Þjóðviljinn - 11.01.1939, Blaðsíða 3
Þ JÖÐ VIL JINN
Miðvikudaginn 11. janúar 1939
iBEZSTSBS
Island fyrir alþýðuna
Undanhaldíð gagnvart ySirsfétt Reykía*
víkur hefur gert „sfíórn hínna vínnandí
stéffa" að skrípamynd.
Eti mcd vífMlegis samsíarfl alþýdusíéííanna er liægf
ad 'láfa allfí alþýdu á Islandí líða veL
Fyrir tæpum 5 árum var sam-
vinna Framsóknar ng Alþýðu-
flokksins hafin um „ríkisstjórn
kinna vinnandi stétta“ eins og
Alþýðublaðið kallaði hana há-
fíðlega. Nú er hún aðeins köll-
Uð svo í háði. .Stjórnin átti í
höfuðatriðum að framkvæma 4-
ára áætlunina, og tilgangur
hennar var að útrýma atvinnu- I
leysinu. — Allt hefur þetta mis-
heppnazt og frammi fyrir rúst-
um hruninna framtíðarhalla, er
til vortui í vonum fólksins, stend-
ur nú þjóðin frammi fyrir því
að velja um, hvort hörfa skuli
til baka, kasta sér í fang aftur-
haldssamrar ,,þjóðstjórnar“ —
margfalt verri, en þeirrar, sem
ríkti 1932—34 — eða hvort
aftur skal reyna að stíga fram
á við, en rétt, djarft og hik-
laust. Og til þess að geta valið,
verður alþýðan að gera sér ljóst
á hverju samsteypustjórn Fram-
sóknar og Alþýðuflokksins
strandaði þótt hún færi að
ýmsu leyti myndar'lega af stað.
Sú stjórn strandaði á banka-
málunum strax vorið 1935. Hún
þorði ekki að gera upp gömlu
óreiðuna, gerðist þvert á móti
samábyrg og lét því undirrót
fjármálaspillingarinnar haldast.
Og er stjórnin hafði strandað
á þessu sk’eri, hraktist hún eðli-
lega á hvert á fætur öðru.
Stjórnin strandaði á Kveld-
úlfsmálinu. Hún tapaði þarþeg-
ar á hölminn kom, þrátt fyrir
stór orð Jónasar og fögur lof-
orð.
Stjórnin laut í lægra haldi
fyrir heildsölunum. Hún þorði
að vísu að láta kaupfélögin
njóta réttlætis, en hún gerði það>
á kostnað smákaupmannanna,
en heildsalastéttin hefur aldrei
grætt eins og á stjórnarárum
þessarar „samvirmu“stjórnar.
Stjórnin strandaði á atvinnu-
leysismálinu. Atvinnuleysið er
meira nú en þegar hún tók við
og fer versnandi. Hún hefui
aldrei þorað að ráðast í aðgerð-'
ir, sem kæmu stórframleiðslu
íslandls í öruggt hiorf, því leið-
andi menn hennar hafa alltaf
einblínt á smáreksturinn sem
einu björgina, en óttazt stór-
reksturinn.
Stjórnarflokkarnir þóttust
vilja skapa örugga afkomu og
jafnari lífskjör fyrir verkamenn
og bændur. Peir hafa skapað
öruggari gróða fyrir hcildsal-
ana og nýja yfirstétt embættis-
manna. — Þeir þóttust vilja
skapa meira- réttlæti. Pcir hafa
gert póliíísku spillinguna að
föstu kerfi. — Peir þóttust ætla
að tryggja alþýðunni yfirráðin
yfir atvinnutækjunum. En þeir
eru nú að ná sér sjálfir í at-
vinnutækin, til að reyna að
sér yfirráðln yfir alþýð-
unni.
bannig er virkileikinn. Pað
er ekki vinstri pólitíkin, sem
hefur brugðizt og flutt fólkinu
vonbrigði í stað uppfyllingar
vonanna. Pað eru foringjar
stjórnarflokkanna, sem. hafa
brugðizt fólkinu. Þeir hafa enga;
vinstri pólitík framkvæmt.
Það, sem Iiggur fyrir íslenzku
alþýðustéttumum nú, er þvíekki
að hopa á hæl og gefast upp
og missa trúna á stefnu sína og
sigur hennar, heldur að skipu-
leggja nú krafta sína og skipu-
leggja þar með sigurinn.
