Þjóðviljinn - 19.11.1936, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 19.11.1936, Qupperneq 2
Fimtudaginn 19. nóv. 1936. ÞJÖÐVILJINN ICatalonia Grein þessi lýsir þeirri stórfeldu löglegu breytingu, sem fram hefir farið í Kata- loniu síðustu mánuðina, og þeirri voldugu samfylkingu, sem myndast hefir alt frá anarkistum og syndikalistum, með sósía- listum og kommúnistum, og til vinstri sj álfstæðismanna. ic Breska stjóriián hefir í hyggju aö auka loftvarrvir Lundúnaborgar, m. a. með því að koma upp þremur loftvarnabyssustöðvum, i viöböt við þær, sem þegar hafa verið settar upp, og 7 loftvarna-sveitum að auki. í dng barst sú frétt frá Spáni, að eitt af herskipum uppreisnar- manna hefði tekið norskt flutninga- skip, »Lisken« frá Bergen. Skipið var með kartöflufarm til Valencia. Eigendur skipsins hafa faiið norska utanríkismálaráðuneytinu niálið til meðferðar. (F.Ú.) ic Ný bálstofa í Svíþjóð. f Lin- köping, sem, er bor'g á stærð við Rvik, vígði kenslumálaráðherra Tor Andræ, biskup, nýja bálstofu, í seprember- mánuði s. 1. Við vígsluathöfnina fluttu ræður, auk biskups, forseti bæjarstjórnar, dómkirkjupresturinn og formaður sænska bálfarafélagsins, Fritz Bauer yfirherlæknir. Athöfnin i bálstofunni hófst með því, að »Aas- es Död« var leikið á orgel, en lauk með því að sungið var »Sjá, þann hinn mikla flokk sem fjöll«. Um kvöldið hafði bæjarstjórnin í Lin- köping boð inni fyrir ýmsa gesti. Victor Petrén yfirdómari lét þá svo um mælt í borðræðu sinni: »Með bálfarahreyfingunni er unnið að þvi að gera alla jafna eftir andlátið, og útvega almenningi ódýrari. útfarir. Pessi hreyfing á því rétt á sér af »social« ástæðum. — f kapeilu bál- stofunnar eru sæti fyrir hundrað manns. (útfarir erlendis eru ekki eins fjölsóttar og hér á landi). Lik- ofninn er eldaður með gasi. Þetta er seytjánda bálstofan í Svíþjóð, en sú 38. í röðinni á Norðurlöndum. (Tilk. frá Bálfarafél. fslands. — FB). if Ungur daiiskur prestur, að nafm Petersen, hefir nú í tvo sunnudaga í röð stigið í stólinn hempulaus, og færir hann þau rök fyrir því, að enginn munur eigi að vera á prest- inum og söfnuðinum. (F.ú.) 22. okt. B. 1. gjörðu tvö stærstu v&rkalýðssambönd Kataloníui, samband sósíalistísku. verklýðs- íélaganna (U. G. T.) og sam- band anarkistísku, verklýðsfélag'- anna (C.N.T.) með sér samning um fyrirkomulag baráttunnar gegn fasismanum. Auk þeirra tóku þátt í þessum samningi hin pólitísku. sambönd kommúnista, sósialista, anarkista og syndikal- ista,. Sambönd þessi telja rúm- lega 800.000 meðlimi og eru þess vegna, máttuigustu samtök kata- lónska, fríríkisins, en a,f þeim eru anarkistarnir sterkastir, enda hafði ríkisstjórnin mætt öflug- astri liðveiislu hjá þeim eftir að upp komst umi landráð fasista- klíkunnar, Með samningi þess- u.m var ákveðið að stofna stjórn- arráð, ,sem tiæki að sér að leiða bongarastyrjöldina til farsælla lykta og kippa, í l,ag því, er af- laga hefir farið vegna hermdar- verka uppreisnarmanna. Að gerðum samninguro, vék stjórn fríríkisins, en