Þjóðviljinn - 26.04.1939, Side 1
IV. ÁRGANG
MIÐVIIÍUD. 26. APKIL 1939.
94. TÖLUBLAÐ
Gjaldíd þeím fyrírlítníngu, sem
r reyna að hljúfa raðlr yfekar.
Fimmtán stærstu verkalýðs- og
iðnfélög bæjarins hafa nú kosið
1. maí nefndir sínar, sem vinna að
undirbúningi 1. maí hátíðahald-
anna. Hafa þær að nokkru leyti
lokið undirbúningi dagsins og má
vænta ávarps frá þeim til alls
verkalýðs í Reykjavík á morgun.
Dagsskrá 1. maí verður í höfuð-
atriðum svipuð og í fyrra, nema
hvað engir pólitískir flokkar
standa að henni. Útifundur verð-
ur haldinn, líklega í Lækjagötu og
auk þess verður gengið í kröfu-
göngu um bæinn. Höfuð kjörorð
dagsins verða valin út frá megin-
Upp$öfvanír lís~
lenzkrí jarðfræði
I síðasta hefti jarðfræðiritsins
„Meddelelser fra dansk Geologisk
Forening”, sem félag danskra
jarðfræðinga gefur út, birtist rit-
gerð á þýzku eftir Jóhannes Ás-
kelsson jarðfræðing, er hann
nefnir „Interglaziale Pt'lanzen-
ablagerungen” og f jallar um jurta
leifar frá hlýviðrisSkeiðum jökul-
tímans. Skýrir höfundurinn þar
frá rannsóknum, er hann gerði
sumrin 1937 og 1938 á Snæfells-
nesi norðanverðu, sérstaklega á
fjallinu Stöðin í Grundarfirði.
Fann Jóhannes þar gróðurleifar,
er ekki var áður kunnugt um, að
hér á landi hefðu vaxið, þar á
meðal elri, sem nú er ekki lengur
til á ísláhdi. Af þessu dregur höf-
undurinn meðal annars þá álykt-
un, að á þessu hlýviðrisskeiði jök-
ultímans, sém hér ræðir um, hafi
sumarhiti á Islándi verið að
minnsta kosti eins mikill og nú
eða jafnvel meiri. Telur hann
einnig, áð hér sé um elztu inter-
glácialjarðlög á Islandi að ræða.
Ritgerðinni fylgjá nokkrar mynd-
ir og uppdrættir. (FÚ)
Franska sfjórnín
þrengír ad prenf^
frelslnn
MNKASKEYTI TIL ÞJÓÐV.
Khöfn í gærkv.
Franska stjórnin hefur þyngt
mjög refsingar við „aðdróttúnum”
í riti, og er hægt að hegna fyrir
þær með allt að sex mánaða fang-
elsi samkvæmt nýju ákvæðunum.
Allt að árs fangelsi liggur við
„áróðri til sundrungar þjóðinni”,
og sama hegning er lögð við „árás
um á kynflokka eða trúarbrögð”.
Lögin eru mjög tvirætt orðuð, og
þykja alvarleg skerðing á prent-
frelsinu.
FRÉTTARITARI
Tryggvi Magnússon listmálari
var nokkru hressari í gær og kom
inn til fullrar rænu, en svaf mik-
ið. Talið er sýnt að um höfuð-
kúpubrot sé að ræða, en í gær var
ekki búið að taka mynd af honum.
Karlakór verkamanna.
Æfing í kvöld kl. 8,30.
viðfangsefni verkalýðsfélaganna
nú, en það er fyrst og fremst:
barátta fyrir einingu verkalýðsins
í einu óháðu fagsambandi, og
krafa um fullt samtakafrelsi
verkalýðsins yfirleitt.
1. maí gefa verkalýðsfélögin út
sérstakt hátíðablað, sem ritað er
af formönnum verkalýðsfélaganna
hér í bænum og í Hafnarfirði og
öðrum forustumönnum þeirra.
Sökum húsnæðisleysis verður
ekki unnt að hafa neinar innisam-
komur eða skemmtanir 1. maí í
tilefni dagsins, en hinsvegár boða
verkalýðsfélögin til samkomu í
Iðnó á laugardaginn, þann 29.
apríl.
Undirbúningsnefndin væntir
þess fastlega, að allur verkalýður
bæjarins taki þátt í hátíðahöldum
verkalýðsfélaganna 1. maí og sýni
á þann hátt einingarvilja sinn og
festu. Heyrzt hefur að bæði íhald-
ið og Skjaldborgin ætli að reyna
að kljúfa raðir verkamanna fyrsta
maí, og stofna til fundarhalda.
Verkalýður Reykjavíkur á að
sýna þeim mönnum, er að þessu
standa, að þeim er ofaukið, hvar
sem verkalýðurinn ber fram kröf-
ur sínar, og að vegir þjóðstjórnar-
mannanna eru ekki vegir alþýð-
unnar.
