Þjóðviljinn - 06.05.1939, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.05.1939, Blaðsíða 4
sk Níý/aOib sg Suez Söguleg stórmynd frá Fox- félaginu er sýnir tildrögin til þess að hafizt var handa á einu af stærstu mannvirkj- um veraldarinnar, Suez- skurðinum, og þætti úr hinni ævintýraríku æfi franska and de Lessep’s, sem var að- alfrumkvöðullinn að því mikla verki. Aðalhlutverkin leika: Tyronne Power, Lorette Young, Annabella o. fl. Úp bopglnn! Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu 12. ■— Sími 2234. » Næturvörður er í Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Höfðingjar hittast heitir fær- eyskur sjónleikur eftir Regin í Hlíð, sem leikinn verður í útvarp- ið í kvöld kl. 20,20. Haraldur Bjömsson o. fl. leika. Skipafréttir: Gullfoss er á út- leið, Goðafoss kemur til Vestm. eyja í dag, Brúarfoss kom frá út- löndum í gærkveldi. Dettifoss er í Hamborg, Lagarfoss fór til Aust- fjarða og útlanda í gærkveldi, Sel- foss er á leið til Austfjarða frá Hamborg, Súðin var á Siglufirði í gærkveldi, Dronning Alexandrine er á Siglufirði. Frá höfninni: Arinbjörn hersir kom af veiðum í gær með 70 tunn ur, og Tryggvi gamli með um 60 tunnur. Flensborgarskólanum var sagt upp á miðvikudaginn var. Skráðir nemendur í skólanum voru 134, en um 130 munu hafa sótt nám að staðaldri. 24 nemendur bjuggu í heimavist, en auk þess borðuðu þar nokkrir nemendur, sem urðu að búa úti í bæ vegna þrengsla. Burtfararprófi úr skólanum luku 23 nemendur, en hæstu einkunn hlaut einn af nemendum 1. bekkj- ar, Hermann Jónsson að nafni. Skólalíf var fjörugt og ýms félög starfandi. Þess má geta, að dval- arkostnaður 1 heimavist var ó- venjulega lítill, eða aðeins kr. 1.31 fyrir pilta á dag og kr. 1.05 fyrir stúlkur. Var þó fæði og aðbúð öll hin bezta í heimavistinni. Frú Marin Jónsdóttir, Urðarstíg 16, verður 85 ára á morgun. 6. hljómleikar Tónlistarfélags- ins verða haldnir á þriðjudaginn kemur í Gamla Bíó. Spegillinn kemur út í dag. Sigarettur hefur vantað hér í bænum nokkra undanfama daga og hafa reykingamenn borið sig illa yfir. Nú voru sigarettur vænt- anlegar hingað í gærkveldi með Brúarfossi og munu þær þá senni- lega koma í verzlanir í dag. Húnvetningafélagið heldur á mánudaginn skemmtifund kl. 8.30 síðd. Jónas Kristjánsson læknir IICIVILJINK ■^rfPPlPP flytur þar erindi. Auk þess verður upplestur og dans. Aðgöngumið- ar á kr. 1.50 fást í Verzlunin Máln ing og járnvörur, Laugaveg 25 og í Manchester. Nýja Bíó sýnir um þessar mund ir kvikmyndina „Suez”, sem Fox- félagið hefur látið gera. Er þetta söguleg kvikmynd um gröft Suez skurðarins og ævintýri Ferdin- ands de Lesseps. Gamla Bíó sýnir franska kvik- mynd, sem nefnist „Við höldum saman”. Aðalhlutverkin leika þau Gabin, Viviane Ramance og Char- les Vanel. Ferðafélagið efnir til tveggja skemmtiferða út úr bænum nú um helgina, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær. Önnur förin verður farin upp á Skarðsheiði, en hin suður á Reykjanes. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á morgun „Tengdapabba”. Athygli skal vakin á því, a nokkrir að- göngumiðar að þessari sýningu verða seldir á kr. 1.50. Tengda- pabbi var sýndur síðastliðinn mið- vikudag fyrir fullu húsi og er ó- hætt að fullyrða, að „gleði var í höll”. Mikki mús kemur aftur í blað- inu á morgun. Armenningar fara í skíðaferð í Jósefsdal í kvöld kl. 8 og í fyrra- málið kl. 9 Bílfært er aiveg að skálanum og snjó.