Þjóðviljinn - 20.05.1939, Blaðsíða 3
ÞJÓÐVILJINN
Laugardaginn 20. maí 1939
Olínverðlð, olfnftlðgln og
afskfpU hfns optnbera
Út af staðhæfingiim þeim, sem fram hafa komið í blöð-
um, í sambandi við samninga olíufélaganna og ríkisstjórnar-
innar, hefur Þjóðviljinn snúið sér til Héðins Valdimarssonar
og óskað eftir að hann léti blaðinu í té upplýsingar þær, er
hann hefði, viðvíkajndi þessum málum. Fara þær hér á eftir:
Knattspyrnukeppni
á Uppstigningardag
K.R. og Víhíngur gerðu jafn-
teflí víð sjólíðana.
Síldarverksmiðjur ríkisins á-
kváðu í fyrra að byggja til við-
bótar við 2000 tonna síldarlýs-
isgeymi er þær áttu, annan 2000
tonna síldarlýsisgeymi; því að
til þess að geta beðjð með sölu
á síldarlýsi, þyrfti 4000 tonna
geyma, og fengu lán í þessu
skyni hjá Landsbajikanum.
Stjórn verksmiðjanna ákvað
samt er til kom að byggja ekki
2000 tonna tank heldur 4000
tonna og gætu þær þá notað
eldri tankinn fyrir olíu á Siglu-
íirði til sölu, enda þótt olíusala
heyri ekki undir verkahring
verksmiðjanna. Telur stjórn
verksmiðjanna slíka olíusölu
hagkvæma, þar sem verksmiðj-
urnar njóta útsvara og skatt-
frelsis sem síldarverksmiðjur,
sem þær gætu notað sér líka
við olíusölu í samkeppni við
þá sem þetta þurfa að greiða
og ennfremur sé hægt að reikna
lóðargjald, tankfyrningu ogvið-
hald, afhendingar- og skrif-
stofukostnað yfir á síldarlýsið,
en ákveða því lægra olíuverð.
Á þessum grundvelli hófu verk-
smiðjurnar umræður við Olíu-
verzlrm Islands og Shell á ts-
landi, um að krefjast þess að
olíufélögin seldu verksmiðjun-
um og viðskiptamönnum þeirra
olíu á 15 aura kílóið í stað 17
aura ákvæðisverðs (að frádregn
um afslætti af þessum 17 aur-
um), og mundi ia þann >hátt
hægt að láta viðskiptamönnum
verksmiðjanna í té betri kjör
en öðrum útvegsmönnum, en
fengist þetta ekki, þá flyttu verk
smiðjurnar inn olíu og seldu
á 15 aura kílóið. Félögin svör-
uðu að þau mundu selja útgerð-
armönnum, sem skiptu við þau
öllum! á samja verði olí-
una án tillits til við
hvaða verksmiðjur þeir
skiptu, en verð sitt mvndu þau
sjálf ákveða fyrir ^íldartímann
á Siglufirði og þetta væri of
lágt miðað við kostnað og opin-
ber gjöld félaganna. Ríkisstjórn
in gek[kst síðan í málið og fór
verksmiðjustjórnin þá fram áað
útsöluverðið til allra viðskipta-
manna félaganna yrði ákveðið
yfir síldartímann 15y2 eyrir í
stað 17. Varð loks að samkomu-
lagi að það verð yrði ákveð-
ið frá geymi á Siglufirði á hrá-
olru frá 15. júlí til 1. septem-
ber, en tunnuverð á hráolíu yrði
17 aurar nettó og annarsstaðar
á landinu var verðinu ekki hagg->
að, en jafnframt fellur niður
um allt land aukaafsláttur á hrá-
olíu, 4 krónur á tonn, er þeir
fengu er keyptu yfir 15 tonn
á ári, og flestallir útgerðarmenn
nutu fyrr.
Olíufélögin hafa undanfarandi
haldið sama verði á hráolíu á
öllum höfnum og án tillits til
hvort allt væri í tunnum eða
frá olíugeymum og hefur
á þann hátt verið jafnað nokk-
uð aðstæðumun viðskiptamann-
anna til að fá ódýrari olíu á
stærstu stöðunum, þar sem sala
hefur mikil, verið á geymi, til
hagsmuna fyrir útgerðarmenn á
minni stöðvunum, þar sem erf-
iðara var fyrir útveginn. Verð-
breytingin á Siglufirði geturþví
ekki talizt nein heildarverðlækk
un, heldur aðeins er það gert
í samráði við stjóm síldar-
bræslanna og ríkisstjórnina að
mismunað er á tankverðinu á
Siglufirði til hagsmuna fyrir
síldveiðiskipin þar á staðnum,
en það kemur aftur annarsstað-
sláttar um áramót. Tel ég fyrir
initt leyti þessar verðbreyting-
ar vafasaman hagnað fyrir út-
gerðina sem heild.
