Þjóðviljinn - 06.01.1939, Síða 3
P JÖÐVILJINN
Föstudag’urinn 6. jan. 1939.
Nýjasta ojtt
frá I. R.
Í.R. hefur látið skíðaíþróttina
mjög til sín taka upp á síðkast-
ið eins iog kunnugt er, með
kaupum Kolviðarhóls, bygg-
ingu skíðastökkpalls o. fl. Pað
nýjasta sem þeim hefur dottið
í hug, eftir því sem frétzt hefi
ur, er að þeir ætli að kloma
fyrir skíðadráttarbraut til að
draga fólkið upp á hábxækk-.
urnar. Ætla þeir að nota tit
þess bílmótDr, sem komiðverð-,
ur fyrir á ákveðnum stað. Verð-
ur þessi dráttarbraut ábyggi-;
iega kærkomin því fólki sér-
staklega, sem æfir krókahlaup,
því þetta sparar erfiði og gef-
ur aukna möguleika til betr'i,
þjálfunar í krókahlaupi.
Svipaðar brautir eru víða not-
aðár í Alpafjöllunum og má
sennilega setja í samband
við það, að þaðan kbrna beztu
krókahlauparar heimsins.
Stígur í. R. þarna stórt spor
í rétta átt til fullkomnunaf
skíðaíþrótiinni. Þeir sem komá
slíkri nýung upp, láta sér ekki
allt fyrir brjósti brenna.
Erlendar íþróffa-
fréffír
Brezka meistarakeppjnin í list-x
hilaupi á skautum fór nýlega
fram í London. f kvenflokkn-
um varð sigurvegari Cecilie
Colledge. Önnur varð Megan
Taylor, sem tók heimsmeistara-
titilinn frá Colledge s. I. ár.
Colledge fékk 1887,5 stig, en
Taylor 1838,5 stig. Var keppn-
In mjög hörð. Sigurvegari í
flokki karhnanna var Graham
Sharp, 1859,5 stig, en annar
Fred Tomlins, 1777 stig. I sam-
hlaupi sigruðu Cliff-hjónin.
Portúgal hefur ákveðið að
senda skíðamenn til stúdenta-
íeikjanna í Prándheimji í veturx
Mun þetta vera í fyrsta skipti
sem Portúgal tekur þátt í al-
þjóðlegu skíðamóti.
Hnefaleikarinn brezki, Tom-
my Farr, sem barðist í fyrra
við Joe Louis með góðum á-
rangri, barðist nýlega við Lon
Nova og tapaði á stigum. Hann
var oft hætt kominn og munaði'
minnstu, að hann væri sleginn
„knock out". Með leik þess-
um fær Nova réttinn til að berj-
ast við Max Baer um réttinn.
til að berjast við Joe Louis um
heimsmeistaratignina í þunga-
vigt næsta sumar.
Samkv. franska blaðinu Par-
ís Soir á negrahöfðinginn O-
keto frá ensku nýlendunni Ug-
anda að hafa kastað spjóti á
móti þar, ekki skemmra en
m.! Spjótið er sagt lítið
eítt þyngra en venjulegt spjótj
Frá sama stað er lík'a sagt frá
því, að negrar þar fari 2,20—
2,30 m. í hástökki. Sé þessi
sögusögn söinn, má búast við,
að þessir afríkönsku negrar
veki athygli í Helsingfors, ef
þeir fara þangað.
Fyrir nokkrum dögum birtist hér í blöðum og útvarpi
stutt fregn frá Þýzkalandi þar sem tilkynnt er, að íþrótta-
starfsemin þýzka skuli vera hluti af þeirri pólitísku stefnu,
sem þar er ráðlandi og vera skipulögð sem pólitísk starf-
semi innan vébanda nazistaflokksins, eins og það er orðað.
