Þjóðviljinn - 26.01.1939, Qupperneq 4
ss t\fý/öí5ib ss§
Dnlarfalli
hringnrlnn
Amerísk stórmynd! í 2 köfl-
lum, 20 þáttum.
öll myndin sýnd í kvöld.
Mynd þessi var sýnd hér í
desember í tvennu lagi, og
sáu hana þá færri en vildu
verður hún því eftir ósk
margra sýnd öll í leinu
í kvöld.
Börn fá ekki aðgang.
Orrbopglnnl
Næturlæknir: Karl Jónasson
Sóleyjargötu 13, sími 3929.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur-apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unn.
Útvarpið í dag:
10.00 Veðurfregnír.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnlr.
18.15 Dönskukensla.
18.45 Enskukennsla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Lesin dagskrá næstu
viku.
Hljómplötur: Létt lög.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Fjárhagurinn
1938. — Eysteinn Jónssion
fjármálaráðherra.
20.45 Hljómplötur: Píanólög.
21.00 Frá útlöndum.
21.15 Útvarpshljómsveitin leik-
ur.
21.40 Hljómplötur: Andleg tón-
list.
22.00 Fréttaájgrip.
Hljómplötsur: Létt lög.
22.15 Dagskrárlok.
Fiomar dyggðlr verða sýndan
í kvöld kl .8. Næsta sýning er;
á föstudag og hefst hún kl,
8.30 vegna þess að sölubúðir
ern þá opnar til kl. 8.
þlÓÐVIUINN
Nemenda&ambands Verzlunarskóla íslands verður haldinn i
Oddfellow-húsinu niðri kl. 8 \ kvöld. STJÓRNIN.
Ve$na flutnínga veröur
bankínn lokaöur laugard.
28. janúar.
Útvegsbanki Islands
Skemmfíklúbburínn
Kvöldstjarnan
Dansleikur í kvöld kl. 9y2 á Royal.
Aðgöngumiðar aðeins á kr. 1.50 seldir við innganginn.
Húsið lokað kl. liy2. Góð músík.
Ármenningar! Mætið vel á
g'úmuæfingar í kvöld kl'. 8 í II.I
fl. og kl. 9 í I. fl.
Karlakór verkamanna. 1. og
i 2. tenór. Munið æfinguna f
* kvöld. ^ 1
j
I
i Framhaldsstofnfundur Nem-
p
endasambands Verzlunarskóla ís
lands verður haldinn í Oddfel-;
low-húsinu niðri kl. 8 í kvöld..
Eysteinn JónsSDn fjármálaráð
herra flytur erindi í útvarpið
kl. 20.15 í kvöld lum fjárhags-
afkomuna 1938.
Trúlofun. Nýlega opinberuðu
trúbfun sína, ungfrú Guðrún
Árnadóttir, Þórsgötu5 ogKrist-
ján Jóhannesson stud. med.
Muníð leshríngína.
Leshringur Æskulýðsfylking-
arinnar ium sósíalisma og þjóð-
félagsmál verður í kvöld kl.
8y2 niðri í Hafnarstræti 21.
Félagar, mætið allir og stund-
víslega.
Skóla-Ieshringur Sósíalista-
I fLokksins hefst í kvöld kl. 5y2
fniðri í Hafnarstræti 21.
Pátttakendur áminntir um að
mæta stundvíslega.
Leshringur Sósíalistaflokksins
— um sósíalismann og stefnu-
skrá fLokksins — hefst annað
kvöld, föstudagskvö'ld, kl. 8y2
í Hafnarstræti 21. Allir þeir, |
sem hafa skráð sig í leshring- |
inn og þeir aðrir, sem vilja, i
vera með, eru hvattír til að
mæta — og það stundví$lega.
Firá Spání
FRAMHALD AF 1. SÍÐU.
ina. Öll flutningatæki, sem
hægt er að ná í, hafa verið tek-
in í notkun. Gert er ráð fyrir,
að BarceLonastjórnín muni reyna
eftir því sem unt er, að endur-
skipuleggja hergagnaframleiðsl-
íuna í BarceLona norðar í fylk-,
inu.
Síafford Cripps
FRAMHALD AF 1. SIÐU.
Hann var opinber ákærandi í
ráðuneyti Mac Donalds 1930—
31, en sagði af sér vegna ágrein
ings við stjórnina. Hann hefur
um niokkuð skeið verið foringi
vinstri arms VerkamannafLokks-
ins og barizt öflugast fyrirsam-
fylkingu gegn „þjóðstjórninni”
Fornar
dyggöír
Framhald af 3. síðu.
K ' •' - ••
eru borgaðar með fullu húsi,
hlátri og peningum. Sú reynslá
er dómur um Reykvíkinga al-
mennt, en ekki svo mjög um
höfunda Fornra dyggða.
