Þjóðviljinn - 10.12.1937, Side 4

Þjóðviljinn - 10.12.1937, Side 4
þJÓÐVILIINN as l\íy/a. íi'io s£ Stjenka Rasin (Volga Volga) Þýsk kvikm.ynd sami- kvœmt hinu heimsfræga rússneska kvæði um hetj- una Stjenka Rasin. Aðalhlutverkin leika: Adalbert von Schlettow Wera Engels o. fl. 1 myndinni syngur Don- kósakkakórið fræga. Böm fá ekki aðgang. Næturlæknir. Bergsveinn Ölafsson, Hávalla- götu 47. Sími 4985. Næturvörður er í Ingólfs og Laugavegs apóteki. Utvarpið í dag 8.30 Enskukensla, 10.00 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 18.00 Skýrsla um vinninga í Happdrætti Háskólans. 18.45 Islenskukensla. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 13.05 Tí.undi dráttur í happ- drætti Háskólans. 20.15 Erindi: Fiskiveiðar Is- lendinga (Árni Friðriksson f i.skif ræðingur). 20.40 Tcnleikar Tónlistarskól- ans. 21.20 Útvarpssagan. 21.45 Hljómplötur: Harmóníku- lög. 22.15 Dagskrárlok. Skipafréttir Gullfoss er á leið til landsins frá Hull, Brúarfoss er á Siglu- firði, Dettifoss var í Keflavík í gærkvöldi. Lagarfoss er á leið til Noregs frá Austf jörðum. Sel- foss eir í Antwerpen. Súðin er væntanleg til Rvíkur í kvöld. Esja fer héðan kl. 9 í kvöld í strandferð austur um land. Trúlofun Þann 7. þ. m. opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Fanney Odds- dóttir, Mosfelli í MosfelIs,sveit og Gunnar Daníelsson, ráðsmað- ur á Kirkjubóli við Reykjavík. Slys Það slys vildi til í gær að drengur varð fyrir bíl á Hverf- isgötunni og fótbrotnaði. Var drengurinn að renna sér á sleða þegar slysið vildi til. Drengur- inn var fluttur á Landsspítal- ainn. «Mál og menning« Árbækur félagsins Vatnajök- ull og Rauðir pennar koma út i dag. Meðlimir félagsins geta vitjað þeirra í Bókaverslunina Heimskringlu eftir hádegi í dag. Athygli skal vakin á auglýsingu á öðrum stað hér í blaðinu frá Raftækjaeinkasölu ríkisins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur ,um afborgunarsölu á rafmagnselda- vélum. Þar geta menn íengið rafeldavélar með eins og tveggja ára afborgunum. Eiga efndirnar . ? FRAMHALD AF 3. síðu. tjarnir, sem síðan eru leikvang- ur barnanna. Það hefir komið fyrir að við borð hefir legið að börn druknuðu í þessum forar- vilpum, en verið bjargað af að- vífandi fólki. Stundum leggur þetta góðgæti leið sína inn í kjallara húsanna. Á þennan hátt hefir bæjar- sfjórnaríhaldinu tekist; að leysa leikvallamál þessara hverfa,. Á Melunum er svo hin myndar- lega »loðdýrarækt« bæjarins, er sér þorpunum fyrir hæfilegurn rottugangi og börnunr fyrir heil- næmri dægrastyttingu í ösku- haugunum. Þa,n,nig hefir alt rent stoðum undir andsfygð alþýðunnar í þessurn hverfum, á íhaldinu. Vonir bess, um kjörfylgi hafa ýmist orðið úti á vegleysum, lent í forarvilpunum, eða orðið rott unni að bráð. En þrátt fyrir það var þess að vænta, að þegar íhaldið rumsk- aði nú fyrir kosningarnar mundi það reyna að klóra, í bakkana og bjarga því sem bjargað yrði. Hitaveitan var .hálmstráið, en þeissu margnagaða beini, er samkvæmt yfirlýsingum í- haldisins sjálfs, ekki hægt að kasta í nema helming bæjar- búa og þá aðeins, innan Hring- brautar.