Þjóðviljinn - 26.04.1939, Side 4
as í\íý/ðJiib ag
Amerisk
skyndífrægð
(Nothing Sacred)
^merrsk skemmtimynd
frá United Artists þarsem
óspart er dregið dár að .
því hvernig máttur aug-
lýsinganna getur á svip- \
stundu gert menn að nokk i
urskonar þjóðarhetjum í
^meriku.
Aðalhlutverkin leika af
miklu fjöri
CAROLE LOMBARD
'Og
FREDRIC MARCH
Myndin er öll tekin í
eðlilegum litum.
AUKAMYND
Mickey í sumarfríi.
Mickey Mouse teiknimynd
Naeturlæknir: Axel Blöndal, Ei-
ríksgötu 31, símí 3951.
Næturvörður er í Ingólfs- og
Laugavegsapóteki.
Ctvarpið í dag:
9.25 tJtvarpsvika barnaskól-
anna: Kennsla. — 10.10: Erindi
(10,00 Veðurfregnir),
12.00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
18.15 Islenzkukennsla.
18.45 Þýzkukennsla.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
19,40 Auglýsingar.
1950 Fréttir.
20.15 Erindi: Um Sturlungaöld,
Vin. (Árni Pálsson prófessor).
20.45 Orgelleikur í Dómkirkjunni
(Eggert Gilfer).
'21.10 Hljómplötur:
a) Islenzk sönglög.
b) (21,35) Þjóðlög frá ýmsum
löndum.
(22,00 Fréttaágrip).
22.15 Dagskrárlok.
Skipafréttir: Gullfoss fór vest-
ur í gærkvöldi. Goðafoss er í Ham j
borg, Brúarfoss er í Khöfn. Detti- |
foss er á leið tii útlanda, Lagar-
foss var á Blönduósi í ' gær, Sel-
foss er á leið til útlanda, Dronn-
ing Alexandrine leggur af scað í
dag frá Kaupmannahöfn áleiðis
til landsins.
Súðin er væntanleg til Reykja-
víkur í kvöld.
■ f
fkviknun: Kl. 10,35 i fyrra-
kvöld -var slökkviliðið kallað á
vettvang til þess að slökkva .eld,
sem kominn var upp í anddyn
Eimskipafélagshússins. Hafði
kviknað í bréfarusli, sem var í
kassa fyrir framan tóbaksbúðina,
eða milli hennar og klukkunnar,
sem stendur í forstofunni. Tókst
slökkviliðinu bráðlega að ráða nið-
urlögum eldsins. Skemmdir urBu
ekki verulegar, þó sviðnaði kass-
inn utan um klukkuna nokkuð og
eins brann milligerðin fynr fiam-
an búðina að verulegu leyti og
nokkrar skemmdir urðu á vörum
í búðinni.
Árni Pálsson prófessor flytur í
kvöld kl. 20,15 í útvarpið áttunda
erindi sitt í erindaflokki um Sturl-
ungaöld. .
Wfcfél. Beyhj»vikar
^Tengdapabbí"
Sænslcur gamanleikur í 4 þátt
um, eftir Gustaf Geijerstam.
Friumsýning á morgun kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4 til 7 í dag og eftir kl. 1 áj
morgun.
HOSMÆÐUR
Eins og að undanförnu tek ég
að mér allskonar hreingern
ingar. Athugið að panta,' í tíma,
Kristján Jakobsson, Bergstaða-
stræti 49. Símar 5047 og 4882.
KAUPUM FLÖSKUR i
stórar og smáar, viskípela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin
Bergstaðastræti 10. Sími 5395
Sækjum. Opið allan daginn.
piÓÐVUINK
Dmræðnr nm vantranstið
Framhald af 1. síðu.