íslenzka alþýðan getur með
samvinnu sinni — verkámanna,
bænda, fiskimanna og milli-
stétta bæjanna — ráðið bót á
þeim vandamálum ,sem nú
steðja að.
Islenzka alþýðan getur tryggt
öllum atvinnu. Næg bíða verk’-
efnin: Endurnýjun togarafloians
og aukning vélbátaflotans, bygg
ingar í stórum stíl, hagnýting
málma og byggingarefna lands-
ins, hitaveita, rafveítur, garð-
rækt o. s. frv.
íslenzka alþýðan getur sjálf
tekið verzlunina í sínar hend-
ur. Hún þarf ekki að láta heild-
salana ræna af sér 5 milljónum
króna á ári. Hún getur notað
það fé til framkvæmdanna, sem
ráða bót á atvinnuleysinu.
Islenzka alþýðan getur þurrk-
að burt fjármálaspillinguna, —
breytt bankapólitíkinni í það
að verða heilbrigð yfirstjórn á
atvinnurekstri landsins. frá því
að vera það aflið, sem heldur
niðri heilbrigðum framförum,
til að dylja gömlu afglöpin og
afleiðingar þeirra sem lengst.
Islenzka alþýðan, sem nú
fylgir Sósíalistaflokknum, Al-
þýðuflokknum, Framsókn og
„Sjálfstæðisflokknum“, vill að
mestu leyti hið sama. En yfir-
stéttin í Reykjavík hefur fram
að þessu megnað að hindra
það, að það ,sem þessi alþýða
vill, verði framkvæmt. Fyrst
hindraði hún það með því að
ráða foringjum „Sjálfstæðisfl“,
meðan hann hafði meirihluta.
Nú heíur hún hindrað það með
því að spilla ráðamestu leið-
togum Framsóknar og Alþýðu-
flokksins. — Alþýðuflokkurinn
kíofnaði, af því vinstri menn-
irnir risu upp gegn þessari spill-
ingu — og með sameiningu
vinstri mannanna og Kommún-
istaftokksins skapaðist það afl
— Sósíalistaflokkurinn, — sem
getur knúið kröfur alþýðunnar
fram, ef alþýðan fylkir sér ein-
huga um hann. I Framsókn ólg •
ar einnig og meðal fylgjenda
„Sjálfstæðisflokksins“ brciðist
óánægjan út, ekki sízt meðaft-
urhalds- og atvinnuleysisstefnu
fliokksins í bæjarstjórn Reykja-
víkur.
pað ,sem íslenzku alþýðuna
vantar til að framkvæma kröfur
símar, er vald. Samt eru þeir
flokkar ,sem segjast vilja fram-
k’væma kröfur hennar í meiri-
hluta á þinginu. pað, sem ís-
lenzka alþýðan þarf, er að taka
völdin í sírium eigin flokkum,
en láta foringja þá, sem hafa
beygt sig fyrir auðvaldi Reykja-
vikur, ekki haía þau lengur.
Pað er þetta ,sem Sósíalista-
flokkurinn skorar á alþýðuna að
gera. Pá vinnur hún um leið
ísland fyrir alþýðuna .
Þiogtiðindi stofopmgs sóslallsta-
■innMwainirai i m ***> -*•-■>■»»»
flolliis ero dú lomía út.
Hwsr eiiiasti meðtímiir flokfesins
fsatrf ad elgnast bóklsia.
Flokkur okkar, SósíaUstaflokk
urinn, er að því leyti frábrugð-
inn öðrum stjórnmálaílokkum
á íslandi, að hann er skipaður
mönnum með ákveðna skoðun
á stjórnmálum og þjóðfélagsmél
um, sem verður að byggjast á
þekkingu, hann er skipaður
mönmum, sem hafa fast mótaða
lífsskoðun, mönnum sem eru
meðvitandi sósíalisíar. Pólitík
Sósíalistaflokksins er ekki á-
kveðin og framkvæmd af mokkr-
um forustumönnum; hún er á-
kveðin og framkvæmd af með-
limunum sem heild. Flokkur
iokkar verður því að gera þa
kröfu til allra meðlima sinna
að þeir séu þiátttakendur í hinuj
lifandi starfi flokksins iog að
þeir afli sér þeirrar grundvall-;
arþekkingar, sem er nauðsynleg
hverjum sósíalista.
