Þjóðviljinn - 29.05.1938, Qupperneq 4
þJÓÐVILJINN
ss Ný/a b'iö ss
Einkalíf leikarans
Amerískur gleðileikur frá
Warner Bros.
Aðalhlutverkin leika:
Leslie Howard,
Bette Davies,
Olivia de Haviiland
o. fl.
SÝND KL. 7 og 9.
ELLEFTA STUNDIN.
Pessi gullfallega ameríska
kviknrynd verður sýnd kl.
5. — Lækkað verð.
Næturlæknir
í nótt Axel Blöndal, Mána-
götu 1, sími 3951; aðra nótt
Daníel Fjeldsted, Hverfisgötu
46, sími 3272; helgidagslæknir(
Bergsveinn Ólafsson, Hávalla-
götu 47, sími 4985.
Næturvörður
er þessa viku í Reykjavíkur-
apóteki og lyfjabúðinni Iðunn.
Ctvarpið í dag:
9..45 Morguntónleikar: a. Pí-
anókonsert í Es-dúr, eftir
Mozart; b. Symfónía nr. 5,
eftir Schubert, plötur.
10.40 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Dómkirkjunni,
séra Bjarni Jónsson.
12.15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegistónleikar frá
Hótel ísland.
17.40 Otvarp til útlanda, 24.52m
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Smálögfyr-
ir píanó og fiðlu.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Endurminningar (
frá Spáni. Adolf Guðmunds- |
son dómtúlkur.
20.40 Hljómplötur: Spænsk og
ítölsk sönglög.
21.05 Upplestur: Kvæði, Guð'
mundur Friðjónsson skáld.
21.25 Hljómplötur: Létt lög.
21.45 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Otvarpið á morgun:
10,00 Veðurfregnir.
12,00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19-20 Hljómplötur: Danssýning
arlög.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Sumarþættir.
20.40 Hljómplötur: Sönglög.
Galli Curci og Caruso..
21.05 Útvarpshljómsveitin leik
ur alþýðulög.
21.30 Hljómplötur: Úr Islands-
kantötu Jóns Leifs.
22.00 Dagskrárlok.
Leiðrétting.
í grein Halldórs Kiljans Lax-
íiess í gær hefir á einum stað
í fremsta dálki fallið niðureitt
orð. Greinin á að vera þann-
ig: ',,En til merkis um, hve
þessi fagurfróði danski alþjóða-
borgari, afspringi gyðingdóms
og hámenntaðar heiðni“ o. s.
frv.
Kuldinn.
I gær snjóaði í Reykjavík
og þótti mönnum það „grátt“
gaman eftir vorblíðudagana
fyrr í vikunni.
Leikfélag Reykjavíkur
hefir í kvöld frumsýningu á
gamanleiknum Tovaritch, eftir
Jaques Deval.. Aðalhlutverkin
leika hinir ágætu gestir Leik-
félagsins Anna Borg og Poul
Reumert.
Jarðarför
Einars H. Kvaran rithöfund-
ar fór fram: í gær frá Fríkirkj
unni að viðstöddu miklu fjöl-
menni.
Ferðafélagið
efnir í dag til skemmtiferð-
ar austur að Raufarhólshelli. —
Ekið verður í bílum austur í
Hveradali og gengið þaðan um
Prengslin, yfir Eldborgarhraun
og að hellinum. Lagt verður af
stað' kl. 8 árdegis frá Stein-
dórsstöð.
Frá Italfn.
FRAMH. AF 1. SIÐU
í Tarragonjaj í marz. I orustun-
um við Suður-Ebró-fljót féllu
á tímabilinu frá 9. til 24. marz
700 liðsforingjar og óbreyttir
hermenn, en 2500 særðust. í
skæðustu orustunum sem áttu
sér stað f Abessiníustríðinu var
var mannfallið aldrei neitt í
nánd við þetta.
A GamIaf3io
Örlagarik stund
Framúrskarandi spennandi
og efnisrík amerísk tal-
mynd.
Aðalhlutverkin leika:
Loretta Young og
Franchot Tone.
Sýnd í kvöld kl. 7 og 9.
Barnasýning kl. 5:
TARZAN STRÝKUR!
Æskulýðsmótið
Framhald af 1. síðu.
og Karlakór verkamanna syng-
ur, talkór lætur til sín heyra
og auk þess verða frjálsar í-
þróttir.. Að kvöldi hvítasunnu
dagsins er gert ráð fyrir skemti
legri kvöldvöku undír berum
himni. Auk þess munu þátttak-
endur mótsins eíga kost á því
að skoða aflstöðina við Ljósa-
foss.
Dagskrá um tilhögun mótsins
í einstökum atriðum verður
birt síðar.
Sýning á barnateikningum
frá Norðurlöndum
er í Kennaraskölanum
Opin daglega kl, 10—22
Reykjavíkurdeild K. F. L
SeUnfnndir
Annað kvöld verða fundir í öllum sellum.
Félagar, fjöimennið!
Deildarstjórnin.
Lelkfélag Reykjavlknr
Gestlrs
Anna Borg — Ponl Renmert.
„Tovaritclit(
Gamanleikur í 4 þáttum eftir Jaques Deval.
Frumsýnipg í kvöld kl. 8.
2. sýjning 30. maí — 3. sýning 31. maí — 4. sýning 1. júní
— 5. sýning 2. júní.
Aðeins leikið 5 kvöld
Aðjgöingumiðar að frumsýningunni seldir eftir kl. 1 í
dag í Iðnó á 6 kr. — Forsala að hinum sýningunum er
einnig í dag eftir kl. 1.
