Þjóðviljinn - 22.10.1939, Qupperneq 4
þJÓÐVHJINN
Or borglnnl
Næturlæknir: I nótt og aðra
nótt Halldór Stefánsson Ránar-
götu 12, sími 2234; helgidags-
læknir: Kristján Grímsson, Hverf-
isgötu 39, sími 2845.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki.
Næturakstur. í nótt Aðalastöð-
in, sími 1395.
Námsflokkar Reykjavikur voru
settir í gærkvöldi í Baðstofu iðn-
aðarmanna.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir í
kvöld sjónleikinn Brimhljóð, eftir
Loft Guðmundsson. Aðgöngumið-
ar seldir í dag eftir kl. 1.
Hjónaband. I dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú ölöf
D. Úlfarsdóttir og Andrés Jóns-
son klæðskeri. Heimili þeirra verð-
ur á Þjórsárgötu 3.
Frá höfninni: Kári og Tryggvi
gamli komu af veiðum í gær.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
á Austurvelli í dag kl. 3 ef veður
leyfir.
Hið íslenzka prentarafélag held-
ur fund í dag kl. 3 e. h. í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu.
Útvarpið í dag.
11.40 Veðurfregnir. s
11.50—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.30 Miðdegistónleikar
(plötur).
Ýms tónverk.
17.00 Messa í Dómkirkjunni (séra
Bjarni Jónsson).
19.30 Hljómplötur: Létt klassisk
lög.
19.40 Auglýsingar.
19.45 Fréttir.
20.10 Veðurfregnir.
20.20 Hljómplötur: Islenzkir kór-
ar.
20.30 Erindi: Stephan G. Step-
hansson. I. (Sigurður Nordal
prófessor).
20.55 Útvarpshljómsveitin leikur:
Syrpa af norskum þjóðlögum.
Tvísöngur (frú Elísabet Einars-
dóttir og frú Nína Sveinsdóttir)
a) Eg man þá tíð. b) Þó leið
liggi um borgir. c) 1 rökkursöl-
um. d) Heill þér fold. e) Ein
yngismeyjan. f) Dýrðarfagri
dalur vænn. g) Það laugast
svölum úthafsöldum.
21.30 Kvæði kvöldsins.
21.35 Danslög.
(21.50 Fréttir).
23.00 Dagskrárlok.
tJtvarpið á niorgun:
11.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
12.50 Enska, 3. fl.
16.00 Veðurfregnir.
19.05 Þýzka, 2. fl.
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
19.40 Auglýsingar.
19.45 Fréttir.
20.10 Veðurfregnir.
20.20 Hljómplötur: Földesy leik-
ur á celló.
20.30 Um daginn og veginn (Sig-
fús Halldórs frá Höfnum).
20.50 Samleikur á tvö píanó (Egg
ert Gilfer og Fritz Weisshapp-
el): Sónata í F-dúr, Op. 51,
eftir Dvorák.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
■ps Ný/ab'io a§
dal rísatrjánnal
frá Ý
Amerísk stórmynd
VVarner Bros.
Aðalhlutverkin leika: -
Claire Trevor og
Wayne Morris.
Öll myndin er tekin í eðlileg-
um litum.
Sýnd kl. 7 og 9.
HAMINGJAN BER AÐ
DYRUM
Amerísk skemmtimynd leik-
in af
Shirley Temple.
Sýnd fyrir börn kl. 3 og 5.
Síðasta sinn.
G&mlal3ib %
«••
Olympíuleikarnir I
•?•
1936
Síðari hlutinn:
„Hátíð fegurðarinnar. *•*
f
Sýnd í dag kl. 9. *g
Þar sézt m.a, úrslitakeppni í !•!
tugþraut, *|*
knattspyrnu, *
•;•
kappsiglingu- og róðri, X
linefaleik, •;•
t
sundi og dýfmgum. y
?
sýndur í dag á barnasynmgu *t*
kl. 5, á alþýðusýningu kl. 7. *|*
* j
og í síðasta sinn kl. 9. *»*
. *i*
I
I
1
w.;-:-:-:-:-:-:-:-;-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:..:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:**:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:;
| Leikfélag Reykjavíkur: |
„Brimhljóð”
* sjónleikur í 3 þáttum eftir Loit Guðmundsson
I
f
f
«;«
SÝNING 1 KVÖLD KL. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 i dag.
