Þjóðviljinn - 04.04.1939, Side 3

Þjóðviljinn - 04.04.1939, Side 3
p jOÐViijraN Þridjudaginn 4, apríl 1939. in ætla að nota þess að fótum- troða og svívirða lýðrœðið Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda í öllum flokk- um er andvígur bræðingsstjórn afturhatdsins. Lyðræði. — Orðinu fylgir máttur. svo sterkur máttur að 3 i jafnvel bitrustu fjendur þess veigra sér við að gera fjand- skap sinn beran, þeir taka á sig yfirskin lýðræðisins, en af- neita þess krafti. Það er vissulega að vonum þó fjendur lýðræðisins óttist májtt þess, því lýðræðið er réttur fjöldans til þess að ráða sínum eigin málum, það errétt- ur hvers einasta einstaklings til að hafa hönd í bagga með því hvernig málum þjóðarinnar er stjórnað. Það er staðreynd að yfirgnæf andi meirihluti þjóðarinnar, verkamenn við sjóinn, bændur og búalið til sveita, smáútvegs- menn og aðrir smáatvinnurek- endur, eigjai í einu og öllu sam- eiginlegra hagsmuna að gæta, og hljóta því fyrr eða síðar að kioma fram sem etn samstillt heild á vettvangi stjórnmálanna. Það er máttur þessarar stétt- ar, sem fjendur lýðræðisins ótt ast, það ern samstillt átök þéirra og samhljóða krafa þeirra um að ráða lögum og lofum í þjóðfélaginu, sem fær klíkur þær, er sitja yfir hlut hinsvinn andi fjölda, til þess að óttast um völd sín. Knúðir af þess- um ótta ganga nú þessir herr- ar berseijksgang gegn þeirri voldugu öldu sameiningar og samstarfs, sem hafin er nú und ir forustu Sameiningarflokks- ins meðal alþýðu þessa lands. Þeir hafa séð og skilið að lýð- ræðið er máttur þess fjölda, er skapar allan auð þjóðarinnar, máttur sem hann getur beitt til að iaka völdin í þjóðfélaginu., lEn valdataka hins vinnandi fjölda valdataka ,,þjóðarinnar“ í þjóðfélaginu, þýðir réttlátt þjóðfélag, þar sem enginn get ur setið yfir annars hlut, þar sem arðrán og kúgun er talin villimennska liðna tímans. Þetta vita engir betur en þeir fáu, sem sitja yfir hlut hinna mörgu, hinir fáu handhafar þjóðarauðsins, fjármuna og framleiðslutækja, hinir fáu sem nota auðvaldsskipulagið tilþess að gera hina fátækari fátækari og hina ríku ríkari. Þessir menn gera allt sem gert verður með aðstoð auðs iog valds til þess að viðhalda því þjóðfélagsá- standi, þar sem öllu er stolið frá þeim, sem ekkert eiga. Það eru einkum tvö herbrögð, sem þessir herrar nota í sinni sví- virðilegu baráttu. í fyrsta lagi reyna þeir að sá sundrung og illindum með- al þessara stétta, sem með afli lýðræðisins eiga að skapa hið réttláta þjóðfélag til handa hin - um vinnandi fjölda. Þessi starf semi færist í auklana að sama skapi, sem vitund hins vinn- andi fjölda um mátt hans og rétt vex. Aldrei hefur þessi starfsemi verið rekin af meiri frekju og meiri ósvífni, cn síð- an Sameiningarflokkur aíþýðu hóf sitt markvissa einingar- starf. öll blöð afturhaldsins, öll blöð hinnar væntanlegu þjóðstjórnar Breiðfylkingarinn- ar, Miorgunblaðið, Alþýðublað- ið, VísirogTíminn, að ógleymd um ýmsum smærri fylgihnött- um, berjast hamstola baráttu gegn einingarstefnunni, að „deila og drottna“ er kjönorð hinna „ábyrgu“ herra, Ólafs Thors, Jónasar Jónssonar og St. Jóhanns. En svo hættulegt sem þetta fyrsta herbragð hinna á- byrgu auðvaldsherra er ,þá er þó herbragð númer tvö ennþá hættulegra. Það er í því fólgið að beita formum lýðræðisins gegn lýðræðinu sjálfu. Það stjórnarform, sem lýð- ræðið hefur skapað, í auðvalds lieiminum er þingræðið með al- mennum kosningum, þar sem fjöldinn, „lýðurinn“, fær nokkrum mönnum umboð til þess’ að stjórna þjóð- félaginu. Það er þetta um- boð, það er þetta vald, sem nú er notað til þess að