Þjóðviljinn - 17.06.1937, Blaðsíða 4
sjs Ný/aíó'io ag
Litli lávarðurinn
Heillandi amerísk kvik-
mynd eftir sögu Fr. Hodg-
son Burnetts, sem komið
hefir út á íslensku og er
vinsælasta saga enskumæl-
andi landa.
Aðalhlutverkin leika:
Preddie Bartholomen,
Dolores Costello
Barrymore.
Guy Kibee o. fl.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Barnasýning kl. 5.
Lækkað verð kL 7.
Úr borglnnl
Næturlæknir.
í nótt er Kjartan Ölafsson,
Lækjargötu 6B, sími 2614.
I
Næturvörður
er þessa viku í Reykjavíkur-
apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Utvarpið
12,00 Hádegisútvarp. 13,30
Hátíðahöld íþróttamanna: a)
Luðrasveit Reykjavíkur leikur
á Aust,u,rvellT; b) 14,10 Ræða.
við leiði Jóns Sigurðssonar
(Benedikt, Sveinsson, f. alþm.-;
•c). Setit íþróttamót á íþróttavell-
inum (Erlendur Pétursson, for-
maður K. R.). 15,00 Lýst íþrótt-
u,m á Iþróttavellinumi í Reykja-
vík. 17,40 Ötvarp til útlanda
(24,52m). 19,20 tJtvarpshljóm-
sveitin leikur. 20,00 Fréttir.
þJÓÐVILIINN
Almennan kosni ngatund
heldur Kommúnistaflokkurinn í
Gamla Bíó
í dag, fimtudaginn 17. júní klukkan 4 síðdegis
Ræðnmenn:
Einar Olgeirsson, ritstjóri.
Brynjólfar Bjarnason, formaður K. F. í.
Þórbergur Þóröarson, rithöfundur.
Ingibjörg Friðriksdóttir, húsfrú.
Eðvarð Sigurðsson, verkamaður.
Ilalldór Kiljan Laxness, rithöfundur.
Kristinn Andrésson, magister.
Auk þess: Jóhannes úr Kötlum fiytur nýtt kvæði um Jón Sigurðsson.
MÚSIK
Aðgöngumiðar á 25 aura verða seldir á kosningaskrifstofu D-listans, Laugaveg 10. og við inng.
& Gamlat3io
Skyndigifting
Fjöruig og skemtileg amer-
ísk gamanmynd.
Aðalhlutverk:
CLAUDETTE COLBERT,
FRED MAC MURRAY
og ROBERT YOUNG.
Sýnd kl. 9.
Á alþýðusýningu kl. 7 verð-
ur sýnd hin sprenghlægi-
lega sænska gamanmynd
„Jutta frænka"
Blum
Framhald af 2. síðu.
yrði ekki rofin.
Þannig hefir Blumstjórnin
enn einu sinni borið sigur úr
býtum, þegar horfur voru óvæn-
legar. En nú er eftir að vita,
hvernig frumvarpinu reiðir af
í efri málstofunni. (FO).
20,30 Karlakórinn »Fóstbræð-
u-r« syngur (söngstjóri Jón
Halldórsson). 21,05 Upplestur og
söngur. 22,00 Danslög (til kl.
23,30).
Verkfall
bifvélavirkja heldur enn á-
fram.. Þessir hafa samið við fé-
lagið og er nú vinna tekin upp
hjá þeim: Strætisvagnar h/f,
B. S. R., Bifreiðastöðin Hekla og
Litla Bílstöðin. Auk þess er unn-
ið hjá vegagerð. ríkisins og bæj-
arsjóði Reykjavíkur.
Almennan kosningafund
heldur Komimúnistaflokkur-
inn í dag kl. 4 í Gamla Bíó. Þar
tala Einar Olgeirsson, Brynj-
ólfur Bjarnason, Þórbergur
Þórðarson, Ingibjörg Friðriksd.,
Edvarð Sigurosson, H. K. Lax-
ness, Kristinn Andrésson. Auk
þess flytur Jóhannes úr Kötlum
kvæði um Jón Sigurðson.
Allir, sem vilja fylgjast; með
kosningabaráttunni, verða að
mæta á þessum fu,ndi. Aðgöngu-
mjðar fást; á kosningaskrifstofu
D-listans og við innganginn.
17. júní
Eins og áður halda íþróttafé-
lögin í bænum daginn í dag há-
tíðlegan með ýmsu móti, þar á
meðal íþróttamóti á Iþróttavell-
inum;. Hefjast hátíðahöldin með
því, að lúðrasveit leiku,r á Aust-
urvelli kl. 11, og verður þaðan
gengið suður að leiði Jóns Sig-
urðssonar. Mótið hefst kl. 3.
Félag járniðnaðarmanna
Það tilkynnist hérmeð meðlimu m félagsins, að heimilt er að af-
greiða vinnu frá eigendum þeir ra bílaverkstæða, sem undirrit-
að; hafa samning við Félag bif vélavirkja, en jafnframt ber
þeim að sýna skilríki fyrir því, að verkefnið sé frá. réttum að-
ila.
STJÖRNIN.
Félag bifvélavirkja.
Að gefnu tilefni tilkynnist. það hérmeð, að járniðnaðarmenn
þeir, er verkefni fá, sem vafas öm skilríki eru, fyrir, geta feng-
ið nákvæmar upplýsingar á skrifstofu Félags bifvélavirkja,
sími 3724, um hverjir rétt hafa til afgreiðslu.
STJÖRNIN.
Moran ettir Frank Norris. 52
Moran var vakandi og tók á móti honurn, er hann
sveiflaði sér yfir lunninguna.
