Þjóðviljinn - 23.01.1938, Blaðsíða 4
!8 Mý/o P5io sa
Elskadi f lakkariim
Ensk kvikmynd sam-
kvæmt víðfrægri skemti-
sögu með sarna nafni eftir
Wm, Locke.
Aðalhlutverkið leikur
kvennagullið
Maurice Chevalier
ásamt
Betty Stockfeld,
Margaret Lockioood
o. fl.
Aukamynd: Frá London.
Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 0.
Lœkkað verð kl. 5.
Næturlæknir
í nótt Jón G. Nikulásson,
Freyjugötu 42, sími 3003, aðra
nótt Kjartan ölaifsson, Lækjar-
götu 6b, sími 2614.
Næturvörður
er þessa viku í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
Utvarpið í dag
9.45 Morguntónleikar: Kvart-
ett í B-dúr, Op. 67, eftir
Brahmsi (plötur).
10.40 Veðurfiregnir.
11.00 Messa í Dómkirkjunni
(séra Friðrik Hallgrímsson).
12.15 Hádeg'isútvarp.
13.00 Enskukensla, 3. fl.
13.25 íslenskukensla, 3. fl.
15.30 Miðdegistónleiikar frá Hó-
tel Island.
17.10 Esper,antókensla.
17.40 Ctvarp til útlanda (24.52
m.)
18.30 Barnatími.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljomplötur: Létt slav-
nelsk lög.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Eírindi: Lífsskoðun Mal-
ayaþjóða, II. (Björgúlfur Öl-
afsson læknir).
20.40 Otvarpskórinn syngur.
21.05 Upplestur: »Að Sólbakka«
(ungfrú Pórunn Magnúsdótt-
ir).
þlÓÐVILIINN
21.30 Hljómplötur: Svíta, Op.
19, eftir Dohnanyi.
21.55 Danslög.
Utvarpið á morgun
19.20 Hljómplötur: Létt lög.
19.30 Auglýsingar.
19.35 Fréttir.
20.00 Stjórnmálaumræður um
bæjarmál.
A-listinn
þýðir atvinna, C-listinn at-
vinnuleysi.
Herðið áskrif-
endasöfnunina
Þrjá undanfarna daga
hafa, aðeins þrír nýir á-
skrifendur komið að Þjóð
viljanum. Félagar, munið
að framtíð blaðsins er
komin undir áskrifenda-
söfnuninni.
k a u p endar
fá blaðið ókcypis
til næstu mánaðamóta
Kjósið A-listann.
& Gamlö r^o %
S vefn gan gan
Sprenghlægileg amerísk
gamanmynd.
Aðalhlutverkið leikur
Charlie Ruggles
AUKAMYND:
Skipper Skrœk.
Sýnd kl. 7 og- 9.
Alþýðusýning kl. 5.
TIL
DRAUMALANDSINS
Síðasta sinnj
Bamasýning kl. 3.
SLÆPINGJARNIR
Meið Litía og Stóra
Póstferðir í dag
Frá Reykjavík: Þingvellir.
Póstferðir á morgun
Frá Reykjavík:
Mosfellssveitar-, Kjalarness-,
Kjósar-, Reykjaness-, ölfuss og
Flóa-póstar (öf. Eb. Stk.) Hafn-
arfjörður, Seltjamarnes, Fagra-
nes til Akraness.
Til Reyjcjavíkw:
Mosfellssveitar-, Kj alarness-,
Kjósar-, Reykjanessi-, ölfuss og
Flóa-póstar. Hafnarfjörður, Sel-
tjarnames.
Grímsness og Biskupstungna-
póstur. Fagranes frá Akranesi.
Brúarfoss frá Isafirði. Lyra frá
Bérgen.
Skipafréttir
Gullfoss .fór í gær frá Khöfn
til Leith, Goðafoss er í Kaup-
m.annahöfn. Brúarfoss kom til
önundarfj. í gær. Dettifoss er á
leið til Leith, Selfoss er á leið
frá Antwerpen til Hamborgar.
A-Iistinn
er listi alþýðunnar, listi
Kommúnistaflokksins og Al-
þýðuflokksins.
Málai-asveinar
Munið aðalfund félagsins í
Alþýðuhúsinu kl. 11 í dag.
Æskulýðsfundur
verður haldinn í Gamla Bíó á
þriðjudaginn kemur, stundvís-
lega kl. 6 e. h. Nánar auglýst
síðar.
Fánagangan
F. U. K. félagar, sem eiga
félagsskyrtur ha.fi m.eð sér
skyrturnar, niður í K. R.-hús í
dag.
Utvarpsumræður
um bæjarmálin hefjast á
morgun og’ halda áfram á
þriðjudaginn.
Fyrisr hönd kommúnista tala
á morgun Einar Olgeirsson og
Bjöirn Bjarnason. Annar talar í
25 mín., en hinn í 20 mínútur.
Sími kosninga-
skrifstofunnar
er 4824.
Kvenfélag Alþýduflokksins lieldur
almennan
kvennalund
éyrir allar stuðningskonur A-listans í. alþýðuhúsina
Iðnó í dag, kl. 2. e. h.
Margar ræðukonur, þar á meðal efsti fulltrúi kvenna á
A-listanum. Ennfremur taka til máls á fundinum Har-
aldur Guðmund&son ráðherra og Einar Olgeirsson, rit-
stjórj. Ýms skemtiatriði verða, á milli ræðanna, söngur
og íieira.
Inngangur kostar 25 aura.
Aðgöngumiðar seldir við innganinn.
Konur fjölmennið stundvíslega.