Hann kyað bændur og verka-
menn þúsundum saman hafa
treyst því, að leiðtogar þeirra
störfuðu á þessum grundvelli,
og ynnu með dug og djörfung
geg’n íhaldinu. Síðan las hann
ýms vel valin orð þessu til
stuðnings úr Alþýðublaðinu frá
þeim tímum þegar Alþýðuflokk
urinn var andstöðuflokkur í-‘
haldsíns. Endir á baráttu þessa
flokks fyrir réttindum hínna
vinnandi stétta, á baráttu þeírra
gegn íhaldínu, er svo sá, að
fá Ólafi Thors æðstu stjóm út-
vegsmálanna og Jakob Möller
fjármálanna. Pá benti hann á
hina furðulegu afstöðu Aíþýðu-
flokksins gagnvart géiTgisIækk-
uninni, réttindaskerðingu verk-
Iýðsfélaganna og þjóðstjómínni.
f öllum þessum málum kvað
hann Alþýðuflokkinn aðeíns
hafa víljað eitt, aðeins hafa tal-
ið eitt mögulegt, það var sam-
starf og samkomulag við íhald-
ið.
Um afstöðu Sjálfstæðisflokks-
ins kvað hann gegna nokkru
öðru málii. Engan furðaði á því
þó sá flokkur yrði allshugar:
. fegilnn að stófútgerðinni væru
gefnar nokkrar mifiljónir, verk-
föll bönnuð og kaup lækkað
með lögúm, en ekki mætti
gleyma því, að þessi flokkur
hefði sýnt aðrar hliðar á starf-
semi sinni. Blöð hans hefðu
þrásinnis talað um nauðsyn þess
að auka framlög til atvinnubóta,
■ og því væri nú ástæða til að
spyrja, hvort ekki mætti vænta
þess að núverandi fjármálaráð-
herra. haldi fast við fyrri tillög-
ur sínar og flokksins um að
áætla á næstu fjárlögum 750
þús. kr. til atvinnubóta. Þá væri
einnig ástæða til að spyrja
hvort ekki yrði látið skríða til
skarar um niðurskurð bitlinga
eins og margoft hefði verið
krafizt af Sjálfstæðisflokknum.
í þessu sambandi kvað hann
rétt að minnast þess, að Morg-
unblaðið hefði lýst því yfir
skýrt og skorinort í vetur, þeg-i
ar Tíminn krafðist þess að við-
reisn sjávarútvegsins færifram
á heilbrígðum grundvelli, að
óþarft værí að ræða meir um
samstarf flokkanna ef Framsókn
ætlaðí að gera slíkt að skilyrði
fyrir samstarfi. Morgunblaðið
hafði eínníg lýst því yfir, að
maðurinn, sem vantaði, væri
Mac Donald ínnan Alþýðuflokks
i ins. Hvorttveggja þetta hefur
gengið eftir óskum íhaldsins.
Pað er hætt að tala um viðreisn
sjávarútvegsihs á heiðarlegum
grundvelli og Morgunblaðíð hef
ur fundið Ma.c Donalc? í Stefánf
Jóhanni.
í samræmi yið alít þetta voru
svo fyrstu verk stjórnarinnarað
skera niður laun allra íaunþega
; í landinu og skerða samtaka-
rétt alþýðunnar: Slíkt hefði f-
haldið aldrei þorað að geraupp
|á sitt eindæmii tif þess þurfti
i það að njóta aðstoðar þeirra
manna, sem hefðu tneiri eða:
minni tök innan verklýðstireyf
ihgarinnar, — til slíks þurfti
Mac Donald.
Að lokum benti ræðumaður
á það hvernig allt starf hinnar
syokölluðú þjóðstjómar stefndi
í áttina til einræðis og harð-
stjórnar, hvernig myndun henn-
ar væri skýlaust brot gegn yfir
lýstum vilja kjósenda frá 1937,
og krafan hlyti því að vera sú
að þetta mál yrði lagt undir
dóm þjóðarinnar með nýjum
kosningum. S
Forsætísráðherra tók því
næst til máls-
Hann kvaðst ekki vilja ræða
þetta vantraust, þar sem það
væri óþinglegasta vantraust, er
fram hefði komið á Alþingi.
Stefán Jóhann rrræltí örfá
orð er fórui í sömu átt.
Þá tók Héðinn Valdimarsson
til máls.
Hann bað forseta að svara
þeirri spurningu, hvort ekkí
bæri að skilja þingsköp svoað
umræður ættu að fara fram um
vantraust. Ekki svaraði forseti:
því.
Þá spurði hann forsætisráðh.
að því hvort ekki ætti að veita
embætti lögreglustjóra og skatt
stjóra. Forsætisráðherra kvað
mann settan í skattstjóraem-
bættið en allt óákveðið um lög-
reglustjóra. Þá minntist Héðinn
á að ekkert hefði kornið. fram
Lim það að Breiðfylkingin hefði
gert með sér málefnasamning.
