Þjóðviljinn - 27.09.1939, Side 3
ÞJ59VILJINN
Miðvikudagurinn 27. september 1939
jjfaniim fil Deiksel
Eftír Halldór Kíljan Laxness
Fyrsti heimssögulegi árangur-
inn af griðasáttmála Þjóðverja
við Ráðstjórnarríkin er sá, að
bolsévismanum hefur verið opnuð
leiðin til Vesturevrópu. Andkomm-
únistiski möndullinn er brotinn;
andkommúnistiski sáttmálinn er
orðinn skrítla. Þrem vikum eftir
undirskrift griðasáttmálans er
bolsévisminn á bökkum Veiksel;
fimmtán milljónir manna í mið-
aldalegu lénstímaríki, sem frægt
var fyrir mestu bændaörbirgð á
Vesturlöndum, hefur árekstralítið
og án verulegra blóðsúthellinga,
hoppað inn í ráðstjórnarskipulag
verkamanna og bænda. Eg sé
auðvaldssinnuð blöð tala um að
bolsévikar um heim allan standi
sem steini lostnir yfir þessu
hneyksli. Mér er slíkur hugsana-
gangur ekki með öllu ljós. Eg skil
ekki almennilega, hvernig bolsé-
víkar ættu að sjá nokkurt hneyksli
í því, að 15 milljónir manna eru
þegjandi og liljóðalaust innlimað-
ir undir bolsévismann. Mér skilst
að slíkt hljóti að vera bolsévíkum
fremur fagnaðarefni en ástæða til
hneykslunar. 1 gær skrifuðu auð-
valdsblöðin’ sturlaðar greinar um
þau svik við bolsévismann, sem
Stalin væri staðinn að með griða-
sáttmálanum við Þjóðverja. 1 dag
skíra sömu blöð frá því, að sem
afleiðing af þessum sáttmála sé
nú útþurrkun auðvaldsins fram-
kvæmd og samvirkt skipulag upp-
tekið í % hlutum Póllands, Mér
er ekki ljóst hvar „svik” bolsé-
vismans liggja.
Annar beinn árangur griðasátt-
málans er sá, að bolsévisminn
hefur a. m. k. í svip, lokað hinni
fyrirhuguðu, langþráðu og marg-
umdreymdu leið þýzku heimsveld-
isstefnunnar til austurs, með því
að setja fleyg milli Þýzkalands og
Rúmeníu. Um leið er sunnanverð
Austurevrópa raunverulega undir-
gefin lyklavaldi bolsévismans.
Þó er þýzk-rússneski griðasátt-
málinn merkilegastur fyrir þá
sök, að með honum er Þýzkalandi
hrundið úr vegi, sem brjóstvörn
Vesturlandaauðvaldsins gegn
bolsévismanum. Þýzki fasisminn
sem „fræðigrein”, þjóðarvakning
og valdastefna byggðist á barátt-
unni gegn bolsévismanum sem
undirstöðu. Með griðasáttmála
þýzka ríkisins við bolsévismann er
þessari undirstöðu kippt burt, hug
myndakerfi nazismans lamað,
þýzki fasisminn, sem fagnaðar-
boðskapur gegn bolsévisma er
ekki lengur til. Um leið er barátt-
an gegn fasismanum ekki lengur
einkunnarorð, nema með takmörk-
uðu innihaldi: broddurinn hefur
verið sorfinn af þessu hættulega
vopni auðvaldsins, vígtennurnar
dregnar úr þessu villidýri, sem
átti að rífa bolsann á hol. Eftir er
gamall spakur seppi, sem enginn
bolsévíki telur framar ómaksins
,vert að sparka í svo um munar.
