Þjóðviljinn - 27.01.1939, Page 4
ap t\íý/<3i ló'tb a§
DalarfRlll
hringnrinn
Amerísk stórmyndj í 2 köfl-
um, 20 þáttum.
öll myndin sýnd í kvöld.
Mynd þessi var sýnd hér í
desember í tvennu lagi, og
sáu hana þá færri en vildu
verður hún því eftir ósk
margra sýnd öll í leinu
í kvöld.
Börn fá ekki aðgang.
Orfborg!nni
Næturiæknir: Grímur Magn-
ússian, Hringbraut 202. Sími
3974.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur apóteki iag lyfjabúðinni Ið-
unn.
Útvarpið í dag:
10.00 Veðurfregnír.
12.00 Hádegieút\'arp.
15.00 Veðurfregnlr.
18.15 íslenzkukennsla.
18.45 Þýzkukennsla.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Erindi Fiskifélagsins: Til-
skipun um fiskiveiðar frá 1758
Lúðvík Kristjánssion ritstjóri.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Útvarpssagan.
20.45 Hljómplötur, Lög leikín
á oelló.
21,00 íþróttaþáttur: Þorstleínn
Jósepssan, rithöf.
21,25 Hljómplötur: Harmón-
íkulög.
22,00 Fréttaágrip.
22.15 Dagskrárlok.
Lestrarfélag kvenna. Bóka-
safnið er opið mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga kl. 4—i
iag mánudags og miðviködags-
kvöld kl. 8—9. Bókasafnið er á
Amtmannsstíg 4.
Farþegar með Brúarfossi til
útíanda vom þessir:
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Guð
ný Jóhannesdóttir með barn,
Ásta Christiansen, 11 ára, Jón
Björnsson, Van der Vlid og frú*
Pétur Guðmundsson, Sveinn
Kaaber, Sigríður Vernharðsd.,
Eva Vernharðsdóttir, Pála
Árnadóttir, Baldur Bjarnason,
Sigurbjörn Einarsson og nokkr-
ir útlendingar.
Skátafélag Reykjavíkur hélt
aðalfund sinn sunnudaginn 15.
þ. m. Félagið, sem er sameinað
úr skátafélögunum „Væringjar“
Dg „Ernir“, telur nú 610 félaga
að meðtöldum „Ylfingum“ og
starfar í 6 deildum auk skáta-
sveitar á Seltjarnarnesi.
Fundurinn kaus stjórn fyrir
félagið, og skipa hana:
Björgvin Þorbjörnsson, fé-
lagsforingi, í stað Leifs Guð-
mundssonar, sem baðst undan
endurkosningu, Daníel Gísla-
son og Hörður Jóhannesspn,
aðstoðarfélagsforingjar, Svein-
björn Þorbjörnsson gjaldkeri,
Þórarinn Bjömsson ritari.
Taflhópur ÆFR. Æfing i
kvöld kl. 8,30 í Hafnarstræti
21. Mætið stundvíslega. Takið
með ykkur nýja félaga.
Bifreið stolið. í fyrrakvöld
var bifreið stolið fyrir utan leik-
húsið. Var það R. 1215. Fannst
bíllinn nokkru síðar suður á
Reykjanesbraut, benzínlaus en
óbrotinn. Ekki var vitað í gær
hver var valdur að þessu verki
en lögreglan hefur málið írann-
sókn.
Aikki Aús
lendir í aefintýrum.
Saga í myndum
fyrir bömki.
62.
DlÓPVIUINIi
H. f. Eímsfeípafélag Isiands,
ItUIIUP
Amalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verð-
ur haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík
laugardaginn 24. júní 1939 og hefst kl. 1 e. h.
DAGSKR Á :•
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári og frá sforfstilhöguninni á yfirstandandi
ári og ástæðum tyrir henni og leggur fram til úrskurðar
endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1938 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskioðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsinsi, í stað þeirra, sem
úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umbioðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 21. og 22. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu fé-
lagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 26. janúar 1939.
STJÓRNIN.
Revían. „Fornar dyggðir“
verða sýndajii í Iðnó í kvöld kl.
8,30. Er sýningu seinkað um’
hálftíma sökum þess, að búðir
eru opnar til kl. 8 í kvöld eins1
og venja er til á föstudögum.
