Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Side 7
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 23 Messur Árbæjarkirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestarnir. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Organisti Daní- el Jónasson. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Messa kl. 11. Fermd verður Katla Hannesdóttir, p.t. Hraunbaer 116, Rvk. Organ- isti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa kl.ll. Altarisganga. Organisti Smári Ólason. Gunnar Sigurjónsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestursr. JakobÁ. Hjálmarsson. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þóri Stephensen. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30. Elliheimilið Grund: Guðs- þjónusta kl. 10. Sr. Gylfi Jóns- son. Organisti Kjartan Ólafsson. Fella- og Hólakirkja: Guðs- þjónusta kl. 11 (ath. breyttan messutíma). Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová. Prestarnir. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Grafarvogskirkja: Guðs- þjónusta kl. 11. Ferming, fermdur verður Börkur Halldór Blöndal, Fannafold 143A. Organisti Bjarni Þór Jónatansson. Prestarnir. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Jakob Hallgrimsson. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Org- anisti Hörður Áskelsson. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Organisti Pavel Manasek. Sr. Tómas Sveinsson. Hjallakirkja: Guðsþjónusta ki. 11. Orga’nisti Oddný J. Þor- steinsdóttir. Bryndís Malla Elí- dóttir. Keflavíkurkirkja: Guðsþjón- usta kl. 11 árd. Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkur- kirkju syngur. Organisti: Einar Örn Einarsson. Prestarnir. Kópavogskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Örn Falkn- er. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Langholtskirkja, Kirkja Guð- brands biskups: Messa kl. 11. Prestursr. Flóki Kristinsson. Org- anisti Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir messu. Laugarneskirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Félagar úr Kór Laug- arneskirkju syngja. Organisti Jónas Þórir. Ólafur Jóhannsson. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 14 (athugið breyttan messu- tíma). Sr. Guðmundur Óskar Ól- afsson kveður söfnuðinn. Safnkirkjan Árbæjarsafni: Messa kl. 14. Prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinsson. Seljakirkja: Guðsþjónusta ki. 14. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Guðsþjónusta í Selja- hlíð laugardag kl. 11. Prestarnir. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Organisti Vera Gulasciova. Prestur sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Esjudagurinn á sunnu- daginn í fjórða sinn - gengið í rólegheitum eða keppt í hraða Hjálparsveit skáta í Reykjavík ætl- ar að bjóða til Esjudags á sunnudag- inn í ijórða sinn. Lagt verður af stað frá bílastæðunum við Mógilsá. Félag- ar frá HSSR verða á svæðinu frá kl. 12-17 og getur fólk mætt hvenær sem er á þeim tíma og þegið góð ráð og aðstoð á leiðinni. Drykkjarstöðvar verða í fjallinu. Þetta er ætlað allri fjölskyldunni og allir fá barmmerki og þeir sem sigrast á Þverfellshorninu fá viður- kenningarskjal til staðfestingar. „Við byrjuðum á þessu 1992, á 60 ára afmæli okkar. Margir hafa nýtt sér þetta vegna þess að það er aukið öryggi í því að hafa vant fólk í fjall- inu til aðstoðar. Margt af þessu fólki sem kemur er að fara í fyrsta sinn á Esjuna og gott er fyrir óvana að hafa stuðning. Þetta er