Einkenni þýzka ríkisins eru nú
aftur orðin hinir sígildu þýzku
herveldisdraumar og heimsveldis,
sem fyrst og fremst beinast gegn
yfirráðum Breta. Af grundvallar-
atriðum bolsévismans hefur aftur
á móti ekki stafkrók verið raskað:
samvirkur iðnaður, samyrkjubú-
skapur, sósíalistisk menningarvið-
reisn seinþroska landa mun halda
áfram sinni friðsamlegu þróun á
marxistiskum — leninistiskum
grundvelli í hinum bolsévistiska
heimi; og alræði öreiganna mun
halda áfram undir þeim mun
mýkra formi, sem vald sósíalism-
ans verður fastara í sessi og sam-
virk menning eykst. Bolsévisminn
hefur aldrei staðið fastari fótum í
heiminum en eftir uppgjöf þýzka
fasismans fyrir ráðstjórninni. Það
má óhikað gjalda jákvæði við
fullyrðingum brezkra og jap-
anskra blaða síðustu daga, þess
efnis að „hættan” af bolsévisman-
um hafi aldrei verið meiri í Vest-
urevrópu en nú. Bretum var árum
saman í lófa lagið að gera Rússa
að bandamönnum sínum gegn upp
gangi Þýzkalands. En sá kostur
var ekki tekinn. Nú er Breta farið
að gruna, að því er segir í Daily
Telegraph að bolsévisminn
muni á vesturleið ekki láta staðar
numið við ána Veiksel, úr því hinn
þýzki flóðgarður er brotinn á ann-
að borð.
Menn geta þjónað lund sinni hér
heima með því að framléiða alls-
konar furðulegt orðbragð um sov-
étheimsveldið og forráðamenn
þess, slíkt getur verið mönnum
stundarsvölun út af einka-ergelsi
heima fyrir. En það er því miður
hætt við, að þeir góðu menn, sem
leggja krafta sína í svo fánýta
framleiðslu, muni seint klippa á
því kúpóna.
Halldór K. Laxness.
Dómur Félagsdóms
FRAMH. AF 2. SIÐU.
klofningsfélaga. Þetta hafa félög- |
in, sem kunnugt er, gert með þvi !
að semja um forgangsrétt fyrir
meðlimi sína til vinnu, en það hef- j
ur í reyndinni þýtt, enda svo til
ætlast, að allir verkamenn í sömu
starfsgrein á félagssvæðinu hafa
orðið að vera í einu og sama stétt-
arfélagi.
Þá er næst að athuga, hvort
þessi vilji löggjafans komi greini-
lega fram í löggjöfinni. Ekki verð-
ur þessari spurningu svarað hik-
laust játandi: Lögin eru hvað
þetta snertir óákveðin og teygjan-
leg, svo teygjanleg, að Félagsdóm
ur hefur séð sér fært að dæma
gegn vilja löggjafans og telur sig
þar byggja á bókstaf laganna.
Önnur grein laga um stéttarfé-
lög og vinnudeilur er þannig:
„Stéttarfélög skulu vera opin
öllum í hlutaðeigandi starfsgrein
á félagssvæðinu, eftir nánari á-
kvæðum reglna í samþykktum fé-
laganna. Félagssvæði má aldrei
vera minna en eitt sveitarfélag”,
Hvers vegna eiga félögin að
vera opin, ef leyfilegt er að stofna
eins mörg félög og verkast vill í
hverri starfsgrein?
Getur nokkur efast um að þetta
ákvæði er sett inn í lögin af því
að löggjafinn hafi gengið út frá
því, sem sjálfsögðu, að aðeins væri
eitt félag í hverri grein á hverjum
stað?
Það er langt frá því, að Félags-
dómi hafi tekizt að svara þessum
spurningum, þannig að svai’ið
styrki málstað hans.
Hin umrædda grein þessara
laga, gerir þær takmarkanir á á-
kvæðum um opnun félaganna, að
um hana skuli fara eftir reglum í
samþykktum félaganna,
Hversvegna var þetta ákvæði
sett, og hversu víðtækar mega
þessar takmarkanir vera?
Félagsdómur hefur ekld svarað
þessum spurningum. En beinast
liggur við að álykta, að með þessu
ákvæði hafi löggjafinn viljað gefa
verklýðsfélögunum vopn í hönd til
þess að verja sig fyrir klofnings-
félögum, úr því ekki er beint fram
tekið í lögunum að þau skuli bönn-
uð. Sú eðliegasta takmörkun, sem
félögin geta gert á ákvæðinu um
að þau skuli vera opin, er bann
við því að meðlimir þeirra séu í
öðrum verklýðsfélögum í sömu
\
starfsgrein.
