Þjóðviljinn - 17.11.1938, Page 3
Fim.mtudaginn 17. nóv .1938.
DEIMSKRINGLA
Laugaveg 38
Símí 5055
Þórbergur Þórðarson:
íslenskuf aðalL
Shrífað af hínní al-
hunnu þórbergshu
stílsnílld.
Heft 8,00, bundín 10,00
Halldór K« Laxness:
Höll
sumadandsíns
Bezta íslenzka skáld-
saga á árínu 1938.
Heft 8,00, bundín 10,00
Sígurður Eínarsson:
Líðandí stund«
Safn af beztu rítgerð-
um þessa snjalla og um
deílda höfundar
Heft 6,00, bundín 8,00
Halldór K. Laxness:
Gerska æfíniýríð
Ef tíl víll það bezta,
er Halldór hefír nokk-
urntíma skrífað.
Heft 8,00, bundín 10,0Ö
Jóhannes úr Kötlum:
Hrímhvífa móðír
Söguljóð um lífsbar-
áttu íslenzku þjóðarínn
ar, fögur og kröftug,
— eíga eríndí tíl hvers
eínasta íslendings.
Heft 6,00, bundín 8,00
Halldór Stefánsson:
Dauðínn á 3« haeð.
Samsafn af smásögum
eínhvers snjallastasmá-
sagnahöfundar íslands
Heft 4,00, bundín 6,00
Félagar í Mál og
menníng fá I5°|0af-
slátt, ef þeír kaupa
bækurnar i Heíms-
krínglu, Laugav. 38
símí 5055
ÞJÓÐVILJINN
Verkamannabréf
Styrkið aðstandendnr
látnn s|ómannannal
Kírkjubyggíngar ekkí eíns aðkallandí.
Ég varð alveg forviða, er ég
opnaði fyrir hádegis-útvarpið í
gær og heyrði að síra Friðrik
Hallgrímsson hélt þar hvatn-
ingarræðu til almennings um að
gefa til nýrra kirkjubygginga.
Það var auðvitað ekki vegna
þess, að síra Friðrik hafði áhuga
fyrir byggingum nýrra kirkna,
að ég varð svo undrandi, held-
ur vegna hins, hvaða tími var
valinn til þess að safna til þeirra
Það ber víst öllum saman um
það, að með hinu sviplega slysi,
er togarinn Ólafur fórst með
allri áhöfn á Halamiðum, hefur
íslenzk alþýða og sjómannastétt
beðið það áfall, er seint verður
að fullu bætt, og að fjöldi
kvenna og barna og aldraðra
mæðra og feðra hafa beðiðþað
tjón, sem þeim verður aldrei
bætt.
Þarna hafa tugir barna og
kvenn a misst einu fyrirvinnu
sína, og gamlir foreldrar, sem
komnir eru á fallanda fót. Flest
þetta fólk stendur nú uppi með
tvær hendur tómar.
Söfnun hefur verið hafin hér
í bænum til lítilsháttar styrks
þessum syrgjandi ekkjum og
munaðarleysingjum. En á sama
tíma sem tilkynnt hefur verið,
að söfnun standi yfir í þessu
augnamiði, kemur síra Friðrik
í útvarpið og tilkynnir, að nú
igangi skátajr í 'dag í öll hús og
safni fé til nýrra kirkjubygg-
inga.
Mér þykir það leiðinlegtskáta
hreyfilngarinnar vegna, að hún
a. m. k. skuli ekki sjá sóma sinn
í því að láta ekki hafa sig til
að draga úr söfnun til þessara
syrgjandi munaðarleysingja.
