Þjóðviljinn - 18.07.1939, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 18.07.1939, Blaðsíða 4
Cls*rboi*glnnl Næturlæknir: Halldór Stefáns- son Ránargötu 12, sími 2234. Næturvörður er í Ingólfs- og Laugavegs apoteki. Jón Blöndal hagfræðingur flyt- ur erindi í útvarpið í kvöld kl. 20.30, er hann nefnir: „Verðlags- breytingar og vísitölur”. Á bæjarráðsfundi, sem haldinn var síðastliðinn föstudag var lagt fram bréf frá Höjgaard & Schultz til bæjarverkfræðings, þar sem firmað kemur fram með tillögu um að nota vikur til einangrunar á aðalleiðslum hitaveitunnar. Jens Benediktsson fyrrum „Piihrer” hefur sótt um bæjar- styrk til þess að kynna sér það sem hann kallar starf heilbrigðis- lögreglu í Kaupmannahöfn. Bæj- arráð hefur synjað Jens um styrk þenna. Skipafréttir: Gullfoss er í Kaup- mannahöfn, Goðafoss er í Leith, Brúarfoss kom frá Keflavík í morgun, Dettifoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hull. Lagar- foss var á Skógarströnd í gær. Selfoss fór til útlanda í gærkvöldi, Dronning Alexandrine er í Kaup- mannahöfn, og leggur af stað á- leiðis til Reykjavíkur á morgun. Frá höfninni: Selfoss kom í gær vestan frá Djúpuvík. Sjómannasýningin er enn opin í Markaðsskálanum og verður það i nokkra daga ennþá. Er hún opin frá kl. 2—10 e. h. Ættu þeir, sem enn hafa ekki skoðað þessa merki- legu sýningu að gera það sem fyrst, þar sem enn er með öllu ó- ráðið hve sýningin verður lengi opin úr þessu. Stykkishólmsför K. R. Tuttugu piltar úr öðrum flokki K. R. fóru vestur í Stykkishólm um helgina. Þreyttu þeir þar knattspymu við pilta úr Stykkishólmi og sigruðu með 4:0. Auk þess sýndu K. R,- ingamir ýmsar aðrar íþróttir, svo sem hlaup og stökk. Nýja Bíó sýnir um þessar mund- ir kvikmynd, sem heitir „Yvette” og er hún gerð eftir sögu franska skáldsins heimsfræga Guy Maupas sant. Myndin er þýzk og leikin af þýzkum leikurum. Leiðrétting: I grein minni, „Hálf volgir menn” (sl. sunnudag) hafa fallið niður nokkur orð, sem tölu- verðu máli skipta, og verð ég að biðja blaðið að leiðrétta það. Þar er sagt: „Sumir staðhæfa, að almenn- ingsálitið sé á móti banni, og hef- ur alltaf verið síðan bannið fyrst var lögleitt”, en í handriti mínu var komizt svo að orði: „Sumir staðhæfa, að almenningsálitið sé á móti banni. Eg fullyrði að meiri- hluti þjóðarinnar sé með banni, og hefur alltaf verið síðan bannið fyrst var lögleitt”. P. S. Flugfélag l'estmannaeyja. I Vestmannaeyjum er nú allmikill áhugi fyrir því manna á meðal að gangast fyrir eflingu flugmála hér á landi. Halldór Guðjónsson skóla- stjóri átti forgöngu að því að stofnað var flugfélag í Eyjum og var hugmynd félagsmanna sú að festa kaup á fiugvél af líkri gerð þlúÐVIUINN Síldveíðín. i Franiliald af 1. síðu. Anna/Bragi, Njarðvík 944 Anna/Einar Þveræingur, Ölf. 1306 Bára/Síldin, Fáskrúðsf. 652 Barði/Vísir, Húsavík 1481 Björgvin/Hannes lóðs, Dalvík 149 Björn Jörundss./Hegri Hrisey 85 Eggert/Ingólfur, Keflavík 1467 Kristiane/Þór, Ölafsf. 1579 Erlingur I./Erlingur II. Vm. 1280 Freyja/Skúli fógeti Vm. 1696 Frigg/Lagarfoss, Vm. 1258 Fylkir/Gyllir, Neskaupstað 1421 Gísli J. Johnsen/Veiga Vm. 1722 Gulltoppur/Hafaldan, Vm. 1308 Haki/Þór, Hrísey 205 Jón Stefánsson/Vonin, Dalvik 981 Leifur Eiríkss./L. heppni, Dalv. 87 Muggur/Nanna, Vm. 601 Muninn/Ægir, Sandg./Garði 1706 Muninn/Þráinn, Neskaupstað 1446 óðinn/ófeigur II. Vestm. 1384 Reynir/Víðir, Eskifirði 1482 Reynir/Örninn, Keflavík 470 Víðir/Villi, Garði/Sigluf. 1153 Björg/Magni, Neskaupst. 1229 Bjöm'/lslendingur, Neskaupst 780 Hilmir/Þór, Neskaupst. 