það er því fyrst >og fremst
napðsynlegt að hver einasíij
fliokksmaður þekki stefruskrá
og starfsskrá og aðrar ályktan-
ir Sósíalistaflokkslns til hlítar.
Hver einasti flokksmaðrjr þarf
að eiga þingtíðindi sfofnþings-
ins, þar sem allt þetta er að
.finna.
þaM fást á skrifstofu Sósíal-
istafél. Rvrkur, Haírarstræti 21,
skrifstofu miðstjórnar, Grund-
arstíg 4 iog í Heimskringíu,
Kosta 1 krómu. i
Súðin var tekin úr Slippnum
í gær, en þar hefur hún verið
til áðgerðar að undanförnu eft-
ir að hún tók niðri vestur á
Gilsfirði í síðustu för sinni fyr-
ir jólin.
Samvirtnan, desemberheftið,
•er nýlega kbmið út. Biríir það
meðal annars grein eftir Jónas
Þorbergsson útvarpsstjóra, er
hann nefnir sannvirði vinnunn-
ar. Auk! þess er í heftinu fram-
haldssaga og ýmislegur annatj
fróðleikur.
Pétur Sigurðssiosi ílytur erindi
í Alþýðuhúsinu á fimmtudags-:
kvöldið. Erindið fjallar um sér-
menntun karla og kvenna, hjú-
skap, atvinnuleysið og þjóðar-
uppeldið.
Málfundaklúbburian heldur
umræðufúnd í kvöld kl. 8,30 í
Hafnarstræti 21, uppi. j
Bindlnushreyfingm og
Gððteihnlarareglan
Fr,amh. af 2. st@u.
bindindishreyfing nokkru eldri
en Góðtemplarareglan, og má
segja að þær félagslegu tilraun-
ir, sem hér höfðu verið gerðar
um mokkra áratugi á undan hafi
rutt Reglunni braut og kynnt
bindindisstarf meðal þjóðarinn-
ar. En öll hin •einstöku félö’g
liðu þó tiltölulega fljótt undir
lok, svo að það er fyrst með
því að Reglan tekur starfið upp
að hægt er að tala um skipu-
lag, festu og hgild í bindindis-
starfseminni hér.
Það eru nú rétt 55 ár síðan
Reglan kom hingað til lands-
ins. 10. janúar 1884 var stúkan
„Isafold" nr. 1 stofnuð á Ak-
ureyri. Eékk Reglan þegar tals-
verða útbreiðslu morðanlandsog
vestan. Sumarið 1885 var fyrsta
stúkan, („Verðandi" nr. 9),
stofnuð hér í Reykjavík; og á
Jónsmessu árið 1886, var Stór-
stúka íslands stofnuð.
Næst eftir stofnun Reglunn-
ar verður að telja stofnun Stór-
stúkunnar þýðingarmesta at-
burð í sögu bindindishreyfing-
arinnar hér á landi. Með henni
fékk bindindíshreyfingin fasta
miðstjórn og miðstöð fyrir
bindindisútbreiðsluna. I lífiþjóð
arinnar verður það einnig að
telja sögulegan atburð, að hún
uppfrá því telst til þeirra þjóða,
sem taka þátt í alþjóðlegu,
skipulögðu samstarfi til þessað
útrýma áíengisbölinu úr heim-
inum. íslenzka þjóðin er of fá-
menn og afskekkt til þess að
hennar gæti í samspili ríkjanma
í alþjóðlegum viðskiptum yfir-
leitt. En í þessu samstarfi .sem
byggt er á bræðralagi, mann-
úð og vilja til aukins sameigin-
legs þroska og göfgunar rnann-
kynsins, hefur hún staðið með
sæmd við hlið hinna stærri
þjóða, og það svo, að í tiltölu
við fólksfjölda heíur engin önn-
ur þjóð gert betur. Það er þyí
engum efa bundið, að þátttakan
í hinum alþjóðlegu samtökum
bræðralags Góðtemplara hefur
•ekki verið lítill eða þýðingar-
laus þáttur í að afla íslenzku
þjóðinni sem heild virðingar og
viðurkenningar margra hinna
mætustu manna í öllum siðuð-
um löndum.
