Þjóðviljinn - 14.06.1939, Side 3
ÞJÓD VILJINN
Miðvikudaginn 14. júní 1939
Danska knattspyrnu-
sambandið 50 ára
Snemma á árinu 1888 kom
fram í IJDanmörku tillaga um að
stofna ieitt allsherjar knatt-
spyrnufélag. Kom ]>að fram
vegna þess, að árekstrar og
misklíð kom oft fram, þar sem
leikreglur voru mismunandi og
•enginn til að ákveða, hverjar
giltu, enginn til að hegna fyrir
brot o. s. frv. Þessi tillaga fékk
þó ekki byr, en upp úr þessu
var sett á laggirnar nefnd sam-
kvæmt tillögu frá Köbenhavns
Boldklub, (sem er elzta félag-
ið, stofnað 1876) til að semja
lög og reglur fyrir knatt-
spyrnusamband. Síðan var boð-
að til fundar af 86 félögum,
en aðeins 21 fulltr. mættu frá
Khöfn og 5 frá Jótlandi. —
18. maí 1889 var svo samband-
ið stofnað, og gengu þegar 10
félög í það: Aalborg Kricket-
klub, Akademisk Boldklub,
Boldklubben Frem, Boldklubb-
en Haabet, Horsens Boldklub,
Köbenhavns Boldklub, Kolding
Kricketklub, Melchiorianer
Boldklub, Viborg Boldklub og
Österbro Boldklub.
Fyrsti formaður sambandsins
var cand. jur. F. Markmann.
Fyrsta keppnin, sem sambandið
tefndi til, var um haustið sama
'ár, og‘ var þá leikið einn við
alla og allir við einp. Þátttak-
endur í þessari fyrstu keppni
voru 7 félög og vann Akadem-
isk Boldklub keppnina og varð
þannig fyrst til að vinna far-
andbikar sambandsins.
Fljótt fór að bera á því, að
Jótarnir þóttust útundan og
sambandið væri fyrir Kaupm-
höfn eina. Var því stofnað
Knattspyrnusamband Jótlands.'
Þegar svo Íþróttasamband Dan-
merkur var stofnað, gengu
þessi sambönd í það. Nú er
það svo. að landinu er skipt
í smásambönd, en það varð
1903, sem svo aftur mynda að-
alsambandið. Þetta fyrirkomu-
lag hefur orðið tit mikils
hægðarauka og orðið til þess,
að fullkomna bæði íþróttina og
svo aðstæðurnar til að iðka
hana. Enda sést bezt á því,
hve samstarí og stjórn hefur
verið góð, að fyrir 50 árum
var enginn sléttur völlur til
knattleika, en nú eru þeir um
1300.
Fyrsti landskappleikur Sam-
bandsins var við Þjóðverja. —
Hafði Hamborgar-Altona-
knattspyrnusambandið boðið
þeim til keppni 18. apríl 1897,
og var sent úrval úr A. B.,
Frem, K. B. og B-93. Þann
lieik unnu Danir með 5 :0.
Tekjur af þessum leik fyrir
D. B. U. voru aðeins 102,75
kr.! Fyrstu kynni Dana af
brezkum knattspyrnumönnutT)
var 1898. Var það Queens Park
F. C. frá Glasgow sem kom til
Kaupmannahafnar og léku tvo
leiki og unnu báða. Síðan hefur
verið stöðug samvinna milli
Dana og enskra og skozkra
knattspyrnumanna og hafa Dan
ir fengið mikinn lærdóm af
þeirri kynningu.
Árið 1906 tóku Danir þátt í
Olympisku leikjunum í Aþenu
og urðu olympiumeistarar þar,
sigruðu Tyrki 5:1 og Grikki
með 9:0, þ. e. a. s. eftir einn
hálfleik, því Grikkjum fannst
þetta nóg og hættu, og lokuðu
sig inni í baðherbergjunum,
sneyptir og armæddir! ,og eru
Danir því fyrstu sigurvegarar
í knattspyrnu á ólympíuleikjun-
um.
