Þjóðviljinn - 13.10.1939, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.10.1939, Blaðsíða 3
ÞJÓBVILJINN . . Föstudagurinn 13. október 1939. Það verðnr talarlanst að halda innd i Sjömannafð- lagi Beykjaviknr. Almenn óánægja er rikjandt medal sjómanna um samníngana víd fogaraeígendur. iæ?n:J4^E í \ I 'A l^T áH át » ^ Vélskipið Helgi hleður næstkomandi laugardag til Patreksfjarðar, Bíldudals, Þingeyr ar, Flateyrar og Siglufjarðar. Hversvegna er ekki kallaður sam- an fundur í Sjómannafélaginu með- an stendur á samningum um stríðs tryggingu og áhættupóknun? Þann ig spyrja sjómennirnir, og fá'.það eina svar, að stjórn félagsins sjái unr þessa samninga og Sjómenn geri svo vel að láta sér pá lynda, hvern ig sem þeir verði. Nú er það svo, að það er ekki stjórn Sjómannafélagsins, Sigurjón Ölafsson & Co, sem eiga að hætta lífi sínui í siglingum á áhættusvæð- unum, heldur sjómennirnir á skip- unum. Það er því sjálfsögð réttinda krafa að sjómennirnir fái sjálfir að fjalla um eða að minnsta kosti láta álit sitt í ljós á þeirn samn- ingum, sem þeir eiga að vinna -eft- ir. Nú er það vitað, að sjómenn eru óánægðir með samninga þá, sem gerðir hafa verið við togaraeigend- ur. Tryggingin og áhættuþóknunin er of Iág. Engin ástæða er til að miða við 8000 kr. trygginguna, sem laumað v'ar inn í gerðardóminn forðum, og telja að núverandi sanm ingur sé stórsigur frá ákvæðum gerðardómsins. Sanmingar nú verða auðvjtað að miðast við núverandi ástand og annað ekki. Ástandið meðal sjómannastéttar- innar er algerlega óþolandi. Skip- in hafa yfirleitt verið óhreyfð síðan um síldartímann, og alft í óvissu um ísfiskveiðarnar. Samt dettur stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur ekki í hug að halda félagsfund, og ekkert er gert af forráðamönnum sjó- mannasamtakaniia í þá átt að skipa sjómannastéttinni saman til varnar hagsmunum sínum og lífsafkomu.. Það er samið og samið á skrifstof- unum um slríðstryggingu og áhættu- þóknun sjómanna, án þess að sjó- mennirnir sjálfir fái að segja álit sitt á málunum eða hafa áhrif á úrslitin. Ef til vill hefur Sigurjón og Co. í hyggju að halda fund í sjómannafélaginu þegar skipin eru farin út, þar sem hann getur látið fámenna klíku samþykkja hvað sem hann vill. Þetta má ekki ganga svona leng- ur. Sjómenn verða að safnast ein- huga um þá kröfu, að tafarlaust verði haldinn fundur í Sjómannafé- laginu og þau vandamál er nú sverfa fastast að, tekin þar til með- ferðar fyrir opnum tjöldum. ÐtsOlnverð á rafmasnspernm, Algengustu gerðir. I ! I i i :i 25 Dlm. eða minni 40 — 65 — 100 — 100 Watt 125 Dlm. 150 — Þýzkar (Osram) kr. 1.25 — 1.55 — 2.00 — 2.50 — 3.45 - 3.75 Sænskar (Luma) kr, 1.20 — 1.40 — 1.75 — 2.25 — 3.50 Raffækjaeínkasala ríkísíns. I l I $ x * * t x I ¥ I i X : : : Prentmyn da s to fa n LEIFTUR býr ti/ 1. f/okks prent m'yndir fyrir lægsta veri). Hafn. 17. Sími 5379. 