En hvað um leiklistina sjálfa?
Pað er annars ósanngjamt að
vera að tala um list í þessu sam-
bandi. Hvernig eiga dauðþreytt-
ir banka- og búðarþjónar að
framleiða list á leiksviðinu? En
því ber ekki að neita, að ýmsir
þeir ágætu menn, sem við leik-
starfsemi fást hér, sýna oft og
tíðum betri tilþrif en búast
mætti við eftir atvikum. Þess-
ara tilþrifa gætir cinnigj í FomJ
um dyggðum hjá einstaka leik-
jara, t .d. Arndísi Björnsdóttur,
Sigrúnu Magnúsdóttur og
Tryggva Magnússyni. Hinsgæt-
ir þó miklu meira, að á leiksvið-
inu komi fram „kómískar fígúf-
ur“, sem eru ekkert „kómísk-
ari“ þarna en hversdagslega
heima hjá sér. Og stundum
snýst leikurinn upp í afkáraleg
skrípalæti. Þá skemmta leikhúss
gestir sér vel.
Fornar dyggðir voru sýndar
30 sinnum fyrir fullu húsi í fyrra
Þá var „miodelF' 1938. Senni-
lega gerir modell 1939 sömu
„lukkuna", því það er hvorki
verra né betra en modellið í
fyrra, og Reykvíkingar eru
sennilega hvorkí verri né betri
len í fyrra. A.
GömbfSib %
Vér héldum
heím
Áhrifamikil og listavel leik-
in amerísk stórmynd, gerð
eftir samnefndri skáldsögu
hins heimsfræga rithöfund-
ar
Erich Maria Remarque.
Aðalhlutverkin leika:
JOHN KING,
RICHARD CROMWELL
BARBARA REÁD
Böm innan 14 ára fá ekki
aðgang.
Rcvían
Fornar
dyggðír
Modell 1939.
verður leikin í kvöld kl. 8
stundvíslega.
Aðgöngumiðar seldir í
Iðnó eftir kl. 1 í dag.
Næsfa sýning
FösfudL kL 8,30
Aðgöngumiðar seldir í
Iðnói í dag kl. 4—7 og eftir
kl. 1 á morgun.
i Salnið áskrifendnm!
Aikki /\ÚS
lendir í acfintýrum.
Soga I mjyadum
fyrir bðmin.
61.
Vertu ekki með hnífinn alveg upp í hökunni á mér. Annars
eiti ég Rati. Ég viona að þið séuð ekki mannætur, góðu
errar, og ef þíð skylduð vera mannætur, ætla ég að vona
ð bið séuð ekki svaneir!
Magga á ekki sjö
dagana sæla, en —
hVer veit nema að
þeir gangist upp við
kvenlega blíðu.
Hvað á þetta að þýða? —
Komið með mér. Konungurinn
vill alð þið komið öll til mið-
degisverðar.
Skipafréttir: Gullfoss komfrá
útlöndum í gærkvöldi, Goðafbssl
kiom að vestan og norðan ígæil
Brúarfoss er á leið til Vest-
mannaeyja, Dettifioss ;er í Hull,
Lagarfoss ier á Akureyri, Selfossí
er á leið til útlanda frá Norð-
firði, Drpnning Alexandrine er
á leið til Vestmannaeyja frá
Khöfn, Súðin er á leið til Vest-
mannaeyja frá Homafirði.
Frá höfninni: Gulltoppur og
Bragi kiomu frá útlöndum í gærj
Lyra fór suður í KefLavík ígær-
morgun og kom hingað aftur í
gærkvöldi.
Aflasölur. Gyllir seldi afla
sinn í Hull í gær, 2171 vætt
fyrir 1475 stpd. Hilmir seldi
í Grímsby 1320 vættir fyrir
1198 stpd. og Venus á sama
stað fyrir 1525 stpd.
tþróttafélag Reykjavíkur efnir
til skíðaferðar upp að
Kjolviðarhéli í dag |og framveg-
X9 á þriðjudögum og fimmtu-i
dögum. Lagt verður af stað úr
bænum kl. 9 f. h. og tll bæj-
áiins kl. 4 e. h.
HansKirk: Sjómenn 13
þess að tala við prestinn um- En hann vildi mjög
ógjarnan gera ónæði.
— Hvað er yður þá á höndum ? spurði séra
Brink-
— Mig langaði til að spyrja yður að því, hvort
nokkuð væri því til fyrirstöðu, að séra Thomsen,
þarna að heiman, fengi að halda fundi í kirkjunni.
Við, sem komum að vestan, erum vön hans boð-
skap, og nú langar okkur mikið til að heyra hann
aftur.