Hinsvegar er það ljóst, að
ekki er hægt að ætlast til að
olíufélögin selji olíu allsstaðar
á landinjul í tuinnum o g
frá geymum, sama verði
og hægt væri fyrir síldarverk-
smiðjurnar að selja olíu fyrir
ineð kostnaðarverði frá Siglu-
firði, án þess að þær greiddu
eins og félögin skatta, útsvör
'Og venjuelgan verzlunarkostn-
að, jafnvel þó að olíufélögin
njóti betri innkaupa heldur en
verksmiðjurnar.
Ríkisstjórnin og olíwfélögin
munu á þessu vori sennilega
hafa nánari samtöl um fyrir-
komulagið í framtíðinni. Hing-
að til hefur það reynzt svo, að
olíusala einstaklinga og samlaga
útgerðarmanna hefur yfirleitt
aðeins verið reynd á stærstu
og ódýmstu stöðunum, verðið
hefur ekki orðið lægra en hjá
olíufélögunum og hlutaðeigandi
olíusalar hafa ekki virzt græða
og hafa þó sloppið vel frá skött-
■ um. En það segir sig sjálft,
að þau félög, sem selja olíu
víðsvegar á landinu verða að
taka tillit til verðlagsins á öllu
landinu í heild, hvernig það
svari kostnaði, hvaða áhrif það
hefur á útgerðina, og farið
verði eftir samanlögðu sölu-
magni félaganna á öllu landinu
en þau haldi ekki niðri verðinu
fyrir erfiðustu staðina án þess
að fá það uppi borið annars-
staðar, né telji sér skylt, að
halda áfram olíusölu á rýrustu
og erfiðustu stöðunum einum.
Ress skal að lokum getið, að
verð hráolíu hér á landi er fylli-
lega sambærilegt við verðið í
nágrannalöndunum, svo sem
Noregi, og eru allar aðstæður
þar til olíusölu þó miklu betri
og sölumagnið margfallt meira.
Birgðir þær sem olíufélögin
liafa flutt inn og eru að flytja
inn eru pantaðar samkvæmt á-
ætlun þeirra áður en ríkisstjó(rn-i
in hafði nokkur afskipti af mál-
inu, en svo hefði getað farið
út af þessum málum, að hætt
yrði við nú í vor innflutning á
3000 tonnum af hráolíu, eða
meira en nemur allri olíusölu
til síldveiðiskipa yfir sumartím-
ann. Heppilega lausn olíumáls-
ins fyrir útgerðina er ekkihægt
i að fá með einstökum og dreifð
uin aðgerðum vegna einstakra
útgerðarstaða. Petta er lands-
mál, sem menn verða að skilja
að ber að skoða í einni heild,
út frá því sjónarmiði, að verð-
:ið í heild, víðsvegar um landið,
geti 'orðið sem Iægst, afgreiðsla
öll sem hagkvæmust, sem
tninnstur erlendur gjaldeyrir
verði notaður, tryggð séu söm
og jöfn olíugæði og að ávalt
séu fyrir hendi í landinu nægar
birgðir af olfu, en til þess þarf
auk góðs viðskiptaskipulags,
inn á við og lágra opinberra
gjalda sem á iolíuna falli, einnigi
örugg og góð viðskiptasam-
bönd út á við, sem hægt sé, að
treysta. i
Á uppstigningardag fóru frarn
5 kappleikir í knattspyrnu. Fyr
ir hádegi keppti III. fl. fyrst
Fram—Valur og lauk þeim leik
með sigri Vals 2:0. Síðari leik-
urinn var milli Víkings og K.R.
sem endaði 1:1. Kæra kom fram
á hendur Víking fyrir að nota
ólöglega menn og voru leikir
Víkings því ólöglegir og flokk-
urinn dæmdur af K. R. R- í tap
þá leiki er þeir hafa uunið eða
gert jafntefli og standa því K.
