Þjóðviljinn - 12.07.1938, Side 2
>Þriðjudaginn 12. júlí 1938.
PJÖÐ VI L JIN N
FYRSTA BÍLAOLÍAN
A FYRSTA BÍLINN I HEIMINUM.
Fpá þvf ad fyrsti vagninn kom á
markaðinn liefir Vaeuum olían veriö
til og fylgst meö tímanum, Gargoyle
olían, sem notuð er í dag, er fengin
fyrir reynslu þriggja kynslóöa inn-
an olíuiðnaðarins. Þess vegna fer
Gargoyle Mobiloil svo vel með
vagninn yðar.
1877
hjálpaði Gargoyle-verksmiðjan upp(gölvara
fyrstu bifreiðarinnar í heiminum til þess að framleiða
fyrstu nothæfu smurningsolíuna fj7rir bifreiðina hans.
Síðan hefir Vacuum Oil Company altaf fylgst með
hinni stórkostlegu framþróun bifreiðaiðnaðarins. Þess
vegna getur Gargoyle Mobiloil fullnægt öllum þörfum
vélarinnar. Þess vegna veitir olían vélinni fullkomna
vernd við hvaða hraða og hitastig sem er. Þess vegna
hefir hún meðal annars í för með sér þá ágætu kosti,
sem nefndir eru hér fyrir neðan.
Notið ykkur reynslu Vacuum verksmiðjunnar. Látið
Gargoyle Mobiloil á bifreiðarnar ykkar strax í dag. —
Fæst við alla BP-bensíngeyma á landinu. Þar sjáið þið
spjaldið með rauða skrímslinu (Gargoyle).
,\0^S
Gargoyle
Mohiloil
Lzl'-I1
.VACUUM OIL COMPANY */s
sérfræðingar í smurningsolíu.
Fyrsta bifreiðin -— fundin
upp 1877 af Georg Selden
— smurð með oliu frá
Vacuum Oil Company.
Kr. 1.40
litrlnn
OLIUYERZLUN ISLANDS H. F
AÐALSALAR A ISLANDI FYRIR VAGUDM OIL COMPANY
Egede Nissen,
f orseti KommAn-
istaflokks Nor-
egs, sjðtngnr.
1 fjorutin ár hefur
Nissen staðið i
fremstu fylkingum
norsku verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Á sjötugsafmælinu barst Eg-
ede Nissen, formanni norska
Kommúnistaflokksins eftirfar-
andi skeyti frá Alþjóðasambandi
kommúnista:
„Kæri félagi! f nafni fram-
kvæmdanefndar Alþjóðasam
bands kommúnista sendi ég þér,
hinum trygga félaga og hrausta
forvígismanni ' norsku verk-
lýðshreyfingarinnar, bróður-
lega kveðju og beztu árnaðar
óskir á sjötugsafmælinu. Með
miklli virðingu fylgjumst vér
með liífsferli þínum. í 45 ár
hefir þú starfað í norsku verk
lýðshreyfingunni — 40 ár í fylk
ingarbrjósti. Því verður ekki
gleymt, að þú varst meðal
þeirra fyrstu evrópeisku verka
manna, sem tóku afstöðu með
hinni sigursælu Október-bylt-
ingu, með Lenin og Sovét-ríkj-
unum, að þú hefir starfað ötult
að 'því að rjúfa herkví innrás-
ar-þjoðanna gegn Sovét-ríkjun-
,um..I upphafi pólitískrar starf-
semi þinnar hafðirðu forystu
fyrir verkamönnum og fiski-
mönnum Finnmerkur, sem þú
hafðir fylkt til sameiginlegrar
baráttu. I dag veitirðu forystu
Kommúnistaflokki Noregs, sem
stefnir að því að yfirvinna klofn
Snginn í verklýðshreyfingunni,
og skapa baráttueiningu allra
inorskra verklýðsfélaga og
bandalag verkalýðsins við
norska fiskimenn og bændur \
baráttu þeirra gegn sameigin-
legum óvini.
Aldrei hefir þörfin veriðjafn
brýn, að alþýðan norska sam*
einaði krafta sína í þjóðfylk
ingu gegn afturhaldi, fasisma
og stríði, fyrir einingu og sjálf-
stæði norsku þjóðarinnar. Per-
sóna þín er norskum verkalýð
fyrirmynd um trúnað og fórn-
fýsi fyrir hinn göfuga málstað
verklýðsstéttarinnar.“
20. júní 1938
G. Dimitroff.
29. júní sl. varð Egede Nis-
sen 70 ára. Hann varð á unga
aldri póststjóri í Vardö í Finn-
mörku — nyrzít í Noregi. En
hann gat ekki setið aðgerða-
laus hjá, þegar fiskimennirnir
og verkamennirnir háðu baráttu
fyrir b'ættum kjörum. Hann
gekk í lið með þeim, stofnaði
með þeim fagfélög. Og um alda
mótin var hann kosinn á þing
sem fulltrúi þeirra. Formlega
var hann þá í írjálslynda flokkn
um og var kosinn gegn öðrum
frambjóðanda þess flokks, því
að hann b'arðist fyrir hagsmuna
málum um bjóðenda sinna. Á
þingi fylgdi hann þeim fast
fram.
Árið 1905 gekk Egede Nissen
formlega í Verkamannaflokkinn
norska og gegndi fyrir hann
þingmennsku allt fram að 1912.
Sérstakan hróður vann hann sér
sem eldheitur andmælandi liern
aðarstefnunnar.
Hann tók þátt í tflestum þing-
um verkamannaflokksins allt
þangað til hann klofnaði 1923
og var fulltrúi flokksins á aðal-
skrifstofu II. alþjóðasambands-
ins.
Alt frá því er E. Nissen hóf
pólitíska starfsemi sína, stóð
hann í nánum tengslum við
hina byltingasinnuðu verkalýðs-
hreyfingu Rússlands. Á þingi
skandinavisku jafnaðarmanna-
flokkanna í Kaupmannahöfn
1901, kyntist hann rússneskum
byltingasinnum — og aðstoðaði
þá síðan við dreifingu ólöglegra
byltingarita til Rússlands. Ferð-
aðist hann meira að segja í
þessu skyni til Arkangeísk og
Péturshorgar og var leynilög-
regla keisarans jafnan á hælum
lians. — Fyrir þetta starf var
honum síðar stefnt fyrir rétt
heima í Noregi, en var sýknað-
ur.
E. Nissen heilsaði rússnesku
byltingunni 1917 með fögnuði
-- Hann ferðaðist nokkru síðar
(Frl1- á 4. síðu.)