Þjóðviljinn - 19.01.1938, Page 1
A - LISTINN
Laugayegi 7
Sími 4824
3. ARGANGUR
MIÐVIKUDAGINN 19. JAN. 1938
14. TOLUBLAÐ
Ávarp til alþýðnnnar i Eeykjavík.
.Stjórn Fii'ttráaráðs verkalýðsfé-
laganna í Reykjaxvík.
Guðjón Baldvinsson,
Haraldur Pétursson,
Þuríðuir Friðriksidóttír,
Stjórn verkamannafél. Dagsbr.
Guðm. Ö. Guðmuindsson,
Þorlákur G. 0t,tesen,
Kr. F. Arndal,
Sigurbjörn Björnsson,
Sigurður Guðmundsson.
Stjórn Hms ísl. prentarafélags.
Magnús H. Jónsson,
Guðm. Halldórsson,
Jóhannes Jóhannesson,
Jón H. Guðmundsson,
Samúel Jóhannesson.
Stjórn Iðju.
Runólfur Pétursison,
Bjöm Bjarnason,
Kristbjörg Einarsdóttir,
Ölafur H. Einarsson.
Stjórn Þvottakvemiafél. Freyja.
Þuríður Friðriksdóttir,
Sigríður Friðriksdót,ti!r,
Þóra Jónsdóttir,
Kristín Jónsdóttir.
Stjórn Verkakvennafélacs'.ns
Framsókn:
Jóhanna Egilsdóttir,
Jónai Guðjónsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Sigríður Hannesdótjtir.
Stjó rn Verslun armannafél.
T. Ö. Jóhannsson,
Pétur Halldórsson,
Axel Sigurgeirsson,
Ben. Stefánsson,
Jón Brynjólfsson,
Guðrún Guðmundsdóttir.
Stjórn Bókbindarafél. Rvíkur:
Jens Guðbjörnsson,
Guðgeir Jónsson,
Sveinbj. Arinbjarnar.
Stjórn Sveinafél. húsgagnasmiða
Ölafur B. Ölafs,
Ölafur H. Guðmundsson.
Stjórn Félags bifvélavirkja:
Valdimar Leonhardsson,
Sigurg. Guðjcnsson.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna:
Filippus Ámundason,
Magnús Jochumsson,
Ingólfur Einarsson.
Stjórn Sveinafélags slcipasmiða:
Sigurður Þórðarson,
Sigurður H. Guðmundsson,
Bjarni Einarsson.
Hafliði J. Hafliðason,
Jakob H. Richter.
Stjórn Starfsmannafél. Þór.
Björn Pálsson.
Jón Kr. Jóhannesson.
FRAMHALD á 4. síðu.
Japanir slíta stjórn-
máiasambandi við
Kína.
LONDON I GÆRKV. (FU)
Japan .sleit formlega stjórn-
málasambandi við Kína síðdeg-
i,s í dag. Sendiherra Japana í
Kína hefir verið skipað að
hverfa nú þegar heim, og sendi-
herra, Kína, í, Japan mun leggja
af stað heimleiðis á fimtudag-
inn kemur.
Blað eitt. í Tokíó birtir í dag
þær upplýsingar að undanfarn-
ar vikur ha.fi 14 sldp ^omið til
Hongkong með hergögn handa
Kínverjum.. Þair af hafa 7 verið
bresk, 3 ítölsk, 2 þýsk og 2 ame-
rísk. Amerísku skipin eiga með-
al annars að hafa flutt 1800
tonn af sprengief'num.
Japanska herstjórnin í Shang-
hai hefir farið fram á það við
breska yfirforingjann þar í
borg, að breskt, herlið sé flutt. á
burtu úr vesturhluta alþjóða-
hverfisins, en Smollett hefir Jjáo
þeim að ekki sé unt að verða við
þeiirri ósk eins og sakir standa.
Þá hefir sendiherra Breta í
Kína verið tilkynt að búast, m.egi
við að járnbrautin milli Hong-
liiong og Kanton verði eyðilögð.
HINN 30. JANÚAR næst komandi verður kosið í Reykjavík um það, hvern-
ig höfuðborginni verður stjórnað á næstu 4 árum. Um langan aldur
hefir verið íhaldsstjórn í þessum bæ, enda sést það á, að hér skortir
est alt það, sem setur menningarbrag á höfuðborgir hinna annara Norður-
landa, hér er atvinnuleysi og minkandi útgerð, lélegt hiisnæði og dýrt, óþrifa-
legar götur, yfirfyltir barnaskólar, bærinn á engin hús fyrir unglinga- og iðn-
skóla, né jafnvel ráðhús og eigin skrifstofur, fátækraframíærslan er ranglát og
óhagsýn, barnaleikvelli og íþróttasvæði vantar. Yfirleitt hefir íhaldið staðið
sem veggur á móti kröfum alþýðu þessa bæjar um atvinnu, bætt kjör
og aukna atvinnu og hefir svikið öll sín fyrri kosningaloforð. En ofan á það
bætist að sjálfstæðisflokkurinn hefir á síðasta kjörtímabili tekið upp fjandsam-
iega stefnu móti alþýðusamtökunum og öllu lýðræði í landinu, en nálgast
hina erlendu ofbeldisstefnu fasistanna.
