Þjóðviljinn - 12.11.1936, Page 4
jjl Gömlöl?)io
sýnir »Síðasta vigið«, kvikmynd
úr heimsstríðinu. Aðalhlutverk-
in l,eika Cary Grant og Claude
Rains.
Orborginni
Veðiirútlit í dag.
Hæg norðanátt, léttskýjað.
Dálítið frost.
Næturlæknir.
Kjartan ölafsson, Lækjar-
götu 6B. Sími 2614.
JNæturvörður.
í Laugavegs apóteki og Ing-
ólfs apóteki.
ÍJtvarpið í dag.
12,00 Hádegisútva,rp. 19,20
Bljómplötur: Danslög. 20,00
Fréttir. 20,30 Stjórnmálaum-
ræður um jarðræktarlögin.
Hreinn Pálsson
Hinn vinsæli söngvari syngur
í kvöld kl. 7,15 í Gamla Bíd
Deildarfundur
Reykjavíkurdeildar verður í
kvöld kl. 8i í Kaupþingssalnum.
Aríðandi að í'élagarnir fjöl
mennil
Leikfélagið
Sýnir í kvöld leikritið Lilion.
Dagsbrún
Deildarstjórafundur í Dags-
brún verður í kvöl,d, kl. 81 í Al-
þýðuíhúsinu; við Hverfisgötu.
Dagsbrúnarfundur
verður líklega annað k\öld.
V erkamannaseílan
heldur fund á venjulegum
stað á föstudagskvöld kl. 81.
Elías Högnason
forstjóri Vörubílastöðvarinn-
ar lést í gærmorgun.
Alþýðusambandsþingið
Þinginu, var slitið í fyrradag
kl, 3. Flestir fuiltrúarnir utan
af landi munu hafa farið heim-
leiðis í gærdag.
' V* ct/iv i'O.T.ft . o iií; tV' t’ 'v ■
Skýrsla
um Rauðakross Islands er ný-
lega komin út. Stjórn í'élagsins
skipa m. a|. Gunnlaugur Claesen
læknir og Guðm. Thoroddsen,
prófessor.
Útvarpsumræður
fóru frami um jarðræktarlög-
in í gærkveldi. Kommúnista-
flokknum .hefir ekki verið boðin
þátttaka í umræðunum. Halda
þær áfram í kvöldi.
Jón Norðfjörð
leikari frá Akureyri verður
meðal farþega á Dr. Alexandr-
ine annað kvöld frá Reykjavík
til Kaupmannahafnar til dvalar
í vetur á konunglega, leikskól,an-
iffli'. Hefir hann fengið inn-
gönguieyfi í þann skóla og ætl-
ar að læra. leiklist og leikstjórn.
SlysavarniFnai* viö ís-
land. vep^a aö ixiar gfaldast
Yf ir liuitdi'aö manns liaía fansí viö streiidur Islands í ár
Slysfarir á sjó hafa verið
miklar það sem aí' er þessu ári.
Alls munu. hafa, samkvæmt
upplýsingum Slysavarnafélags-
ins, druknað hér við land á-
þessu ári 106 menn, þar af 39
Frakkar og 5 Norðmenn, eða
alls 44 útlendingar, og 62 Islend-
ingar.
Það, sem .sérstaklega einkenn-
ir þessi miklu sjóslys í ár, er að
flest og stærstu slysin, hafa orð-
ið yfir sumarmánuðina, þvert á
móti því, sem venja, hefir verið,
og einmitt á þeim tíma árs, sem
veðrátta, er mildust og alfar að-
stæður til árangursríks björg-
unarstarfe ættu að vera bestar.
Þannig fórust útlendingamir
allir 45 menn, að sumarlagi, og
af þeim 62 Islendingum, sem
farist hafa á þessu ári, hafa 33
farist á síldyeiðum, eða meira
en helmingu.r þéirra Islend-
inga, er farist haí'a á þessu, ári.