Ekki tekið á móti pöntunum í síma.
Alexander Avdejenko:
Eg elska . . 45
an ég þrýsti veskinu fast að brjósti mínu. Pegar
fépúkinn að lokum komst að raun um hvað hafði
síkeð, var ég allur á bak og burt jog horfinn út
í náttmyrkrið. Að baki mér heyrði ég örvæntingaróp
Grikklendingsins.
Ég áttaði mig ekki hþeldur í fyrstu. Ég stóð
u!ndir stóru perutré og fætur mínir sukku í mjúka
moldina. Svo greip ég krampakenndum tökum um
veskið. Gleðin hafði yfirstigið harminn og blygð-
unina.
Svo arkaði ég af stað með (feng minn til járn-
brautarstöðvarinnar, og að þrern dögum liðnum
lajgði ég alla fúlguna á borðið fyrir framan „Væng-
inn“.
Pað kvöld var „Máninn“ sá eini, sem var ódrukk-
inn. Hann blygðaðist sín fyrir óhapp ,sitt og dró,
s'íg í hlé. „Vængurinn‘ var aftur á móti óþreyt-
andi að drekka mér til. Pegar hann var orðinn
aúgafullur seint um kvöldið, faðmaði hann mig
að sér og sagði
— Það er gott að mér tókst að ytja ykkur saman.
„Máninn“ hefir gott af svona ráðningu öðru hvoru.
SEXTÁNDI KAPÍTULI.
'Regninu skolar niður jafnt og þétt. Trénj í garð-
inum hjá járnbraútarstöðinni eru byrjuð að fella
blöð, og standa rykug eins og kræklur út í loftið.
Undir þessum runnum brutum við þremenningarn-
ir: ég, „Máninn“ og „Ba]alajkan“ upp ferðakoffort,
síem ýmsir áttu og deildum með okkur fengnum.
Undir þessum trjárunnum hefi ég farið í leiki,.
Hér hefi ég kastað burtu tötrum mínum og bíaðað
nakinn líkama minn í sólskinmu. Ég og „Balalia!jkan“
erurn orðnir góðir vinír. Við megum aldref sjá
hvor af ödrum. Sumarið er liðið og við erum búnir
að tapa húsnæðinu. i
Á járnbrautarstöðinni er okkur ekki óhætt lengur.
Þar er mikið um að vera ;og daglega eru gripnir
fleiri og færri snáðar á mínu reki. Þe.im er öllum
komið fyrir á barnaheimilum. Við felumst í öimmu
slqoffi. Um þessar mundir höfum við fundið sama-
stað í ketijhúsi járnbrautarstöðvarinnar. Við höfum
komið okkur fyrir uppi á katlinum og njótum lítils-
háttar yls frá hojium, þó að hann sé vel einangr-
aður að utan með steinsteypu.
Við erum marg'ir í ‘þessum þjófahóp, en ég þekki
fáa í þessum framandi bæ. Ég og „Vængurinn“
erum skildir að skiptum fyrir löngu. Einu kunn-
ijngjar mínir eru „Máninn“ og „Balalajkan“. En
mér og „Mánanum“ er lítið til ,vina. Við hejls-
Ujmst sem framandi menn. Hann þrýstir hönd mína
kuldalega og máttlaust, er fundum okkar ber sam-
a;n. Hann virðist vera sísyfjaður. Augnalok hans
eru þung eins og blý. Samt yerður hann feginn
að leita á náðir okkar í, qinverupnl, og að lokum
sofnar hann í örmum „Balalajkunnar“.
Vindurinn ber úða af regninu inn til okkar og
droparnir falla einn af öðrum á brjóst mitt. Ég
siný mér við og færi mig nær katllinum. Pað gufar
úr fötum mínum og mér gengur illa að sofna,
það er eins og vætan smjúgi gegn um merg og
bein. Mér er þungt yfir höfði og m(ig svíður í
auigun. Ég er að hugsa um vorið í '.Óþefskvosinní,
ujm ofninn, þar sem Mitjka og ‘ Njúrka dóu og
úm skranvagn lögreglunnar.
Allt í einu bresta hugsanir mínar eins og þráð-
ur, sem hefir verið klipptúr í sundur. Hendur, sem
líkjast klóm, grípa um fætur mína og draga mig,
fram. Ég æpi upp yfir mig. Það verður hávaðí.
iúni. Kyndararnir hafa orðið okkar varir ^og ætla
að reka okkur út. Ég er óður af reiði og bít mann-
inn í hendurnar. „Máninn“ þrífur lurk og rek-
ur hann í höfuð á öðrum manni og „Balalajkan“
nær í múrstein, sem hann hendir í höfuð þriðja
kyndarans.
En okkur er kastað út þrátt fyrir alla mót-
spyrnu, og aftur erum við úti ;í ausandi rigningu.
Götuljósin slást fram og aftur einmaualeg ;í þögn
næturinnar.
I hjarta „Balalajkunnar“ verður enginn var við
beiskju eða reiði. Hann hoppar umhverfis okkur
á alltof stórum skóhlífum, svo að gönguljagið verð-
ur mjög afkáralegt. En hvað gerir • það til. Hann
er kátur, syngur og trallar eins /og ekkert hefði
í skorizt.
Pjófaflokkurinn liðast í sundur. Við verðum þrír
eftir, og „Máninn“ stingur upp á því, að við leifc-
um skjóls á járnbrautarstöðinni og reynum að fá
húsaskjól hjá gömlum kyndara, sem þar vinnur.