Leshringur Sósíalistaflokksins,
um sósíalisma og stefnuskrá
flokksins hefst í kvöld kl. 8,30
í Hafnarstræti 21 uppi. Allir
sem hafa látið skrá sig til þátt-
töku mæti stundvíslega.
Vér höldum heim. Gamla Bíó
sýnir ennþá þessa ágætu kvik-
mynd eftir hinni heimsfrægu
sögu Eric Maria Remarque. Er
kvikmyndin iog sagan áfram-
hald af Ekkert að frétta af
vesturvígstöðvunum, sem bæði
hefur komið út í íslenzkri þýð-
ingu og eins sem kvikmynd. —
Sagan Vér héldum heim, hefur
líka komið út á íslenzkiu í þýð-
ingu eftir Björn Franzson.
Lúðvík Kristjánsson ritstjóri
flytur erlndi; í útvarpið í kvöld
kl. 19,20, er hann nefnir „Til-
skipun um fiskiveiðar frá 1758“.
Kaupendiifr
Þjóðvíljans
eru ámínnt/r um að
»
borga áskríftargjöld
ín skílvislega.
©ödflla fö'lO %
Vés* hóldum
hcím
Áhrifamikil og listavel leik-
in amerísk stórmynd, gerð
eftir samnefndri skáldsögu
hins heimsfræga rithöfund-
ar
Erich Maria Remarque.
Aðalhlutverkin leika:
JOHN KING,
RICHARD CROMWELL
BARBARA REÁD
Böm innan 14 ára fá ekki
aðgang.
Rcvían
Fornar
dyggðír
Modell 1939.
verða leiknar í kvöld kl.
8,30.
Aðgöngumiðar seldir eft-
ír kl. 1 í ’dag.
Venjulegt leikhússverð eft-
ir kl. 3.
Hvað hefttr þú
gerf íil að
úibreíða
Þjóðriljann
Hér komum við með fólkið í miðdaginn, yðar hátign, mann-
ætukonungur. — Namm, Namm, oss lízt vel á þetta fólk —
vér sjáum ekki betur en að þetta séu gómsætir bitar —
— alltaf er það
jafn yndislegt að ná
í nýtt fólk í miðdag.
Það er ekki svo oft
að við
— getum leyft okkur nokkra
Ibreytni í mat, hingað koma
7
Skipafréttir: Gullfoss er í
Reykjavík. Goðafoss fer til
Keflavíkur í dag og kemur aft-
iur í kvöld, Brúarfoss er á leið
til útlanda, Dettifoss er á leið
til Vestmannaeyja frá Hull. Lag-
arfoss er fyrir norðan, Selfoss
ler á lelð til útlanda frá Norð-
flrði. Dronning Alexandrine er
á leið til Vestmannaeyja frá
Khöfn. Súðín kiom úr strand-
ferð í gærkveldi.
Frá höfninni: Max Pember-
ton kom frá Englandi í fyrri-
nótt og Hannes ráðherra og
Þórólfur komu í gærmorgun,
Skallagrímur kom af veiðum í
gær með góðan afla.
Farþegar með Gullfossi frá
útlöndum. Jakiob Thorarensen,
Hildur Pálsdóttir, Karitas Guð-
mundsdóttir, Gróa Helgadóttir,
M. Finsen, Árni Egilsaon, Jón
Bogason, Lóa Andersen, Arent
Claessen og frú. Árni Böðvars-
son, Guðni Jóhannsson, Sveinn
Kjarval, Tómas VigfússiDn, Bj.
jóaefsson og nokkrir útlending-
ar.
HansKirk: Sjómenn
14
sig á annarra dóm og handleiðslu. Kristindómur-
inn, hin beina persónulega afstaða til guðdómsins,
er það einasta sem maður getur ekki fengið að.
Ég skil ágætlega hið rökrétta í yðar skilningi á
málinu, en þér eruð of þröngsýnn. Við höfum
okkar trúarreynslu, þér hafið yðar. Kannske röt-
um við til guðs hver á sinn hátt.
En ég get ekki vitað neitt um yðar trúarreynslu
sagði Tómas. Ég þekki bara mína eigin. Og svo
gleymið þér einu: Afturhvarfinu. Hjá því verður
ekki komizt. Við verðum að fórna okkur Jesú,
lífi okkar og eignum og öllu, sem okkar er. Ég
hef sagt það áður: Eg álít það ekki kristindóm,
sem þér boðið. Og það stend ég við. Við verðum
að gefa heiminn frá okkur.