Skátamir okkar hefðu átt að
fara allir út í dag og safna fyrir
þetta fólk, sem nú er ajlít í Jeijniu
svipt fyrirvfmnunni. þá mega
Þeir reiða sig á, að þeim hefði,
verið vel tekið. /
Mín skoðun er sú að fólk,
I sem einhverja smáaura hefur
afgangs handa á milli, æ'tti að
fara með það þangað, sem tek-
ið er á móti peningum til styrkt
ar þessu fólki. i 1
Þeir, sem langar til þess að
fá nýjar kirkjur, hafa tækifæri
til að gefa til þeirra seinua,
býst ég við.
G. S.
Kaffísalan
Hafnarsfr. 16
Heít og köld
og súr svíð
allan dagínn.
BANKS
maismjöl og
harasœaiáðmr
cr bczt
Bíðjíð um Rank’s, þrí*ad það nafn
cr fryggíng fyrir vörugæðum.
Happdrnttl
Karlakórs verkamanna
Happdrættið hefir fengið leyfi til framlengingar og að
fresta drættinum til 30. nóv. n. k.
Þeir, sem ekki hafa gert upp, eru ennþá áminntir um að
gera það hið allra fyrsta.
Þeir, sem ekki hafa keyptmiða ennþá, ættu að minnast
þess, að tíminn þangað til dregið verður, er stuttur.
Happdrættismiðarnir fást á þessum stöðum:
Tóbaksverzluninni London, Ritfangaverzluninni Penninn
og á skrifstofu Happdrættisins, Hafnarstræti 21.
TilkyoDing til áskrifenda
Þeir áskrifendur úti á landi, sem fá blaðið sent frá af-
greiðslunni ,eru áminntir um, að greiðsla árgjaldsins, kr.
15,00, á að fara fram 1. júlí ár hvert, eða í síðasta lagi 1.
ágúst.
Þejm áskrifendum, sem ekki hafa gert full skil fyrir 1. des.
þ. á., verður þess vegna ekki sent blaðið eftir þann tíma.
Afgreiðsla L>jóðviljans
Austurstr. 12, Rvík, box 57.
Það sem parf
oð Ma
Það er margt, sem menn
langar til að byggja. Það er
margskonar félagsskapur og
samtök, sem langar til að
byggja yfir starfsemi sína.
E:n á nokkrium sviðum ríkir
beiinlínis neyð, af því ekki er
byggt. Er ekki hægt að samieina
alla krafta um þáð, hverra skoð
ana sem menin annars eru, að
fyrst af ölliu beri að bæta úr
þessari neyð.
Yfir 1000 börn og 2000 full-
orðnir búa í ólöglegum kjall-
araíbúðum í Reykjavík, —mik-
ið af þessum íbúðum er bein-
línis heilsuspillandi og í þeim
búa oft barnflestu fjölskyldurn-
ar. Er ekki hægt að sameina
kraftana um að bjarga börnun-
um úr þessum heilsuspillandi
íbúðum og láta það sitja fyrir
öllum öðrum byggingum?
Hvað eftir annað kemur það
fyrir að ekki er hægt að hjálpa
sjúkum, af því það vantar
sjúkráhús. Flestir munu sam-
mála um nauðsynina á því að
byggja sjúkrahús. En er ekki
hægt að fá Reykvíkinga sam-
taka um að hrinda þeiri i sjúkra-
hússbyggingu í vei k ?
Til skamms tíma hefur varla
verið um annáð meira rætt en
það óþolandi ástand á menning-
arsviðinu, að fjöldi unglinga
skuli vera útilokaður frá því
að kom.ast á gagnfræða- og
menntaskóla — að miklu leyti
vegna húsplássleysis. Eru ekki
allir Reykvíking.ar sammála urn
að skóla þurfi að byggja, —
að „franski spítalinn“ sé áreið-
anlega óboðlegasta húsnæðið
sem npkkur menningarstofnun
t bænum verður að sætta sig
við? ;
Reykvíkingar! Er ekki nauð-
synlegt að hefjast handa um
þessar nauðsynlegu byggingar?
Ræðið þetta ykkar í milli og
látið álit ykkar í ljósi, þvi sam-
taka verða menn að vera, ef
einhverju á að hrinda í verk.