Vanfrausísflllaga Sósíalísfaflokksíns felld með 41 afkvædl gegn 4
I gær fóru fram í Sameinuðu þingi umræður um vantraust á
ríkisstjórnina. Neitað var um útvarpsumræður, þó þingsköp \erði
ekki á annan veg sldlin en þann, að ætlazt sé til þess að slíkum um-
ræðum sé útvarpað. Stjórnin neitaði hreinlega að svára til saka, og
létu ráðherrar sér nægja að segja örfá orð í stað þess að reyna að
réítlæta það lýðræðis- og þingræðisbrot, sem íramið var með mynd-
un núverandi ríkisstjórnar. Sósíaiistaflokkurinn stóð einn að van-
traustinu, og þingmenn hans einir greiddu því atkvæði. En allir aft-
urhaldsfloklíarnir vottuðu stjórninni traust sitt, en átta þingmönn-
um úr Sjálfstæðisflokknum var iofað að gera sérstaka grein fýrir
atkvæði sínu. Vantraustið var því fellt með 41 atkv. gegn 4.
Einar Olgeirsson tók fyrstur til
máls. Hann hóf mál sitt á því að
mótmæla þeirri aðferð forseta að
koma í veg fyrir að umræðunum
um vantraustið yrði útvarpað, þar
sem þingsköp virðist þó ganga út
frá að slíkum umræðum sé útvarp
að. Hann kvað þetta tiltæki vera
einn þátt í þeirri viðleitni, sem nú
bæri mjög á, hjá Breiðfylkingu
Almenn
logleidd
herskylda
í Bretlandi
Ákvörðun brezku sfjórnarinnar fekln vegna
áhrífa bandamanna Brefa á megínlandínu.
EINKASIŒYTI TIL ÞJÓÐVILJANS. KHÖFN í GÆRKV
A fundi brezku stjórnarinnar I dag var ákveðið að koma á al-
mennri herskyldu í Bretlandi.Er búizt við að ákvörðun þessi verði
birt áður en Hitler heldur ræðu síná í Ríkisþinginu n. k.. föstudag.
Með framkvæmd hinnar almennu herskyídu vex brezld herinn
árlega um 450,000 manns. Herskyldunni er kornið á vegna ákveðinn-
ar kröfu frá bandamönnum Breta á meginlandinu.
FRÉTTARITARI.
taki fyrri yfirlýsingar brezku
stjómarinnar um það, að stefnu
hennar sé ekki á neinn hátt miðað
að því að einangra Þýzkaland.
Hinsvegar sé brezka stjómin al-
ráðin í því að kveða niður hinn
stöðuga ótta um árásir og ofbeldi,
sém kominn sé upp meðal þjóð-
anna, sem árangur af stjórnmála-
stefnu Þýzkalands og Italiu und-
anfarna mánuði.
Þá er ennfremur gert ráð fyrir
því, að sendiherra Frakklands í
Berlín gefi þýzku stjórainni yfir-
lýsingu, sem sé að efni til sam-
hljóða þeirri, sem gert er ráð fyr-
| ir, að Sir Neville Henderson gefi.
Utanríkismálanefnd brezku
stjórnarinnar kom saman á fund
í morgun í forsætisrájBherrabú-
staðnum í Downing Street nr. 10,
og er fullyrt, að til umræðu hafi
verið samningaumleitanir þær,
sem undanfarið hafa átt sér stað
við stjómir Sovétrikjaama, Tyrk-
lands og annarra ríkja, sem hugs-
anlegt er að vildu taka þátt i
varnarbandalági gegn frekari
styrjaldaraðgerðum í álfuimi.
Á fundinum gaf utanrikismála-
För Nevílle Henderson
fíl Berlín.
LONDON 1 GÆRKV. (FÚ)
Sir Neýille Henderson, sendi-
herra Breta í Berlín, sem kom
aftur til Berlínar í gær, eftir að
hafa verið í London og gefið
stjóminni skýrslu, bað þegar við
komu sína um viðtal við vons
Ribbentrop utanríkismálaráðherra
Þjóðverja, en eftir því, sem þýzk
blöð skýra frá í dag, hefur ennþá
ekki verið ákveðið, hvenær sú við-
ræða fer fram. Ekkert hefur enn-
þá verið látið uppi opinberlega um
það hvers efnis sá boðskapur er,
sem Sir Neville fer með af hálfu
brezku stjómarinnar, en það er
almennt talið, að hann eigi að
gefa þýzku atjórninni ýtarlega
skýrslu um stefnu brezku stjórn-
arinnar og þá ákvörðun hennar að
standa gegn frekara ofbeldi og á-
rásum og hafa komið þessum boð-
skap á framfæri áður en Hitler
heldur ræðu sína á föstudag. Öll-
um kemur saman um, að erindi
hans sé mjög mikilvægt. Þá er og
gert ráð fyrir því, að hann endur-
afturhaldsins, að flytja þjóðmálin
út, úr þingsölunum.
