Þjóðviljinn - 11.01.1937, Side 4

Þjóðviljinn - 11.01.1937, Side 4
ap I\íý/öir5'ib sg Leyndarmál Charlíe Chan Övenj ulega spennandi, skemtileg- og vel gerð kvik- mynd um nýjustu afreks- verk leynilögregluhetjunn- ar Charlie Chan í barátt- unni við illræmd saka- mannafélög. Aðalhlutverkið, Charlie Chan leikur WARNER OLAND Aukamynd: Talmyndafréttir. Börn fá ekki aðgang. Úrbopglnnl Til skemtunar líurg-eisinn heldur helm — liuudur- inn stjórnar. Off 1 nýjum járnbrautarvögnum, sem verða teknir til notkunax í London bráðlega, er ekki hætt við að mönnum verði kaJ,t. Gluggarúðurnar eru upphitað- ar með nýuppfundnum, þar tif gerðum, tækjum. Meira að segja geta menn velgt sér á handföng- um, sem venjulega eru ætluð til þess að grípa í, ef menn ætla að detta. ★ K Göring er sendur í »diplomat- iskum« erindum tij Róm til að tala við páfann og reyna að jafna misklíðina milli Hitlers- stjórnarinnar og kaþólskra f r ó ðleiks manna. Daginn eftir að hann kemur til Róm, símar hann Hitl- er svohljóðandi: Páfinn tekinn fastuL’, stop, mítrið fer mér á- gætfegav ★ Hún: Hvað haldið þér, að ég sé gömul. Hann: Eftir hörundi yðar að dæmai eruð þér 18 ára stúfka. Andlitið bendir til þess, að þér séuð 17 ára en kinnarnar benda helst á það, að þér séuð 14 ára. barn. Hún: Hvað svo . <. Hann: Það eru til samans 49 ár. Næturlæknir. Karl Jónsson, Túngötu 3 sími 2481, Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfs- apóteki. Utvarpið í dag 19,20 Hljómplötur: Erlpnd álfalög. 20,00 Fréttir. 20,30 Er- indi: Uppeldismál, IV.: Refsing og umbun, I. (dr. Símon, Ágústs- son). 20,55 Hljómplötur: Létt lög. 21,00 Húsmæðratími. 21,10 Symfóníutónleikar: a) Symfónía nr. 7 eftir Schubert; b) Sym- fónía í d-moll og Manfred-for- leikurinn, eftir Schumann. (Dagskrá lokið um kl. 22,30). Skipafréttir GuUfoss er í Khöfn. Goöafoss kom til Hull í gærkveldi. Brú- arfoss er á leið til Englands og Selfoss er i Reykjavík. Karlakór Verkamanna Raddæfing í 2. bassa í kvöl,d kl. 8. Verkam,- og sjóm.sellan heldur fund í kvöld kl. 8-2- á venjulegu mstað. Teljið fram til skatts Fyrir 1. febrúar n. k. verða menn að hafa skilað tekju- og eignaskattsframtölum sínum.. Þeim, sem ekki hafa skilað framtölum sínum fyrir 1. febr. verður áætþaður tekju- og eigna- skattur. Verður þeirri álagningu ekki breytt hve ósanngjörn ,sem hún kann að vera. Eftir þessum framtölum er og lagt útsvar á menn,, og einnig lífeyrissjóðsgjaldið. Þeir, sem ekki koma framtölum sínum til skattstofunnar fyrir 1. febrúar geta ekki kært tekjuskatt sinn. Það er því afaráríðandi að allir, hversu l.itlar tekjur, sem þeir kunna að hafa, haft, sendi fram- töl sín í tæka tíð. Annars eiga menn það á hættu að fá óhæfi- lega háan tekjuskatt, sem mönn- um er algjörlega um megn að greiða. En það þýðir að menn geta búist við því að verða svift- ir nausynlegustu eignum sínum, húsgögnum o. fl., með lögtökum,. til greiðslu á skattinum. V erkakvennafélagið Framsókn heldur kaffikvöld í kvöld kl. 81 í Alþýðuhúsinu. Kaffidrykkja, söngur, kvenna- kórinn, ujpplestur og dans. Halldór Kiljan Laxness var meðal farþega á »Drot,n- ingunnk, sem kom frá útlönd- um í gær. Atkvæðagreiðslan í Dagsbrún Að því er Alþýðublaðið segir hafa í gær 727 manns kosið alls í Dagsbrún. og eftir fréttum þess að dæma hafa um 