Tveim árum síðar keptu þeir
á Ólympiuleikjunum í London
og lentu þajl í úrslitum við Eng
land eftir að hafa sigrað A og
B-lið Frakka með 9:0 og 17:1,
en þessum leik luku Danir með
2:0.
Fyrsta landskeppni Dana
heima í Kaupmannahöfn var
móti Englendingum 5. mai 1910
Þenna leik unnu Danir með2:l.
Tekjur af þessum leik urðu
kr. 427,44, og er fyrsta sjóðs-
myndun sambandsins.
Árið 1911 var merkisár í
knattspymusögu Dana. Þá var
vígður íþróttavöllur Kaupm.-
hafnar, sem þá var með beztu
völlumj í (Evrópu og hafði kost-
að mikla vinnu og útsjón með
tilliti til framtíðarinnar. Þessi
völlur tók þá 1600 í sæti og
um 10,000 stæði, en nú tekur
hann 42 þús. áhorfendur. Völl-
urinn var vígður með því að
úrval úr K. B. og B. 93 tók á
móti enska atvinnumannaflokkn
um, Sheffield Wednesday, 25.
maí og töpuðu Danir með að-
eins 2:3.
Fyrsti leikur Dana við Norð-
rnenn var 1912 og við Svía 1913
Milli Norðurlandanna hefurallt-
af verið góð samvinna í knatt-
spyrnu og voru Danir lærifeð-
ur þeirra lengi fram eftir.
Fyrsta landskeppnin í Dan-
mörku fór fram 1913 og vann
K.R. hana. Varð Sambandið í
2—300 kr. tapi á keppni þess-
ari, en þetta hefur breyzt. S.I.
ár t. d. hafa þeir í tekjur 200
þús. krónur, og borga þeiraf
því 75 þús. kr. til undir-sam-
bandanna, sem skipta því milli
sinna félaga. Danska sambandið
hefur haft landskappleikjasam-
band við fleiri ríki Evrópu og
ier vel á verði bæði út á við og
inn á við með velgengni knatt-
spyrnumanna sinna. Danir
hafa átt nokkur skipti
við íslenzka knattspyrnu-
menn. Akademisk Bold-
klub kom hér um 1920, K. F.
U. M. Boldklub kom hér 1933,
H. 1. K. kom 1934. Knattspyrnu-
félagið Valur hefur farið tvisv-
ar til Danmerkur og keppt við
danska knattspyrnumenn, og
nú síðast Fram, sem er statt á
afmæli sambandsins í Kaupm.-
höfn, o|g fær bráðum að reyna
sig. Þess má geta hér til gam-
ans, að íslendingur hefur leikið
7 sinnum í landsliði Dana, en
það er hinn ágæti Framari, Sam
úel Thorsteinsen, lék hann út-
framherja- Var þetta árin 1918
—22. Hann var meðlimur í A.
Formaður D. B. U. nú er
Chr. Middelboe verkfræðingur,
gamall og reyndur knattspymu-
maður. Telur Sambandið nú
um 126 þús. meðlimii í 800 fé-
lögum.
I dag hefst norræn cupkeppni
í Kaupmannahöfn í tilefni af
afmælinu milli allra Norður-
landaþjóðanna og keppa þá
Norðmenn og Svíar, og sá sem
taj>ar er úr. Verður „Fram“
þar viðstatt.
Fulltrúi íslands eða I. S. I. er
Benedikt G. Waage, forseti
í. S. í., sem! í dag á 50 ára af-
mæli. Mr,
Góður barnavagn
til sölu með tækifærisverði. Á
sama stað einnig til sölu brún
leðurreiðstígvcl. Uppl. Lauías-
veg 50, niðri.
Á hverju ári keppa Kaupmannahafnarbúar og Jótar í knattspyrnu. Þessir kappleikir vekja
ávallt mikla athygli og eru vel sóttir. Myndin er af síðasta kappleiknum.
Hvernig eru blöð
verklýðshreyfingar-
innar útbreidd?