Alþýðusamtökin eru voldugustu samtök þessa bæjar og landsins í heild
Um alllangt skeið hafa þau verið klofin í stjórnmálum og hefir það veikt }
áhrif þeirra. I þetta sinn standa þau sem órjúfandi heild um lista alþýðunnar
A-lisfann. Markmið þeirrar sóknar er fullkominn sigur við kosningarnar, að
ná völdum um bæjarmálefni Reykjavíkur, þannig að þeim verði á næsta kjör-
tímabili stjórnað með hag alþýðunnar fyrir augum. Reykjavík á ekki síður en
aðrar höfuðborgir Norðurlanda að verða aðalvígi alþýðusamtakanna og stjórn-
að af fulltrúum alþýðunnar. Bæiröir eru á 20. öldinni orðnir miðstöðvar
stjórnmálanna. An þeirra fylgis er ekki hægt að stjórna landinu. Á árinu 1938
á stjórn allra ísleuskra kaupstaða að verða í höndum alþýðunnar. Það er áskor-
un vor til allra meðlima Alþýðusamtakanna og stuðningsmanna þeirra og
vinstri manna yfirleitt, að fylkja sér um lista alþýðunnar, A-listann, kjósa hann
og styðja kosningu hans á allan hátt. Þegar alþýðusamtökin standa saman,
er sigurinn vis. - REYKJAVÍK FYRIR ALÞÝÐUNA!
Alþýðusamtökin:
Myndar Cautemps stjórn áu
þátttöku verklýösflokkanna
Líkur taldar fyrir að stjörnarmyndun
yrði lokið í gærkvöldi.
EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐYILJANS KHÖFN I GÆRKV
O T J Ó R N jafnaðarmanna
^ flokksins franska sat á
fundi í alla nótt. Fundurinn
samþykti ályktun, þar sem
hún taldi mögulcika fyrir
hendi um að styðja stjórn
Chautemps.
Umræður um, málið urðu mjög
heitar. Paul Faure sagði af sér
sem ritara flokksins, þeyar hann
varð í minináhluta,.
Chauteimps lagði fram. í dag
ráðherralista skipaðan mönnum
úr radikala flokknum. Delbos er
utanríkisráðherra,. Á listanum
var enginn sósíalisti, en ým.sir á-
kveðnir fjendur Alþýðufylking-
arinnar svo sem Marchandeau.
Duclos hefir í dag gefið út, yf-
irlýsingu um, að ef þessi stjórn
taki við völdum í Frakklandi, þá
sé það gagnstætt vilja kjósend-
anna og gagnstætt óskum al-
þýðunnar.
Dusseigneur hershöfðingi hef-
ir í dag- játað fyrir rétti ýmis-
legt um samband »Munka,hetí>
anna<< erlendis og að hann bafi
CHAUTEMPS
farið í erindum þeirra basði til
Róm og Salamanca.
F^ETTARITARI
LONDON I GÆRKV. (FÚ)
Allar líkur benda, t,il þes,s að
Ghautemps muni takast að
mynda stjórn á Frakklandi áður
en þessum degi er lokið. Það
þykir nokkumveginn víst að
Delbos m,uni verða utanríkis-
ráðherra en Sarraut innanríkis-
ráðherra.
Æðstaráð Sovétríkjanna ræðir stjórnar-
myndunina: Sdanoff gagnrýnir störf ráðu-
neytanna fyrir utanríkismál og siglingar.
EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐVILJANS MOSKVA I GÆRKY.
Á f.undi í Sameinuðu þingi
var tekin fyrir .stjórnarmyndun
Sdanoff gagnrýndi starfsemi
ýmsra þjóðfulltrúaráðuneyta.
»Við erum, öll sammála um
þa,ð«, sagði Sdanoff/ »að utan-
ríkismálaráðuneyti voirt; hefir
fylgt friðarstefnu stjórna.rinnar
og fliokksins út í ystu æsar, og á
einu máli unn það, að Litvinoff
hefir unnið .stórvirki í þjónustu
verkalýðsríkisins. En um ýms
f ramkvæmdar atriði utanríkis-.
málanna, vilidi ég spyrja nánar.
I fyrsta lagi: Þó nokkur erlend
ríki, hafa fleiri konsúla 1 Sovét-
ríkjunum, en vér hjá þeiun.
Komiö hefir fyrir að konsúlar
þessir hafa íarið út fyrir þau
takmörk, sem þeim er sett, og
rekið undirróðursstarfsemi í
landi því, sem, þeim er ætlað að
starfa í,
Eg; vildi leggja til að þetta
verði, lagf.ært«.
Ennfremur kvartaði Sdanoff
yfir því að utanríkisráðuneytið
liefði. ekki tekið nógu hart á
margendurteknum árásum jap-
anska hersins og leppríkisins
Mandsjúkúó. »Utanríkis.ráðu-
neytið verður að gera þær ráð-
stafanir er duga. til þess að
koma í veg fyrir slíkar árásir«.
Sdanoff réðst harðlega á
starfsemi siglingaráðuneytisins,
ennfrenuir gagnrýndi hann
FRAMHALD A 4. SIÐU