Kaupíö og dýrtfdín,
Framhald áf 1. síðu
lýðsfélagið á fætur öðru hefur
krafizt þess að þetta hrópandi
ranglæti verði tafarlaust afnumið,
en svar stjórnarvaldanna er þögn
og þrjózka. Ríkisstjórnin sparar
ekki að gefa út bráðabirgðalög nú
á síðustu tímum og skulu þau ekki
öll átalin, en það gengur
treglegar fyrir henni að verða við
óskum verkamanna og samtaka
þeirra í þessum efnum, en þegar
Stefán Jóhann Stefánsson þurfti
að beita alþýðu ofbeldi í bygg-
ingafélagsmálunum sællar minn-
ingar.
Vaxandi dýrtíð krefst þess að
láglaunastéttum landsins verði
leyft að hækka kaup sitt sem dýr-
tíðinni svarar. Engin sanngirni
getur mælt á móti þessari kröfu.
Ef alþýðan stendur sameinuð
tekst engri ofbeldisstjóm að
standa gegn henni til lengdar.
Siguiður Guðmundsson skrif-
stofustjóri hjá Eimskip er sextíu
ára í dag, hefur hann starfað í
þjónustu félagsins síðan það var
stofnað.
Messur í dag: I dómkirkjunni
kl. 11 f. h. Friðrik Hallgrímsson
og kl. 5 e. h. Bjarni Jónsson; í
Fríkirkjunni kl. 2 og kl. 5 Árni
Sigurðsson.
Hlutavelta Fram verður í dag
kl. 4 í íshúsinu við Slökkvistöðina.
Á hlutaveltunni er margt ágætra
muna og má þar nefna 750 krón-
ur í peningum, 500 í einum drætti,
sem verða afhentar á hlutavelt-
unni. Auk þess eigulegir munir.
Inngangurinn kostar 50 aura, og
hver dráttur 50 aura. Hljómsveit
leikur allt kvöldið.
Ikviknun. 1 fyrradag kviknaði í
Þvottahúsi, sem er áfast við hús-
ið nr. 10 við Lauganesveg í Hafn-
arfirði. Varð allmikill eldur í hús-
inu, en brátt tókst þó að ráða nið-
urlögum hans. Talið er að kviknað
hafi út frá rafmagni.
Valsmenn: Æfing í II. flokki í
dag kl. 10,30 árdegis ef veður
leyfir.
— Ég er kominn hingað til yðar
prestur minn, til að skýra frá þvi,
að hún Stína mín og kýrin duttu í
inógröf í gærkvöldi. Til allrar ham
ingju gat ég þó bjargað henni aftur.
Presturinn: — En hvað varð um
kúna? ,
— Það var heimi sem ég bjargaði,
en Stína drukknaði.
Kínverskur stjómmálamaður, er
var mjög frægur á síðari árum
keisaradæmisins var einu sinni á
ferð í Evrópu. Maður nokkur vildi
sýna hinum aldraða kínverska stjórn
málaskörungi sóma og sendi honum
hund af völdu kyni að vinargjöf.
Kínverjinn tók á móti gjöfinni og
ritaði gefandaniun eftirfarandi bréf:
Vegna heilsu minnar gat ég ekki
neytt liundsins, en fylgdarinenn mín
ir iwrðuðu liann og ég get sannfært
yður um, að þeim smakkaðist hann
ágætlega.
Hvað er að sjá þig maöur, að
þú skulir vera svínfullur dag eftir
dag.
— Ég er að drekkja sorgum mín-
um, en þær vilja alltaf fljóta ofan
á og því fer sem fer.
GÓÐ RÁÐ
Ullarföt skulu ætíð þvegin og
skoluð úr heitu vatni, svo að þau
hlaupi siður. Varast skal að dýfa
peim í kalt vatn.
Það er oft sterk lykt i nýmáluðum
herbergjum. Til þess að ráða bót
á því, er ágætt að skera lauk nið-
ur á disk og setja diskinn inn í
herbergið. Minnkar þá lyktin að
miklum mun.
Ef tei er hellt í glerkönnu, verö-
ur hún oft gul að innan. Þessum
lit má ná burtu með því að nudda
könnuna innan með þurru salti.