R. og Valur jöfn og verður
keppt til úrslita í þeim flokki
á morgun.
Kl. 2 fór svo fram keppni í
II. aldursflokki og kepptu þar
fyrst Valur og Fram, sigraði
Fram með 2 gegn 0. Síðari
leiknum, K-R.—Víkinguy, lauk
með sigri K.R., 5:1. Voru leikir
þessir nokkuð fjörugir og vel
leiknir. Tap Vals mun þó hafa
komið nokkuð á óvart eftir
þeirra góða leik við K.R. í vor,
geta Valsmenn sjálfum sér um
kennt ósigurinn. Selt var inn á
leiki þessa sem þó er bannað
í reglum K. R. R., nema úrslita-
leiki, og er það gert til að
íþyngja eða styggja ekki áhorf-
endur um of með því að selja
aðgang að lélegum kappleikjum
K.R. og Víkingur — Vindicttve
3:3.
Fimmti og síðasti leikurinn
var sá sem mesta athygli vaktj
og beðið var eftir með mestri
eftirvæntingu. Menn fóru að
rifja upp fyrir sér þegar orustu-
skipið Nelson kom hér fyrir
nokkrum árum og keppti hér
við „reghdegt úrval“ sem sigr-
aði Nelson með 3:0, eftir ágæt-
an leik. Var líka búizt við góð-
| um leik við þetta skip, og þan
sem auglýst var að K.R. og
Víkingur sameinuðu lið, var að
sjálfsögðu búizt við að þar yrði
teflt fram því bezta frá báðum
þessara félaga. En hvað skeð-
tir? Pegar maður sér liðið verð-
ur manni á að halda að hér sé
bara grín á ferðinni, bæði hvað
mannval og leikstöðu snertir. ,
Parna voru Il.-flokks menn og j
B-liðar sem aldrei höfðu leikið
í 1. flokki félaganna, hvað þá í
úrvali. Auk þess létu fslending-
arnir standa svO' á . sér,
að byrja varð leik 12 mln. eftir
auglýstan tíma 'Og þá ekki nema
með 10 leikendur, 1 kom síðar.
En hver valdi í liðið? Auglýst
var einnig að hljóm'sveit skips-
ins léki þarna, en hún sást
aldrei, og er ótrúlegt, að hafi
hún verið búin að lofa því, að
hún hefði ekki komið. Eru þetta
mjög slæm mistök, og hvertrú-
ir nú þó auglýst sé, að hljóm-
sveit skipa leiki við leik á vell-
inum ?
Sjálfur leikurinn var ekki
svo slæmur, þótt þar væri víða
að finna hreinar eyður og
fjörlausar tilraunir, er fslend-
ingarnir gerðu til áhlaupa og
samleiks, enda féll liðið ekki
saman, sem varla var von, þar
senr svona var í það raðað.
Mest bar þar á gamla ,,tríó-
inu“ úr K.R., og var samleik-
ur þeirra góður með köflum,
en skiptjngar og hraði var þar
ekki. Má búast við, að enn
komi þeir með í sumar,
Hansi, Steini og Gísli. Af sjplið
um að vera voru Englendingarn
ir góðir og sumir ágætir, t. d.
hægri innframherji, sem var
bezti maðurinn í leiknum. Peir
höfðu allir góða knattmeðferð
og samleikur var oft góður,
máttu íslendingar þakka sínum
sæla að sleppa með 3:3. Hinn
harði völlur hefur sennikga ver-
ið farinn að þreyta Englending-
ana í lokin, því ýms þreytu-
merki sáust á þeim, enda von,
þar sem um sjómenn var að
ræða.
Heyrst hefur að skipverjar
ætli að leika hér 1—2 leiki enn-
þá, en þvenær og við hverja
er ekki ákveðið.
Mr. — ,
Samningar við
Hitler ern einsk-
isvirði og hættn-
legir
Sœnska siórblaðid
„Göfeborgs Handels-
och Sjöfarfsiídníng##
brennímerkír áleífní
þýzku nazísfasfjórnar*-
ínnar vid Nordurtönd.