Talað væri um að þeir ætluðu
að vinna fyrir sjálfstæðismálið,
en hvernig, um það vantaðiall
ar upplýsingar. Hann lagðii á-;
herzlu á að það sem forsætis-
ráðherra hefði gert með mynd-
un hinnar nýju stjórnar, væri að
1 þverbrjóta vilja kjósenda, þeg-
er krafizt væri kosninga, væri
því verið að tala um rétt kjós-
endanna gagnvart þingmönn-
um.
^ Göjntariiio %
Saklausa skríf-
sfofusfúlkan
(Easy Lívíng)
Afar fjörug og bráð-
skemmtileg amerísk gam-
anmynd eftir
VERA CASPARY
Aðalhlutverkin leika: hin
fagra og fjöruga
JEAN ARTHUR
og
RAY MILLAND
Aukamynd:
Talmyndafréttir.
Hann kvað um það talað, að
viðhorfið í stjórnmálum lands
ins hefði .breytzt víð sfofnun
Sameiningarflokksins. Þetta
væri rétt, enda vildí flokkur
sameiningarmanna leggja mál-
ín undir dóm kjósendanna.
Stjórnarsamvinnu þá, sem hér
væri hafin, kvað hann komna
ofan frá en ekki frá fólkinu
sjálfu, sem í þessum málum
ættí að ráða. Sameining og sam
starf stjórnmálaflokka á að
korna neðan frá, frá fólkinu
sagði ræðumaður. En það sem
hér hefur gerzt er að Alþýðu-
flokkurinn og Framsókharfl.
hafa kastað stefnumálum sín-
uin fyrir borð, og fengið fimm
manna nefnd valdið í hendur.
Ekkert vantraust hefur verið.
borið frain á Alþingit fcins verð
skuldað, sagði ræðumaður að
lokum.
Þorsteinn Briem gat þess að
Bændaflokkurinn væri á móti
vantrausti á ríkiisstjórnina.
Aikki /\ús
lendir í æfiniýrumu
Saga í myndum
fyrtr börnín.
Mér þólli. alltaf vænt um gamki Já, en þ‘aS var ekki nógu vegna lét ég breyta því. Annars lét ég verkfræðinginn 'ráða
húsiS nritt eins og þáS var. gott hús lianda milljóna- mestu um hvernig hann hefði það. HúsiS er ekki eins fallegt
mæringi. — Nei, og þess- og áður, en það er þó orðið nýtízku Iiús!
Hans Kirk: Sjómenn 72
Drotlinn notaði mig sem verkfæri, þótt hann nú
varla hel'ði getað fundið annað óverðugra.
Síðustu dagana gekk hann á milli og lalaði við
sjómennina um þetta, sem eiginlega hafði veriS er-
indi hans. Hann þyrfti að fá lán í banka lil þess
að byrja eigin verzlun með pappir og bækur. Aðrir
vinir ætluðu að styðja hann og lijálpa honum, en
honum biúð-lá á að .fá 500 krónur, ef það ætti að
gela orðið íir þvi. Hann spurði nú, hvort þeiir vildu
í sameiningu ganga í ábyrgð fyrir hann. Það var stór
fúlga, fannst Tómasi. Já, andvarpaði Pétur; og mér
er líka um og ó að biðja ykkur um að- gera mér
þennan greiða. Eg véit veL, að þið hafið ekki ástæð-
ur til þess að reiða ykkur á mig.
Það var ekki auðvelt að segja nei, og þegar Pétur
fór, hafði hann undirskriftimar á skjalinu sínu.
— Þetta voru rólegir og friðsamlegir tímar á
miðju sumri. Stundum komu vagnar akandi utan af
landi með fólk, sem fór skemmtiferðir lil fjarðarins.
Eða seglskúta úr borginni lagðist við bryggjuna, og
fólkið drakk kaffi í hótelgarðinuiíi. Katrin gekk um
beina, en hún var virðuleg í framkomu og lét engan
troða sér um tær, hvorki fátækan eða ríkan. En hún
skellti ekki heldur hurðum eins og í gamla daga eða
var gróf í tali. Katrín var blíð eins og dúfa, sat á
hverju kvöldi og las bækur. Kock vildi það nú, og
hún fór eftir þvi, sem hann sagði. Á nóttunni lædd-
ist Kock á sokkaleistunum upp á loftið og hélt niðri
í sér andanum í hvert sinn, sem brakaði f fjöl.