Einnig inn á við er hér að
ræða um þýðingarmikinn at-
burð. Reglan >e'r í uppruna sín-
um útlend og alþjóðleg. En hún
hefur sannað það, að hið út-
lenda og alþjóðlega getur orðið
að þjóðlegiu verðmæti, því hún
hefur fest djúpar og víðtækar
rætur í sjálfu þjóðlífinu, er það
fyrst og fremst að þakka lýð-
ræðinu, sem hefur gert henni
mögulegt að samrýmast hugs-
unarhætti og þjóðlegum kröf-
um- í beztu merkingu.
V.
Eins og áður hefur verið vik-
ið að, þá hefur Stórstúkan frá
því hún var stofnuð, haft for-
göngiu fyrir og borið ábyrgð
á bindindisstarfinu. Pað yrði of-
langt mál að rekja þá sögu alla ’
hér eða nefna nöfn þeirra, sem
lagt hafa krafta sína sérstaklega
fram fyrir málefnið. En í raun
og veru er hér að ræða um;
svo mikið og margþætt starf,
að það er erfitt að gefa þeim,
sem þekkja það ekki, verulega
hugmynd um það í fáium orð-,
um. Sem dæmi má nefna, að
þegar Stórstúkan varð 50 ára
var gerð tilraun til að reikna
út, hvað félagar Reglunnar
sjálfir hefðu lagt fram beinlín-
is í peningum. Eftir því sem
næst varð komist, höfðu þau
framlög numið einni og hálfri
milljóri króna, en mjög mikil
líkindi eru til að ekki hafi ver-
ið hægt að finna nærri allt, svo
að framlögin hafi raunverulega
verið mun meiri. — Og hverju
myndi þá nema öll vinna ,sem
gefin hefur verið? Á sama tíma
var tillag þess opinbera iil bind-
indisstarfseminnar orðið 160
þúsund krónur.
Störfin hafa allan tímann ver-
ið þríþætt: Bindindisboðun, Iög-
gjöf og þjóðaruppeldi á bind-
indisgrundvelli, og skal nu far-
ið nokkrum orðum um hvern
af þessum þáttum út af fyrir
sig-
Bindindisboðunin hefur farið
fram á líkan hátt allan tímann,
og hafa að því starfað bæði
sjálfboðaliðar .og fastir starfs-
menn ,sem ráðnir hafa verið
til þess um lengri eða skemmri
tíma. Hafa þessir menn ferðazt
um landið, haldið samkbmur og
fyrirlestra, stofnað stúkur og
hlynnt að annarri bindindisstarf
semi eftir föngum. Hafa þeir,.
sem þetta hafa framkvæmt oft
orðið að leggja mikið á sig fyr-
ir lítið kaup og stundum kann-.
ske lítið þakklæti. En þeir hafa
ekki guggnað við það.
Félagafjöldi hefur verið
nokkuð mismunandi. Hæsta fé-
lagatala var um áramótin- 1927
—1928, rúmlega 11 þúsund í
báðum deildum Reglunnar, er
það lang hæsta félagatala, sem
nokkur Stórstúka, í nokkru landj
hefur haft í hlutfalli við íbúa-
tölu. Á næstu árum fækkaði fé-
lögum allört, og þótti þá mörg-
um — einkum meðal þeirra,
sem andstæðir voru starfsemi
Reglunnar að líklegt mundi
vera að hún nú hefði leikið
hlutverk sitt til enda hér , á
landi. En nú munu allar slíkar
raddir þagnaðar. Á síðustu ár-
urn hefur bæði stúkum og fé-
lögum fjölgað til mikilla muna.
I byrjun ársins 1935 voru fé-
lagar 5761, 1936: 5843, 1938:
7848. Skýrslur eru ekki komnar
enn fyrir síðasta ár, svo að
enn er eklci hægt að segja um
fjölgun á árinu. En síðan stór-
stúkuþing var haldið; í s. 1. júní
hafa 11 nýjar stúkur tekið til
starfa víðsvegar á landinu. —
Petta virðist benda til áð Regl-
an sé nú stödd í jendiurnýjun ogi
ö>*um vexti.