I Sfefna Sovéiríkjanna.
.Framhald af 3. síðu.
nú orðinn drottnandi aðili við Eyst
rasalt. Bretar mótmæla en lýsa því
jafnframt yfir að þeir fari ekki í
strið við Rússland. Með öðrum orð
um: „Við þorum ekki“. Svo lágt
hefur brezka lieimsveldið orðið að
lúta. Við þetta bætist, að Þjóðverj-
ar neyðast tii að halda miklu af
þerstyrk sínum í Póllandi af ótta við
Rauða herinn og óeirðir í hinu her-
tekna landi. Og samt sem áður verða
þeir að setja upp sitt sætasta bros
og iáta eins og þéttá sé allt saman
gott og blessað.
j íbúar rússnesku landanna innan
]>ólska ríkisins hafa i 20 ár verið
undirokaðir af Pólverjum ineð ó-
: bærilegum sköttum og kvöðum
! pólsku landeigendanna og pólsku
fasistastjórnarinnar. Næstum árlega
hefurallt logað þarna í uppreisnum,
enda er „galisísku eymdinni’’ við-
• brugðið. Eitt árið lét stjórnin brenna
J til ösku 800 þorp (1930). Nú er
landi pólska aðalsins skipt á milli
! bændanna. í stað skattanna og kvað'
! anna fá þeir nú traktorstöðvar.
1 stað þess að komast undir yfirráð
annars enn illkynjaðra fasistarikis
fá þeir nú að tala mál sitt og rækja
þjóðiega menningu sina. Þeir fá
að senda börn sín á úkrainska og
hvítrússneska skóla. Og þeir fá að
byggja upp sitt sósíalistiska þjóð-
Ifélag í friði fj’rir erlendri yfirstétt,
sem lifað hefur sníkjulífi á landi
þeirra.
Sumir vorkenna aumingja Pólverj-
unum þetta. En ég þjáist ekki af
meðaumkun með pólsku landeigend
unum né heldur með fyrrverandi
fasistastjóm Póllands fyrir að fá
ekki að iofa þýzka fasismanum að
taka þessi lönd herskildi.
Sumir harma, að Rússar skyldu
ekki virða gamla samninga við
Pólland eftir að það var liðið und-
ir lok. Þeir menn hljóta líka að
harma það, að þeir skyldu ekki
virða Brest-Litovsk-samninginn,
eftir ósigur Þýzkalands. — Þá
eru enn aðrir, sem harma það að
Rússar skyldu ná hagkvæmum
samningum við Eystrasaltslöndin,
ef það hefði kannske verið ríkis-
stjórnum þessara landa á móti
skapi. Eins og kunngt er, eru rík-
isstjómir þessar hálffasistiskar
kúgunarstjórnir, sem eru komnar
þannig til valda að alþýða þessara
landa var brotin á bak aftur með
þýzku hervaldi og hefur verið und
irokuð síðan. Síðan hafa þessi lönd
verið háð þýzku oo brezku drottn
unarvaldi, sem togazt hefur á. Al-
þýða þessara landa hefur krafizt
hernaðarbandalags við Sovétríkin
í samræmi við ótvíræða hagsmuni
þjóðanna. Og svo finna menn til
með ‘einhverjum yfirstéttarklik-
um, sem ekki komast upp meðs
það lengur að vera leppar er-
lendrar yfirdrottnunarstefnu gegn
sinni eigin þjóð. Menn eru tilfinn-
inganæmir nú á tímum.
Ef sovétstjórnin hefði hlaupið
eftir slíkum bamaskap, þá væru
Sovétlýðveldin ekki það stórveldi
sem þau eru í dag, heldur myndu
þau sennilega ekki vera til.
Að vonum spyrja menn hvort
allt þetta sé ekki hjálp við þýzka
fasismann, sem menn þrá umfram
allt að verði þjarmað að. En það
þarf ekki mikla glöggskyggni til
að sjá, að aðgerðir Sovétstjórnar-
innar eru stærsta áfallið, sem
Hitler. hefur fengið. Jafnvel
franska ríkisútvarpið sagði fyrir
nokkrum dögum, að í raun og
veru væri innrás Hitlers í Póllandi
lokið með ósigri fyrir Þjóðverja
— ekki fyrir Bandamönnum, held-
ur fyrir Rússum.
m.