- onnþá nægur í Bláfjöllum. Árshátíð tónlistarfélagsins verð- ur haldin að Hótel Borg í kvöld og hefst með hljómleikum kl. 9 e. h. Dansað verður frá kl. 10 til 2,30. Á milli þess, sem dansað verður, eru dansaðir og sungnir dúettar úr óperettum. Aðgöngumiðar á kr. 3.00 eru seldir hjá Sigríði Helga- dóttur (áður K. Viðar) og verzl. „Fiks”, Laugaveg 18. Þar sem verkamaimafélagið Dagsbrún hafði ekkert húsnæði 1. maí, efnir félagið til dansleiks í Iðnó í kvöld kl. 10,30. liinn 3. maí birtisi í blaði hins heilaga Jóhanns greinar- korn. sem blaðið segir að sé ræða sú, er bæjarfulHrúi frú Soffía lngvarsdóttir flutii nokkrum Skjaldbyrgingum við Arnarhól i Reykjavik hinn 1. maí. Par segir, að í sporum al- þýðuflokksstjórna hinna ýmsu landa, sjáist vergi blóð. Ung er frúin og vissulega í blóma lífsins, en ætla mætti henni þó að muna aftur í tímann til árs- ins 1929. Pá sat að völdum i Prússlandi stjórn, sem helgur Jóh. og ristj. hans, flóttamaður- inn frá Norðfirði, áreiðanlega mundu nú kalla „Alþýðuflokks- stjórn”, og það nmndi þá vissu- lega frú Soffía gera Hka, því ekki ber á því, að hún hafi vilj- andi aðrar skoðanir en þessir menn. Pá ætluðu verkamenn í Berlín að halda 1. maí hátíðleg- an, eins og þeir voru vanir, en „alþýðuflo kkss tjórnin” sen d i gegn þeim vopnaða lögreglu og herlið og stóðu bardagar í borg inni í 2 til 3 daga og voru 31 verkamaðurs drepinn. Annaðhvort er því, að frúin er ekki vel að sér i sögu verka- lýðshreyfingarinnar, eða luin er þegar orðin um of smituð af þeirri óráðvöndu meðferð stað- reynda, sem er áberandi fyrir þá menn, sem liún hefur kosið að hafa fyrir pólitíska húsbænd ur. En lwort sem heldur er, má segja, að henni fari hvort- tveggja jafn illa, svo glæsileg 'kona.sem hún þó er að vallar- sýn. kostur er á, eða aðeins á kr. 1.50 til kl. 10, en eftir þann tíma venju legt verð. — Komið og skemmtið Aðgöngu-ykkur í Iðnó í kvöld og kaupið miðar eru seldir svo ódýrt, semaðgöngumiða í tíma. tJtför BJÖRNS BJÖRNSSONAR, teiknikennara fer fram mánudaginn 8. maí og liefst með kveðjuathöfn í Kenn araskólanum kl. 2,30 e. hád. Athöfninni í Dómkirkjunni verður útvarpað. Vandamenn. „Hín horfnu lönd" Ný ljóðabók efiir Valdímar Hólm Hallsfað kemur á bókamarkaðínn í sumar . f- ' \ ;. v ISíllll ; i Valdimar Hólm Hallstað „Hin horfnu lönd” heitir kvæða bók, sem bráðlega er væntanleg á bókamarkaðinn eftir Valdimar Hólm Hallstað, ungan rithöfund. Verður bókin hin vandaðasta að öllum frágangi, 7 arkir að stærð. Áður hefur komið út eftir hann lítil ljóðabók, „Komdu út í kvöld- rökkrið”. Safnið ðskrifendnm LeikféLRejWavjkur Tcngdapabbí gamanleikur í 4þáttum. Sýning á nnorgun kl, 8. NB. Nokkrir aðgöngumiðar seldir á aðeins kr. 1.50. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7, í dag og eftir kl. 1 ámorg- un. Ctvarpið í dag: 19.45 Fréttir. 20.10 Veðurfregnir. 20.20 Leikrit: Höfðingjar hittast, eftir Regin í Hlíð (Haraldur Björnsson o. fl.). 21.30 Danslög 22.00 Fréttaágrip. 24.00 Dagskrárlok. SÓSÍALISTAFÉL. RVIKUR. SKRIFSTOFA félagsíns er í Hafnarsiræfí 21 Sími 4824. Opin alla virka daga frá kl. 2—7 e. h. Félagsmenn eru áminntir um að koma á skrifstohina og greiða gjöld sin. Þeir félagsmenn, sem ekki hafa fengið skírteini geta vitjað þeirra á skrifstofuna. STJÓRNIN. gL Gðtrolö ttio j wVíd hdldum saman" — La Belle Equipe — Framúrskarandi skemmtileg og vel leikin frönsk kvikmynd, lof- söngur til lífsins, baráttunnar fyrir tilverunni, og — frelsisins Aðalhlutverkin leika: JEAN GABIN, VTVIANE ROMANCE og CHARLES VANEL. Allt til hreiD- gerninoa Kvíllayabörkur. Sápur allar teg. Þvoffaefní allar teg. Raesfíduff. Hús$a$na$ljáí. Fee$ílö$ur. 40 tegundír af Bursfavörum. G^kaupfélaqiá HansKirk: Sjómenn 77 Petta eru óeirðaseggir og vilja helzt einir öllu ráSa á firðinum. Hinir tóku undir: Peir að sunnan voru harðsvír- aðir iantar, og það sakaði ekki, að þeim yrði einu- sinni sýnt í tvo heimana. En Lárus slagaði af þreytu og gat varla haldið sér uppréttum. Við verðum að fara snemma út á morgun aftur, sagði hann. Pað er bezt að við komum okkur heim og sofum, á meðan tími er til. Þeir skjögruðu heim með stii-ða limi og