ekki hættuleg ganga en það er dálítið bratt efst. Fjöldi þátttakenda hefur aukist ár frá ári og í fyrra komu tæplega 2000 manns,“ segir Hörður Magnússon, aöstoöarsveitarforingi hjá Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík. Kapphlaup upp Esjuna Meiningin er að efna til kapphlaups upp á Esjuna fyrir þá sem þess óska. Þeir sem ætla að taka þátt í hlaupinu verða að skrá sig viö Mógilsá. Byrjað verður að skrá kl. 12.30 og stendur skráningin til 13.30. Lagt verður af stað í hlaupið kl. 14. Keppt verður í tveimur aldurshópum karla og kvenna: 12-39 ára og 40 ára og eldri. Tekinn verður tími og verðlaun veitt fyrir fyrsta sæti í hveijum aldurs- flokki og þátttakendur fá skráðan tímann á viöurkenningarskjal. Esjudagurinn er fyrir alla fjölskylduna. Fjölskyldu- skemmtum Eurocard Eurocard á íslandi býður korthöf- um árlega til skemmtunar og úti- veru. í ár er ætlunin að hittast í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum í Laug- ardal á laugardaginn. Skemmtunin hefst klukkan 13 og stendur yfir til kl. 17. Til að vera með þarf aðeins að hafa góða skapið og Eurocard- kortið meðferðis. Sniglarnir munu mæta og Georg og félagar frá íslandsbanka, risa- hoppdýna verður á svæðinu, einnig veltibíll BFÖ og Umferðarráðs. Svín- um verður hleypt út og hestar teymd- ir um svæðið. Þá verður fallhlífar- stökk og hljómsveitin Kósí skemmt- ir. Tríó Reykjavík- ur í Hafnarborg Fyrstu tónleikar vetrarins í tón- leikaröö sem Tríó Reykjavíkur og Hafnarborg í Hafnarfirði standa að verða á sunnudaginn kl. 20. Er þetta í sjötta sinn sem tónleikar með þessu sniði eru haldnir. Flytjendurnir eru Edda Erlends- dóttir píanóleikari, Guðný Guð- mundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Skrá yfir alla tónleika og nánari upplýsingar fást í Hafnarborg. Skóladagar Á fóstudag og laugardag verða skóladagar í Verslunarmiðstöðinni Miðbæ í Hafnarfirði. Skólatilboð verða í flestum verslunum ásamt ýmsum uppákomum. Fólk frá Líkamsræktarstöðinni Hress sýnir þolfimi á fostudag og á laugardag verður tískusýning þar sem verslanir sýna haustvörurnar sem eru að koma þessa dagana. Margt verður til skemmtunar á Ár- bæjarsafni í sumarlok. Á myndinni er gamla torfkirkjan. Sumar- starfi lýkur á Árbæjar- safni Helgin 2.-3. september er lokahelgi sumarstarfsins á Árbæjarsafni en opnað verður aðventusunnudagana í desember. Ýmislegt verður til gamans gert þessa síðustu helgi sumarsins á safn- inu. Karl Jónatansson og Einar Magnússon leika á harmoníku og munnhörpu klukkan 15 á laugardag- inn. Gömlu leikirnir verða í heiðri hafðir og leiðsögumenn kenna börn- um þá klukkan 15.30. Á sunnudaginn býðst gestum að líta í geymsluskemmur safnsins und- ir leiðsögn Helga Sigurðssonar, safn- varðar munadeildar. Glímufélagið Ármann sýnir glímu og forna leiki kl. 14 og kl. 15 verður slegið upp töðu- gjaldaballi á Kornhúsloftinu. Karl Jónatansson leikur polka og ræla o.fl. Veitingar verða í Árbæ og Hólms- verslun. Hundasýning í Digranesi Hundaræktarfélag íslands heldur hundasýningu í íþróttahúsinu Digra- nesi í Kópavogi nú um helgina. Sýn- ingin hefst á laugardag kl. 15 meö hvolpasýningu og keppni milli ungra sýnenda. Á sunnudag hefst dagskrá klukkan 8 í eldri flokkum og stendur til kl. 17.30. Dómarar verða þrír: Birgit Roed og Ole Staunskjær frá Danmörku og Don Miller frá Englandi. Um er að ræða stærstu sýningu sem HRFÍ hefur staðið fyrir til þessa. Tæplega 300 hundar verða sýndir og um 40 tegundir. Miðaverð er 300 kr. á laugardag og 600 kr. á