Þjóðviljinn - 11.02.1939, Síða 3
Þ JOÐVILJINN
■miiHiiiwmiiiitimiwumtiiKiiimmmitiijmv
Laugardaginn 11. febrúar 1939.
Pat scm mfeaiýðflrínn starfair ísamcinaðmr
Stórkostlegar framkvæmdir í
hafnarmálum Siglufjarðar er
verkalýðsmeirihtutinn tók við
Hafskípabryggja — dýpkun ínnrí-hafnar-
ínnar — Verkamannaskýlí, malbíkun gatna
Það var ömurlegt útlitið um
fjárhagsástæður Siglufjarðar-
bæjar, þegar verklýðsflokkarn-
ir náðu jrar meirihuta samein-
aðir í jan. 1938. Fjárhagsáætl-
unin fyrir 1938 hafði verið af-
greidd af borgaraflokkunum
með gífurlegum tekjuhalla (145
þús. kr.), þrátt fyrir mótmæli
verkalýðsins og því helzt útlit
fyrir ,að atvinnuframkvæmdir
yrðu engar á árinu, ofan á það
framtaksleysi, sem ríkt hafði
undanfarin ár í atvinnumálum
bæjarins.
VerklýðsfLokkunum tókst
með samhentri og viturlegri
stjórn á bænum að bjarga þessu
við, og nú hefur bæjarstjórnar-
meirihlutinn á Siglufirði afgreitt
fjárhagsáætlunina fyrir 1939.
Táknar hún algera stefnubreyt-
ingu frá því sleifarlagi, sem áð-
ur ríkti, og ber á öllum sviðum
vott um framfaraáhuga og
menningarviðleitni siglfirzka
verkalýðsins. Kemur þetta m.
a. sérstaklega vel fram' í hafn-
armálunum. i
Oldubrjófurínn og ný
hafskipabryggja.
Undanfarin 4 ár hefur verið í
byggingu á Siglufirði öldu-
brjótur, norðan við bryggjur
Ríkisverksmiðjanna. Hefur
bygging þessa öldubrjóts ver-
ið einu framkvæmdirnar, sem
hafnarsjóður hefur Iagtt í síðan
1928, — ekki hefur nú „dugn-
aður og framtakssemia íhalds-
ins verið meiri en þetta undan-
farin ár. Þótt þessi öldubrjótúr
væri fyrst og fremst knýjandi
nauðsyn til að verja Ríkisverk-
smiðjurnar bnoti, hafði bæjar-
stjórnaríhaldið samt ekki séð
til þess að láta ríkið leggja
fram meirihluta framlagsins, til
að vernda eignir þess, heldur
lagði hafnarsjóður meira fram
en ríkið. Og auk þess var svo
verið að dragast með byggingu
þessa öldubrjótjsj í 4 ár, án þeasl
að fullbyggja hann, og olli það
vaxtatapi miklu og óþarfa bið.
(Til samanburðar má geta þess,
að bryggjan á Sauðárkróki,
sem byrjuð var á eftir öldu-
brjótnum, var fullbúin í sum-
ar).
Verklýðsmeirihlutinn ákvað
strax að herða á byggingu
öldubrjótsins, og hefur nú verið
settur kraftur á bygginguna,
svo að hann verður fullbúinn
fyrir 1 .maí 1940. En jafnframt
ákvað verklýðsmeirihlutinn að
byggja innan við öldubrjótinn
nýja hafskipabryggju, til þess
að nota þetta stórvirki sem
bezt fyrir bæinn og nota þá
bryggju til að byrja með sem
söltunarstöð. Verður nú bráð-
lega hafist handa um byggingu
þessarar bryggju, sem mim
kosta á annað hundrað þúsund
króna og þar með sköpuð í
senn mikil verðmæti fyrirSiglu-
fjarðarbæ og mikil atvinnafyr-
ir verkamenn, bæði í sambandi
við byggingu og síðari notk-
un bryggjunnar.
Vetrkamannaskýlí og
síeypíng Tjavnargöfu.
Uppskipnn
á Best South Yotrkshire
Assocíatíon Hard Steam-
kolum stendur yfírþessa
daga hjá
Kolaverzlnn
finðna Einarssonar oo Einars
! Sókn
Sósíalístafdagsíns
í útbreíðslu Þjódvíljans
Áki Jakobsson,
bæjarstjóri á Siglufirði.
Dýpkun ínnrí~hafnar~
innar.