Loks er vert að benda á það
ákvæði laganna, að félagssvæði
megi ekki vera minna en eitt sveit
arfélag.
Það er óhugsandi að skýra þetta
ákvæði öðru vísi en svo, að með
því vilji löggjafinn firra félögin
því óláni að mörg stéttarfélög
verði starfandi í sömu starfsgrein
á sama stað.
En ekkert af þeim röksemdum
sem hér eru fram færðar gat
hindrað það að Félagsdómur
kvæði upp dóm, sem fer í bága
við anda laganna um stéttarfélög
og vinnudeilur, og sem raunveru-
lega gerir vald stéttarfélaganna
að engu. En úr því sem komið er,
verður ekki annað að gert en að
verklýðsfélögin hefji hatrama bar-
áttu fyrir því, að tafarlaust
verði að því horfið, að breyta lög-
unum þannig, að skýrt sé ákveðið
að ekki megi starfa nema eitt
stéttarfélag á hverjum stað.
Hvernig væri að fara fram á að
for^eti Alþýðusambandsins gæfi
út bráðabirgðalög um slíkt efni.
Nýtt folaldabjöt
i buff og gullasch
Nýrcyfef
hesfafejöf
nýsláfirað díikakjöf,
úrvals katiöflur og
gulrófur o. m. fl,
Kjöfbúðín
Njálsg. 23. — Símí 5265
^ss.
SMIPAUTCERÐ
Vélskipið Helgi
hleður fíl Vestmanna^
eyja í da$.
íþróttaskélian
fekur fíl sfarfa 1, okfóber, — Víðfalsfímí þessa
viku kl, 4—7 slðd,
fón Þorsfeinsson,
llý kenislnbök f dinsku
Effír cand, mag, ÁGÚST SIGURÐSSON.
Bóhín er byggð á nýjum hennsluaðferðum, og hefír
höfundur þar notíð aðstoðar beztu hennara og mál-
fræðínga íslenzhra og danshra. í bóhínní eru margar
fallegar myndír. — Faesf i öllum bókaverzlunum,
Aðalúfsala:
BókavereL Isafoldarprenfsmídju
Tilkynnið
flufninga á sferífsfofu Rafmagnsveif"
unnair, Tjarnargöfu 12, simí 1222,
vegna mælaáiesfurs,
Rafmagnsvcíta Reykjavíkur.
Ellefu, tólf og þrettán ára börn, sem sæltja eiga Miðbæjar-
skólann í vetur, komi í skólann eins og liér greinir:
Föstudaginn 29, september klukkan 8 árdegis komi þrettán
ára börn, klukkan 10 tólf ára börn og klukkan 1 síðdegis ellefu
ára börn.
Héraðslæknir skoðar börnin 30. september, og koma 18 ára
drengir klukkan 8 árdegis, 13 ára stúlkur .klukkan 91/2 > 12 ára
drengir klukkan 11, 12 ára stúlkur klukkan 1 y2, 11 ára drengir
klukkan 3 og 11 ára stúlkur og önnur börn, sem þá eru óskoðuð,
klukkan 4'/2.
Undirritaður sinnir viðtölum í skólahúsinu klukkan 11 til 12
árdegis og 5 til 6 síðdegis, sími 4862.
Halfgrímur Jónsson
skólasíjótrí.
y
f
4
f
A
I
1
t
Ný barnabök:
Ferðalangar
eftír Helga Hálfdánarson
V
v
Ý
V
v
f
v
4%
x
y
Bókin er lýsing á æfintýraferð tveggja systkina um undraheiina**!
!•! efnisins, frá smæstu frumeindum til stærstu stjarna. *t*
X Skemmtileg og fræðandi bók prýdd mörgum myndum eftirX
!»!höfundinn. *|*
| Bókin hlaut meðmæli skólaráðs barnaskólanna sem lestrar-^
<j'bók handa börnum og unglingum. X
X Verð kr. 4.00 innbundin. Fæst hjá öllum bóksölum. 4
t V
4
♦%
Bókaverzlun Heímskrínglu
Laugaveg 38, — Símí 5055
I
I f