5 — 8 hestafla bátamótor óskast tíl kaups Tílboð merkt 5—8, legg- íst ínn á afgr. Þíóðvíljans. I. O. G. T. Landnám Templara; KV0LDSKEMMTUN 2. 3. 4. 5. Góðtemplarahúsinu annað kvöld (laugardaginn 14. okt. kl. 9, 1. Skemmtunin sett: Guðjón Halldórsson. Ávarp: Andrés Wendel. Upplestur: Brynjólfur Jóhannesson. Avarp: Guðmundur Einarsson. Einleikur á píanó (frumsamin lög) Sigfús Halldórsson. D A N S. (Gömlu og nýju dansarnir). Refrain-söngur: Helga Gunnars. KI. 12 NÝR 1L4LS eftir Guðmund Jóhannesson, sunginn af Kjartani Sigurjónssyni Aðgöngumiðar afhentir í Góðtemplarahúsinu frá kl, 4 e. h. á laugar dag. (Sími 3355). NEFNDIN. Verkamannafélagíð DagsbrAn heldur fund i Iðnó í kvöíd, fösfu~ daginn 13. þ. m. kl. 8,30 siðdegís. Fundarefní: Félagsmál. Afvínnuleysísmálín. Úrskurður Félagsdóms í Hafnarfírðí. Gengíslögín o$ réftíndí verklýðsfélaganna Sýníð skírfeiníð víð ínn$an$ínn. Félagssfjórnín. íþrótta- og fímleíkaæfíngai Knattspyrnufélags Reykjavíkur. tirvalsflokkur kvenna: Mánudaga kl. 8.15—9.15 Miðvikudaga — 8,15—9.15 Fimmtudaga — 8.15—9.15 1. flokkur kvenna: Mánudaga kl. 9.15—10.10 Eimmtudaga — 9.15—10.1C Stúlkur 12—15 ára: Miðvikudaga kl. 6.15—7.00 Laugardaga — 6.15—7.00 Telpur 9—11 ára: Mánudaga kl. 5—6 Fimmtudaga — 5—6 Úrvalsflokkur karla:, Þriðjudaga kl. 9—10 Föstudaga — 9—10 1. flokkur karla: Þriðjudaga kl. 8—9 Föstudaga — 8—9 Unglingaílokkur karla: Þriðjudaga kl. 7—8 Föstudaga — 7—8 Öldungadeild: .Mánudaga kl, 6.15—7.00 Fimmtudaga — 6.15—7.00 Skíða- og knattspyrnumenn: Þriðjudaga kl. 6.30—7.00 Föstudaga — 6.30—7.00 Fr jálsíþróttamenn: Mánudaga kl. 7.45—8.15 Fimmtudaga — 7.45—8.15 Handknattleikur kvenna: Miðvikudaga kl. 7.45—8.15 Handknattleikur karla: Fimmtudaga kl. 7.45—8.15 Kennarar félagsins eru: Bene- dikt Jakobsson, Vignir Andrésson. og í sundi Jón Ingi Guðmundsson, Sundæfingar verða á sama tíma og verið hefur undanfarið. Knatt- spyrnuæfingar og frjálsíþróttir byrja í íshúsinu 30. okt. og verða auglýstar síðar. K. R.-ingar sækið vel íþróttaæf- ingar félagsins. STJÓRN K. R. Dömti- og herrahaffar litaðír og gerðír upp sem nýír. Hvergí ódýrara eða betrí afgreíösla. Haffasaumasfofan Skólavörðustíg 16 A /^Vikki Mús lendir í ævintýrum. 194 Jæja, loksins náði ég í þig. — Músíus: Hversvegna eltir þú mig, ófétisstelpan þín. Magga: Þú ættir að skammast þín að verða svona montinn og ónotalegur við gamla vini. Músíus: Hvenær urðum við Magga: Þekkirðu mig ekki? — vinir, má ég spyrja? Eg er Músíus: Eg hef aldrei á æfi minni steinhissa á þessum látum. séð þig fyrr en þarna um daginn. T. F. SUN ' fór í rannsóknarleiðangur i fyrradag norður um Hofsjökul og Sprengi- sand. Agnar Kofoed- Hansen og Bergur G. Gíslason voru í flug- vélinni. Lenti hún í Kerlingaf jöllum skammt frá sæluhúsi Ferðafélagsins, en flaug þaðan norður yfir Hofsjökul og aust ur á Sprengisand og settist þar. Sáu þeir staði á Hofsjökli, sem þeir telja ákgósanlega lendingastaði.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.