..Göteborgs Haniels- og Sjc-
*avrstidn;ng” er viðmkennt .-en
eitt hið vandaSæta blv5" ú Norí-
urlöndum með tilliti til alþjóða-
sljórnmóla og pr v’tnaö til um-
mæl'i þess í b'öðnm um allan
heim. Eftirfa ondi uldi’áttur úr
rits1jorna,,grcir Göteborgs
Hande' - r>? Sjóíai ts.idning er
gott dæmi um nvernig frjáls-
ljmdir borgarar líta á tilboð
Hitlere um „öryggissáttmála”:
„Við dálitla umhugsun verð-
ur ljóst, að tilboðið er ekki eins
saklaust og það sýnist vera. Pví
betur sem það er athugað, því
augljósar verður, að hér er um
gildru að ræða. Engum manni
hérlendis kcmur til hugar, að
ráðast á Týzkaland eða taka
þátt í slíkri árás, hversu innileg
sem andstyggð hans er á þeirri
stjórn, sem landið er svo óharn
ingjusamt að búa við. Hvað
snertir yfirlýsingar um álíka
friðsamlega afstöðu Þýzkalands
til lands vors, erum vér íylli-
lega ánægðir með þá samninga,
sem nú þegar gilda, þar sem
þýzkaland befur undirritað
Kelloggssáttmálann. Hann nær
' einnig vfir þetta atriði. Herra
Hitler hefur auk þess hvað eft-
ir annað lýst yfir því, að hann
óski ekki eftir neinni landa-
aukningu í Evrópu. Hann hefur
lýst þessu yfir og gefið hátíðleg
loforð um það, rétt áður en
hann tók Austurríki. Súdetta-
héruðin, Bæheim. Mær. og
Memel. Hin þægilega aðfe’: e-
hann notaði til að losna v ð ör-
vgoissáttmálann við PóUand og
flotasamninginn við Breta sý' -
ir einnie hvers virði þecshá'tnr
samningar eru
^amn'ngur sá, er lagt hefur
vprjS til að gerður yrði, mundi
fljótlega látinn ná yíir fleiri al-
riði, á verzlunarsviðinu og í
men ningarmálum.
Tilgangurinn er eflaust sá, að
innlima Norðurlönd í það
þjóðhagskerfi, sem T’ýzkaland
reynir nú að hrófa upp til að
verjast- þjóðhagshruni heima-
fyrír. Fjármála- og atvinnuá-
stand Pýzkalands versnar með
degi hverjum. Reynt er að
bjarga hínní sökkvandi þýzku
þjóðarskútu með því að binda
í'ösl við hana ýms lönd, sem
eiga að vera henni einskonar
flotholt. Ef vér látum nota land
vort á þennan hátl, hrinduin
vér Englandi burt, en það er
bezti og stærsti viðskintavinur
vor. og með því öðrum Iýði'æðis
löndum. Vér verðum aðnjót-
andi þess heiðurs, að vera þátt-
takendur í gjaldþroti Pýzka-
lands.
Pað er einig ástæða til að ætla
að sett yrðu í samninginn á-
kvæði um, að ekki mætti skrifa
i blöð landanna eða tala opin-
berlega á þann hátt, að það
gæ:i snillt virrí'tumv. Sijórr-
endur Pvzkalands eru mjög óá-
nægðir með bin frjálsu blNS lý'4
ræðisríkjanna. Pýzka «tjórnin
hefur oft reynt »ð fá hrezku og
frön«ku stjó'nirnar lil að múl-
Framh. á 4. síðu.
Vegna jarðarfarar
verður bankínn lokadur mánuda§-
ínn 22. þ* m.
Vixlar, scm falla í gjalddaga
fösfudagínn, 19. mai, verða afsagðír
laugairdagínn 20.
BnnaðarbanhinD.
Hraðferðir til
Akureyrar
Brádum byrjatr S T EIN DÓ R hraðferðír
um AKRANES fíl AKUREYRAR
tvísvar í víku.
Nánar auglýst síðar.
Útbreiðid Þjóðviljann
Tllkynnmg
nm bnstaðarsktpti
Þeír, sem hafa flutt búferlum o§ hafa innastohhs-
muní sína brunatryggða, eða eru líftryggðír hjá oss,
eru hérmeð ámínntír um að tílkynna ossj bústaða-
shíptí sín nú þegar.
Sióvátrygginggrfélag Isiands h.f.
Eimskíp 2. haeð Símí 1700
Áskrtfendnr Þfóðvtljans,
scm æfla að hafa búsiaðaskípfí, tíl*
kynní nýýa hcímílisfangið á af~
grcíðsluna. Símí 2184.