hana, skipuðu menn úr katalonska, sjálfstæðis- flokknum. — Aðalhvatamenn breytingarininar voru forseti Kataloníu, Luis Companys og forsætisráðherra sjálfetæðisfl. (Esquerra Catalá), Casanovas, en anarkistar, sósíajjstar, komm- únistar, syndikalistar1, kata- lonski sjálfstæðisflokkurinn og flokkur vinstri-lýðveldjssinna (Izquiarda Republicana) skuld- bu.ndu, sig til að fylgja þeim: fyr- irskipunum sem ráðið gæfi út, eðia með öðrum orðum, að styðja þjóðfylkingarstjórn, sem í, raun réttri væri mynduð af meiri- hluta þjóðarinnar. Um myndun ráðsins vorui allir flokkar sam- múla, einkum vegna þess, að með því væri til| hins fylsta, treyst l'ullkomin samvinna allra, vinstri flokkanna um útrýmingu fas- ismans, Helstu. stefnuskrár atriði, ssm u,m getur í samningi þess- um eru sem hér segir: 1) Eignir allra stórkapitalista ,sku],u þjcðhýttiar án en.diur- gjalds og lagðar undir yfir- stjórn ráðsins. Minniháttar fyrirtæki skului haidast ó- breytt undir yfireftirliti ráðsins. Eignir erlendra fyr- irtækja skulu þjóðnýtt, eni þó komi fyrir fult gjal,d. 2) Stórar fasteignir, jarðeignir og stórhýsi skulu lögð undir bæjar og sveitastjórnir, sem innheimti húsaleigu og af'- g'jöld. 3) Herskylda í þjcðhernum eða í .hernaðariðinaðinum,, en hinn síðairnefndi leggist undir þann hluta ráðsins, sem fer með fjármál og framleiðslu. 4) öll framleiðsla sé til bráða- birgða lögð undir stjórn ráðs- ins. 6) Alt land er eign bæjar og' sveitarfélaga, 7) Samvinnufélög og verslanir háðiair eftárliti ráðsins, en þó skulu minniháttar Verslunar og iðnfyrirtæki halda sjálf- stæði. sínu. 8) Þjóðnýting bankafyrirtækja, en þó skal alt bankastarf háð eftirliti verkalýðsfélaganna. 9) Yerkamenn hafi hönd í bagga, með rekstri allra stór- fyrirtækja, en smærri iðn- fyrirtækjum leyft fult sjálf- stæði, meðan þau, eru til al- menningsheilla. 10) Fjármálastefna ráðsins skal miðast við að leiða borgara- styrjöldina til farsælla lykta. 11) Uppeldismálum skal fyrir- komið á þa,nn hátt, að: skólar kerfið sé bundið við' stefnu »ein,ingarskólanna« (í anda uppeldisfræðingsins fræga, Fernando Ferrer, sem ka- þólska kirkjan lét myrða fyrir 25 árum). 12) Stjórnmálaleg, fjárhagsleg o,g hernaðarleg samvinna, við allherjarstjórnina í Madirid. 13) Öskert frel,si til að vera í verklýðsfélöguim og sam- böndum skv, pólitískri skoð- un einstaklinganna,. 14) Samvinna um að útrýma, á- byrgðaiiausum félögum og hópum, sem með fra,mkomu sinni, hvort heldur er í góðri eða slæmri trú, stofna, í, hættu baráttu verkalýðsins Verkamannafélagið Drífandi og Sjómannafélag Vestm.eyja réðust s. 1. sumar í stórar endur- bætur á húsi sínu, Alþýðuhús- inu, Með sérstöku, áræði og fórn,- fýsi hins róttæka verkalýðs tókst þessum félögum sujmiarið 1929 að kcrna þessu, húsi upp, þrátt fyrir ósegjanlega öröugleika og fullkominn fjandskap auðborg- aranna. 