Innri höfnin á Siglufirði
(höfnin fyrir innan eyrina),
grynnist í sífellu af framburði
árinnar og er að verða ónothæf,
nema fyrir smábáta. Fjölmarg-
ar bryggjur verða þar smám-
saman ónýtar, af því stærri
síldarskip komast ekki að þeim.
Það hefði þurft að byrja á því
fyrir 15 árum síðan að dýpka
þessa höfn, til að bjarga verð-
mæti, sem þarna var, — og
hefði frá sjónarmiði Siglufjarð-
arbæjar auðvitað verið miklu
nauðsynlegra en öldubrjóturinn.
(Hinsvegar mun auðvitað þeim
forráðamönnum bæjarins, sem í
tíma tryggðu sér lóðirnar næst
því svæði, þar sem öldubrjjót-
urinn átti að koma, hafa þótt
öldubrjóturinn heppilegri).
Það er því talandi tákn um
sinnuleysi og framtaksleysi í-
haldsins á Siglufirði um framj
tíð bæjarins og sameiginlegan
hag bæjarbúa, að það skuli ekki
hafa fyrir Iöngu ráðist í að
dýpka innri höfnina. Voru orðin
að því mikil brögð, að söltun
drægist frá Siglufirði, af því
að bryggjurnar þarna voru að
verða ónothæfar vegna þesshvö
grunnt var við þær;. Einstaka
bryggjueigendur voru upp á
eigin spýtur að reyna að bjarga,
verðmætum eigraum sínum og
atvinnugrundvelli, með því að
láta fyrir okurverð grafa renn-
ur fram með bryggujnni, svo
skip gætu komist inn eftir þeim,
en þessar dýpkanir reyndust
fjáraustur einn, því bráðlega
sigu rennurnar saman og þeim
100 þús .kr., sem Iíklega hefur
1 verið varið til þessara árang-
urslausu dýpkana, var kastað
til einskis gagns.
Nú hefur bæjarstjómin hins-
vegar hafist handa um að láta
dýpka innri höfnina og veitir
ur hafnarsjóði í ár 50,000 kr.
til kaupa á dýpkunarskipt. Er
nú þegar farið að undirbúa þaú
kaup og er þess að vænta, að
engar hindranir verði Iagðar í
veg svo bráðnauðsynlegs fyr-
irtækis, sem veitir stórkostlega
atvinnuaukningu, bæði í bráð
og lengd. : 1 ! | J
Símí 1595 (2 línuir).
Siglufjarðarbær hefur ekkert
verkamannaskýli haft á hafnar-
bakkanum fram að þessu. Það
er því ein af fyrstu ákvörðun-
um verklýðsmeirihlutans í bæjar
stjóru að útbúa verkamanna-
iskýli í hafnarhúsinu og verður
íþað til í sumar.
Þá er og ákveðið að malbika
eða steypa Tjarnargötu ákostn-
að hafnarsjóðs — og er áætlað
til þess í fjárhagsáætlun hafn-
arsjóðs 25 þús. kr. (Auk þess
á að malbika Aðalgötu, svo alls
verður varið um 60 þús .kr. til
malbikunar gatna og eru það
hinar beztu atvinnubætúr). —
Þekkja allir ,sem til Siglufjarðar
koma á sumrin, hver þörf er á
því að umbreyta helztu göt'-
unum þar í bænum úr þeirri *
leðju, sem þær annars eru.
Fjáfhagur Hafnarsjóds.
Menn munu nú spyrja, hvem-
ig hafnarsjóður fari að standa
undir þessum miklu fram-
kvæmdum. Áður fyrr kom það
fyrir að hafnarsjóður gat meira
að segja ekki staðið við skuld-
bindingar sínar, eins Iítið og
þá var framkvæmt. En nú hef-
ur þetta breyzt. Tekjur hafnar-
sjóðs hafa innheimst miun bet-
ur ien áður, af því bæmum er
nú duglega stjómað, með hag
fólksins fyrlr aiugium. Hafnar-
sjóður hefur nú staðið við allar
skuldbindbgar sínar á réttum
tíma og á féj í sjóði.
Heildartekjur hafnarinnar
(hafnargjöld, bryggjugjöld,
vömgjöld og vitaljósgjöld) hafa
vaxið úr 155 þús .kr., sem þær
voru 1937, upp í 186 þús. kr„
sem komið er inn fyrir 1938
og á vafalaust eftir að koma
inn meira. Gefur þessi vöxtur
á tekjunum við samvizkusam-
lega innheimtu góða hugmynd
um hve miklir möguleikar voru
látnir ónotaðir áður, sakir sleif-
arlagsins, og hve mikið þá hef-
iur fariði í súginn af fé, sem g.at
aukið og bætt afkomu alþýðunn
ar og framkvæmdir bæjarins.