Séra Brink gekk nokkrum sinnum fram og aftur
um gólfið. Hér í sínu eigin herbergi fann hann
sig reiðubúinn að leggja út 1 bardagann. Og þessi
litli sjómaður var næstum því dálítið hlægilegur í
fínu sparifötunum sínum og með allt of stóran
flibba. Nú var konan ekki viðstödd til þess að
segja vitleysur- Séra Brink bjó sig undir stríð
andans.
— Ég get hvorki né vil banna yður það, sagði
hann og stanzaði. En við skulum vera hreinskilnir
hvor við annan, Tómas Jensen. Ég skil hvert síefnir.
Þið fáið þann svæsnasta vakningaprédikara, sem
hægt er að finna. Ef þið hefðuð vald sem vilja, þá
rækjuð þið mig frá prédikunarstólnum.
— Það er ekki alveg út í bláinn sem þér segið,
viðurkeundi sjómaðurinn rólega.
— En er það nú rétt af ykkur að vekja ósam-
lyndi í sókn, þar sem fölk hefur hingað til lifað í
sátt og samlyndi? sagði presturinn- Við göngum
ekki gruflandi að því, hvaða kala, öfund og ill-
deilur þetta hefur í för með sér frá báðum hliðum.
Ef þið viljið stríð, þá skuluð þið fá stríð, og ég
stend með allan söfnuðinn og sóknarnefndina á
bak við mig. Þið vekið storm og fáið sjálfir barn-
ing. En takið þér nú eftir. Þegar við töluðum
saman i sumar, þá varaði ég yður við anda um-
burðarlyndisleysisins, og ég endurtek orð mín. Ég
ásaka ykkur ekki fyrir að þið berjizt fyrir því sem
er ykkur sáluhjálparatriði, Mig tekur sárt til þess
að sjá ykkur sitja í kirkjunni með vanþóknunarsvip
gagnvart hverju mínu orði. Þið megið hafa ykkar
meiningar. En við hin höfum leyfi til jxess að
skilja fagnaðarboðskapinn á okkar hátt. En öðru
vildi ég stinga upp á: Er það ekki bezt að þið
snúið ykkur annað í kirkjulegum efnum? Fyrir
sunnan fjörðinn hafa þeir fengið heímatrúboðs-
prest. Ef þið gætuð fengið leyst sóknarhaft ykkar,
þá væri ekkert fyrir ykkur að skreppa á mótor-
bát á hverjum sunnudegi yfir fjörðinn.
Tómas hristi höfuðið- Við sem erum frelsaðir,
eigum að vera þar sem guð hefur sett okkur. Að
leysa sóknarhaft er slæmur hlutur. Við eigum að
vera ■ söfnuðinum og vera salt hans. Ég vfl ekki
leyna yður því: Ég held að það sé hægt að vinna
rnargar sálir fyrir Drottin hér í sókninni.
— Þér þekkið ekki héraðið. Það gamla hefur
fest djúpar rætur í fólkinu.
— Þá verðum við að berjast og uppræta það-
Presturinn snéri nú bakinu að glugganum og
horfði á sjómanninn- Nei, svo sannarlega var þessi
maður ekki hlægilegur. Hann var magur og sina-
ber, liðugur eins og köttur, andhtið undarlega
milt og strangt. Honum var full alvara. Hann var
leiðtogi, ósveigjanlegur í blíðu, óbeygjanlegur í
stríðu, hygginn', skýr og þrár. Séra Brink fannst
hann allt í einu verða svo undarlega aflvana.
— Setjizt þér niður, Tómas Jensen, sagði han
og settist sjálfur við skrifborðið. Hvaðan kemur
yður kjarkurinn ? Hvernig dirfist þér að fordæma
j)á, sem eru annarrar skoðunar?
— Ég fordæmi engan, sagði sjómaðurinn. Ég
veit ekki einu sinni, hvort ég sjálfur verð for-
dæmdur. Ég hef bara eitt sem ég get haldið mér
að, og það er rödd Jesú í sjálfum mér. Ég field,
að yðar kenning leiði til glötunar. Eg veit bara
einn hlut: Ég hef fundið til náðarinnar og návist-
ar Jesú. Og það er ósk mín, að allar manneskjur
reyni það líka.
— Já, trúarreynslan, sagði séra Brink hugsandi.
Auðvitað, mér er Ijóst hvað þér meinið, en haldið
þér ekki að ég hafi haft mína trúarreynslu lílca ?
Þér megið ekki miskilja mig. Ég er ekki að tala
um bóklega þekkingu. Hún skiptir svo litlu máli,
og hvað veit ég, þegar öllu er á botninnn hvolft?
Það er eins og ég stingi nefinu niður i tunnu,
stundum þessa, stundum hina, og þefi dálítið af
iimihaldinu, en venjulegast verður maður að reiða