Þjóðviljinn - 19.10.1939, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.10.1939, Blaðsíða 3
Þ JÓÐ VILJINN Fimmtudagurinn 19. október 1939 Stafford Cripps, enski verkalýðs- leiðtoginn ræðst í „Tribune” gegn sovétníði sósíaldemokrata. Hann leggur áherzlu á að Sovétrikin hafi ekki drýgt neinn árásarverknað, held ur aðeins gert skyldu sína sem sósía listiskt ríki. Sökina á hruni Póllands eiga stjórnir Englands, Frakklands og Póllands. „Það takmark, sem við sósíalistar teljum pess vert að berjast fyrir, er frelsi alþýðunnar”, segir Cripps, „og enginn skal fá mig til að fall- ast á að þeim málstað sé greiði gerð ur með baráttu gegn Sovétríkjun- um. Vér verðum; í eitt skipti fyrir öll að hætta allri yfirlætisafstöðu til þessarar alþýðustjórnar, og þeir sem með völdin fara verða að gera sér það ljóst, að Sovétrikin eru nú þýðingarmesti þáttur heims- stjórnmálanna. Þjóðstjórnin hefur verið plága á ensku þjóðjnni, sem hún hefði fyr>- ir löngu átt að losa sig við. Nú eru siðustu forvöð, allt er í hættu, þau verkefni, er nú bíða, „verða ekki leyst af núverandi stjórn. Ef Cham- beriainstjórnin fær að sitja áfram, aigum við dimma tíma fyrir hönd- um‘‘. ! greinarlok leggur Cripps áherzlu á að enska stjórnin hafi alltaf stutt árásarríkin og hlaðið undir Hitler, hafi hindrað varnarbandalag við Sovétríkin, þó að hún ætti kost á þvi. Sem afleiðing af þessu hafi þjóðstjórnin steypt Bretlandi út í skelfilega og langvarandi styrjöld. Fulltrúi kínverska herforingjaráðs ins hefuir í viðtah við blöð sagt álit sitt á ósigrum Japana í Hunan- fylki. Á hinum 27 mánuðum, er styrjöld ^ln í Kína hefur staðið, hafa Japanir aldrei beðið annan eins ósigur. Eft- ir sex mánaða undirbúning hófu Jap anir stórkostlega sókn í átt til Changsa, höfuðborgar Hunan-fylk- is. Kínverska herstjórnin hafði fyr- irfram ákveðið hernaðaraðferð sína gegn þessari sókn. Á miðjum víg- stöðvunum hörfaði kínverski herinn hratt undan, en réðist síðan með ölhnn kröftum á hliðarheri Japana. Eftjr þriggja daga látlausar or- ustur urðu Japanir að hefja undan- haldið, og biðu hinn herfilegasta ósigur, þrátt fyrir það að þeir hefðu 100000 manna lið á þessum slóðum og óskaplegt magn hergagna. S. /. S. þessi góðkunna skamrn- stöfun er álíka þekkt i Sovétrikj- unum og á fslandi, en austur þar eru stafirnir skammstöfun fyrir „Savod ímeni Stalina”, nafnfræg bifreiðaverksmiðja, sem hoitir í h'öf- uðið á Stalin. Hvað skyldu þeir Jónas og Jón Árnason segja um þessa ósvífni Rússanna? Nýsoðín Svíd daglega Kaffísalan Hafnatrsfrætí 16 Athyglisverð menn- ingarstarfsemi -t Ágúst Sígurðsson cand, mag. shýrír frá námsflokkum Reykjavíkur. Námsflokkar Reykjavíkur hófu starfsemi sína í fyrravetur og veitti Ágást Sigurðsson cand. mag. þeim forystu. Nú eru náms- flokkar þessir að byrja starfsemi sína að nýju. Strax í fyrra tóku menn þessari viðleitni hið bezta 5 og sóttu fleiri um en hægt var að taka. Sú mun raunin verða á aft- ur í vetur. Bæjársjóður Reykjavíkur sér um kostnaðarhlið námsflokkanna að öllu leyti nema, hvað nemendur greiða 5 króna inntökugjald. Þjóðviljinn átti í gær stutt við- tal við Ágúst Sigurðsson um náms flokkastarfsemi þessa og fer frá-. sögn hans hér á eftir: Námsflokkastarfsemin á rætur sínar í Svíþjóð. Þar var hún tekin upp fyrir rúmum 25 árum og er hún nú orðin útbreidd um allt lándið. Þegar eg dvaldi í Sví- þjóð kynntist eg starfsemi þessari og