Eftirfarandi kafla ætti liver
einasti sósíalisti að leggja sér á
hjarta og minnast þeirra í
hvert sinn sem rætt er um út-
breiðslu verklýðsblaSanna og
sósíalismans. I’eir gefa svo
sanna, skýra og hugönæma
mynd af því, hvernig fjöldiim
sjálfur útbreiðir stefnu sínu
sósíalismann, og undirbýr '
þannig að frelsa sig sjálfur. Það ,
er þessi meðvitund — um að
frelsun verkalýðsins verði að
vera hans eigið verk, — sem
þarf að gagntalca íslenzka i
verkalýðinn og koma fram i
gerðum hans, líka nú í baráti
unni fyrir útbreiðslu Þjóðvilj
ans. Við þekkjum einnig hér að
heiman dæmi lik þeim, sem
Krapotkin nefnir, — en við vit-
mn að enn vantar mikið á að
nægilega mikill fjöldi sé virk-
ur,- að ekki komi aðeins maðu'
í manns stað, heldur tveir fyrn’
hvern einn, sem fellur frá í
liardaganum, á hvern hátt sen,
pac gerisl.
Kr.Ili þessi, sem tekinn er úr
)ók Krapotkins „Gagnkvæm
, hjálp”, er og gott svar til þes.
í.Mrrhalds, sem nú eins og fyr
t 70 árum hrópaði hátt um
„launaða æsingamenn”, en ekk-
ert þekkti til fórnfýsi, sem út
breiðir og eflii; sósíalismann.
• Kaí'linn hljóðar svo:
„Sérhver reyndur stjórn-
málamaður veit, að allar mikl
ar stjómmálahreyfingar hafa
haft stórkostleg, oft á tíðiun
fjarlæg markmið, og öílugustu
hreyfingarnaú eru sífellt þær;
sem vekja óeigingjarnastan eld
móðinn. Allar miklar söguleg-
ar stefnur hafa haft þetta ein-
kenni og hvað vora tíma snert-
ir, þá er þéssu þannig varið
með sósíalismann. „Launaðir
æsingamehn" er vafalaust við-
kvæði þeirra, sem ekkerl
þekkja til stefnunnar. En sann-
leikurinn er sá, að ef ég — svo
ég tali bara um það, sem ég
þekki persónulega, — hefði rit-
að dagbók um það í síðustu 24
ár, og skrifað niður alla þá
sjálfsafneitun og fórnfýsi, sem
ég hef kynnzt, þá mundu les-
endur dagbókar þeirrar sífelh,
liafa. orðið „hetjuskapur” á vör
unum. En menn þeir, sem ég
hefði getað sagt frá, voru ekki
hetjur, — það voru miðlungs-
menn, hrifnir af mikilli hug-
sjón.
Sérhvert sósíalistablað — og
þau skipta hundruðum i Ev-
rópu — hefur sömu söguna að
segja af sjálfsfórn árum sam-
an, án nokkurrar vonar um
endurgjald, og hvað mikinn
meirihluta snertir, jafnvel án
persónulegrar metnaðai'girni.
Eg bef séð fjölskyldur, sem
ekki vissu hvað hafa skyldi í
næsla mál, af þvi maðurinn var
einangraður í bænum sökum
starfs síns við blaðið, en konan
hafði ofan fyrir fjölskyldunni
með saumum, og þetta ástand
hélzt árum saman, unz fjöl-
skyldan, án nokkurs ásökunar-
orðs, dróg sig í hlé eins og hún
vildi segja: „Nú getið þið hald-
ið áfram, við getum ekki meir”
Eg hef séð menn, sem þjáð-
usl af tæringu og vissu það
ganga engu að síður um til að
undirbúa fundi, þó í þoku ■
og hríð, eða tala á fundum fá-
um vikum fyrir dauða sinn og
fara þá fyrst á sjúkrahúsið, ef
til vill með þessum orðum:
„Vinir, það er búið með mig;
læknirinn segir að ég geli ekki
lifað nema fáar vikur; segið þ
félögunum að mér þætti vænt
um.ef einhver þeirra kæmi að
heimsækja mig“.