»Ég tók sjálf vaktina og lét strákinn fara að sofa«,
sagðu hún. »Hvernig leist þér svo á þig í landi, stýri-
miaður? «
»Já, nú erum við aftur komin inn í heim smásmugu-
legheitanna. En í fyrramálið. léttum við, og siglum
aftur út í heim veruleikans«.
»Bravó, stýrimaður«, sagði Moran ánægð.
»Komdu upp í brúna«, hélfc Wilbur áfram. »Ég
þarf að ráðgast við þig um svo margt«.
Moran lagði handlegginn yfir um hann og þau
gengu upp í brúna. Langa stund sátu þau saman, og
hann sagði henni frá fyrirætlunium sínum. Hann varð
heitur og mælskur meðan hann talaði, og augu hans
leiftruðu — en alt í einu þagnaði hann. ,
»Nei«, sagði hann eins og við sjálfan sig. »Þú skil-
u,r þefcta ekki. Og hvernig ættir þú, semj aldrei hefir
átt hér heima að skilja þetta? Og þér hlýtur að vera
nokkurnveginn sama um alt þetta röfl í mér«.
»Stýrimaður«, sagði Moran, og lagði .hendiurnar á
herðar honum. »Það ert þú sem ert skilningslaus, —
þú skilu.r mig ekki. Veisfcu það ekki að upp frá þessu
er þitt fólk mitt fólk, — og að ég er ekki hamingjiu-
söm nema að þú sért það líka. Það var satt sem þú
sagðir einu sinni — að dýpsta sælan er sú, sem mað-
ur á með öðrum. Og þínar sorgir eru líka minar sorg-
ir, vinurinn minn. Övinir þínir eru líka óvinir mínir
og erfiðleikar þínir líka. mínir erfiðleikar«. Hún tók
lum háls hans og kysti hann.
Áður en dagur rann höfðu þau tekið ákvörðun um
framtíðina. Þau ætluðu að fara eitthvað burt hið
skjótasta. Eftir eðli sínu og uppeldi var Moran illa
til þess fallin að lifa rólegu borgaralífi og Wilbur
hafði siðustu mánuðina fundið sér vaxa þrótt og
kjark, sem heimtaði útrás. Þau, ákváðu að sigla heim
til San Francisco, losa sig við ambrið, gera »Bertu
Milner« vel úr garði, og sigla svo út í ný æfintýri.
Um tíu-leytið morguninn eftir, þegar þau voru í
þann veginn að létta akkerum, kom Hbang til Wil-
burs og tok í ermi hans.
»Sjá lítinn bát, koma hingað«.
Og þarna var dálítill vélbátur á hraðri ferð út í
skútuna. Fáeinum augnablikum síðar lagði hann að
hliðinni. I honum voru þau, Jerry, Nat Ridgeway, Josie
Herrick og ein kona til, eldri systir Josie.
»Já, hér erum við komin — komin til að sjá snekkj-
una þína«, kallaði fröken Herrick, er báturinn rakst
í skútuna. »Megum við koma um borð?« Josie var í
ljósrauðri blússu og hvítu pilsi, á hvítum skóm og með
litla matrósahúfu á .höfðinu. Hún var ljómandi lagleg,
þar sem. hún stóð þarna í bátnum glöð. og forvitin.
Herrarnir voru, í fínum, hvítum flónelsföt-um.
Wilbur starði á þau steinhissa.
»Nú er það svart«, sagði hann við sjálfan sig, en
áttaði sig svo, og bauð þeim að koma upp.
Og augnabliki síðar stóðu þau öll uppi á þilfarinu.
»Ég er svo aldeilis — « sagði, fröken Herrick, og
nam staðar steinhissa.
Þilfarið, lunningin, mastrið og reiðinn — alt var
það með þykku lagi af óhreinindum og fitu„ seglin
voru dökkgrá, og um alla skútuna var kæfandi fýla
af grút og tjöru, mat og ópíium. Miðskips stóðu þeir
Hoang og Jim, báðir nakfcir niður að mitti, með flétt-
urnar snúnar um hálsinn, og kölluðust. á einsatkvæð-
isorðum á Kínversku meðan þeir festu bátinn.
Sýstir fröken Herricks hafði ekki vogað sér upp á
þilfarið, — hin stóðu í þétfcum hnapp íý þilfarinu, með
handleggina klemmda að hliðunum til þess að ó-
hreinka sig ekki á snertingu við allan þennan skít,
og hin óaðfinnanlegu„ hvítu sportsföt virtust enn
hvitari og óaðfinnanlegri v svona ótrúlega óskemmti-
legu og óhreinu umhverfi.
»Eg er svo aldeilis-----« endurtók fröken Herrick
og lygndi aftur augunum. »Hugsa sér alt það sem þú
hefir orðið að líða, Ross! Ég hélt að þetta væri eins-
koriar lystisnekkja. Mig .hefði ekki dreymfc um neitfc
þessu líkt«.
Meðan hún var að tala kom Moran fram undan
fokkunni, en nam staðar steinhissa er hún sá gestina.
Hún var enn í karlmannsfötum og leðurstígvélum
,uipp að hnjám. Grófa, bláa ullarskyrtan var opin í
háisinn, og ermamar uppbrettar, svo að hinir sterk-
legu hvítu armar hennar komu í ljós. Við belti sér
hafði hún litla, norska skeiðahnífinn. Hún var ber-
höíðuð, og ljóst hárið, þungt og ilmandi, féll yfir
herðar hennar og brjóst allt að beltisstað.
Listi Kommúnistailokksins er D-listiT