583 Valþór/Vingþór, Seyðisfirði 724 og T. F. ÖRN, sem Flugfélag Ak- ureyrar keypti og starfrækir. Hafa verið gerðar ýmsar athuganir um lendingarstaði í Vestmannaeyjum og hefur Agnar Kofoed-Hansen annast þær. Ekki er talið líklegt að viðunandi flugvöllur finnist á eynni og verður þá hin tilvonandi flugvél að vera sjóflugvél, ef úr framkvæmdum félagsins verður. Súðin var á Blönduósi í gær- morgun. I i Fundur um bindindismál í Gaul- vcrjabæ. Að lokinni minningárguðsþjón- ustunni í Gaulverjabæ hófst þar fundur um bindindismálið. Fór hann fram fyrir utan kirkjudyr því ekki þótti við eiga að ljá kirkj- una til fundarhalda. Á fundi þess- um töluðu Sigurgeir Sigurðsson biskup, Brynleifur Tobíasson kenn- ari og Pétur Zophoníasson. Að þeim fundi loknum hófst fundur 5 stúkunni Samtíðin, sem starfar þar á staðnum. I stúkuna gengu 7 nýir félagar. Mikill áhugi er ríkj- andi austur þar um að koma á ein- hverjum endurbótum á sviði á- fengismálanna. I. O. G. T.-kórinn söng, bæði á opna fundinum og stúkufundinum. tJtvarpið í dag: 11.00 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19.30 Hljómplötur: Létt lög. 19.40 Auglýsingar. 19.45 Fréttir. 20.10 Veðurfregnir. 20.20 Hljómplötur: Söngvar úr tónfilmum. 20.30 Erindi: Verðlagsbreytingár og vísitölur (Jón Blöndal hagfr) 21.00 Symfóníutónleikar (plötur): a) Svíta nr. 2, b-moll, eftir Bach. b) Píanókonsert, Op. 21, eftir Haydn. c) Symfónia í D-dúr, eftir Mo- zart. 22.00 Fréttaágrlp. Dagskrárlok. Bifrelðaskoðun stendur nú dag- lega yfir í Markaðsskálanum við Ingólfsstræti. 1 dag eiga bifreið- arnar R 826—900 að koma til skoðunar. Eru allir bifreiða- og bifhjólaeigendur minntir á að koma með bifreiðar sínar og bif- hjól til skoðunar á tilteknum tíma, því að annars geta þeir búizt við lögsókn og að faratæki þeirra vérði tekin úr umferð. wa bib ,Tvelte’ Þýzk mynd, gerð samkvæmt| heimsfrægri, samnefndri sögulj! eftir Guy de Maupassant *,♦ I I í I X Aðalhlutverkin leika: Kathe Dorsch, Ruth Helleberg, X 5: jfL Gamiö rb'io X 7 löðrnngnr Ljómandi skemmtileg og fyndin UFA-gamanmynd er gerist í London. X X Johannes Reimann o. fl. X V V Aukamynd: X I FARFUGLAR •• I X I V x I X 1 V i i I i y t y ». v *MKh^*^*^*^*MhHKKhI*****í* a) b) c) * * * * * * * * * m,#h«*****I*,ím*mIhImM‘ I I t s X t * X X t l X Aðalhlutverk leika hinir frægu og vinsælu leikarar: Lilian Harvey og Willy Fritsch. 44 „Ljóí saga Framhald af 3. síðu. Fimmti og síðasti þátturinn í hinni ljótu sögu Morgunblaðsins er á þessa leið: „Ef það á þannig til að ganga á- fram, að farið verði aðallega eftir pólitískri skoðun verkamannsins við úthlutun hlunnindanna, sam- kvæmt lögum um verkamannabú- staði, er eins gott að afnema þessi lög með öllu”. Loksins finnst Morgunblaðinu tími til kominn að fara að fram- kvæma þann margyfirlýsta vilja flokksins að „gera engar ráðstaf- anir” til þess að bæta úr húsnæð- isskorti verkamanna. Og það á að nota hneykslanlegt framferði rík- isstjórnarinnar til þess að fara á flot með kröfuna um að lögin um verkamannabústaði verði afnumin. Er hægt að ganga lengra í ó- sómanum, er hægt að gera ljóta sögu ljótari en þetta. Þessi ljóta saga verður senn að taka enda, ef ekki á að hljótast alvarlegra tjón af fyrir frelsi landsmanna og menningu. Sú sam- ábyrgð um svik og pretti, sem mynduð hefur verið af leiðtogum þriggja stjórnmálaflokka verður að rofna. Allir þeir, sem sjá og skilja hvert stefnir, verða að taka höndum saman til þess að þurrka út þá spillingu, sem nú er ríkjandi á hæstu stöðum í íslenzku þjóð- lífi. Andstæðingar þeirra svikara, sem nú fara með völd á