Þjóðviljinn - 31.03.1937, Síða 4
þlÓÐVItllNN
Til skemtunar og fródleiks.
ap IMý/ö fSib ag
Cissy
Amerísk tal og- söngvakvik-
mynd frá Columbia, Film
me3 hljómlist eftir fiðlu,-
sniilinginn Fn'íz Kreisler.
Aðalhiutverkiö leikur og
syngur hin óviðjafnanlega
söngkona
GRACE MOORE.
Aðrir leikarar eru:
Franclwt Tone, Walter Con-
nolly o. fl.
Næturlæknir
Jón G. Nikulásson, öldugötu
17. Sími 3003.
• CI
Næturvörður
er í Ingólfs og Laugavegsapó-
teki.
Utvarpið
12,00 Hádegisútvarp. 19,20
Hljómplötur: Létt Lög. 19,30
Þingfréttir. 20,00 Fréttir. 20,30
TJmræður um, afvinnumál.
Skipafrétt ir
Gullfoss er í Gauitaborg, Goða-
foss er í Hamborg, Brúarfoss er
í Reykjavík, Dettífoss kom í
nótt, Lagarfoss fór frá Ham,-
borg í gærkveldi, Selfoss er í
lla,borg.
Frá höfninni
Reykjaborg kom í fyrrinótt af
veiðum með 238 tunnur, Hannes
ráðherra með 147 tunnur, Bragi
með 96 tunnur, Kári með 85,
Tryggvi gamli með 105 og Max
Pemberton með 138 tunnur.
Línuveiðarinn Sigríður kom. inn
Thomas Munzer va,r foringi
þýskra bænda í bændastríðun-
um miklu, 1525. Munzer var
einhver djarfasti byltingar-
maður, sém sagan getur ujn og
einn af fremstu. fyrirrennurum
sósíalismans.
Eftir að bændurnir biðu. ósig-
ur í viðureign sinni var Thomas
Múnzer handtekinn og dæmdur
af lífi. Eftirfarandi smágrein er
úr ræðu þeirri er Múnzer hélt
frajmmi fyrir dómstóli saxnesku
furstanna í Weimar.
»Þið getíð ekki þjónað bæði
guði og auðæfunum. Hver sem
velur sér hlutskifti auðæfanna
og mannvirðinganna verðujr að
lokum yfirgeí'inn af guði. Þess
vegna verður að steypa hinum
voldugu, eigingjörnu, og trúlau<si'
mönnum af stóli«.
Thomas Múnzer var trúmað-
ur hinn mesti og barðist fyrir
í fyrrakvöld með ágætis afla.
Sundhöllin
Aðsókn að sundhöllinni hefir
verið mjög mikil. 4 fyrstu, dag-
ana voru gestir suindhallarinnar
3494. Sundhallargestir eru hinir
ánsegðustu; og virðist almenn á-
nægja ríkja í bænum yfir þessu
mikla menningartæki. Innan
skamms mun þar hefjast sund-
kensla, en ekki hefir verið enn
aí'ráðSB að fujlu, hvernig henni
verður háttað eða, hve dýr hún
verður.
Elisabet Eiriksdóttir
kenslukona á Akureyri, for-
m,aður Verkakvennafélagsins
Einingin var meðal farþega á
Brúarfossi í fyrradag.
Hendrik Ottósson
hefir verið mjlög veikur lengi
undanfarið en er nú á góðum
batavegi.
frelsi bændanna á jafnréttis-
grundvelli frumkristninnar.
★
1. málari: »Ég málaði mynd,
svo eðlilega líka vetrarhjarninu,
að þegar ég hengdi hana upp í
herberginu. mínu »féll« hitamæl-
irinn um 10 stig.
2. málari: »En ég málaði í
íyrra mynd af Grími gamla
kaupmanni svo eðlilega »lifandi«
að ég hefi orðið að raka hana
á hverjum degi síðanr.
★
Kl. 11 á Þorlaksmessukvöld.
Viðskiftam. (við kaupm.):
»Mér finst engin aðsókn hjá yð-
u.r; það er dálítið líflegra hjá
stéttarbróður yðar þarna vestur
frá«.