Fjársöfnun fll
nýrra kírkfubygg-
inga
Hinir sporléttu og vinsælu
skátar verða á ferðum milli
borgarbúa næstu daga. Að
þessu sinni er erindið að biðja
samskota til nýrra kirkjubygg-
inga, og er það sóknarnefnd
dómkirkjunnar, sem stendur fyr
ir þessari fjársöfnun.
Það fé, sem kynni að safnast,
fyrir innan Rauðarárstíg, á að
fara til kirkjubyggiugar í Laug-
aráshverfi, en það sem safnast
þar fyrir vestan, til kirkju á
Skólavörðuholti.
Þjóðviljinn beinir því til bæj-
arbúa að taka skátum vinsam-
lega og að tefja ekki för þeirra
að óþörfu, og það alveg eins
þó að margir kunni að vera
þeirrar skoðunar, að aðrar þarf-
ir kalli nú brýnna að en nýjar
kirkjubyggingar.
Skipafréttir: Gullfoss er áleið
til Leith frá Khöfn, Goðafoss
er á leið út, Brúarfoss er á
leið til Grimsby, Dettiíoss er
í Reykjavík, Lagarfoss var á
Þórshöfn í gær, Selfoss er í
Reykjavík, Varöy er á leið til
Hamborgar, Dronning Alex-
andrine er á leið til Kaupm.h.
Tvær ffilDBlniorgrelBar
Sígurþér
Guðmussdsscu
verkamaðuir
Sigurþór Guðmundsson.
Sigurþór Guðmundsson var
annar þeirra rnanna, er drukkn-
uðu uppi í FÍvalfirði, er trillu-
báturinn fórst í ofviðrinu 23.
f. m. Hann var fæddur 16. okt.
1897 að Klöpp á Stokkseyri og
var því 41 árs. Hann fluttist
til bæjarins með foreldrum sín-
um 1903. Faðir hans var Guð-
mundur Aronsson trésmiður, er
dó fyrir um 15 árum, einn af
elztu Dagsbrúnarmönnunum, en
móðir María Guðmundsdóttir,
Þórsgötu 2. Bræður hans eru
þeir Guðmundur Ó. Guð-
mundss'ön, áður form. Dags-
brúnar, og Aron Guðmunds-
son, 2. stýrimaður á Surprise,
og systir Sigríður Guðmunds-
dóttir, gift hér í bænum. Sigur-
þór giftist ungur Þjóðbjörgu
Jónsdóttur, sem lifir mann sinn
ásamt sonum tveim, Jóni, um
tvítugt, verkamanni, og Guð-
mundi 10 ára, en 2 börn dóu
ung. Síðustu 15 árin hafði Sig-
urþór unnið við götuþjappara
bæjarins. Hann var sérstaklega
'duglegur verkmaður, að hverju
sem hann gekk. Hann byggði
sjálfur að mestu leyti hús sitt
að Hrauni í Kringiumýri, en
lætur engar eignir eftir sig og
v.ar ekki líftryggður, og er
heimilið því illa statt ofan á
þann harm, sem því er búinn.
Heimilið, sem Sigurþór ólst
upp á, var eitt af hinum góðu
Alþýðuflokksheimilum hér í
bæ, og var hann einnig sjálfur
Alþýðuflokksmaður, en tók
ekki virkan þátt í flokksstörfum
lengi framan af. Eftir að sam-
einingaraldan reis, gerðist hann
mjög áhugasamur fylgjandi
þeirrar stefnu, hann var með-
limur Jafnaðarmannafél.agsins
og vann fyrir málstað þess af
mikiu kappi. Er Sameiningar-
flokki alþýðu mikil eftirsjá í
þessum áhugasama verkamanni.