Kristur gaf ekki heiminn frá sér, hann tók hann
í sína mildu hönd. Hann var Iangt frá að vera
myrkur maður og lífinu fjandsamlegur. Munið þér
eftir brúðkaupinu í Kana, þar sem hann breytti
vatni í vín?
En á krossinum, þar fékk hann bara ísópsvamp
að drekka, svaraði Tómas.
Presturinn stóð upp aftur og fór að ganga um
gólf. Hann hafði það sárlega á tilfinningunni, að
hann væri ekki fullkomlega fær í þetta. Frá því
hann var drengur var hann vanur að mæta vel-
vild og skilningi. Foreldrar hans höfðu hampað
honum, sömuleiðis kona hans og sóknarbörn. Já,
séra Brink var sólskinsbarn sem lifnaði við í hlýju
veðri og sótti þrek sitt í tiltrú annarra. Hann stað-
oæmdist fyir framan sjómanninn og lagði höndina
á öxlina á honum.
Segið mér Tómas Jensen, hvernig urðuð þér
fyrir vakningunni ?
Það er löng saga, sagði sjómaðurinn. Það er svo
sem ekki mikið að heyra fyrir aðra. En fyrir sjálf-
an mig er það það fegursta, sem ég þekki. Faðir
minn stóð hart á móti hinni nýju vakningu og
hélt okkur börnunum frá heilögum samkomum.
Já, ég get sagt án sorgar, því að hann var
frelsaður, áður en hann dó. Ég veit hvað það þýðir.
Ég hefi horft á minn eigin bróöur reka dauðan á
land, og hann var ekki frelsaður. Ég var kominn
á fullorðinsár, 25—26 ára. Og ég var góður verk-
maður, það get ég víst leyft mér að segja. En ég
hafði margar slæmar tilhneigingar. Það var ekki
svo mikið það, sem ég gerði, vi ég var skikk-
anlegur piltur og umgekkst almennilegt fólk, eins
og hitt sem ég hafði löngun til að gera. Það lá
og urgaði í mér. Ég vissi vel, að það var rangt,
en hvern átti ég að tala við um það? Svo var það
eift kvöld, að ég gekk framhjá tígulsteinasmiðjunni,
sem var nálægt þar sem ég var í vist þá. Það var
funandi eldur í ofninum, og ég staðnæmdist dá-
lítið og horfði inn í hann. Fyrst datt mér í hug:
Sárt hlýtur að vera að brenna lifandi, og það setti
ai mér skjálfta. Allt í einu sló það mig: Helvítís
glóðir eru þúsund sinnum verri, og þær brenna
um alla eilífð. Mér var sem ég sæi kvalir syndar-
anna. Svitinn bogaði af mér, og ég hugsaði: Ef
þú deyrð nú, þá lendir þú þar. Og allt í einu kast-
aði ég mér til jarðar og ákallaði Jesú um hjálp.
Ég grét og bað í myrkrinu^meðjeldsglóðirnar fyrir
framan mig. Og allt í einu fann ég, að nú hafði
Jesús létt af mér svndabyrðinni- Hvert sinn sem
hið illa sótti að mér, gekk ég til frelsarans og hann
hjálpaði mér með sinni undursamlegu náð. Skömmu
seinna hitti ég ölmu sem nú er konan mín. Hún
var líka frelsuð. — Já, up'p frá þessum degi, —
það get ég sagt með sanni, — hef ég ekkert haft
nema frið og gleði sál minni, og*það fæ ég aldrei
nógsamlega þakkað. Þennan veg ættuð þér einnig
að ganga, séra Brink! Komið til Jesús, séra Brink.
Tómas Jensen hafði talað sig hásan, og augu
hans fengu á sig þurran og heitan gljáa. Prestin-
um fannst í einu eitthvað aðlaðandi og fráhrind-
andi við þennan glóandi trúarofsa, sem streymdi
ú rá manninum.
.Séra Brink, sagði Tómas Jensen. Viljið þér biðja
með mér-
Prestinum varð bylt. Maðurinn var slægur, nú
lagði hann gildru. Enlhann var jafn slægur og lét
ekki snúa á sig. Nei, sannarlega|skyldi hann ekki
bregðast þeim góðu manneskjum, sem hlýddu fians
boðskap, og tóku þátt í hans gleði yfir saklausu
lífi og hinum gleðilega boðskap fagnaðarerindisins-