Islandi, andstæðingar þeirra úr öllum stjórnmálaflokum, og þeir eru margir, eiga að taka höndum sam- an um að steypa þeim af stóli, um að setja á laggirnar heiðarlega lýðveldisstjórn á Islandi. Öbyggðaferð Ferðafélagsins. — Verði nægileg þátttaka er ráð- gert að fara skemmtiför norður að Arnarfelli hinu mikla, í Kerl- ingafjöll og víðar. Lagt af stað síðdegis á laugardag 22. júli og ekið austur að Ásólfsstöðum og gi3t þar eða tjaldað uppi í Gjá. Þá farið ríðandi vestan Þjórsár upp undir Arnarfell og þaðan í Kerl- ingarfjöll og er ráðgert að það taki 4 daga. Einn dag verður dval- ið í Kerlingafjöllum, en þaðan far- ið með bifreiðum norður á Hvera- velli. Ef til vill gengið i Þjófadali. Þá haldið í Hvítámes og ekið til Reykjavíkur. Er þetta 6—7 daga ferð. Áskriftarlisti liggur frammi á skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5 og sé búið að taka far- miða fyrir kl. 6 næstkomandi fimmtudag. 'V rvAreðét Það vakti umtal hér á íslandi, að grein kom í Manchester Guard- ian 3. marz, um „augu Þjóðverja á Islandi”. Það var mikið talað um að það hlytu að vera einhverjir landráðamenn sem skrifuðu svona greinar. Sérstaklega nefndu menn það sem fráleitt, að Þjóðverjar væru að hugsa um lendingarstöðv- ar fyrir flugvélar hér og kafbáta- lægi. *** Það leið rúmur mánuður. Þá lýsti sjálfur forsætisráðherra Is- lands því yfir, að nú kæmu hingað fulltrúar þýzkra nazista og krefð- ust réttar til þess að fá hér lend- ingarstöðvar fyrir flugvélar. — Og svo var haldið áfram að skrifa um að greinin í Manchester Guardian hlyti að vera lygar og landráð úr „kommúnistum”. *** Svo liðu tveir mánuðir. Enskir knattspyrnumenn komu hingað. Þeim var tekið fálega af ríkis- stjórttinni. Engin skrautprentuð á- vörp, engar kvcðjur í útvarpi — eins og var fyrir Þjóðverjana ár- ið áður. —Jafnvel í Alþýðublaðinu birti3t aðfinnsla að þessu. ** En í „landráðagreininni” í Man- chester Guardian hafði einmitt dá- lætið við þýzku knattspyrnumenn- ina verið borið saman við hve fá- 1 lega enskum knattspyrnumönnum var tekið af stjórnarvöldunum þar áður. — Voru „landráðamennim- ir” komnir inn í sjálf stjórnar- blöðin ? *** Enn líður mánuður. Þá birtir sjálft Morgunblaðið, — sem venju lega fær fyrirskipanir og tilkynn- ingar frá Berlín beint — tilkynn- ingu um það, að þýzkir kafbátar komi til heræfinga við Island og dvelji þar í æfingaskyni í 3 daga. Blaðið birtir frétetina kinnroða- laust, eins og að heræfingar þýzkra kafbáta við island sé eitthvað al- veg sjálfsagt, rétt eins og ísland væri þýzk nýlenda, sem fyndist sér heiður ger með slíku. — Og svo er auðvitað ekki gleymt að skamm- ast einhversstaðar út í „landráða”- greinar í Manchester Guardian. £ Það hlýtur hverjum íslending að renna til rifja að útlendingur, eins og sá auðsjáanlega er, sem skrifaði þe3sa umræddu grein í Manchester Guardian, skuli hafa meiri tilfinn- ingu gagnvart íslenzku sjálfstæði og bera meira skyn á hættumar, sem því eru búnar, — en stjómar- blöðin og stjórnarvöldin á íslandi sjálf. 30 GRAHAM GREENE: SKAMMBYSSA T I L LEIGU þessu hóteli. l’eir hafa selt salt eða einlivern óþvcrra í á- vaxtasafann”. Hann snéri sér i vonzku að þjóninum, sem gekk framhjá: „HvaS kallið þiS annars þennan dýrindis dryklt ykkar?” „Eg skal færa yður annan, herra”. „Pað getið' þér sparao yður. Komið með reikninginn”. „Svo þakka ég fyrir kvöldið”, sagði Anna. Mr. Davis leit upp úr reikningnum, eins og óttasleginn. „Nei, þér megið ekki misskilja mig”, sagði hann. „Þér ætl- ið þó ekki að kveðja mig?” „Ilvað, hafið þér eitthvað að bjóða? Gönguferð?” „Eg