Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1995, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
DANSSTAÐIR
Amma Lú
Nuno og Milljónamæringar leika
föstudags- og laugardagskvöld.
Áslákur
Mosfeilsbæ
E.T. bandið skemmtir föstudags- og
laugardagskvöld.
Café Amsterdam
Trúbadorinn Siggi Björns spilar og
syngur föstudags- og laugardags-
kvöíd.
Danshúsið í Glæsibæ
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
með hina landsþekktu skagfirsku
sveiflu föstudags- og laugardags-
kvöld.
Duus-hús
v/Fischersund, s. 14446
Opið kl. 18-1 v.d., 18-3-föstud. og
laugard.
Feiti dvergurinn
Höfðabakka 1
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Garðákráin
Garðabæ
Hljómsveitin Klappað og klárt með
Garðari Karlssyni og Önnu Vilhjálms
föstudags- og laugardagskvöld.
Gaukur á Stöng
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Hafnarkráin
Lifandi tónlist á hverju kvöldi.
Hótel ísland
Danshljómsveitin Karma leikur laug-
ardagskvöld.
Hótel Saga
Stórtónleikar RúRek - Tríó Tómasar
R. Einarssonar og Ólafía Hrönn föstu-
dagskvöld. Á laugardagskvöld verður
dansleikur með Gleðigjöfunum.
Mímisbar: María Björk syngur föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Jazzbarinn
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
LA-Café
Laugavegi 45, s. 626120
Umhelgina: Maturkl. 18-22.30 með
léttri tónlist, síðan diskótek til kl. 3.
Hátt aldurstakmark.
Leikhúskjallarinn
Dansleikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
Næturgalinn
Smiðjuvegi 14, Kópavogi
Hljómsveitin Fanar leikur föstudags-
kvöld ásamt Tómasi Tómassyni. Á
laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Kós.
Rauðaljónið
Eiðistorgi
Hljómsveitin „SÍN" leikur fyrir dansi
um helgina.
Skálafelí
Mosfellsbæ
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Tunglið
Hljómsveitin Mr. Moon kemur fram
á tónleikum á vegum RúRek í kvöld.
Ölkjallarínn
Hið nýstofnaða R.R. band leikur
föstudags- og laugardagsköld.
Ölver
Glæsibæ
Karaoke um helgina. Opið alla virka
daga frá kl. 11.30 til 1 og til 3 föstu-
dag.
Staðurinn
Keflavík
G.G. bandið leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Radíusbróðir í
Munaðarnesi
Steinn Ármann radíusbróðir sprellar
í Veitingahúsinu Munaðarnesiá laug-
ardagskvöld. Hljómsveit Antons
Kröyer sér um að halda uppi fjöri á
dansgólfinu fram á nótt.
Hafbjörninn
Grindavík
Jet Black Joe leikur föstudagskvöld.
Sjallinn
Akureyri
Hljómsveitin Brimkló ásamt Björg-
vini Halldórssyni leikur á sveitaballi á
mölinni í Sjallanum laugardagskvöld.
Hótel Stykkishólmur
Bjami Tryggva trúbador og Þorleifur
Guðjónsson leika föstudagskvöld.
Sveitasetrið
Blöndósi
Bjami Ara trúbador skemmtir laug-
ardagskvöld.
Nuno og Milljónamæringamir skemmta á Ömmu um helgina DV-mynd RaSi
Nuno og Milljónamæringarnir:
í fyrsta skipti
í Reykjavík
„Nýi söngvarinn okkar, Nuno
Miguel, er ekki nema 19 ára gamall en
hefur búið hér á íslandi í 7 ár. í sum-
ar hefur hann verið með hlutverk í
söngleiknum Jósep og áður var hann
í söngleiknum Grease. Hann ræðst
ekki í lítið verkefni með þátttöku í
hljómsveitinni en við treystum hon-
um vel fyrir verkinu. Við erum mjög
önnum kafnir við spilamennsku þess-
ar vikurnar, bæði í Reykjavík og á
landsbyggðinni," sagði Ástvaldur
Traustason, einn meðlima sveitarinn-
ar, við DV.