Það virðist sem þessi fregnhafi ekki vakið neina athygli, enda
var hún stutt iog laggóð. íþróttastarfsemin er nú útbreidd með
al allra menningarþjóða heimsins. Hún nýtur virðingar og
trausts allra, sem henni kynnast, vegna þess líkamlega menn-
ingargildis, sem hún hefur, og ekki hefur hún sízt notið al-
mennra vinsælda vegna hlutleysis síns. Ég segi hlutleysis
vegna þess, að þar getur fátæki maðurinn jafnt notið sín sem
sá ríki. Þar geta staðið saman í fylkingarbrjósti menn með fjar
skyldustu skoðanir, án þess að slíkt valdi truflun. I samstarfi
þjóðanna í íþróttamálum sem er orðið mjög mikið, hefur ver-
ið gætt hins ýtrasta hlutleysis' í pólitík, og hafi komið fyrir
að útaf hafi verið brugðið, hefur það verið fordæmt af öll-
um sönnum íþróttamönnum. Það kemur því greinilega fram,
að megin undirstaða íþróttanna sé sameining fólks og fjar-
skyldra þjóða á vegum friðar og jafnréhis án íhlutunar sér-
stakra stjórnmálaflokka eða skbðana. Sú skoðun hefur. oft
komið fram í erlendum íþróttablöðum að alþjóða-olympíu-
nefndinni bæru friðarverðlaun Nobels, og sú skoðun er
byggð á því friðar- og hlutleysisstarfi sem íþróttahreyfingiri
vinnur að. Ég fæ því ekki betur séð, en þessi þýzka tilskipun
sé hreint bnot á friðhejgi íþróttanna í Þýzkalandi, og hnefa-
högg í andlit sannra íþróttavina. Sem mótmæli gegn þessu,
eiga íþróttasambönd annarra ríkja, og ísland að sjálfsögðu
líká, að slíta öllu íþróttasambandi við Þýzkaland, þar til
þessu hefur verið breytt.
I lögum Iþróttasambands Islands stendur um skilyrði félaga
fyrir inngöngu í Í.S.Í. — „enda séu þau ekki studd af stjórr
málaflokkum landsins, né séu ber að því að beita kröftum
sínum til stjórnmálastarfsemi eða séu á nokkuxu hátt kennd
við nokkra stjórnmálastefnu 9em uppi er í landinu".
Ég get ekki heldur séð, að samband við pólitískt íþrótta-
samband geti átt sér stað.
Nýr byrjendaflokkur
í íslenzkri glímu
Ágúsi Kirísíjánsson glímusníílíngnr kennari
Því ber að fagna, að Glímu-
félagið Ármann hefur nú ráð-
ízt í iað koma á stað byrjenda-
flokki í íslenzkri glímu.
Hin síðari ár hefur félagið
ekki séð sér fært að hafa nema
einn glímuflokk, sökum þess
hve lítil þátttaka hefur fengizt
í þessa íþróttagrein. I þcssuxn
eina flokki hefur orðið að æfá
saman byrjendur og þá, sem
lengra eru komnir, jafnvel þaul-
æfða glímumenn.
I öllum íþróttagreinum ier það
talið mjög óheppilegt ogstund-
um ómögulegt að æfa byrjend-
ur og æfða menn saman, og
svo er einnig um íslenzku glím-
una.
Þetta hefur stjórn Ármanns
séð og því hafizt handa til að
(reyna að auka áhugja manna
fyrir þessari fögru þjóðaríþrótt.
Sýning Hljðmsv. Heykja-
viknr á Heyl&skenunnnnl
Fyrir nokkmm árum varhún
íþróttagimsteinn þjóðarinnar,
hverjum ungum manni metnað-
|ur í að kunna hana, og enn í
dag á hún að vera öndvegisi
íþrótt einstaklinga og þjóðar,
I þeirri trú að svio megi enn
verða, hefur félagið ráðiðÁgúslj
Kristjánsson, glímusnilling ís-'
lands, sem kennara fyrir þenn^
an flokk og fengið leigða tvo
tíma á viku, á .mánudögum og
fimmtudögum, kl. 8 til 9 síð-
degis ííþróttasal Garðars Gísla-
sionar, Laugaveg 1 Bi(áður prsm.'