Stjórn verkalýðsflokkanna á
Siglufirði þenaan skamma tíma,
sem hún hefur staðið, sýnir
hvað verkalýðuiinn getur, þeg-
ar hann stendur sameinaður og
stjórnar bæjarfélögunum með
festu og hag fólksins fyrir aug-
um.
5ttR5555555555555555555555S55555ðöK'
Dveltl:
Gold Medal
í lausrí vígt 0,35 kgr.
50 kgr. sékkur 15.25
Lyftíduft 2.20 kgr.
Kokosmjöl 1.75’kgr.
55555555C5C5C555Ö5565555C556555S55Ö6
Nú er hagkvæmt
ad baka fpieíma^
555555555555»acC555®CDC555a555a555
G^kaupíélaqid
— Alfred o§ lúlíus —
1 1- I deild 2. eild 3. dei d 4. deild 5. deild
Staðan 10. febr.:
1. deild m # 15
2. — . . 7
3. — # 22
4. — . . 20
5. — . . . 29
7. — • • 5
Samtals 98
Aðeins þrír áskrifendur í gær,
enn einn dagur án þess að
hunrdaðið náist. Það er ljóta
útkoman. Önnur og þriðja deild
þær einu sem bættu við sig í
gær. 18 dagar eftir af mánuð-
inum. Dýrmætur tími er aðtap-
ast, ef sóknin á að bera tilætl-
aðan árangur. Væri ekki reyn-
andi fyrir 3. og 4. deild að ná
5. deild í einni duglegri skorpu.
Og ætlar 1. deild að láta allar
hinar fara langt fram úr sér?
Fimmta deild hefúr hægt á sér
síðan hún komst svona langt á
undan, en það er ekki öruggt
til lengdar.
SPEGILLINN
kom út í dag iog er ekki seldur
á götiunium,
en fæsít í lausasöLu, í bókaverzl-
unum og á eftirtöldum stöðum:
Ásvallagötu 19 (Verzl. P. Kr.)
Víðimel 35 (Verzl. P. Kr.)
Bræðraborgarstíg 29 (Brauðb.)
Vesturgötu 42 (Verzl. Höfn)
Kolasundi (Sælgætisbúðin)
Miðstræti 12 (Mjólkurbúðin)
Bankastræti 6 (Bristol)
Laugaveg 63 (Bókabúðin)
Laugaveg 68 (Skóverkstæðið)
Laugaveg 68 (Kaffihúsið)
Hringbraut 61 (Þorsteinsbúð).
Athugið strax, hver ofantaldra
útsölustaða, er yðar staður.
\
— Húsgagnavínnusfofa, Laugaveg 84 — Vöndud vínna. — Sanngjarnf verd. — Siml 4023 Tekið móti áskriftum í SIMA 2702.
Einar Finnsson járnsmiður, Klapparstíg 20, andaðiát í fyrraj kvöld. Stjóm Dagsbrúnar er þessa dagana að skipa trúnaðarmenn á öllum vinnustöðvum sam- kvæmt samningi við atvinnu- rekendur og heimild vinnulög- gjafarinnar. Gerist áskrífendur ad - LANDNEMANUM -
KafflkvBli 1
Ríkisskip. Súðin var á Vopna-
firði kl. 5Vz í gær.
BifreiðastððiD fiEYSIR
------- SIMAR 1633 og 1216. ---
Upphitaðir bílar, útvarp. — Opin allan sólarhringinn.
Utbreiðid Þjóðviljann
beidur 3. deild Sósíalistafélagsi Reykjavíkur í kvöld, laugar-
daginn 11. febr. og hefst með kaffidrykkju kl. 21.30.
Til skemmtunar verður:
1.
2.
Halldór Pétursson: Erindi.
Óskar Þorsteinsson: Upp-
lestur.
Söngur, með gítarundirleik
Fjöldasöngur.
Frjálsar skemmtanir.
Allxr meðlimir Sósíalistafélagsins eru velkomnir
húsrúm leyfir. Heimilt að taka með sér gesti.
Félagar! Mætið réttstundis og takið með ykkur spil og.
töfl.
3.
4.
5.
meðan