Alls hafa því 77 menn, af 106,
er látið hafa líf sitt við strend-
ur landsins, á þessu ári, farist
að sumarlagi.
Orsakir þessara hörmulegu
slysa, sem kostað hafa rúmlega
100 manns b’í'ið, og svift hundr-
uð kvenna og barna fyrirvinnu
s'nni og ástvinum, eru, vitanlega
margskonar, en ófullkomnar
slysavarnir, lclegt skipaeftirlit
og afskiptaleysi hirs cpinbera
um þessi mál eru tvímæfalausL
höfuðorsakir þessara sbsfara,.
Það verður nú að hefjast
handa, ekki aðaine á Islandi,
holdiir og alþjcðlege, til að a. -
stýra þe sum ógurlegu slysum
við Island. H ð skelAlega slys,
»Pourquoi pas«, hefir út um all-
an heim vakið menn til umhugs-
unar, um hvað gera þurfi við
strendur Islands.
Það er engurn efa bundið, að
tilmadi frá íslensku ríkisstjórn-
inni til stjóma þeirra landa, er
hag hafa af fiskveiðum hér, —
og ekki síst frönsku stjórnarinn-
ar — um alþjóðlega adstoð til
að koma wpp slysavörnum í stór-
um stíl við Island, myndi fá góð-
ar undirtektir.
1 gær andaðist af hjartabil-
un, á Akuireyri, Emil Pet-
ersen, búfræðingur. Hefir hann
verið tómthúsmaður á Akureyri
nm nokkurra ára skeið, en dval-
ið og starfað víða um landið.
Hann var danskur í föðurætt,
fróðleiksmaður og hagmæltur
vel. (FO). M. a. heí'ir birst eftir
hann kvæði, er hann nefnir
»Brot«, í »Rétti« 1931, þar sem
hann lýsir vel æfi tómthús-
mannsins.
fslenska ríkisstjórnin ætti að snúa sér til stjórna þeirra
ríkja er hér stunda fiskveiðar, — og þó einkum
frönsku stjórnarinnar, — og leita alþjóðlegrar sam-
vinnu um geysilega eflingu slysavarnanna við ísland
nú þegar.
Það þarf strax á næstunni að
koma upp slysavarnastöðvum,
útvega fjölda a,f línubyssum,
bjarga lífi margfalf fleiri, —
myndu varl neita að aðstoða við
þetta- Ekki síst, þegar þau á
I*'rá mlnnlng-aratliöfnlniiJ í Iteykj'avíU cftl rskipverjana á »Pour(joui j)as?«
nokkra björgunarbáta, hai’a
flugvél til taks til leita og aö,-
stoðar og síðast en, ekki síst
ijölga vitunum.
Þetta er Islandi einu um
megn. En þau ríki, sem árlega
missa tugi sinna bestu sona í
sjóinn við Island, — en sjá þó
jafnframt hransta Islendjnga
sama tíma hafa, efni á að eyða
miljónum til hernaðartækja.
Jafní'ramt þessu verður svo að
gerbreyta um skipaskoðuina hér
heima, og' gera aðrar þær ráð-
stafanir, sem hér geta orðið til
að tryggja, líf bestu og hraust-
ustu sona, landsins, íslensku
sjómannannaL
Hreinn Páisson
syngur í Gamla Bió fimtud. 12. þ. m. ld. 7,15 sd.
Yiö liljóöfærið: Páll Isólfsson
Aðgöngumiðar fi kr. 2,00 verða seldir í Hljóðfæra-
versl. Ií. Yiðar og í Hljóðfærahúsinu.
Samfylking ,lýðræð-
issinna^ og nasista
í Háskólanum
Á stúdentafundi í gærkveldi,
þar sem rætt var uun vantiraust
á stúdentaráð, er fulltrúar rót-
tækra stúdenta báru, fram urðu
úrslitin, þau, að vantraustið var
felt með 71 atkvæði gegn 51.