70 manns greitt atkvæði á sunnudaginn. En eftir atkvæða,greiðslunni á skrifstofunni voru það bara 57. — Hvernig stendur á þessu ó- samræmi milli talnanna í Al- þýðublaðinu, og tölu þeirra, er kjósa á skrifstofunni? Er kosið utan hins auglýsta kjörtíma eða hvað? Slys í Hamri jiiriismiðiir brennist 1 gær vildi það slys til í vél- smiðjunni »Hamri«, þegar verið var að hreinsa bræðsluofn, að brætt járn lak niður á jörðina og kom við það mikill blossi. Slettist brætt járn á einn járn- smið, sem var að vinna við þetta, Magnús Jónsson, og brendist hann allmikið á öxl, hálsi og fót- um. Maðurinni var fluttur á Landspítalann og leið honum allvel í gærkveldi, miðað við hve ill sþk brunasár eru. Fossvogsferðir okkar eru hættar þangað til öðruvísi verður á- lrveðið. Þess í stað er áætlunarvögnunum milli Reykjavikur og Hafnarfjarðar heimilf að taka farjjega á þessari leið, aðra en þá sem eingöngu ferðast innan Hringbrautar. Strætisyapar Reitjali Gömlö t?)io Svikari Heimsfræg og stórfengleg amerísk talmynd frá írsku uppreisninni 1922. Aðalhlutverkið leikur af framúrskarandi bst VICTOR MC LAGLEN Böm fá ekki aðgang. Unga fólkiö Framhald af 3 síðu. gæta saga Jakobs Thoirarensen, »Forboðnu eplin«, Hvorttveggja við mjög góðar móttökur. Þá var blað félagsins, »Marx«, Jesið og vakti það mikla ánægju aS vanda. Gjaldkeri, fék Snorri. Jónsson; gaf að því loknu yfirlit um fjárhag félagsins; og hvatti meðlimina til að greiða gjöld sín skilvíslega. Mijli dagskráratriðanna var sungið með ágætri þáttöku allra fundarmanna og eftir fundinn var dansað til kl. 1. Mun óhætt að fuljyrða að allir skemtu sér prýðilega og fóru í besta skapi heim. Á fundin-um gengu 8 ný- ir meðlimir í FUK. Allir fundir FUK á þessum vetri hafa verið með nokkuð öðru sniði en áður tíðkaðist. Það sem einkennir þá fyrst og fremst er létfur og fjörlegur blær, gleði og ánægja skipar öndvegi þrátt fyrir hin alvar- legu viðfangsefni dagsins. Sú æska, sem skipar sér í raðir Fé- lags ungra kommúnista, er sér þess meðvitandi að þótt útlitið sé svart nú ber að líta með bjartsýni til framtíðarinnar, og æskan getur auðveldlega skap- að sér sæmileg lífls- og vaxtar- skilyrði aðeins ef hún þekkir sinn. vitjunartíma, áður en flpð- alda fasisma og afturhalds nær að rísa svo hátt að hún megni að kyrkja lýðfrelsi þjóðarinnar og leggja, menningu hennar í f jötra og auðn. HELSKIPIÐ eftir B. Traven 38 um augurn á atvinnulausa stéttabræður. Verkamað- urinn er höfuðfjandi verkamannanna. — Jæja, flækingarnir. Ekki hafið bið fengið neitt að gera ennþá, Nú, svo að þið eruð komnir hingað, til þess að freista hamingjunnar. Þetta er þeim líkast, sem ekkert nenna að vinna. En þið fáið aldrei að koma upp nema tveir, annars gerið þið alt svo sóða- legt fyrir okkur, skepnurnar ykkai'. Auðvitiað fengum við aldrei að fara lengra en á þilfarið. En þangað var okkur fært ýmsilegt matar- kyns og hásetamir þyrptust umhverfis okkur og dróu dár að fátækt okkar og vesajdómi. Af langri reynslu hefi ég lært það, að heppilegra væri að hafa skeið með sér í vasanum. Því að ef við báðum hásetana um skeið, þá var það víst viðkvæði, að slíka hluti hefðu þeir ekki. Þá var ekki um annað að ræða en að éta með fingrunum. Stundum kom það þó fyrir, að þeir hentu til okkar skeiðum, en gættu, þess