Ég þekkti hann að vísu áður,
en kynntist honum fyrst í
stjórnmálum í sambandi við
þau mál og vil flytja honum
kveðju okkar s.amherjanna og
þakkir. Hann var einbeittur á
erfiðustu tímunum, en dó degi
fyrir stofnþing Sósíalistaflokks-
ins. Verk hans í þeirn málum
og minning, einsog svo margra
ónefndra áhugamanna, sona al-
þýðunnar, munu lifa áfram í
flokknum.
Héðfinn Valdimmsson.
Súðin er í Reykjavík en fer
vestur og norður í strandferð
lcl. 9 í kvöld.
Frummenn nefnist erindi,
sem Jóhannes Áskelsson jarð-
fræðingur flytur í útvarpið í
kvöld kl. 20,15. 3
Alberf Ólafsson
múrarí
Aibert Ólafsson.
Albert var fæddur 6. júní
4904 í Búrfellskoti í Grímsnesi.
Foreldrar hans voru Ólafur
Þorsteinsson, síðast verkamað-
ur hér í bænum, en er nú dá-
inn, og Vigdís Jónsdóttir, til
heimilis á Njálsgötu 82. Af
börnum þeirra hjóna lifa þrjár
dætur og fjórir synir og eru
tveir þeirra hjá móður sinni.
Albert giftist eftirlif.andi konu
sinni, Guðrúnu Magnúsdóttur,
25. maí 1935. Eignuðust þau
tvö börn, og er það yngra að-
eins 7 mánaða gamalt, en það
eldra tveggja ára.
Ég kynntist Albert heitnum
þar, sem er þrautalending hins
atvinnulausa verkamanns t leit
að atvinnu, á eyrinni, þar sem
við vorum félagar öðru hvoru
í atvinnu eða atvinnuleit. Höf-
uðeinkenni hans voru prúð-
mennska, skapfesta og sam-
vizkusemi. Albert hvarf af eyr-
inni og fór að vinna við bygg-
ingar og síðan að nema múr-
araiðn hjá Bergsteini Jóhannes-
syni múrarameistara. Vann síð-
an við þá iðn lengi hjá Þor-
láki Ófeigssyni og var verk-
stjóri hans við múrverk. Þeg-
ar fyrstu verkamannabústaðirn-
ir voru byggðir, sá hann um
alla steypu og múraravinmu
Var það umfangsmikið starf, en
var prýðisvel af hendi leyst,
eins og allt það, er hann tók að
sér. Gerðist Albert úr því sjálf-
stæður múrarameistari, tók að
sér byggingar á eigin ábyrgéf
— síðar í félagi við Böðvar
Bjarnason trésmíðameistara;
voru þeir samrýndir félagar og
góðir vinir.
Ekki auðguðust þeir á þeim
verkum, er þeir tóku að séi"
fyrir ákvæðisverð, því að hin
villta samkeppni samrýmist
ekki samvizkusemi og vand-
virkni. Allt líf Alberts heitins,
frá því hann var barn og þar
til hann fórst, var barátta fyr-
ir daglegu brauði, hin marg-'
endurtekna saga alþýðumanns-
ins.
Albert og Sigurþór bróðir
minn kynntust í vor, og urðu
þeir vinir við fyrstu kynni. Þtir
voru báðir hrekklausir dreng-
skaparmenn. I frístundum sín-
um fóru þeir margar ferðir
saman til veiða, á smábát, sem
Sigurþór átti. Þeir höfðu á-
kveðið ,að fara ekki fleiri ferðir
í haust, en af einhverjum á-
stæðum breyttu þeir þessari á-
kvörðun, og átti þetta að vera
lokaferðin, og átti aðeins að
fara stutt. Þeir fóru um kl. 6
að morgni 23. pkt. af stað.
Þeir komust aðeins rétt inn
fyrir Hvalfjarðarmynni. Kl. að
ganga 4 lögðu þeir af stað
heimleiðis. Þá fór veður versn-
Framhald á 4. síðu.