Kau'pm.: »Jú,. það, skil ég,
þangað koma ujiglingar og land-
eyður til þess að hlusta á negra-
söngva og bramínagarg. En
Jóhanna Samúelsdóttir
starílsstúlka við Alþýðublaðið
andaðist í fyrradag að heimili
sínu. Banamein hennar var
lungnabólga.
Svavar Guðnason
listmálari var meðal farþega
á Brúarfossi frá Khöfn í fyrra-
kvöld.
F. U K.
heldur fund 1 K. R.-húsinu
(uppi) kl. 9 í kvöld. Áríðandi
mál á dagskrá,
hingað kemur fólk til þess að
versla,«.
★
Á gengisfallstímunum eftir
heimsstyrjiöldina voru tveir
bræðujr í Vínarborg, sem höfðu
erft. stórfé eftir föður sinn. Eldri
bróðurinn, sem var mjög spar-
samur l.agði sína hálfu miljón
inn í banka og bjóst til að lifa
áhyggjulausu, lífi á rentunum.
Yngri bróðirinn vildi aftur á
móti njóta lífsins í sús og dús
og gerði það.
Þegar gengisfallið skall á
varð eldri bróðirinn að taka sína
hálfu miljón úr bankanum til
þess að seðja hungug sitt, en
fyrir peningana fékk hann aði-
eins eitt brauð.
Yngri bróðirinn átti enga pen-
inga, en hann seldi tómar flösk-
ur og keypti sér eitt brauð og
fékk eina vínflösku. að auki.
Vertíðin í Horna-
firði.
Þar eru nú gerðir út 27
bátar.
Úr Hornafirði ganga nú á
þessari vertíð 27 vélbátar. Þar
af eru frá, Seyðisfirði 5, Norð-
firði 10, Eskifirði 8, Reyðarfirði
1, Fáskrúðsfirði 1 og Hornafirði
o
£j, -
Veðrátta hefir verið fremur
óhagstæð — norðan og norðaust,-
a,n stormar og mikil frost. Hefir
því engin loðna veiðst, i firðin-
umi, fyr en í vikunni sem, leið, er
lítið eitt fór að hlýna í veðri. —
Fiskur hefir verið fremur treg-
ur og hafa flestir bátar lítínn
afla. Mestan fisk — eða um 100
skipptund — hefir vélbá.turinn
Björgvin frá Norðfirði. Formað-
u,r er Öskar Sigfinnsson. (FÚ).
jjl Gambl?)io
Romeo og Júlía
eftir William Sliakespeare
Aðalhlutverk:
NORMA SHEARER
og LESLIE HOWARD.
Leikfélag Keykjavíkur
„Madur og kona“
SYNING Á MORGUN
KL. 8.,
Aðgöngumiðar seldir í, dag frá
kl, 4—7 og eftir kl. 1 á morgun
SIMI 3191
Hijómsveit Reykjavíkur.
„Systirin
frá Prag“
ópera í. 2 þáttum eftir
W. Múller.
2. sýning
í kvöld kl. 8,30.
Miðar að annari sýningu verða
seldir í Iðnó í dag eftir kl. 1.
Flokksskrif-
sofan
er í Hafnarstræti
5 (Mjólkurfélags-
húsinu) herbergi
nr. 18. Féiagar
komid á skrif-
stofuna og greið-
ið gjöld ykkar.
BRÆÐURNIR eftir Arnulf Överland. 3
Esaú var nú samt ekki eins hættulegur og hann
leit út fyrir að vera. AJtaf, þ>egar þeim hafði borið
eitthvað á milli, hafði hann b,ara falið sig stundar-
korn. Svo kom. hann aftur og sagði: Ertu enn þá reio-
ur, Esaú minn? — Bróðirinn gerði honurn svo ekk-
erfc. Þannig myndi það líka verða í þetta skifti.
En Iregar kvöldið kom með langa skugga yfir m.erk-
urnar, og sólin nálgaðist fjöllin í vestri, og þegar
hún hvarf og stjörnurnar komu í ljós, stórar og þög-
ular, og vindurinn fór að hreyfa sig í grasinu og
runnunum, og það varð myrkur yfir alt, og hann
var aleinn í myrkrinu, langt burtu frá Beerseba og
móður sinni, eldinum og tjöldunum, — þá va,rð hann
hræddur og fór að gráta, og harmaði beisklega, að
hann hafði tekið blessunina frá bróSur sínum og
svikið hann.