1 sjö s. 1. ár hefer Al- þýðuhúsið, mitt í eld,i stéttahar- áttunnar, staðið eins og klettur úr hafinu, — staðið af sér ma,rg- endurteknar árásir: afturhalds- aílanna og reynst hið tryggasta vígi alþýðunnar í hverskyns á- töku,m við óvini hennar, enda aukið vinsældir sínar meðal ai- mennings með ári hverju. og borgaranna gegn fasism- anum. Með samningi þessum hafa gerst tvenn gleðitíðindíi: I fyrsta l,agi hefir heppnast að skapa sterka stjórn, ,sem, einbeiti öllum kröftum gegn Franco og glæpa- liði hans, sem stofnað hafa til blóðsúthellinga í föður- landi sínu og í, öðru lagi hefir tekist í fyrsta sinn að sameina, annarsvegar áhangendur marx- ismans, kommúnista og sósíalista og hinsvegar þá er aðhyllast stefnu Bakuinins (anarkista), en þeir hafa áratugum saman átt í deiluro, einkum á Spáni, þar sem amarkistarnir hafa, mestu ráðið í verklýðísihreyfingunnii. Hér var ekki um að ræða neina skilnað- arhreyfingui, hún hefir ekki komið neinum: í hug, heldur að- eins sjálfetæða, baráttu í s,am- ba,ndi við miðstjórn Spánar, en með sigri vinstri flokkanna s. 1. vor var Katalomiu trygt sjálf- stæði innan ríkisins á sama hátt og Baskar fengu sjálfstæði innan þess nú í haust. Alþýðuhúsið í Vestmannaeyj- i,m er: nú 24—25 metra langt og 10 metra breytt:, — og er út- búið með öllum helstu nútíma, þægindium: slíkra bygginga, svo' sem vatnssalernum, snyrti- herbergjum, fatageymslu, á- gætri hituin, einu, því stærsta og ful,lkomnansta, leiksviði, sem völ er á hérlendis o. m. 11 Eins og gefur að skilja, hefir verk þetta kostað mikla peninga. og féla,gsleg átök. En hér með hefir samfylkingunni í, Vest- mannaeyjumi unnist svo dýr eign, að hún verður tæplega metin að fullu til penjnga,, Þao mun, framtíðin sanna. Hafi Verkamannafél. Drífandi og Sjó- mannafél. Vestmiannaeyja heið- ur og þökk fyrir diugnaðinn. Vepkalýðup Eyjanna endupbætip hús sitt Alþýðuhúsið er orðið eitt fullkomnasta samkomuhús landsins HELSKIPIÐ eftir B. Traven 8 Nú væri ef til vill færi á því að laumast burtu, en það var engu líka,ra en lögregluþjónarnir l,æsu, hugsanir mínar. 1 sama bili og ég ætlaði að fara að lyfta upp hendinni, til þess að gefa lögregluþjóninum utan und,i,r, greip hann fast í handlegg, minn, og sagði: — Nú erum við komnir að takmarkinu. Nú verðum við að kveðjast. Það er dapurlegt að horfa fram á hinstu stund sína nálgast. Nú stóð hún svo greinilega, fyrir hug- skotsjónum miínum- Ég vareitthvað svo undarlegaþur í kverkunum og mig langaði í glas af vatni. En, það þýddi víst ekki aði láta sig dreyrna um slíka dýrð. Ég varð víst að lifa án þess, í þær fáu mínútur, sem eftir voru. Mér hafði þó aldrei komið til hugar, að náunginn, sem færði mér vínið, yrði svo bölvaður, þó að hann væri vafalaust hræsnari. Svei því, að vera bcðull. Það hlýtur að vera lióta atvinnan. Aldrei á æfinni hafði mér fundjst lífið eins fag- urt og í dag. Því verður ekki með orðum lýst, hve lífið er dásamlegt, þrátt fyrir það þó að skipið sé farið úr höfn þegar við komum, og þó að við höfum orðið strandaglópar og höfum enga sjóferðabók. Líf- ið er ætíð fagurt, þó að það geti stundum verið hryggi- legt. En að horfa á það, að nóttinni yrði sóað þannig til einskis. — Eg