sunnudag. Frítt er fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd meö fullorðnum og einnig fyrir ellilífeyrisþega. Flugu-Björk Guðmundsdóttir var 3. besti hvolpur á hundasýningu 18. júní sl. Hún er hér með eiganda sín- um, Sigurði H. Sigurðssyni. OV-mynd Rasi Eyktamörk Myndlistarsýning á verkum Evu Benjamínsdóttur, Eyktamörk, björg og flæði, er opin í Listacafé og Veislu- sal í Listhúsi í Laugardal, Engjateigi 17-19, mánudaga til laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Verkin á sýningunni eru málverk, unnin með olíu og akrýl á striga. ými Ferðafélag íslands Tvær helgarferðir verða um helgina á vegum Ferðafélags ís- lands. Klukkan átta á laugar- dagsmorgun verður farið í Haf- ursey - Kötlujökul. Ferðin er far- in i samvinnu við Hið íslenska náttúrufræðifélag. Sérfræðingar verða með fræðslu um svæðið. Gist verður í svefnpokaplássi. Hin feröín hefst einnig kl. átta á laugardagsmorgun og er Þórs- merkurferð. Gist verður í Skag- íjörðsskála og farið í gönguferðir. Tvær dagsferðir verða á laugar- daghm. Borgaríjörður - Grímsár- fossar. Gengið verður upp með Grimsá og fossarnir skoðaðir. Hin ferðin er hvala- og fuglaskoö- unarferð. Siglt er frá Grindavík að Eldey. Fariö verður með rútu kl. 10 og kostar ferðin þá 4.500 kr. eða mætt við Grindavíkurhöfn kl. 11. Þá er verðið 3.500 kr. Siglt verður með Fengsæl og er þetta 5 kiukkustunda ferö í samvinnu við Fuglaverndarfélag íslands. Sérfræöingar verða með í för. Skráning er á skrifstofu Ferðafé- lagsins og er plássið takmarkað. Einnig verða farnar tvær dags- ferðir á vegum félagsins á sunnu- daginn. Lagt veröur af stað kl. 10.30 i aðra ferðina og farið á Þingvallasvæðið; Hofmannaflöt - Þjófahnjúka - Tintron. Hin ferðin hefst klukkan 13 og er farið í Eld- borgir í Þjófahrauni, austur af Tindaskaga. Brottfór í ferðirnar er frá Um- feröarmiðstöðinni, austanmegin, og Mörkinni 6. Útivist: Dagsferð sunnudaginn 3. september Farin verður valin leiö úr Þórs- merkurgöngunni 1990, Selgil- Gígjökull. Gönguleiðin er fjöl- breytt og skemmtileg; gil, fossar og falleg iitbrigði lyngsins á Langeyri og í Jökultungum. Gangan hefst við drangana i Selg- ih sem í fjarska likjast tröllum. Farið verður i Fremra-Grýtugil og gengiö bak við foss sem þar er. Við Grýtutind er uppganga ef menn ætla svonefnda Skerjaleiö yfir Eyjafjallajökul. Yfir Smjörg- Uiunurn er jökullinn að hrannast upp og hugsanlega er að myndast þar nýr skriðjökull. Á leið að jök- ulgarðinum við Gígjökul þarf að fara yflr jökulá. Göngunni lýkur við jökullóniö. Brottför er frá BSÍ, bensínsölu, kl. 9.00. Miðar við rútu. _ Helgarferöin á vegum Útivistar er ganga yfir Fimmvöröuháls 2.-3. september. Fullbókað er í þá ferð. Miðar óskast sóttir á skrifstofu. íþróttir: Tveir leildr í fyrstu deild Tveir leikir veröa háðir í 1. deildinni í knaftspyrnu á laugar- dag. Þá mætast klukkan 14 Breiðablik og FH í Kópavogi og ÍBV og Leiftur í Vestmannaeyj- um. Á sunnudag mætast íslands- meistarar Akraness á heimavelli gegn Grindavík klukkan 18. 15. umferð 1. deildar lýkur á mánu- dagskvöld en þá fara fram tveir leikir. í 2, deild leika Víöir og Þróttur á fóstudagskvöld klukkan 18 og á sunnudag mætast síðan KA-HK, ÍR-Skailagiimur, Stjaman-Þór og Víkingur-Fylkir og hefjast all- ir leikirnir klukkan 14.1. deildar keppni kvenna lýkur á sunnudag en þá er heil umferö. Þar mætast Breiðablik-Stjarnan, ÍBA-ÍA, Valur-KR og Haukar-ÍBV og heijast allir leikirmr klukkan 17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.