Því næst kom hann inn á van-
traustið sjálft. Hann beiiti á að
þessi ríkisstjórn væri mynduð af
þinginu án þess nokkrar líkur
væru fyrir því, að þjóðarvilji stæði
þar á bak við. „Þjóðin hefur ekki
verið spurð, það, sem við krefj-
umst er að hún vetði spurð, að
hún verði látin dæma í málinu.
Við krefjumst þingrofs og nýrra
kosninga”, sagði Einar. Þá spurði
hann að því, hvort flokkaskipting
og sú flokkabarátta, sem Alþýðu-
flokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn hefði tekið þátt í, hefði frá
þeirra sjónarmiði verið skrípaleik-
ur einn. Hann benti á hvemig
flokkabarátta þeirra manna, sem
þessum flokkum hefðu fylgt að
málum, byggðist á hinum mikla
veraleika hagsmunamótsetning-
anna innan þjóðfélagsins, og
hvemig þessir menn hefflu falið
þingmönnum flokkanna og öðr-
um ráðamönnum þeirra, að berj-
ast fyrir réttlæti og hagsbótum til
handa hinum vinnandi stéttum.
Framh. á 4. síðu.
Samkvæmt enskum blaðafregn-
um er farið að framleiða gasgrím-
ur handa ungbörnum.
Móðirin: Hann er lifandi eftir-
mynd hans pabba síns!
ráðherranni Halifax lávarður,
einnig skýrslu um viðræður sínar
við Gafencu, utanríkismálaráð-
herra Rúmeníu. Gerðir fundarins
hafa ekki verið birtar.
Fundur í París um Kínamálin. Fundarinenn hvattir til að. kaupa
íiklíi japanskar vörur.
Kínverskl herinn
sækir fram til Kanton
EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJANS. MOSKVA I GÆRKV.
Kínverska blaðið „Dagunbao”,
sem er málgagn Chiang Kai Shek
birti grein 22. þ. m. um hernaðar-
ástandið í Kína. Segir þar meðal
annars:
Árangurinn af hernaðaraðgerð-
um kinverska hersins á ýmsum
vígstöðvum í aprílmánuði- sýnir
vaxandi sóknarkraft kínverska
hersins, jafnhliða því, sem að-
staða japanska hersins veikist.
Fyrri hluta aprílmánaðar hröktu
kínverskar hersveitir J”apani burt
úr áttatíu vígstöðvum. Stöðug
sókn kínverskra hersveita á aust-
urvígstöðvunum hefur knúið Jap-
ani til þess að lýsa Shanghai og
Wusum i hemaðarástand.
í Kvantun-fylkinu sækir kín-
verskur her fram í áttina til Kan-
ton ,og af her Japana hafa fallið
meira en tuttugu þúsundir manna.
Þá segir „Dagunbao” ennfrem-
ur, að þessir sigrar, hafi aukið
mjög sóknarhug kínverska hers-
ins. Bættar hemaðaraðferðir og
bætt vopn hafa og snúið gæfunni
á sveif með Kínverjum. Þannig er
nú komið þeim málum, að á móti
hverjum einum Kínverja, sem fell-
ur, falla þrír Japanir.
„Dagunbao” lýkur máli sínu
svo: Afstaða herjanna nú er aug-
Æ. F. R.
Kvennakórinn hefur æí'ingu í
kvöld, miðvikudag, kl. 7,30 e. h. í
Hafnarstræti 21. Mætið allar
stundvíslega.
Málfundahópur Æ. F. R. held-
ur fund í kvöld kl. 8,30 í Haínar-
strroti 21. Félaear fiölmennið.
ljós. Erfiðleikar japanska hersins
fara dagvaxandi. Á þýðingar-
. mestu vígstöðvunum erum við
fullfærir til þess að mæta fjand-
mönnum okkar. Síðan stríðið
brauzt út fyrir 22 mánuðum, hef-
ur her Kínverja tvöfaldazt. Á
sama tíma hefur sóknarmátttur
Japana minnkað um minnst 40%.
FRÉTTARITARI.
Tlllaga um að
selja Póí og Her~
tnóð felld
Eftirfarandi tillaga var flutt af
fjárveitinganefnd Sameinaðs þings
og beitti Jónas frá Hriflu sér
einkum fyrir henni.
„Alþingi ályktar að heimila rík-
isstjórninni að selja eða leigja
gæzluskipið Þór og vitabátinn
Hermóð. Ennfremur að byggja
hér á landi varðbát af svipaðri
gerð og Öðinn. Gert er ráð fyrir
að Ægir og Öðinn, eða annar
varðbátur eigi minni, annist gæzlu
og björgun við Vestmannaeyjar á
vertíð. Vitaflutningar og vömr til
heimilisþarfa handa vitavörðum
verði flutt, eftir því sem bezt verð
ur við komið, með strandferða-
skipunum eða á annan hátt”.
Þingmenn Sósíalistaflokksins og
fleiri töluðu á móti tillögunni og
þótti þetta léleg sparaaðaraðferð
og sízt ástæða til að draga enn úr
öryggi landhelginnar. Fór svo að
tillagan var felld með 21 atkv.
gegn 14.