Hann þráði innilega að biðja til guðs, en af því
að hann hafdi guð ekki með sér, vissi hann ekki hvað
hann átti að gera.
Hann tók því sléttan og ávalan stein, dreypti dá-
lítilli olíjUi á hann eins og fórn, og lagði hann undir
höfuo' sér til verndar. Og þannig sofnaði hann,
Hann dreymdi: Stigi var reistur frá jörðinni upp
til himins, og englar gengu upp og niður stígann og
á efstu tröppunni stóð guð himinsins og sagði: Eg er
- gu.ð Abrahams og ótti Isaks og ég vil gefa þér mikiö
vald og fjölda þjóna og kvikfénaðar. Alt'fólk skai
þjóna þér, jafnvel sá, sem. þú verður að lúta; því
uð þú munt vinna með honum og verða mjög ríkur.
Þannig munt þú og alt þitt afkvæmi og öll jörðin
blessun, bljóta.
Þegar Jakob vaknaði um morguninn, sagði hann:
Þetta er heilagur staður og ég vissi það ekki! — Vissu-
lega er hér guðs hús og hlið himins.
Svo dreypti hann meiri olíu á steininn og lofaöi
guði því, að ef hann vildi vera með. honum og vernda
hann gegn allri óhamingju, flytja hann frelsaðan
til baka, hjálpa honum gegn Esaú, og halda það, sem,
hann lofaði honum í draumnum, þá skyldi hann hella
meiri olíu á steininn, þegar hann kæmi aftur. Og
hann kallaði staðinn Betel.
Þegar Jakob hafði ferðast í þrjátíu daga, kom hann
að kvöldi dags að- brunni, þar semi hirðarnir frá hér-
aðinu komu saman með kvikfénað sinn.
Hann heilsaði þeim kurteislega og spurði, hvort að
þeir þektu Laban Nodrorsson.
— Já, við þekkjum hann, svöruðu þeir, og Rakel
dóttir hans kemur líka hingað. með fé hans.
Og á meðan þeir töluðu, kom Rakel með féð. Hún
var yndisleg stúlka og Jakob vildi strax kyssa hana,
en hún bauð honum að koma með sér heim til föður
síns.
Heirna hjá Laban var vel tekið á, roóti Jakob. MóS-
urbróðurnum leist vel á þennan hægláta, kurteisa,
unga m.ann, og tók hann strax í, þjónustu. sína. Þeg-
ar hann spurði Jakob hvað hann vildi fá í kaup,
óskaði hann eftir að fá Rakel, dóttur hans. Og þeir
iurðu, ásáttir um að Jakob skyldi vinna hjá honum í
7 ár og fá Rakel í staðinn.
En Laban átti eldri dóttur, sem v:ar jómfrú. Hún
hét Lea og var nærsýn,. Og þegar hún heyrði um
samninga .Labans og Jakobs, öfundaði hún systur
sína, því að hún Vildi líka gift’ast. Og hún gekk grát-
andi og kveinandi til föður síns og sagði: Er það þá
siður í þessu landi að gifta yngri systurina á undan
þeirri eldri. Og hún lét hann ekki í friði fyr en hann
lofaði að gefa Jakobi hana í. staðinn fyrir Rakel.
Þegar sjö ár voru liðin, sagði Laban við Jakob:
Nú hefir þú unnið hjá mér í, 7 ár fyrir Rakel, en
Nýja neðanmálssagan
»Þetta er saga um, bardaga, að minsta kosti eitt
morð, og þó nokkra voveiflega dauðdaga--«. Saga
um spennandi æfintýri í Suðurlwfum, saga um gula
og hvíta glœpamenn. — En í þessu harða og hrotta-
lega umhverfi liggja saman leiðir unga\, amerislca
heimsmannsins, Ross Wilbur og norsku stúlkumiar
Moran Stenersen, náttúrubarnsins, sem áldrei hefir
haft af neinni siðfágun að segja. Og með skuggalegu
baksviði hryðjuverka og Ufshœttulegra æfintýra ger-
ist sagan um þau, einkennilega hugðnæm, og fögur
ástarsaga . . . Fylgist með frá byrjun! Sagan verdur
ekki sérprentuð!