Árangurinn af starfi Reglunn-
ar og áhrifum á hugsunarhátt-
inn sést mjög snemma í bind->
indislöggjöf þjóðarinnar. Peg-
ar Reglan var stofr.uð var hér
eiginlega engin bindindislög-
gjöf, en þegar löngu áður en
fyrri bannatkvæðagreiðslan fór
fram, var þessi löggjöf orðin
talsvert fullktomin miðað við
önnur lönd á sama tíma. Eri
þegar á fyrstu árum stórstúk-
unnar var baráttan fyrir algeru
banni hafin og síðan á hennií
hert þangað til takmarkinu var
náð. *En eftir það snýst lög-
gjafarbaráttan meira í vörn fyr-
ir lögunum en ‘sókn, þangað til
bannlögin voru að fullu numin
úr gildi. — Stórstúkan mun þó
jafnan berjast fyrir kröfunni um
sem fullkomnasta löggjöf gegn
ofdrykkju og áfengisböli.
Að nokkru leyti vegna lög-
gjafarbaráttu sinnar, en þó
meiira í útbreiðslu- >og fræðslu-
skyni hefur Stórstúkan gefið út
blöð, ritlinga og bækur. Hef-
ur útgáfustarfsemin verið tals-
vert mikill þáttur í starfi henn_
ar alla tíð. Nú gefur hún út
barnablaðið Æskuna, sem er
af öllum talið prýðilegt barna-
og unglingablað, bæði að efni
og frágangi. Á vegum Æsk-
unnar hafa nú hin síðari ár
verið gefnar út allmargar
barna- og unglingabækur, með
það fyrir augum, að sjá börnum
og unglingum landsins fyrir
hollum og góðum bókakosti.
Hefur það fyrirtæki orðið vin-
sælt.
Fyrir nokknu síðan var um
það rætt, að stúkurnar ættu
einnig að taka nokkurn þátt í
ræktun íandsins; einkum að
beita sér fyrir trjárækt. Nú er
hafin tilraun með það af stúk-
um hér í Reykjavík. Haía þær
fengið á leigu nokkurt land hjá
bænium, og var á s. 1. hausti
hafinn undirbúningur með
ræktun þess. Unnu sjálfboða-
liðar — yngri og eldri — með
miklum áhuga og dugnaði og
mun ekki líða á löngu áður en
þar er kominn góður gróðrar-
reitur. Væntanlega kíoma fleiri
á eftir.
En hér hefur farið eins og
víðar annarsstaðar í löndum,
þar sem Reglan starfar, að
hugirnir beinast meira og meira
að sjálfu þjóðaruppeldinu. —
Fræðsluhringa- eða námsílokka
hreyfingin er hin mesta al-
þýðuhreyfing, sem r.afn Al-
þjóðareglunnar er tengt við, því
það var innan vébanda hennar
í Svíþjóð, sem sú hreyfing fékk
það snið, sem gaf henni orku
til að fara sigurför þar í lantíi
og víðar. Stórstúkan hefur gert
talsvert til að kynna þá hreyf-
ingu og koma henni á hér á
landi. Gaf hún út rit um hana
með all ýtarlegum leiðbeiming-
um. En inrian Reglunnar sjálfr-
ar hefur orðið minna úr hreyf-
ingunni en skyldi, og veldur þar
sama um, fjárskortur, en þó
einkum — hér í Reykjavík —
ónóg og afar óhentug húsa-
kynni. En þar liggur afar stórt
verkefni fyrir ,því með því
sjálfsuppeldi, sem hreyfingin
hcfur í för með sér fyrir ein-
staklingana, mun skapast nýr
þáttur menningar, nýtt viðhorf,
sem útilokar áfengisnautn. —
Hér er reyndar verkefni —ekki
fyrir Regluna eina ,heldur fyr-
ir alla. En það er á slíkum
grundvelli, sem bræðralagshug-
sjón Reglunnar kemur bezt í
Ijós — og á grundvelli mann-
úðar, samstarfs og samhjálpar,
sem sú hugsjón mun sigra í
heiminum.
SÓSÍALISTAFÉL, RVÍKUR.
SKMPSTOFA fél®gsísss
eir I HafttAifstirœfí 21
Sími 4824.
©pin alk virka eUtga frá
kl. 2—7 e. h.
Fðhjjsm&Hn em ámsrsr.tir um aS
tooma á strsfsiofeem o£ gr^íS-a
gjSM s2n.
Þmr léhjHii—, aeffl <MÁ haía
fenffíð skírteini geis viíjað
þeirra á skrfMslóBð.
vrjimmi.