vandjega að kasta þeim; í súpufatið, svo að þeir þyrftu ekki að óhreinka sig á okkur, en þá urðum við að krafsa með skítugum höndum ofan í súpuna, til þess að ná þeim. Slíkt þótti hásetunum hið mesta gaman. En þetta voru Iró ekki verstu mennirnir., Sumstaö- ar vorum við reknir burtu eins og hundar með alls- konar hrak- og fáryrðum. Sumir léku sér að því að hélla niður matarieyfum fyrir augunum á okkur. Þeir virtust ekki hafa neinn annan tjlgang með þessu en að stríða okkur, vesalingunum, sem vorum að þvælast fyrir fótum þeirra. Mér þykir altaf gaman að hitta svo þessa náunga nokkru síðar, atvinnulausa og allslausa. Þá sl,ást þeir í för með okkur hinum út í skipin til þess að biðja um mat. Þannig kynnast þeir því, hvernig stéttar- bræður þeirra leika þá, sem eru komnir í vandræði, Þó voru undiantekningar. Margur fátækur háseti gaf mér við og við fáeina peseta og ýmsar matar- leifar, sem komu mér vél. Einn gaf mér tif dæmis tólf steikta kjúkljngai. Að vísu varð ég að kasta 10 af þeim. Eg gat aðeins étið tvo og hafði ekkesrt færi á því að geyma, hina, enda var tæplega við þvi að búast, að ég hefði ísskáp í buxnavösunum. Og um annað var ekki að ræða, en það sem hægt var að bera með sér. Þegar maður liggur í spönskum, afríkönskum, egyptskum, indverskum og kínverskum höfnum, kynnist maður allra handa fólki og lærir allskonar brellur til þess að halda, í sér lífinu. En engir láta sig eins litlu skifta hungurdauða manns og verka- menn. Og verkamenn föðuriandsins eru, þó hvað djöf- ullegastir. Þegar ég var Ameríkani, tróðu Ameríkan- arnir mig niður í skítinn, en eftir að ég varð Þjóð- verji, hefi ég lifað eins og kóngur meöal franskra sjó- ara. Þýsku skipin eru þau einu, sern stundum: í höfr, festa upp skilti með áletruninni: Aðgangur bannaður! og það basði á þýsku og mál,i því, sefn þar er talað. Yes, sir. Þegar ég lá í Barcelona var mér sagt að í Mars- ailles lægi fjöldi amerískra skipa, sem vantaði á- höfn. Ég komst þangað með koladalli, en þetta reynd- ist ekki rétt. Á höfninni var ekkert einasta amerískt skip og enga, vinnu var þar heldur að fá. Sundur kraminn af eymd, þvæfdist ég um götur hafnarborgarinnar. Eg ranglaði inn á hafnarknæpu til að vita ef svo undarlega skyldi til vilja, að ég hitti þar einhvern, sem- ég þekti, því ég var orðinn alveg staur blankur. Þegar ég va,r þar að svipast eftir auð- um stól„ kom frammistöðu stúlka til mín og spurði hvað ég viidi drekka,., Ég sagði henni að ég væri þýskur sjómaður og hefði b-ara litið inn til að svipast um eftir kunningjum. Þá sagði stúlkan, sem var allra snotrasta stelpa: — Fáið yður sæti, ég skal gefa yður að borða. Eg svaraði: — En ég hefi enga peninga. — Það gerir ekkert til. Eg skaJ; bráðum. útvega ykkur peninga. Ég skijdi ekkert við hvað hún átti og fór að verða smeikur um, að ég væri kominn. í einhverja gildru, þar sem ég sæti fastur áður en varði. Svo settist ég og bað um flösku af víni, En alt í einu hrópar stúlkan, svo að tók undir í salnum: — Herrar mínir, hér er fátækur þýskur sjómaður, sem vantar skipsrúm. Viljið þið ekki skjóta saman handa, honum ofurlítilli fjárupphæð. Eg farin að ég roðnaði. En hvað í heiminum skyldi koma manni eins og mér á óvart„ Al,lir hættu að tala

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.