Þessvegna; varð að finna upp eitthvað annað, er sefað gæti hugi hinna, sem ekki yrðu svo hólpnir að njóta nögunnar. Og hjálpræðið kom: Kirkja. Undánfaraa daga hefir af- dankaður prestur staulast að livers manns dyrum í Skerja- firði til þess að prédika. um nauðsyn kirkju fyrir Holtið og Skerjafjörð. Ræður öldurmennis, þessa eru í tóntegund heimatrú- boðsins og fordæmir hann út- varp og yngri presta, sem ónot- hæf verkfæri og spillendur guðs orðs. Klerkur þessi skrifar niður á blað alla þá, sem fyrir kurteis- issakir, við elhna, ekki harðlega mótmæla kirkjubyggingu, og tel- ur þá, sem fylgjendur þessa máls. -— Hér mun vera um að ræða framkvæmd þeirrar hug- sjómar, sem fram kom í frum- varpsformi á Alþingi og átti Pétur Halldórsson að aðalfor- mælanda — um að fjölga kirkj- um í bænum og þá sérstaklega í úthverfunum. Þetta var þá lausnin á vanda- málum þessara hverfa. 1 10 til 30 ár hafa þau beðið eftir vatni, vegum, ræsum, barnaskóla og leikvöllum og ár- angurinn er: KIRKJA. En alþýðan mun svara þeim, sem hyggjast að hafa hana að ginningrfífli: Komið þið meö það, sein við höfum verið svikin um, það, sem við höfum beðið um, það, sem okkur vantar. Kirkjur Reykjavíkurbæjar eru sem, betur fer ennþá nógu rúmgóðar fyrir þá, sern óska að skjóta sér undan því að sýna trú sína af verkunum. St, Æ. ©amlal3io ^ Flotinn dansar (Follow the Fleet,). Afar fjörug og skemtileg söng- og dansmynd. Aðalhlutverkin leika og dansa: Ginger Rogers og Fred Astaire. Góða og ódýra kexið FRÁ INGIMAR má panta í síma 4383 daglega fyrir hádegi. A. V. Hver kaka er merkt I N G I M A R Björg Ellingsen hefir opnað nýtísku snyrti- stofu í Austurstræti 5, sími 3597. Hefir Björg dvalist undan- farið í Khöfn, Berlín og London og kynt sér helstu nýjungar í atvinnugrein sinni. Hjartaniega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur hjálp og samúð við fráfall og jarðarför sonar míns og bróður okkar Sveinbjörns ^umarlidasonar Frá Litla-Hvammi. Gnðný Kristjánsdóttir og systkini. w m Björg Ellingsen Austurstræti 5 — Sími 3597 ♦ Nýtísku hörunds- hár- fóta- og hand-aðgerðir ♦ * Viðtalstími 10-12 og 1-6 og eftir samkomulagi. U. M. F. I. U. M. F. Y. Gestamót ungmennafélaga verður haldið í Oddfellowhúsinu næstk. laugardag og hefst kl. 9. DAGSKRÁ: Mótið sett. Erindi: Steinþór Sigurðss. mag. Söngur: Kvintett. Ræða: Skúli Þorsteinsson. Steppdans. Upplestur: Sefán Jónsson. Söngur. Danz: Hljómsveit Aage Lorange Mótið er fyrir ungmennafélaga og gesti þeirra. — Aðgöngumið- ar verða seldir í dag óg á laugardaginn í skóverslun B. Stef- ánssonar, Laugaveg 22A, og kosta kr. 3.00. (Ath.: Fyrirspurn- um ekki svarað í síma verslunarinnar.). Sleðaferðir barna. Á eftirtöldum svæðum og götum er heimiit að renna sér á sleðum: A U S T U?R B Æ R : 1. Arnarhóll. 2. Torgið fyrir vestan Bjarnaborg og milli Hverfisgötu og Lindargötu. 3. Afleggjarinn af Barónsstíg sunnan við Sundhöllina. 4. Bragagata frá Laufásvegi að Sóleyjargötu. 5. Spítalastígur milli öðinsgötu og Bergstaðastrætis. 6. Egilsgata frá Barónsstíg að Hringbraut. VESTURBÆR: 1. Biskupsstofutiún, norðurhluti. 2. Vesturgata, frá Seljavegi a Hringbraut. 3. Bráðræðistún sunnan við Grandaveg. Bifreiðaumferð um ofangreinda götu- hluta er jafnframt bönnuð. Lögreglustj órinn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.