Edda). Er þar ágætur salurmeð
búningsklefum og baði.
Ungu Reykvíkingar og að-
kbmumenn! Notið þetta ágæta
tækifæri til að læra hinagömlu
og þjóðlegu íþrótt vora, ís-
lenzku glímuna. Byrjið straxog
* fylgizt vel með á æfingum.
Þiettánðsdnsleiknr
í K,~R,~húsími i hvöld feL 10
Mimid hína ágætu hSjómsvcáf K.-R.-hússíns.
Kveðjíð jólín og dansíð í K.-R.-húsínu.
Aðgöngumiðasala h’efst í K. R.-húsinu kl. 4.
Finrm ár eru nú liðin síðan
„Meyjaskemman" var sýnd
hér hið fyrsta sinn, og hefur
forgöngumönnunum func’iztþað
hæfilegt hlé, til þess að óhætt
myndi að bjóða Reykvíkingum
að horfa á hana enn á ný. Og
líklega hafa þeir haft rétt fyr-
ir sér. Á frumsýningunni ann-
an nýársdag var íullskipað hús
og leiknum mjög vel tekið.
Um það verður naumast
deilt, að sýningin er að þessu
sinni nrun fullkomnari en var
fyrir fimnr árum, og ber ýmis-
legt til þess: þjálfaðri hljóm-
sveit, fullkomnuð leikstjórn,
sem byggt gat á reynslu hinna
fyrri „Meyjaskemmu‘£-sýninga
og þeirra söngleika, sem síðap
hafa verið sýndir hér, og svo
betri samæfing leikendannaj
sem margir hverjir eru þeir!
sömu og áður. Síðast en ekki
sízt er þó þessi árangur að
þakka Sigrönu Magnösdótfur,
sem virðist beinlínis tilvalin í
hlutverk Hönnu og lék það
frísklega, fjörlega og eðlilega,
eins og með þurfti. Þetta hlut-
verk getur að vísu ekki talizt
erfitt, en það krefst hinnar réttu
persónu, pg Sigrún reyndist,
sem sagt, sú rétta.
Pétur Jónsson í hlutverki
Schobers yfirgnæfði að vanda
allt með söng sínum, og hefði
hann stundum mátt lægja róm-
inn lítið eitt, eins og til dæmis
þar, sem þau Sigrún syngja
tvísöng. Annars var Pétur ein
af aðalburðarstoðum söngleiks-
ins, þó að honum tækist varla,
eins vel í þessu hlutverki, að
því er hið Ieikræna snertir, og
Ragnari Kvaran um árið.
Gesti Páíssyni tókst jafnvel
enn betur upp í hlutverki
Tschölls gamla en áður, og
gervi hans var að þessu sinnf
eðlilegra, ekki eins afskræmt og
þá.
Um Kristján Kristjánssion má
einnig segja, að honum hafi tek^
izt öllu betur en hið fyrra sinn
í hlutverki Schuberts. Honurn
tókst furðuvel að bregða yfir
þessa persónu þeim geðþekka
blæ, sem við á, og hann gerði
Schubert ekki alveg eins aum-
ing'jalegan og áður. Annars er
Kristjáni nokkur vorkunn, því
að sjálfir leikritshöfundarnir {
fara mjög ósmekklega með
þessa persónu. Fyrir þeim hef-
ur auðsjáanlega vakað það fyrst
og fremst að afla leiknum vin-
sælda með því að kitla tára-
kirtla heimasætnanna og gam-
al-jómfrúnna í Vínarborg á
kostnað listatónskáldsins góða,
sem í örlögum sínum minnir
svo mjög á annað listaskáld,
sem okkur er kunnara úti hér á
Islandi. Þetta tókst furðuvel.