tilraunir mínar hér heima eru sniðnar eftir sænskum fyrirmynd- um, þó að enn séu þær á byrjun- arstigi. Takmark námsflokkanna er að gefa mönnum, sem notið hafa al- mennrar barnafræðslu og eins þeim, sem sótt hafa fræðslu í al- mennum skólum kost á fram- haldsnámi, samhliða öðrum störf- um. Er nemendunum leiðbeint hvernig þeir geti bezt náð árangri og aflað sér s*taðgóðrar þekkingar í þeim námsgreinum, sem þeir leggja einkum hug á. Hefur sænsk reynsla sýnt, að námsflokkafyrir- komulagið hefur gefizt ágætlega. Menn sem höfðu atvinnu og áttu annars engan kost á skólagöngu, hafa getað aflað sér þekkingar í einni eða fleiri námsgreinum, án þess að hverfa frá vinnu, meðan á náminu stóð. Þá tel ég starfsemi sem þessa einkar hentuga fyrir atvinnulausa eða atvinnulitla unglinga. Þeim er tvímælalaust betra að glíma við námsverkefni en að láta tímann ganga úr greipum sér að fullu eins og oft vill verða annars ef engin verkefni eru fyrir höndum. Loks vil ég koma að einu atriði sem mér finnst mjög mikilvægt. Þó að námsflokkastarfsemin hafi enn sem komið er aðeins verið reynd hér í Reykjavík, þá hika ég ekki við að fullyrða, að hún á engu siður erindi til sveitanna og smábæjanna. Það er að vísu ekki Móðír ohhar Sígriður Magnúsdóttír Ágúst Sigurðsson. við því að búast, að þar verði alls- staðar völ á sérfræðingum til kennslu í hverri námsgrein, en án þeirra mætti komast langt ef vel er áhaldið. I Svíþjóð eru náms flokkarnir útbreiddir um allt land- ð, og það er takmarkið, sem ég tel okkur eiga að keppa að hér. Eg álít að bæjarstjórn Reykja- víkur eigi þakkir skilið fyrir að hafa tekið þessu menningarmáli vel þegar í byrjun. Ðtbreiðið Þjóðviljann andaðíst í gærmorgun eftír stutta legu. Steínunn Árnadóttír Ársaell Árnason Þórhallur Árnason Guðkjörg Árnadóttír Magnús Á. Árnason Ingíbjörg Árnadóttír Póstferðir 20. okt. 1939. Frá Reykjavík: Mosfellssveitar- Kjalarness, Reykjaness, Ölfuss- og Flóapóstar, Hafnarfjörður, Fljótshlíðarpóstur, Austanpóstur, Akraness, Borgarness, Snæfells- nesspóstar, Stykkishólmspóstur, Norðanpóstur, Dalasýslupóst.ur. Til Reykjavíkur: Mosfellssveit- ar, Kjalarness, Reykjaness, Ölfuss og Flóapóstar, Laugai'vatn, Hafn- arfjörður, Meðallands- og Kirkju- bæjarklausturspóstar, Akraness, Borgarness, Norðanpóstar og Strandasýslupóstar. 4:1.1 Í3 TélskipM Oelgl hleður tíl VestmannaeYja næsthomandí taugardag. Stúlkur geta fengið margar ágætar vist- ir. Upplýsingar Vinnumiðlunar- skrifstofunni (Alþýðuhúsinu). Lesendor! Skíptíð við þá, sem auglýsa í Þjóðvíljamim HAsmæðnrl Svo sem shýrt var frá hér í blaðínu 10. þ. m. hafa rannsóhnír leítt það i ljós. að Gerílsncydíng (í stassanovél) rýrír ekkí fínnanlega C-fjörvísmagn mjólkurlnnar. Sýníshorn af sömu mjólk á undan o$ eftír stassaníseríngu# sýndu sama C- fjörvísmagn eftír gerílsneyðlnguna og fyrír hana. Slcpptu mér — haSíis mér Sól oq syndir K5 /Áikki TÁús lendir í ævintýrum. 197 Þá er að athuga hvernig maður kemst héðan. Strák- urinn, sem kallar sig kon- ung, sagði að allsstaðar væru varðmenn. Og ég sé að hann sagði það satt. „Halló, hvernig komst þú hing- að?” „Eg — ég ætlaði bara að heimsækja — Það þýðir ekki mikið, dúfan mín litla. Farðu burtu héðan strax eða þú skalt eiga mig á fæti. Hér mega engir kvenmenn koma, segir konungurinn. Magga: Eg hef nú aldrei vitað aðra eins með- ferð á heiðarlegri konu!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.