STJÖRNIN
F. U. J. F. U. K.
Fánaganga
verður farin í dag.
Skorað á allan frjálslyndan æskulýð og annað al-
þýðufólk að mæta.
Kjósid A-listannl
Mætid í K-R.-húsinu kl. 1 í dag.
Stjórnir félaganna.
Vicky Bamn.
Helena Willfiier 36
»Nei, ég vinn fyrir mér sjálf«.
»Sjá.lf, — gott. Þér hafið varla mikið umleikis?
En ef þér eruð í sjúkrasamlagi, kostar það dvöl yð-
ar á íæðingarstofnun, þegar þar að kemur. Þér þurfiö
engu til að kosta, og fáið einnig styrk handa barn-
inu íyrst á eftir. Það er til allrar hamingju búið að
samþykkja það, að ógiftar mæðu'r haldi borgara-
rét,tinidum. Þér vitið að þér hafið fult leyfi til að
skrifa yður frú? Það er bara uim að gera að missa
ekki kjarkinn. Á ég að seg'ja, yður hversu mörg börn
fæðast á hverju ári utan hjónabands? Hagskýrslurn-
ar sý.na að það er me.sti fjöldi, og að þeim vegnar
síst ver en öðrum börnum. Þetta eir ekki eins ískyggi-
legt og þér haldið«.
>Æru líka til hagskýrslur«, — Helena talar lágt
og hægt og tekur á öllu sem hún á, tfl, — eru líka
til hagskýrslur um það, hvehsu mörg börn ná ekki
að fæðast?«
Frú Gropius lítur snögt upp. Hún, haföi ekki búist
við slíkri spurningu frá skrifstofustúlku.
>.‘Nei«, ,segir hún, »en ég já,ta, að það yrði geysihá
tala. En við skulum halda okkúr við hagskýrslurn-
ai', frú Schmidt, og ég skal segja yður hversu marg-
ar mæður deyja af fóstureyðingatilraunum. Deyja við
ógurlegar kvalir og eymd«.
»Það er þessvegna sem ég kem til yðar«, sagði Hel-
ena lágt.
»Þessvegna, þessvegna! Allar komið þið til min, ég
á að hjálpa. En ég get það ekki, ég lít, á það sem
siðferðilega rangt að velta þannig ábyrgðinni yfir á
annara herðar. Það er harðneskja lífsins sem gerir
mann sterkan. Ég er líka kona, ég veit hvað ég er
að segja«.
»Frú Gropius«, segir Helena lág't, og leggur nú á
tæpasta vaðið, »ég skrökvaði áðan, ég er við nám og
bláfátæk, þér vitið kanske hvernig það er. Ég er
mitt í doktorsritgerð, og á engan að. Ég he'fi hvorki
tíma, efni eða, aðstæður til að fæða barn, eiga það
og ala upp. Ég er tuttugu og eins árs og hef brotist
áfram með stöðugum. afneitunum og fórnum. Ég get
ekki hætt námi, en ég get held,ur ekki sótt fyrirlestra
eða unnið á tilraunastofunni svona, á, mig komin. Ég
heiti á yður sem vitið hvað það er erfitt fyrir kon-
ur að brjótast. til menta, ég heiti á yður-------«.
Hún lyfti höndunum til konunnar í hvíta læknis-
sloppnum, en þær féllu aflvana niður á, borðið. Þaó
varð dauðaþögn, og ekkert heyrðist, nema suðuniður
í vatni, sem stóð yfir gaslogai.
>/Veslingurinn«, sagði læknirinn, og lagði sterkar
hendur sínar yfir hendur Helenu. »Sama. eymdin
hvern einasta dag. Ég get ekki hjálpað, ég þori það
ekki. Ég verð að senda þær frá mér, blátækar kon-
u^, sem eiga fimm-—sex börn, og hafa ekki hugmynd
um livað þær eiga af sér að gera. Já, — ef ég mætti
ráöa! Þá væri íyrir löngu farið að kenna opinber-
lega takmörkun barneigna. En það veirður víst langt
þangað til, enn eru í gildi ]>es,si arndstyggilegu laga-
ákvæði. Þér eruð við pám? Jú — ég veit, sannarlega
hversu erfitt það getur1 verið. En getið þér krafist
þess að ég vogi stöðu minni og allri avinnu, yðar
vegna? Ég hvorki get né þori að hjálpa yður, frú
Schmidt. En, ég verð alvarlega. að ráðai yður frá því
að fara tjl skottulækna, ég fæ of margar konur illa
útieiknar úr höndunum á þeim. Hugsið yður um.
Hugsið til þess að ]>ér berið örlitla, gróandi veru í
yður, sem einhverntíma getur orðið aleigan yðar, upp-
haf lífshaming-ju yðar. Þér megið ekki láta kvíðann
ná. valdi á yður, frú Schmidt, þér eigið að vona«.
»Já«, sagði Helena og stóð á fætur. Hvað átti hún
að borga fyrir læknisskoðunina? Hún hafði ekki skynj
að neitt annað af ræðu læknisins, en neitunina.
»Borg'a, — ekki nokkurn skapaðan hlut. Ef þér
viljið, megið þér leggja aura í safnbaukinn við úti-
dyrnar, handa munaðarley,singjum«.
Ungfrú Willfuer reikar gegn um biðstofuna, þar
er búið að kveikja,.
Rennandi rigning, vinhviður fyrir hvert götuhorn.
Dapurt vonleysi. Hvað átti nú að taka til bragðs?
Öll alþýðuæskan tekur þátt í fánagöngu F. U. J. og F. U.
K. - Mætió í KR-húsinu kl 1 e. h.