna, fram og í
seinna skiptið var hann nærri því
að jafna en skallaði naumlega fram-
hjá.
„Eyjamenn voru eiginlega að spila
þann leik sem okkur fellur svo vel,
sem er að draga sig til baka og beita
síðan skyndisóknum. Þeir spiluðu
skynsamlega og börðust vel. Ég er
nokkuð sáttur við okkar spil og er
mjög bjartsýnn á leikinn gegn Fram
sem er næstur á dagskrá hjá okkur,
“ sagði Hákon Sverrisson.
Leikurinn var skemmtilegur á að
horfa og nokkuð spennandi og þá
sérstaklega undir lokin. Sigur Eyja-
manna verður þó að teljast réttlátur
þegar á heildina er htið. Varnir
beggja hða voru sterkar og hart bar-
ist á miðjunni, sem bitnaði að nokkru
á sóknarleiknum.
Breiðabtik-ÍB V
(0-1)0-1
0-1 Tryggvi Guðmundsson (37.) úr
vítaspymu eftir að Leifur Geir Haf-
steinsson hafði verið felldur innan vita-
teigs Blika eftir skemmtilegt gegnum-
brot.
Lið Breiðabliks: Harajdin Cardaklija
- Kjartan Antonsson Arnaldur
Loftsson Hákon Sverrisson - Úlfar
Óttarsson (Vilhjálmur Haraldsson 87.),
Willum Þór Þórsson, Rastislav Lazorek
Amar Grétarsson Guðmundur
Guðmundsson, Jón Stefánsson (Kristó-
fer Sigurgeirsson 71. - Anthony Karl
Gregory (Þórhallur Hinriksson 46.).
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson ;.;, -
Heimir Hallgrímsson, ívar Bjarklind
Jón Bragi Amarson - Martin Eyjólfs-
son (Ingvi Borgþórsson 65.), Rútur
Snorrason ( Bjamólfur Lái^isson 34.),
Hermann Hreiðarsson Ingi Sigurðs-
son, Tryggvi Guðmundsson Leifur
Geir Hafsteinsson (Kristján Gebrgsson
83.) - Steingrímur Jóhannesson.
Breiðablik: 2 markskot, 5 horn.
ÍBV: 5 markskot, 9 hom.
Gul spjöld: Guðmundur, Amar, Þór-
hallur (Breiðablik).
Rautt spjald: Þórhallur (Breiðablik).
Dómari: Kristinn Jakobsson, dæmdi
mjög vel.
Áhorfendur: Um 600.
Skilyrði: Mjög gott veður en völlurinn
þungur.
Maöur leiksins: Leifur Geir Haf-
steinsson, ÍBV. Vann mjög vel fyrir liö-
ið og snedingar hans voru mjög góðar
í þessum leik.