Hvað kemur næst spyrja menn ?
Hver verða endalok og úrslit
þessá stríðs? Það sem við fyrst
og fremst vonum og þráum er að
Hitlerfasisminn líði undir iok.
Það er óvarlegt að spá nokkru
um rás viðburðanna. En svo fram-
arlega, sem stríðið dregst á lang-
inn, er ekki hægt að hugsa sér
önnur úrslit, en ósigur Þýzka-
lands og hrun Hitlersfasismans.
Ástæðurnar fyrir því að Hitler
getur ekki haldið út í langvinnu
stríði eru þær sömu og fyrir því,
að hann þoldi ekki friðinn. Hann
vantar hráefni, matvæli og fjár-
magn, hann hefur þorra þjóðar-
innar á móti sér og á i ófriði, sem
á hverri stundu getur tekið á sig
mynd alvarlegra vopnaviðskipta,
við þær þjóðir, sem hann hefur
lagt undir sig.
Þjóðir Sovétríkjanna treysta
því og við treystum því að alþýð-
an í Þýzkalandi verði þess megn-
ug að taka völdin, þegar Hitler er
að þrotum kominn. En Chamber-
lain þykist líka hafa sín tromp á
hendinni. Hann treystir á þýzkar
herforingjaklíkur, er ryðji Hitler
úr vegi og bindi trúss sitt við
Bretland. Hann treystir því, að
honum takist með aðstoð slíkra
bandamanna að skapa Þýzkaland,
er verði einskonar fjárhagsleg ný-
lenda Bretiands, í enn ríkara mæli
en Weimarlýðveldið var, Þýzka-
land, sem hægt yrði að nota
gegn Sovétríkjunum. Að upp úr
þessu stríði takist honum að
skapa allsherjar-auðvaldsfylkingu
gegn Sovétríkjunum.
Hvort brezka heimsveldið fær
eitthvað af þessum óskum sínum
uppfylltar, eða hvort alþýðan
í Þýzkalandi sigrar, fer eingöngu
eftir því, hvort þýzki verkalýður-
inn reynist hlutverki sínu vaxinn.
En í báðum tilfellunum er gott
fyrir Sovétlýðveldin að geta mætt
því sem að höndum ber með öllum
sínum styrkleika. Ef bragð Cham-
erlains skyldi takast, er gott fyrir
Sovétlýðveldin að hafa haldið á-
fram hinni sósíalistisku uppbygg-
ingu og styrkt herstöðu sína og
hervarnir, meðan andstæðingarnir
veiktu sig í innbyrðis styrjöld. En
ef alþýðan í Þýzkalandi sigrar, þá
verður væntanlega gert hernaðar-
bandalag milli Þýzkalands og Sov-
étríkjanna. Þá á hið nýja Þýzka-
land á hættu vopnaða innrás
brezka og franska auðvaldsins,
eins' og Rússland áður. Og vissu-
lega er þá gott fyrir Þýzkaland
og alþýðu allra landa ,að Sovétrík
in hafi atvinnulíf sitt og hervarn-
ir í fullu lagi meðan Bretar og
Frakkar hafa þreytt sig á stríði.
Það er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir öllu þessu, þegar at-
huguð er utanríkispólitík Rúss-
lands ,frá sjónarmiði Sovétlýð-
veldanna og verkalýðshreyfingar-
innar í heiminum.
Þó að þýzki fasisminn sé erki-
óvinurinn á núverandi tímabili, þá
má ekki gleyma hinu, að brezka
auðvaldið er sterkasti óvinurinn.
í siðasta stríði fékk verkalýð-
urinn sitt fyrsta stóra tækifæri
og sigraði á sjötta hlutanum af
yfirborði jarðarinnar. Nú eru
horfur á að hann fái sitt annað
í stóra tækifæri og við skulum
; vona að það verði notað betur en
síðast, enda óliku saman að jafna.
Nú hefur verkalýðurinn ekki ein-
ungis auðgazt að reynslu síðustu
styrjaldar, heldur hefur hann líka
sósíalistiskt stórveldi sér við hlið.
Það er engin ástæða til bölsýni.
Enda þótt við eigum (þjáninga-
tímabil framundan um stund, get-
um við litið björtum augum á
framtíðina.