Eg hef séð atburði, sem
mundu vekja mestu aðdáun, ef
ég segði frá þeim hér; en jafn-
vel nöfnin á mömmnum, sem
við atburðina voru riðnir, evu
varla þekkt utan fámenns vina-
hóps og munu brátt gleymast
þegar þeir vinir eru dánir.
Eg veit ekki hvort er aðdá-
unarverðara: liin ótakmarkaða
sjálfsfórn hinna fáu eða hin
möigu smáu dæmi um fórn-
fýsi fjöldans. Hver blaðafjöldi
sem seldur er, hver fundur.
sem haldihn er, hver 100 at-
kvæði, sem vinnast við kosn-
ingar sósíalista, fela í sér svo
mikla fórnfýsi og starfrækslu,
að enginn, sem utan við stend-
ur, getur gert sér minnstu
grein fyrir því. Og það, sem nú
er unnið fyrir sósíalismann
hefur fyrr og verið unnið fyrir
sérhvern framsækinn stjórn-
mála- og trúarflokk. Allar fram
farir liðna tímans eru slíkum
mönnum og-slíkum fórnum «ð
þakka”.
Hver var Peter
Rrapotkín?
Peter Krapotkin var fæddur
1842 í Moskva. Er kominn af kon-
ungaætt Rurikanna. Var liðsfor-
ingi við hirð Alexanders II. og síð-
ar kammerherra drotningarinnar,
Sökkti sér niður í landfræðirann-
sóknir, reit vísindarit um jökla
Svíþjóðar og Finnlands, um ísöld-
ina og landfræði Rússlands. —
I Fór 1872 til Belgíu og Sviss, gerð-
ist áhangandi stjórnleysingja-
stefnu Bakunins. Vann af kappi
með níhílistum eftir heimkomu
sína, hélt á laun erindi fyrir verka
mönnum. Tekinn fastur 1874 og
settur í Pétur-Páls-fangelsið.
Strauk 1876, starfaði í Sviss og
Frakklandi. Dæmdur 1883 í 5 ára
fangelsi. Náðaður 1886. Dó 1918.
Ágætur rithöfundur skrifaði m.
a.: „Gagnkvæm hjálp”, „Endur-
minningar anarkista”. Kallar sig
ýmist anarkista eða sósíalista.
Hugsjón hans er fullkomið frelsi
hvers einstaklings og möguleiki
hans til alhliða þroska. Rannsak-
aði með mikilli skarpskygni mögu
leikana til að láta jarðveginn bera
margfaldan ávöxt á við það, sem
þá var. Hafði vald á flestum vís-
indum og tungumálum. Einn af
göfugustu og frjálsast hugsandi
mönnum, sem uppi hafa verið.
Kaupendur
Þjódvíljans
eru ámínnf ir um ad
Wt-ijfa ásfcríffaiVÍöW
sín sbílvislcga.
Óperusöngvarí
Sfefán Guðmundsson
SYngur í Gamla Bió fímmtudaginn 15. þ. m. hl. 7,15
með aðstoð Árna Kristjánssonar píanóleíhara.
Pöntun aðgöngumiða veítt móttaha i dag í Bóha-
verdun S. Eymundssonar og Hljóðfæraverzlun S.
Helgadóttur.
Kominn heim
Jónas Sveinsson, Isoknir
Hraðforðir B. S. A.
Alla daga nema mánudaga
um Ahranes og Borgarnes. — M?s. Laxfoss
annast sjóleiðína. Afgreiðsla í Reyhjavíh á Bif-
reíðastöð íslands, símí 1540.
Bífreíðasföð Akureyirar*
Hraðferðir Steindórs
Allar okkar hraðferðir til Akur eyrar eru um Akranes.
FRÁ REYKJAVIK: alla mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga.
FRÁ AKUREYRI: alla mánudaga, fimmtudaga og laug-
alrdaga.
M. s. Faglranes annast sjóleiðina. — Nýjar upphitaðar bifreið-
ar með útvarpi.
STEINDÓR Sími; 1580, 1581, 1582, 1583, 1584.