Nuno og Milljónamæringarnir
koma fram í fyrsta skipti í Reykjavík
á Ömmu um helgina. Páll Óskar
Hjálmtýsson er hættur sem söngvari
sveitarinnar en við er tekinn Nuno
Miguel Carillah sem auk þess aö þenja
raddböndin mun einnig slá á slagverk.
Aðrir meðlimir sveitarinnar eru Ást-
valdur Traustason (píanó og slag-
verk), Birgir Bragason (hassi), Stein-
grímur Guðmundsson (trommur og
slagverk) og Joel Pálsson (saxófónn og
slagverk).
Aður en Nuno og Milljónamæring-
arnir taka við að skemmta gestum
mun Laddi verða með standandi grín
á Ömmu.
Akureyri:
Brimkló í
Sjallanum
Hljómsveitin Brimkló ásamt Björg-
vini Halldórssyni mun leika á
svokölluðu sveitaballi á mölinni sem
haldið verður í .Sjallanum á Akureyri
laugardagskvöldið 9. september.
Brimkló lék svipað prógramm á síð-
asta ári á Hótel íslandi við fádæma
góðar undirtektir gesta og nú er kom-
ið að Akureyri.
Þeir sem skipa hljómsveitina að
þessu sinni eru Björgvin Halldórson,
Þorsteinn Magnússon, Haraldur Þor-
steinsson, Ragnar Siguijónsson, Arn-
ar Sigurbjömson og Þórir Baldurs-
son.
Hljómsvertin Brimkló eins og hún var skipuð árið 1979.
Hljómsveitin Jet Black Joe spilar í Grindavík í kvöld.
Jet Black
Joe í
Grindavík
Hljómsveitin vinsæla, Jet Black
Joe, mun skemmta á Hafbiminum í
Grindavík fóstudagskvöldið 8. sept-
ember. Þar munu þeir félagarnir
spila órafmagnað og em þeir með al-
veg nýtt prógramm. Jet Black Joe er
nú að byxja aftur tónleikahald eftir
langa pásu og verða á ferðinni bæði
i Reykjavík og úti á landsbyggðinni
á næstu vikum.
Speed-
well Blue
í Skála-
felli
Blús- og rokkhljómsveitin Speed-
well Blue spilar í Skálafelli í Mos-
fellsbæ í kvöld, 8. september, og
annað kvöld, 9. september. Hljóm-
sveitin er skipuð tveimur Englend-
ingum, Eric Lewis, sem spilar á gít-
ar og þenur raddböndin, og Grant
Pomeroy bassaleikara en þeir era
báðir frá Newcastle. Þriðji maður-
inn í sveitinni er Helgi Víkingsson
sem spilar á trommur. Hljómsveit-
in hefur spilað víða um land allt frá
því í apríl en í haust er stefnan sett
á England þar sem spilað veröur
fram á næsta ár. SpeedweU Blue er
nú að taka upp efni á plötu sem
kemur út á haustdögum.
Helgi Víkingsson, Eric Lewis og
Grant Pomeroy sem skipa sveitina
Speedwell Blue.
Steinn
Ármann í
Munaðar-
nesi
Steinn Ármann radíusbróðir
sprellar í veitingahúsinu Munaðar-
nesi laugardagskvöldið 9. septem-
ber og hefst skemmtunin klukkan
22.00. Hljómsveit Antons Kröyers
sér um að halda uppi fjöri á dans-
gólfmu fram á nótt.
Hörður
Torfa í
Borgar-
leikhús-
inu
Hausttónleikar Harðar Torfa eru
orðnir fastur þáttur í menningar-
lífi borgarinnar. Þótt Hörður sé
þekktastur fyrir að flytja söngva
sína einn með gítarinn á hann það
til að hafa aðra flytjendur með sér.
Þannig verður það með tónleika
Harðar Torfa í kvöld, 8. september,
sem hefjast klukkan 20.00. Herði til
aðstoðar verða Freyr Egilsson, sem
spilar á mandólín, gítar, troðorgel
og röddun, Skúli Ragnar Skúlason,
fiðlaogröddun, Hjörleifur Jónsson,
ásláttur, troðorgel og röddun, Jón
Guðjónsson, bassi og röddun, og
söngkonurnar Eyrún Friðriksdótt-
ir og Anna Helga Baldursdóttir.
Hausttónleikar Harðar Torfa verða á
50 ára afmæli hans og jafnframt 25
ára starfsafmæli.