Eftir að tónskáldið er soltið til
Ibana, af því að tónlistarforleggj
ui-um Vínarborgar þótíi lögin
hans ekki kaupandi né útgáfu-
i hæf, sjá þeir sér leik á borði
safna sumum fallegustu perl-
unum úr verkum hans, Iáta
hnoða þar utan um smeðjulegri
ástarnollu, þar sem sjálft tón-
skáldið er haft að skotspæni,
og græða þar á milljónir. Millj-
ónirnar renna auðvitað í vasa
útgefendanna, sem tryggt hafa
sér ömiggan einkarétt, því að
tónskáldið getui * nú -ekki fram-
ar gert kröfu til ágóðahlutar,
Hugleiðingum eins og þess-
um er hvorki auðvelt né holt
að vísa á bug, þó að þessi
ganrla saga, sem ávallt er jafn-
Kristján Kristjánsson sem Schubert og Sigrún Magnúsdóttir
sem Hanna.
ný, spilli að nokkru ánægjunni
af þessum leik, sem annars er
fullur af fjöri og gamansemi
Vínarbúans, auk hinna heillandi
sönglaga Schuberts.
— Aðrir leikendur fóru yfir-
leitt smekklega með sín hlut-
verk, þó að söngkraftar væru
eðlilega nokkuð misjafnir. En
yfirleitt má segja um sýning-
una í heild, að hún hafi tekizt
ágætlega, og er það fyrst og
fremst því að þakka, hve vel
ofantalin fjögur aðalhlutverk
voru skipuð og hve vel hefur
verið til leikstjórnar vandað.
X.
VlðsMStask^áin. Atwlismii-' kanp
sýslaskrá ISSS er mú. i prentan.
Skráin nær yfir flestalla kaupstaði landsins.
Auk þess verður bætt við í skrána ýmsum nýjum köflum, þar á
meðal teikningum af öllum götum í Reykjavík, ásamt upptaln-
ingu allra húsa og lóða, er við götur liggja og tilgreint: lóðar-
stærð og mat á lóð og húsi, o. fl. o. fl.
Þeir, sem kynnu að vilja skrá ný atvinnu- eða kaupsýslufyrir-
tæki eða breyta skráningu og leiðrétta, eru vinsamlega beðnir
að senda tilkynningu um það sem allra fyrst í Steindórsprent
h.f., Aðalstræti 4.
Aftan tif í Viðskiftaskránni eru eyðublöð, sem gott væri að nota
til þessa.
Það, sem fram þarf að taka er:
Nafn manns eða fyrirtækis.
Gata og númer og talsími.
Hvers konar starfið er eða starfrækslan.
Eigandi, stjórn og framkvæmdastjóri, ef um er að ræða.
Og undir hvaða yfirskrift í Varnings- og Starfsskrá við-
komandi óskar að vera.
Skráning í Viðskiftaskrána er ókeypis með almennu letri.
Allar auglýsingar óskast sendar í
Stelndópsppemf it.f.
AÐALSTRÆTI 4. — REYKJAVÍK.
Foreldrar!
Ef þér ætlið að láta börnin yðar ganga í menta- eða gagn-
fræðaskóla, þá veitum við allan undirbúning á námskeiði
okkar.
Jóhann Sveinsson, cand. mag.
Hafliði M. Sæmundsson, kennari.
Sími 2455.
Verðlann
Teiknistofa landbúnaðarins efnir til verðlaunasamkeppni um
tillöguuppdrætti að húsgögnum í stofu á sveitaheimili. 1. verð-;
laun kr. 300,00, 2. verðlaun kr. 150,00, 3. verðlaun kr. 50,00.
5 rnanna dómnefnd úthlutar verðlaununum. Ti’lögum sé skilað
fyrir 1. apríl 1939; þær skulu vera dulmerktar, en nafn og
heimilisfang fylgi í lokuðu umslagi. Þátttakendur vitji nánari
upplýsinga á teiknistofuna.
Teifessístofa landbimaðairífis
Búnaðarbankanum, Reykjavík.