liéll”, sagði mr. Davis, „að þér mynduð koma með mér heim, og þar gætum við hlustað á útvarp og fengið okkur eitt staup af víni. Eí til vill getum yið þá líka tekið okkur einn snúning, hvað?” Hann sagði þetla eins og úti á bekju og leil ekki á hana. Hann sýndist svo sem ekki hættulegur. önnu fannst hún kannast við svona karla, það var mátulegt að kyssa þá einn lil tvo kossa, og þegar þeir væru orðnir þéttfullir.væri ekki annað en að tala nógu elskulega við þá, svo að þeir færu að halda, aS þelta væri hún systir þeirra. Petta skyldi annars vera í síSasta sinn er hún gæfi sig í þvílíkan leik. Bráðum mundi hún giftast Malher, og víst skyldi hún gæta sín. En hún vildi þó vita hvar mr. Davis byggi. Þegar þau konni út á götuna, steðjaði aS þeim hópur syngjandi barna. Petta voru sex smádrengir í ullarpeysum og meS vinnuvetlinga og sungu ramfalskt. Þeir stilltu sér upp frammi fyrir mr. Davis og sungu: „LofiS Herrann. Hvað sem iðjum. Hósíanna! Syngjum, biðjum”. „Bíll, her’ra?” spurði dyravörðurinn. „Nei”, sagði mr. Davis, og skýrSi önnu frá því, að hann sjiaraSi þrjú pence á því að taka bílinn á stöðinni í Tann- eries. En drengirnir þvældust fyrir fótunum á honum, réttu fram lúkuna, biðjandi um peninga. „Burt meS ykkur”, sagði mr. Davis. En drengjunum hafði fundizt hann eitthvaS veikur fyrir, fylgdu honum l'ast eftir og sungu: „Lofið Herrann, litlu og ungu, lof hans dýrð með barnatungu”. Skepingjarnir úti lyrir Crown hópuðu sig til að horfa á leikinn. Sumir klöppuðu. Allt í einu snérist mr. Davis á lui'li og.greip í lubbann á stráknum, sem næstur var. Strákurinn skrækti, en mr. Davis hélt eftir handfylli sinni af lagSinum. „Eg skal kenna þér siðina”, sagði hann. Hann var með opinn munnirin, fullan af munnvatni. Hann naul þessa, sem honum fannst vera sigur sinn, eins og hann hafði notið humarsins áður. Anna fann sig ekki leng- ur óhulta í nærveru hans. En lum reyndi ]>ó að telja sér tni um það. Hann pekkti morðingjann, liafði Raven sagt, en liafði ekki drýgt morðið sjálfur. „Hverskonar hús er þetta?” spurði hún er stór, glugga- rík stórbygging blasti við þeim. „Midland Steel”, sagði mr. Davis. „Eruð þér starfsmaður þar?” Nú leit mr. Davis i fyrsta sinn í augu hennar. „Hvers vegna spyrjið þér?” „Eg veil ekki”, sagði Anna, og það greip hana skelkur við samferðamanninn. „HeldurSu að við gelum ekki orðið góSir vinir?” sagði mr. Davis og strauk eins og óvart yfir hnéS á henni. „ÞaS vona ég”. Billinn var kominn út fyrir Tennaries. Hann hossaðist yfir braularteina og stefndi í áttina að járnbrautarstöð- inni. „Búið þér utan við horgina?” spurSi hún. „Rétt í útjaSrinum”,.sagði mr. Davis. „Þið ættuS ekki að spara götuljósin, eins og þiS geriS”, sagði hún, þegar þau óku undir járnbrautarbrúna. Þarna voru aðeins tvö ljós í allri brekkunni niður að stöðinni. Yfir plankagirðingu glitti í vöruvagnana á hliöarsporinu og kolabaugana, sem liiðu þess að þeim væri mokað upp i lestirnar. Gamall og lítill fólksbill og stór mannflutn- ingavagn biSu lilið við lilið úti fyrir lágum og þröngum dyrum stöðvarinnar. Stöðin hafði verið bvggð 1860 og ekki fylgt þróuninni í Nottwich. „Nú erum við nærri komin”. Bíllinn beygöi til vinstri. Anna las götunafniS, Klyber Avenue, sá langa röð fátæklegra húsa meS auglýsingum um „Herbergi lil leigu” og „Hér er matsala”. Billinn nam staðar við síðasla hús götunnar. Anna sagði: „Þér búið þó ekki hér? Mr. Davis borgaði bílstjóranum. „Nr. sextíu og eitt”, sagði hann og Anna veitti því athygli að númcrið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.