svíkjast aft an að lýðræðinu. Með eins at- kvæðis meirihluta er það bar- ið frarb i þingflokki Sjálfstæðis manna að ganga til stjótna*-1 samvinnu með Framsókn og SkjaUdborginni. En það er eins víst eins og tveir og tVeir eru fjórir, að yfirgnæfandí,1 imeirii hlíuti kjósenda Sjálfstæðisfloks ins er þessu athæfi með öllu andvígur. Það er fellt í stjórn Alþýðu-i flokksins að ganga til stjórnar- samvinnu, og það er full vissa fyrir því að nær 100% Alþýðu flokksmanna er henni með öllu mótfallinn. Þratt' fyrir það ætlar St. Jóhann að ganga í afturhaldsflatsængina. Einnig innan Framsóknarflokksins sem árum sarnan hef- ur barist undir kjörorðinu j,allt er betra en íhaldið“, ríkir hjá meirihluta kjósenda djúp fyr- irlitning á öllu makki Jónasar Jónssonar við Ólaf Thors, einn ig þar er ríkjandi sár óánægja út af öllu skrafinu um þriggja flokka stjórn. Og svo leyfa þessir herrar sér að svívirða þjóðina með því að kalla þann óburð, sem þeir þannig ætla að setja íráð herrastól Islands, þjóðstjórn. Allt þetta brask er sú herfi legasta tilraun, sem gerð hef- ur verið, í sögu íslands, til að fótum troða lýðræði og mann- réttindi, og það er óttinn við mátt lýðræðisins, við sigur, þessa lýðs, sem ætti hér lönd- um og ríkjum að ráða, sem hef- ur hleypt öllum þessum ósköp- um af stað. Þegar lýðræðið hefur þann- ig verið fótum troðið og svívirt, í nafni þjóðarinnar, þá á að full komna niðurlægingu þess og ósigur, með myndun ríkislög- reglu, sem beita á gegn hinum vinnandi fjölda, gegn honum og engum öðrum, gegn þjóð inni. Hlutverk ríkislögreglunn- ar á að vera það, fyrst og fremst að tryggja framgang þrælalaga, um kaup og kjör verkalýðsins, að tryggja að halda við því þjóðfélagi, þar sem öllu er stolið frá þeim, er ekkert eiga . Sameinaður verður „lýður- inn“, hinn vinnandi fjöldi, að ganga fram gegn þessum ósköp um, hans er mátturinn oghans á ríkið að vera, og hans verð- ur ríkið ef hann lætur ekki blekkjast til sundrungar og innbyrðis fjandskapar. Sjóvátrijqqi aq íslands li TilfeynniBB tíl hnseiganda 1 Reyhjavík. Samhvæmt samníngí víð Bæjarstjórn Reykja- vikur, dags. 9./3. ’39 yííftöhum vér bruna- tryggíngar á öllum húseígnum í Reykjavík frá og með 1. apríl. Gjalddagí íðgjalda er 1. apríl og ber að greiða íðgjöldin ínnan mánaðar frá gjalddaga. Iðgjöldum verður veitt móttaka fyrst um sínn á sama stað og áður, Laugaveg 3 (2. hæð). Skrífstofan er opín alla vírka daga frá kl. 10—12 f. h. og kl. 1,30—3,30 e. h. nema laugardögum kl. 10—12 f. h. „Aliiýðnflokknrinn hefnr lýst hví yfir, að hann mnni ekki styðia neina stjörn, sem hefnr aengis- lækknn ð stefnnskrð sinni“ (Alþ.bL 19. fúní 1937.) Fyrir kosningarnar 1937 hamraSi AlþýSublaSiS dag eftií dag á gengislækkunaráformum BreiSfylkingarinnar sem hinni svívirSilegustu árás á alþýSuna, og skoraSi á verkalýSinn aS kjósa AlþýSuflokksmenn til að hindrá gengislækkunina. Hér eru nokkur fróSleg sýnishorn: „Fyrirspurn til miSstjórnar Sjálfstáeðisflokksins frá miðstjórn Alþýðuflokksins. Þar sem SjálfstæSisflokkurinn og Bændaflokkurinn hafa gert meS sér kosningabandalag viS lcosningarnar 20. júní, eu Bændaflokkurinn hefur, eins og kunnugt er, haft lækkun ís- lenzku krónunnar aS aSai-stefnumáli, og í blaSi sínu, Framsókn, 12. júní sl. lýst stefnu stjórnarinnar um aS halda uppi gengi. L! ,' iunnar sem stigamennsku og hegningarverSu athæfi, en SjálfstæSisflokkurinn hinsvegar ekki fengizt til aS gefa skýr svör un stefnu sína í þessu þýSingarmikla máli, skorar miS- stjÓT-n AlþýSuflokksins hér meS á miSstjórn SjálfstæSisflokks- ins aS svara eftirfarandi fyrirspurn opinberlega viS utvarpsum- ræSumar og í blöSum flokksins: Vill SjálfstæSisflokkurinn lofa því og skuldbinda sig til þess, eins og AlþýSuflokkurinn gerir, aS vinna aS því, aS gengi ís- lenzku krónunnar verSi haldiS óbreyttu eins og þaS er nú, miS- aS viS sterlingspund, og þaS aS minnsta kos.ti ekki lækkaS í ná- inni framtíS? MiSstjórn AlþýSuflokksins” (Alþbl. 