Við atkvæðagreiðsluna stóðu
nasistar og »lýðræðissinnar«
fast saman. Fer nú að verða
heldur lítið eftir af stóryrðum
Jóhanns Hafstein um daginn, í
Morgunblaðinu, þar sem hann
lýsir því yfír að engin »sam-
fyllcing« eigi sér stað milli naz-
ista og- »lýðræðissinna«. Verður
hér eftir erfitt fyrir íhaldsmenn-
ina í háskólanum að hreinsa
»mannorð« sitt af samneytinu
við nasistana.
sb Níý/a íiio K
sýnir í kvöld kl. 9. frönsku
kvikmyndina »Svört augm. Að-
alleikendur eru Simone Simon,
hin fræga leikkona, og Harry
Baru.
» Þræla vinnan «
Framhcild af 3 síðw.
Og hann er að þræla við að
vinna af sér 35 kr. húsa-leigu,
Slíkri þrælameðferð mótmæltum
við. En( þeir sen’du Stef. Björns-
son, einn dag- á vinnustaðinn með
prímus og, ketil, svo að við eig-
um ekki alveg að deyja úr kulda,
meðan við súpum þetta kaffi,
sem við höfum með okkur þó aö
bæði sé kolalaust og kalt heima.
Við krefjumst þess, að við, sem,
getum unnið, fáum að vinna eins
og aðrir í bæjair og atvinnubóta,-
vinnunni. Við kref jumst þess, að
okkur sé greidd laun okkar á
vinnustaðnum eins og hvitliðan-
um, sem er yfir okkur, —
Ennfremur krefjumst við þess.
að þeir, sem ekki geta eða, fá
að vinna, fái minst 1 krónu á
dag í fæoispeninga,
Sameinist öll í félag styrk-
þega, því að sameinaðir stönd-
urn við„
Verkamaður, sem vill
ekki vera styrkþegi.
Spánn
Fiiimhald af 1. síðu.
nýja árásir sínar á borgina, eru
allar líkur taldar til þess, aö
þeir mæti öflugri mótstöðu.
Stjórnarhernum' heldur áfram
að berast ljðsauki, frá öðrum
héruðum Spánar. 1 gær síðdegis
barst mikill liðsauki frá Kata-
lóniu, ásamt fallbyssum, rifflum
og vél.byssum af nýjustu gerð.
(FO).
Fullbyssukúlur UPP'
reistarmanna hæía
þinghöllina í Madrid
London í gærkveldi.
1 faJlbyssuárásinni sem, gero
var á Madrid í gærkvöldi, brotn-
aði þakið á þinghúsinu, en
kviknaði í byggingu skamt frá
þinghúsinu.,
Samkv. siímskeyti frá frótta-
ritara Reuters í liði uppreistar-
manna, er meginhluti hers upp-
reistarmanna ennþá vestan við
Manzanaresfljót, en einni her-
sveit Mára hefir tekist að ryðja
sér braut yfir fljótið og hefir
sest að í, járnbrautarstöð í norð-
anverðri borginni, og liggur sú
stöð í nánd við listigarð kon-
ungshailarinnair. En, í frétt frá
stjórnarsinnum er sagt, að
stjórnarhernum hafi enn tekist
að verja allar brýrnar yfir
Manzanaresá.
1 dag' hefir staöið orusta við
Casa del Campo, og segjast báð-
ir aðilar hafa haft betur. (FO).
Flugslys við Róm
London í gœrkveldi
Tíu menn létu lífið í fjugslysi
nálægt Rómaborg í gær.
Sprengiflugvél hrapaði til jarð-
ar, og. fórust þeir fimmi menn, er
í henni veru, en ajðrir; fimm, er
reyndu að bjarga þeim fórust er
sprenging varð í bensíngeymi
ílugvélarinnar. (FO).