hefði aldrei trúað því um Belgíumenn. En þetta er alt banninu að kenna. Bannið. gerir menn veika fyrir freistingunum. Aðeins ef ég hefði þenn- an Mr. Volstead á milli handannai. Þeir eiga fyrir því að finna til handanna á okkur, þessir miljónamær- ingar. —- Owi herra. Nú skulum við kveðjast. Þér eruö ef til, vill mikilmenni, en við getum ekki tekið neitt tillit til þess.. Lögregluþjónninn lyfti hendjnni. Nú ætlaði hann víst að varpa snörunni um hálsinn á mér. Innan stund- ar yrði ég hengdur. — Auðvitað höfðu, þeir ekki neinn gálga. Slíkt var of mikill, kostnaður, Farið í þessa átt, sagði lögregluþjónninn og benti út í myrkrið. Þa.rna skamt frá er Holland. Þér hafið vafalaust heyrt getið um Niðuirlöndin. — Já, ég hefi heyrt þeirra getið. — Nú haldið þér áfram í þessa átt, sem ég bendi yðu,r. fig hel,d, að þér rekist ekki á landamæraverð- ina um þetta leyti sólarhringsins. Við höfum leikið þetta bragð fyr. En ef þér sjáið einhvern, þá gætið þess vel að víkja, úr vegi. Eftir klukkutíma göngu komið þér að j árnbrautarlínunni. Svo fylgið þér járn- brautinni um: hríð, uns þér komið að járnbrautar- stöðinni. Þar verðið þér að nema staðar, en gætið þess vel að enginn sjái yður. Um fjögur leytið kemur þang- að hópur verkamanna. Þá gangið þér að farmiðasöl- unni og segið aðsins: »Rotterdam, þriðja fa,rrými«. Annað megið þér ekki segja, Hér eru 5 gyljini. Lögregluþjónnjnn rétti mér fimm seðla. — Hér hafið þér ofurlítið að éta í nótt. Þér megið ekki kau.pa neitt á járnbrautarstöðinni. Það er stutt til Rotterdam og þér þurfið einskis við þangað. Hann rétt.i mér lítinn böggul, sem, vafalaust hafði að geyma nokkrar smurðar brauðsneiðar. Ennfrem- ur fékk ég dálítið af vindlingum og nokkrar eld- spýtur. Hvað átti ég að hugsa um þessa menn,. Þeir voru vafialaust sendir til að gera út af við mig, en svo gefa þeir mér peninga og mat aö skilnaði. Þeir hafa vafalaust kent í brjósti um mig og viljað gefa mér færi á að komast undan. Eigum við ekki að elska náunga okkar, þegar jafnvel í hópi lögregluþjóna finnast svona góðir drengir. Þó vita alli;. að starf lög- regluþjónanna er í því falið að leita, uppi bresti ná- ungans. Ég þrýsti svo fast hendu,r þeirra, að þeim hlýtur að hafa dottið í hug, að ég mundi slíta af þeim handlegginn. — Hafið ekki svona hátt. Það geta einhverjir heyrt til yðar. Það væri annað en gaman að leika þennan leik aftur frá byrjun. Þetta, var vafalaust réttilega athugað. — Gætið n,ú vel að því sem ég segi yður. Hann talaði í, hálfuro hljóðum en reyndi að gera mér alt sem skiljanlegast með því að endurfaka leið- beiningar sínar hvað eftir annaði — Svo megið þér ekki láta yður detta í hug að koma aftuir til Belgíu. Það vil ég mdnna yður á fram- ar öll,u öðru. Ef við: rekumst aftur á yöur veroið þér settir í æfilangt fangelsi. Æfilangt fangelsi. Það er alls ekki svo lítið, drengur minn., Ég- hefi aðvarao yður. Við vitum ekki, hvað við eigum að gera við yður. Þér hafið enga sjóferðabók.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.