sviða i augum. Pegar þeir voru búnir að borða, köstuðu þeir sér upp í rúmið í öllum fötunum. Með fyrstu skímu barði Páll á gluggana hjá hin- um. Pað var mál að byrja aflur. Úrvinda af svefni skjögruðu þeir niður á bryggjuna og hálfsváfu í bátunum á leiðinni út. Vinnan gekk sinn gang, staur- arir voru keyrðir niður og háfarnir settir út. Sólin glitraði í vatninu — það skar í augun eins og hnífar. Peir skiptust á að sveifla hinum þungu kylfum, en við og við stönzuðu þeir og liíu suður yfir fjörðinn. Peir hafa bara verið að gabbast að okkur, sagði Anton. En Tómas var á annari skoðun. Jens Kolby var maður, sem gerði ekki að gamni sínu. Pegar liðið var á daginn lcallaði Páll: Pama koma þeir. Prír eða fjórir vélbátar komu að sunnan með pramma í eftirdragi. Pað var óvinurinn. Við höldum áfram að vinna og látum sem ekkert sé, kallaði Tómas á móti. Peir héldu áfram að keyra niður staurana, en höfðu stöðugl gát á hinum. Pegar litli flotinn var kominn nálægt skreið einn af vélbátun- um fram úr, Par var kominn Jens Kolby við annan mann. Hvað eruð þið að gera hér á Blágrunninum. hróp- aði Jens Kolby. Pið hafið kannske ekki tekið eftir, að það hafa verið sett niður merki. — Pað er engin ástæða fyrir okkur að taka tillit til slikra merkja hér á okkar vatni, sagði Tómas. Pið skuluð vita að þetta er ólöglegt, sagði Jens Kolby hótandi og nú verðið þið að gera ykkur að góðu, að við neytum réttar okkar. Hann var eldrauður í framan af æsingu, og orðin köfnuðu i kverkum hans. Hann setti harðan hnykk á stýrið, og báturinn sveigði aftur að prömmunum. Skyldu þeir fara aftur? sagði Anlon, en Tómas hristi höfuðið. Petta getur víst aldrei endað vel, sagði hann. Hinir aðkomnu losuðu prammana úr festum, og lögðu þeim við botnakkeri. Pað voru þrír vélbátar og tveir menn á hverjum. Tómas þekkti einn þeirra, það var Karl Povlsen. Honum brá undarlega við, það var elcki gaman að standa guðs börn að svo ó- heiðarlegu offorsi. .Tens Kolby stýrði bátnum sínum aftur að. Nú viljum við fyrst vita, hvort þið viljið með góðu flytja netin ykkar frá þeim stöðum, sem hafa verið merktir, kallaði hann. Nei. kallaði Tómas aftur. Pau merki voru ekki löglega sett. — Aftur sveigði báturinn, hinir tveir fylgdu á eftir, svo að sjórinn freyddi í kjölfarinu. Peir stefndu á suðurenda Blágrunnsins, þar sem þegar hafði verið lögð löng röð af háfum. Nú rífa þeir þá niður, fyrir okkur, hrópaði Anton. Pví trúi ég nú ekki, sagði Tómas efablandinn. En Anton hafði rétt fyrir sér. Jens Kolby lagði bátnum sínum upp að einum háfnum og tók að leysa taugina frá staurnum. Pað var auðséð að hann adlaði sér að gera allt ónýtt. < Við verðum að fara á eftir, sagði Anton, og þeir stukku i skyndi af prammanum yfir í bláa hafbát- inn. Hinir sjómennirnir höfðu álengdar fylgzt með þvi, sem fram fór, og á meðan Anton barðist við vélina, brunaði bátur Páls framhjá með fullri ferð. Á eftir komu þeir Jens og Andrés róandi af öllum kröftum. Allt i einu komst vélin í gang, báturinn lók viðbragð, Anton var kominn á fulla fei'ð. Hættið þið. djöflarnir ykkar, öskraði Anton, hann áttaði sig í sama bili og sló hendinni fyrir munninn, cn Tómas tók ekki eftir blótsyrðinu. Hann stýrði á bát Jens Kolbys og komst upp að hliðinni á Páli, sem hafði Lárus um borð. Sunnanmennirnir höfðu þegar leyst tvo háfa. Hættið þið, ellegar við siglum ykkur í kaf, hróp- aði Tómas viti sínu fjær. Kornið þið bara, ef þið þorið, kallaði einn frá ó- vinabátnum á móti. Tómas var snjóhvítur i framan og beit á jaxlinn. Tilbúnir með bátstjakann, Anton! kallaði liann. Anton stökk fram í stafninn og var viðbúinn að taka á móti. Hafbáturinn urgaði upp að hliðinni á hinum Happdrætlá Háskóla Islands Aðelns 3 sðlndagar eftlrffyrir 3. drðtt.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.