Tea vissi ekki, hvaÖ hún ætti að halda. Var Kock
nú heiðarlegur maður og ætlaði sér að giflast slúlk-
unnj, eða beitti hann brögðum til þess að fleka hana?
Ráðskona Kocks var ekki þagmælslc og Tea saup
hveljur, þegar hún hugleiddi það, sem færi fram í
herbergi Katrínar.
Maríanna tók lélt á málinu: Þau liggja ’saman.
hvað er við þvi að segja — sagði hún ViS höfum þá
fyrr séð óléttan kvenmann í kirkjunni. Að þú skulir
geta tekið þessu svona, sagði Tea hneyksluð. Alma
og Malena liéldu með Teu og fordæmdu athæfið.
Maðiir ætti nú ekki að gera það vegna ástríðúnnar.
sagði Malena, það hlýtur þó að vera meiningin, að
við eigum börn á heiðarlegan hátt.
Maríanna hló bara og lagaði á sér hárið. Við skul-
um ekki vera að gera okkur betri en við erum.
sagði hún. Það er hvorl sem er enginn, sem hugsar
um börnin fyr en á eftir.
— Kock og Katrín höfðu ekki heimsótt Esben. Eg
er ekki fyrir fjölskyldulíf, sagði Kock. en ef þú endi-
lega vilt, þá getum við náttúrlega farið þangað á
sunmidaginn. Katrín kinkaði kolli. Og á sunnudag-
inn fóru þau út að Dauðsmannshúsinu Það var kæf-
andi hiti, og Kock iðraðist eftir allt saman, áður en
þau voru komin hálfa leið. t kringum Dauðsmanns-
húsið stóðu vindbarðar aspir með skrælnuðu laufi.
í litla garðiaum stóðu rif.srunnar með rauðum berj-
um, og gangstigamir yoru vel hirtir. Tátli kofinn
var kominn að falli, og þakið var grasi gróið. Esb-
en kom þjótandi út úr .fjósinu. *
Ó, herra minn trúrt Svo tignir gestir! hrópaði
hann. Gerið þið svo vel og gangiö inn í stofuna.
Komdu sæll, Kock, komdu sæl Katrín! Andlil hans
geislaði af áslúð og gleði. Heimsóknir voru sjaldgæf-
ir hlutir.
Slofan var þokkaleg með gömlum, brúnmáluð-
um húsgögnum. En það sá á, að Esben mundi venju-
legast láta sér nægja með að sópa gólfið. Kock fór
lil og opnaði gluggann. Það er svo heitt í dag, sagði
hann afsakandi.
Já, já, sagði Esben og kinkaði kolli, það er vell-
andi hiti, en kaffið, börnin góð, ég gleymi alveg að
hugsa um ykkur.
Eg skal hita það, sagði Katrín og fór út í eldhús-
ið. —
Esben horfði á eftir henni. Það var nú ekki auð-
hlaupið að þvi að vera einn í stofu með manni eins
og Kock. Bara að hún spari nú ekki baunirnar,
sagði liann. Það er engin hætta, áleit Kock, hún
kann að búa lil kaffi eins og það á að vera.
Það var fallegt af ykkur að koma að heimsækja
mig, sagði Esben, þegar Katrin kom með kaffið. Það
ber svo sjáldan við, að ókunnugir komi hér. Hvernig
gengur í þorpinu?
Ja, bvernig gengur, síLgði Kock og bauð vindil
með kaffinu. Þeir frelsuðu fara í tniboðshúsið og
syngja sálma. Þannig líður tíminn.
i Já, þú hefur rétt að mæla, s$gði Esben. Það .er inn-
dælis fólk þessir frelsuðu, ég er sjálfur snúinn, eins
og þeir kalla þáð* þvi að ég.er syndari, það ,er vist
og satU* Þeir tala svo vingjarnlega við mig i hyerl
sinn, sem ég kem i trúboðshúsið. Meir að segja Aaby