15. júní 1937). Alþbl. 16. jímí 1937 — 6 dálka fyrirsögn: „BreiSfjdkingin ætlar sér aS fella krónuna! Ólafur Thórs vildi ekki svara fyrirspurn AlþýSuflokksins í gærkveldi. ■Sigur BreiSfylkingarinnar þýSir, aS krónan verSi skorm niSur um þriSjung, kaup og laun lækka um þriSjung, þriSjungi af sparifé landsmanna verSur rænt, og skuldir þjóSarinnar hækka um þrjátíu miljónir króna. Á dýrtíSin enn aS margfaldast?” (1 greininni): „Gengislækkun mundi auka dýrtíSina um allan helming. Gengislækkun mundi gefa heildsölunum tækifæri til nýs okurs á lífsnauSsynjum almennings”. Alþýðublaðið 17. júní, forsiðufyrirsögn: „Gengislækkun er eina úrræSi BreiSfylkingarinnar. Sparifjáreigendur og verkamenn eiga aS borga skuldir Kveldúlfs. AukiS fylgi AlþýSuflokksins er eina tryggingin gegn herferð íhaldsins á móti húsmæSrum og sparifjáreigendum” j í preininni stendur m. a.: „Þeir vilja fá aS undirbúa þegjandi og hljóSalaust þessa her- ferS á pyngju húsmæSranna, á laun verkamannsins og gjald- traust landsins. En þaS skal ekki takast. ÞaS skal verSa heyrum kunnugt, hver voSi vofir yfir íslenzku þjóSinni, af fjörráSum BreiSfylkingarinnar gegn íslenzku krónunni”. Brunadeíld Utbrciðid Þjóðviljann Leiðari Alþbl. 17 .júní, sem heitir: „Gengislækkunaráform íhalds- ins sönnuð”, endar svo: „Kjósendur munu hindra þessar skemmilegu fyrirætlanir meS því aS kjósa AlþýSuflokkinn”. Alþbl. 18. júní: „Vill nokkur launaþegi, nokkur láglaunamaSur eSa kona bans, sonur eSa dóttir hjálpa BreiSfylkingunni til aS koma á gengislækkun meS því aS ijá henni atkvæSi sitt á kjördegi”. Alf: l. 19. júnt, daginn fyrir kosningarnar, 6 :ialka forsíðufyrirsögn: „Verjist gengisráni BreiSfylkingarinnar! IhaldiS ætlar aS ræna 20 miljónum króna af sparifé lands- rnanna meS gengislækkun! DýrtíSin margfaldast ef BreiSfylkingin sigrar! ALÞYÐUFLOKKUBINN HEFUB LtST YFIB ÞVÍ, AÐ HANN MUNI EKKI STYÐJA NEINA STJÓBN, SEM HEFUB Gl .NGISLÆKKUN Á STEFNUSKBÁ SINNI”. Berið þessar yfirlýsingar saman við gerðir Skjaldborgar- innar nú. SósialistafélðQ Reykjasikor heldur kvöldskemmtun í Iðnó miðvikudaginn 5. apríl kl. 9 e. h. Fjölbreýtt skemmtiskrá. DANS. ! Aðgöngumiðar á skrifstofu félagsins í HLafnarstræti 21 frá kl. 2 í dag og kosta aðeins 2 krónur. Nánar auglýst á morgim. ' NEFNDIN. Hagkvæm Páskakanp Bökunarvörur, mikíð úrval. Páskaegg étal stærðir, lágt verð. Púskagrænmeti Hvítkál, Rauðkál, Selleri, Gulrætnr, Rauðrófur. Nesti í skíðaferðir. í púskamatinn Nautakjöt, Hangikjöt, Dilkakjöt. fteriö páska- kanpln tim- aniega. G^kaupféloc[í^ Ármenningar. Dvalarmiðar fyrir páskana í skíðaskála fé- lagsins verða afhentir á skriU letofunni í Iþróttahúsinu kl. 9— 10 í kvöld, Fjöldi manns • hef- ur þegar pantað gistingju| í skál-i anum og má búast við ■ f jöl ■ menni yfir hátíðisdaganá, enda er snjór nægur. Æ. F. R. efnir til skemmti ferða um páskana, ef veö«feyf- ir. Á föstudaginn langa verður farið til Kleifarvatns og Krísu- víkur, en á páskadaginn til Sel- vogs. Ásk riftalistar frammi á skrifstofu Æ. F, K. á Hafnarstræti 21, og þar ennfremur allar nánari upplN- ingar um tilhögun ferðanna. Happdrætti Háskóia,ns: 1 dag eru aðeins 3 söludagar cfíir fyr- ir 2. flokk. Dregið verðtir Tl. apríl.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.